Helgarpósturinn - 30.08.1984, Side 16

Helgarpósturinn - 30.08.1984, Side 16
JAZZ Jassbylgjan Keith Jarrett: Standards, vol.l. (ECN 1255) Dreifing: Gramm. Pá er nýja skífan hans Keith Jarretts komin til landsins og er mikil unun að bregða henni á fóninn. Einsog nafnið ber með sér er efnis- skráin hefðbundin, amerísk sönglög sem djassmönnum eru kær og er gaman að heyra píanómeistarann glíma við þekktar hljómaraðir eftir áralanga einleikskonserta, þarsem spunnið hefur verið tímunum saman og sveiflast milli rómantísks impressjónisma og rýþmískra blústilfinninga. Jarrett er nú að undirbúa sig fyrir að flytja klassíska píanókonserta, ma. Mozart, en samfara djassinum hefur hann oft glímt við nútíma- tónskáld, ss. Bartok og Stravinsky Jarrett er innhverfur píanisti og hefur lært mikið af Bill Evans; tríóið á þessari skifu, Jarrett, Gary Pecock bassaleikari og Jack deJohnette trommari, minna í mörgu á Ev- ans tríóið með LaFarao og Motian, ekki síst í ballöðum einsog lt Never Entered My Mind og Meaning of The Blues. Hann er harðari í The Masqurade Is Over og All The Things You Are, en besta verkið er túlkun þeirra fé- laga á verki Billy Holliday: God Bless The Child — þar er gospelrýþminn ráðandi og í stundarfjórðung fremja þremenningarnir rýþmískan galdur sem of lengi hefur verið fjarri í verkum Jarretts. Seinni skífan frá þessum sessjón er nýkomin út, en mikið má hún vera góð ef hún jafnast á við þessa. Að mínu viti er þetta besta skífa Jarretts í ára- raðir. Gagnrýnandi down beat gaf skífunni hálfa fimmtu stjörnu. Það sem dró hana nið- Ponger 2 & 3 í síðasta blaði var getið um einleikstón- leika austurríska píanistans Peter Pongers. Á laugardaginn var lék hann á Kjarvalsstöðum ásamt Stefáni S. Stefánssyni, saxafónleikara, Birni Thoroddsen, gítarista, Tómasi R. Ein- arssyni, bassaleikara, og Pétri Grétarssyni, trommara. Þetta voru hinir ánægjulegustu tónleikar þó hljómur sé slæmur í málverka- salnum. Pétur varð að kitla settið með burst- um tilað yfirgnæfa ekki félaga sína. Tónlistin var hefðbundinn nútímadjass og margt ágætlega gert, ss. sístreymi Pongers í Giant Steps og tenórblástur Stefáns í Herbie Han- cock ópus. Stefán er í sífelldri framför sem einleikari og nýtur sín mun betur með sveiflu- rýþma en bræðingsrýþma Gammanna — ólíkt Birni Thoroddsen. Helsti veikleiki Pongers í hefðbundnari djass er hversu létt sólóar hans renna, styrkur nær alltaf svipað- ur, ásláttur jafn og tilbreytingalítill — það þarf stundum að kýla! Á sunnudagskvöld lék Ponger ásamt Ás- keli Mássyni í Norræna húsinu. Þar var margt fallega gert, grípandi línur og bongó- galdur, en það hefði mátt kveikja eldinn — láta gamminn geysa. Þetta var fágaður stofuspuni og all ólíkt því þegar þeir John Tchicai og Áskell leiddu saman hesta sína í Djúpinu og allt sauð og kraumaði í rýþmísk- um galdri. En það var gaman að kynnast Peter Pong- er og hann hressti uppá djasslíf okkar á sker- inu. Trommumeistarinn Cyrille í kvöld verður mikið um dýrðir í Norræna ur var ýlfrandi söngl píanistans. Jafn gott að þessi gagnrýnandi verði ekki látinn fjalla um skífur þarsem jarm Hamptons eða baul Garners heyrist! Djassgeggjurum finnst slíkt aðeins krydd í tónaveröld sveiflunnar. Andrew Cyrille frá Haiti