Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 16.08.1984, Blaðsíða 20
700. tölublað 150. árg. Ábyrgð AB Eins og fram kemur annars staðar í Aðalblaðinu hefur rit- stjórn AB þurft að biðjast velvirðingar á frétt sem birtist annars staðar í blaðinu um ósæmilega hegðan Ólympíu- liðsins íslenska. Þar var um að ræða frásögn af framkomu íþróttamannanna, keppinauta þeirra í Los Angeles og til áfellis fyrir eitt af stórhótelunum þar í borg. Við nánari athugun kom í ljós að fréttin reyndist slúður. Að vísu gerði Ólympíuliðið sig sekt um agabrot en í heild hafa málsaðilar verið bornir röngum sökum. Allt hefur nú verið dregið til baka og beðist afsökunar á öllu. íslensku Ólympíufararnir hafa staðið sig afbragðsvel og ekki við þá að sakast að við hrepptum ekki fleiri gull. Eða silfur. Eða brons. Allar dylgjur um að ósæmileg framkoma að næturlagi á stórhóteli í Ölympíuborginni hafi verið or- sök slælegrar framgöngu íslensku Ólympíufaranna er AB til vansa. Óíþróttamannsleg hegðan Ólympíuliðsins ís- lenska, eins og frétt AB lýsir, er til þess eins að kasta rýrð á frammistöðu liðsins og mótherja þeirra sem velgdu þeim undir uggum. Ritstjórar AB, auglýsingastjóri og blaða- menn sem í hlut eiga viðurkenna mistök sín og harma að þau hafi átt sér stað. Kjarni málsins er sá, að heimildir sem blaðið taldi traustar á barnum þetta kvöld, reyndust ekki réttar. Slík tilvik geta alltaf átt sér stað. Og eiga sér stöðugt stað. Þau eru ekki afsökun, heldur skýring á frétt sem er ekki frétt heldur slúður og slúður er ekki frétt heldur af- sökun á rangri frétt. Og slíkt gerist. Þá er ekki við blaða- menn að sakast þótt þeir sitji uppi með ábyrgðina. Þetta leiðir hugann og athyglina að þeirri ábyrgð sem AB ber, því allt er þetta lesið og hefur áhrif. Áreiðanleiki AB, traust þess og trúnaður gagnvart lesendum og viðmælendum er undir því kominn að fréttir og frásagnir séu heiðarlegar og réttar. AB er útbreitt blað. Útbreiðslan, vinsældir blaðsins og þau miklu áhrif sem það hefur í þjóðlífinu stafa fyrst og síðast af þeirri ástæðu að fólk hefur getað treyst heiðar- leika, einurð og þori blaðsins. Og hlutverk AB mun aldrei breytast þrátt fyrir þessa röngu frétt og allar hinar fréttirn- ar sem við höfum beðist afsökunar á. Markmiðið verður alltaf það sama: að skýra rétt og satt og rétt frá því sem al- menning varðar um. ebs. SIMSEND MYNDÍ FYRRADAG Allt á fleygiferð í sukkveislum íslensku Ólympíufaranna á Hotel Hardcore í Los Angeles. Ekkert gull, ekkert silfur, varla brons: Ólympíufararnir rænulausir f sukki og svfnaríi iií Skýringin á því hvers vegna Ólympíufarar íslands hlutu ekki fleiri gull, silfur og brons í Los Angeles er fundin. Rann- sóknarblaðamaður Aðalblaðs- ins í Ameríku hefur það eftir þeldökku þernunni Miss Squeeler sem vinnur á Hotel Hardcore í LA, að Ólympíu- nefndin hafi sukkað á ákveðn- um herbergjum allt til morguns. ,,Ég skil vel að íslensku Ólympíufararnir hafa ekki fengið medalíur," sagði Miss Squeeler, „þeir lágu í stöðugu svalli og sukki á herbergjunum fram á morgun. Sérstaklega var ástandið slæmt hjá loftfimleikaliðinu. Það rann ekki af þeim.“ Aðalblaðið hefur það einnig eftir mjög áreiðanlegum heimild- um að fararstjórarnir hafi átt fullt í fangi með að reka lauslátar kon- ur af herbergjum Ólympíufar- anna. Var svo komið að iþróttamennirnir voru vart kallaðir annað en „Piufararnir", sem er náttúrlega óheppileg stytting. Ekki hefur náðst í íslensku Ólympíufarana en fréttamaður AB heyrði það á barnum í gærkvöldi að einhver íslensku íþróttamannanna ætti að hafa sagt: „Ekki er allt gull sem glóir “ og „Betra er föl kona í hendi en silfur í skógi." Ekkert sukk Ólympíufaranna — Leiðrétting á sukkfrétt Á sídu Adalbladsins í dag er birt frétt undir fyrirsögninni „Islensku Ólympíufararnir rænulausir í sukki og suínaríi!!!" og þar er greint frá þuí ad íslensku Ólympíufararnir hafi ekki fengid neitt gull, ekkert silfur og uarla brons uegna þess ad þeir hafi legid allar nœtur rœnulausir í sukki og suínaríi á Hotel Hardcore í Los Angeles. Blaðamaðurinn sem skrifaði þessa frétt hafði mjög góðar heim- iidir fyrir henni og skrifaði hana í góðri trú. Nú hefur hins vegar komið í ljós að heimildir voru að mestu leyti rangar. Ekkert var sukkað á hótelherbergjunum, Miss Squeeler, aðalheimildamað- ur fréttarinnar, er ekki til, ekki er neitt Hotel Hardcore í LA, og ekkert loftfimleikalið var sent frá Islandi. Hins vegar er skylt að geta þess að einn fararstjórinn fékk sér stundum djúsglas fyrir svefninn. Það breytir hins vegar ekki því að áðurnefnd frétt er í öllum aðal- atriðum tilhæfulaus og eru hlutað- eigendur beðnir velvirðingar á henni. Ritstj. P.S. Ólympíufararnir íslensku voru heldur aldrei kallaðir „Píu- fararnir." Sami. ¥ ¥ ¥ * ¥ ¥ ¥ -■¥ ♦ ¥ ¥ Stetngrímur er $e3tur 1 M> „I’m home, yes sir,“ sagði Stein- grímur Hermannsson er hann sté út úr flugvélinni sem flutti hann til landsins í gærkvöldi. „Ég er Iíka sammála Albert. Ég vil gjarnan fá Þorstein inn í ríkisstjórnina. Þetta er hins vegar þeirra mál, Alberts og strákanna í flokknum — The boys in the band — ég er nefnilega búinn að fá mér nýtt djobb. Ég get sagt þér það alveg í trúnaði, ef þú lofar að fara ekki lengra með það — off the record — ég ætla að snúa mér að kúrekasöng með Hallbirni káboj á Skagaströnd. Ég hef alltaf verið hrifinn af menningararfi Ameríkana, og sjálfum kúreka- söngnum, áhrifa hans gætir til dæmis dálítið í íslenska þjóð- söngnum. Ég ætla því að helga mig þessari menningu. Yess sirrr!,“ sagði fyrrum forsætisráð- herra að lokum. Steingrímur Hermannsson t.h. í hópi háttsettra gesta Ólymp- íuieikanna: „Yes sir!“ + * + + + + + + * + * + + + *■**■** + * *.# + ****);i + V + V + V + V + V + V + V + V + V 20 helgarpósturinn

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.