Helgarpósturinn - 30.08.1984, Síða 3

Helgarpósturinn - 30.08.1984, Síða 3
legar skoðanir og aðstæður hafa ýtt okkur báðum til hliðar í Sjálfstæðisflokknum. En að hann ráði eitthvað yfir þessu blaði er eins mikil firra og að segja að ég ráði yfir ríkisstjórn- inni. Ég hef haft á því áhuga í mörg ár að gefa út blað og gerði meðal annars tilboð í ykk- ar ágæta Helgarpóst, sem ekki gekk upp. Ég hef ákveðnar skoðanir og vil koma þeim á framfæri og vinna þeim fylgi." — Verður þetta gríðarlegt hægri blað? „Nei, það verður það ekki. Blaðið verður ekkert hrætt við að einstaklingar græði peninga vegna þess að því fleiri sem gera það þeim mun betri verð- ur þjóðarhagur. Það verður líka tekið á samhjálpinni sem víða er komin út í öfgar og fleira verður tekið fyrir sem einhverjir vilja kannski flokka undir harða hægri stefnu. En það verður ekkert í blaðinu sem ekki er hægt að flokka undir góða mannúðarstefnu." — Hvaða stefna verður tekin „Ekki neitt málgagn fyrir Alberty/ ★Nýtt vikublað hefur göngu sína 7. september næstkom- andi og mun að öllum líkindum bera nafnið ísafold. Ekki eru allir sáttir við það og í athugun er hvort Árvakur hf., sem gefur út Morgunblaðið, krefjist lög- banns á þeirri forsendu að út- gefendur eigi ekki rétt á þessu nafni. Nýja blaðið verður í dag- blaðsbroti og ritstjóri verður Ásgeir Hannes Eiríksson versl- unarmaður. — Hverskonar blað verður þetta, Ásgeir? „Það má segja að efnið verði þrískipt. Númer eitt er allskonar almennt efni fyrir fjölskylduna, þýtt og frumsamið, skemmti- efni og fróðleikur. í öðru lagi höfum við mjög ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og þær verða kynntar þarna. Loks verður blaðið einskonar skatta- lögregla almennings á ríkinu. Fjármálaráðherra er að ráða 24 nýjar skattalöggur til þess að líta eftir okkur og þá er vel við hæfi að við höfum einhvern til að kíkja í kassann hjá honum." — Nú er því einmitt haldið fram að þetta blað verði sér- stakt málgagn Alberts. „Það er tóm vitleysa. Við Albert eigum margar sameigin- í t.d. landbúnaðar-, sjávarút- vegs- og utanríkismálum? „Hvað landbúnað snertir vilj- um við draga verulega úr sam- þjöppun valds á hendur fárra aðila og milliliða. Bændur þurfa að vera í beinni tengslum við neytendur. I sjávarútvegsmál- um á hiklaust að láta menn fara á hausinn ef þeir geta ekki rek- ið sitt hallalaust, það er ekki hægt að reka lengur þessa byggðastefnu í sjávarútvegi. Hvað snertir utanríkis- og öryggismál þá þarf að endur- nýja varnarsamninginn og breyta honum í mörgum atrið- um. Það þarf að ganga þannig frá málum að Island sé ekki bara einhver varðstöð fyrir Bandaríkin."A BUCHTAL Gólf — Veggflísar V e stnr-þýsk: gæðavara ú.ti sem inni á viðráðanlegru verði. Komið ogr skoðið eitt mesta úrval landsins af flísum í sýningarsal oickar. Sjón er sögu ríkari Staðgreiðsluafsláttur eða afborgunarskilmálar. BUCHTAL FEGURÐ — GÆÐI—EMDHSTG OPIÐ: mánudaga — fimrntudaga kl. 8—18,föstudaga kl. 8—19,laugardaga kl. 9—12. I BYCGlNGflVOBUR ( HRINGBRAUT Byggingavörur Gólfteppadeild Simar: 28-600 28-603 Timburdeild ............. Málningarvörur og verkfæri Flísar og hreinlætistæki .. 