með herlega trommuskífu. iftir Vernharð Linnet húsinu. Þar mun einn af helstu trommuleik- urum djassins sitja umkringdur trommum allskonar og slagverkstólum og leika einn af lífsins lyst. Andrew Cyrille er ættaður frá Haiti en margir frábærir slagverksmeistarar eiga ættir að rekja til Karabísku eyjanna. Hann fæddist í New York árið 1940 og fór ungur að leika á trommur. Hann lék ma. með Mary Lou Williams og Walt Dickerson áðuren hann komst í kynni við píanistann Cecil Taylor. Þau kynni urðu afdrifarík og lék hann lengi í hljómsveit píanistans. Taylor er einn af frumherjum hins frjálsa djass og var fyrir löngu farinn að leika slíka tónlist áður- en Ornette Coleman kom til sögunnar. Cyr- ille er afburða hugmyndaríkur trommari og grunntaktinn hefur hann alltaf á hreinu. Blue Note skífur Taylors: Unit Structures og- Conquistador, þarsem Cyrille slær tromm- urnar eru löngu orðnar klassískar í djassin- um. Cyrille hefur jarðsamband — hann þekkir djassinn í öllum sínum margbreytileik og hefur ma. hljóðritað með Coleman Hawkins og Cörlu Bley. Hann var í fyrri Frelsissveit Charlie Hadens og hann hefur leikið mikið með Muhal Richard Abrams. Einleiksskífur hefur hann gefið út og nú nýlega eina herlega trommuskífu þarsem hann er í félagsskap Kenny Clarke, Don Moye og Miltford Graves. Forfeður Cyrille dýrkuðu voodoogaldur með trommum sínum, en Cyrille fær okkur til að skynja rýþmann á nýjan hátt og því verður mikið ævintýri að hlusta á hann í Norrœna húsinu í kvöld. POPP Glœst tré David Silvian — Brilliant Trees Það varð ljóst fljótlega eftir að hljómsveit- in Japan hafði sent frá sér hina ágætu plötu Tin Drum í nóvember 1981, að ekki var allt með felldu í herbúðum hennar. í viðtölum við meðlimi hljómsveitarinnar kom fram að það var ekki einungis svo að David Silvian söngvari og bassaleikarinn Mick Karn töluð- ust ekki við, heldur voru þeir orðnir svarnir óvinir. Aðalástæða þess mun hafa verið sú að Silvian rændi kvenmanni frá Karn og kunni sá síðarnefndi söngvaranum litlar þakkir fyrir það og þar með sprakk samstarf- ið, einmitt um það leyti sem hljómsveitin virtist vera að ná verulegri fótfestu. Lítið hefur farið fyrir David Silvian síðan þetta var, þar til nú fyrir skömmu að hann sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu, sem ber heitið Brilliant Trees. Engin önnur plata sem út hefur komið á þessu ári hefur komið mér jafn mikið á óvart. Ekki bara vegna þess að ég átti ekki von á jafn góðri plötu frá Silvian og raun ber vitni, heldur einnig vegna þess að tónlist hans er gífurlega fersk og spenn- andi á þessum tímum andleysis og stöðnun- ar. Á Brilliant Trees nýtur Silvian aðstoðar einvala liðs hljóðfæraleikara, sem koma sinn úr hverri áttinni en skapa engu að síður góða heild. Auk Silvians sjálfs, er leikur á hin ýmsu hljóðfæri, kemur Holger Czukay einna mest við sögu, en hann er einkum þekktur fyrir að hafa hér áður fyrr verið meðlimur hljómsveitarinnar Can, en upp á síðkastið hefur hann sent frá sér plötur í eig- in nafni. Þess má geta að Czukay nam á sín- um tíma tónlistarfræði í skóla hins þekkta nútímatónskálds Karlheinz Stockhausen. Nú þá kemur Steve Jansen, fyrrum trommuleik- ari Japan einnig þó nokkuð við sögu á piötu þessari. Auk þeirra