28-604 28-605 28-430 ) Ertu háfleyg? Jannetta Christian: „Ekkert sérstaklega, nema þegar mér er skotið úr fall- byssu." — Hvað er snotur stúlka eins og þú að gera í svona atvinnugrein? „Ætli það sé ekki í og með ævintýraþrá. Þetta verður jú að kallast óvenjulegt starf og það eru ekki allir sem er fýrað tvisvar á dag." — Hvað kom til að þú fórst út í þetta? „Ég hafði verið að vinna í leikhúsi en missti þá vinnu. Ég sá auglýst eftir mannlegri fallbyssukúlu og ákvað bara að fara og sækja um." — Hefurðu fengist við aðrar svipaðar kúnstir? „Ekkert beinlínis svipað þessu. En í leikhúsinu varð ég oft að leika ýmsar kúnstir, fara kollhnísa og heljarstökk á steingólfi og þar frameftir götunum. Þannig að ég hef oft gert ýmislegt sem áhætta hefur falist í." — Hvaða skilyrði þurfa menn að uppfylla til að fá svona starf? „Þeir þurfa að hafa stáltaugar, vera í góðri þjálfun og ekki alltof vel gefnir." — Ertu óróleg áður en þér er skotið? „Nei, nei. Hinsvegar er ég alltaf dauðhrædd. Ég er svo hrædd að það þýðir ekkert að reyna að tala við mig. Á eftir líður mér hinsvegar dásamlega. Mér finnst eins og ég sé sloppin úr miklum háska." — Voru margir umsækjendur um starfið? „Já, fjölmargir. Sem segir nokkuð um greindarvísitölu heimsbyggðarinnar. Ég veit ekki hvort ég hefði haft kjark í þetta ef ég hefði ekki þurft að keppa við svona marga. En ég þurfti virkilega á vinnu að halda og því var ekki um annað að ræða en bíta á jaxlinn og láta sig hafa það." — Hvað er þér skotið langt? „Vegalengdin er á bilinu 100 til 150 fet." — Hvernig líður þér á leiðinni? „Mér finnst ég vera hátt uppi." — Hefurðu einhverntíma lent fyrir utan netið? „Nei, ekki ennþá. Hinsvegar munaði ekki miklu í kvöld. Ég lenti illa og festi fótinn í netinu þannig að ég er haltrandi núna." — Veistu til þess að kollegar þínir f greininni hafi orð- ið fyrir slysum? „Ég veit ekki um neinn sem hefur lent fyrir utan netið. Hins- vegar veit ég að það hafa orðið slys. Þau verða oftast með þeim hætti að menn hendast upp af netinu og útfyrir það og þá geta orðið nokkur meiðsli. Ég veit um einn sem hentist út- fyrir netið og lenti á einum hælnum sem notaður er til að halda því uppi. Það var Ijótt slys." — En þér hefur ekki dottið í hug að hætta? „Nei, þetta er nú einusinni mitt starf. Auðvitað hugsa ég um hætturnar í hvert einasta skipti sem mér er skotið upp og ég er hrædd um að eitthvað komi fyrir. En það þýðir ekki að láta svoleiðis á sig fá. Ég held áfram meðan taugarnar eru ekki verri en þær eru núna." — Er þetta dálítið gaman? „Er ekki alltaf dálítið gaman að því sem er mikið spennandi? Það er gríðarlega spennandi að vita hvort maður sleppur lifandi og ómeiddur frá hverju skoti. Þetta er stöðug spenna og það má því kannski segja líka að þetta sé stöðugt gaman." Gestir á Heimilissýningunni í Laugardalshöll fylgjast mjög spennt- ir með því þegar „mannlegu fallbyssukúlunni" Jannettu Christian er skotið háft íloft upp. Við spjölluðum við þessa djörfu ungu konu. HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.