þriggja eru það einir tíu hljóð- færaleikarar sem leggja Silvian lið. Ber þar helsta að telja Riuichi Sakamoto, sem lék með Yellow Magic Orchestra og ef ég man rétt þá samdi hann tónlistina við kvikmynd- ina Merry Christmas Mr. Lawrence. Þá leik- ur trompetleikarinn Jon Hassell í tveimur lögum en hann er einkum þekktur fyrir sam- starf sitt og Brian Eno. Hassell var í skóla Stockhausen á sama tíma og Czukay, en þeir hafa aldrei leikið saman á hljómplötu áður og raunar valið sér fremur ólíkar leiðir á tón- listarbrautinni. Annar frægur blásari sem kemur við sögu á Brilliant Trees er flugel- hornleikarinn Kenny Wheeler, sem lítið eða ekkert hefur komið við sögu popptónlistar fram að þessu en er kunnur í jazzheiminum; stjórnar m.a. hljómsveit sem hefur haft fasta þætti í BBC. Auk þess hefur hann leikið inn á fjölda hljómplatna en einna kunnust þeirra er líklega Gnu High, sem hann sendi frá sér fyrir tæpum áratug. Auk þessara eru svo gít- arleikararnir Phil Palmer og Ronny Drayton og bassaleikararnir Wayne Braithwaite og Danny Thompson og eitthvað væri hægt að hafa þessa upptalningu lengri. í stuttu máli skila allir þeir sem koma við sögu sínu hlut- verki með prýði og er hvergi veikan punkt að finna í hljóðfæraleiknum. Öll eru lögin á Brilliant Treesrólegog seið- andi, utan það fyrsta, sem heitir Pullin' Punches. Þetta er fremur kraftmikið lag með fönkuðum bassa og trommuleik en annar hljóðfæraleikur svífur yfir í fremur óræðum stíl. Þá setur skemmtilegur, frjáls blástur Czukay á franskt horn skemmtilegan svip á lagið! Næsta lag er The Ink In The.Well, sem hef- ur nú einnig verið gefið út á lítilli plötu. Þetta er frémur jazzað lag, þar sem notast er við trommur, kontrabassa og órafmagnaða gít- ara, en þar má einnig heyra góðan leik Kenny Wheeler á flugelhorn. Nostalgia heit- ir þriðja lagið og það er rólegt og seiðandi. Mest ber á svífandi hljómborðsleik og tærum og skemmtilegum rafgítar og í lok lagsins kemur svo Wheeler aftur við sögu í fallegu sólói. Síðasta lagið á fyrri hliðinni heitir svo Red Guitar, en það var gefið út á smáskífu fyrri hluta sumars. Er það eitt af léttari lögum plötunnar og gætir þar nokkuð áhrifa hinnar svokölluðu popp-jazzlínu. Skemmtilegan svip á þetta lag setur píanósóló, sem minnir svolítið á það sem Mike Garson tók hér í Aladin Sane fyrir rúmum tíu árum. Seinni hliðin er heldur seinteknari en sú fyrri en við endurtekna hlustun venst hún vel og er síður en svo verri en sú fyrri. í fyrsta laginu, Weathered Wall, verður nokkuð vart áhrifa frá austurlenskri, eða öllu heldur kínverskri tónlist. Að vísu er þessi áhrif víðar að finna í tónlist Silvians en hann tengir þau vel við önnur þannig að þau verða ekki tilgerðarleg og heildarmyndin því góð. í Weathered Wall og titillaginu Brilliant Trees ber nokkuð á trompetleik Jon Hassells, sem þó líkist varla nokkrum trompetleik. Þá er þess loks að geta að Silvian hefur aldrei sungið betur en nú og þó manni detti stundum Brian Ferry í hug þegar hlustað er á hann, þá gerir það ekkert til. Þetta er allt of góð plata til þess að láta slíka smámuni fara í taugarnar á sér. Brilliant Trees er nefnilega hreint út sagt „brilííant" plata. 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.