Helgarpósturinn - 30.08.1984, Page 20
Helgarpósturinn velur
10 bestog 10
•„Islenskt kvenfólk er vel klætt en hefur þó heldur
hrakað í klæðaburði. Rosknar konur klæðast yfirleitt
mjög smekklega en hinar yngri hugsa ekki mikið um
fatnað."
•„Konur eiga að hugsa vel um útlit sitt, sér og öðrum
til ánægju. Smekklega og vel klædd kona klæðist ekki
endilega því dýrasta og fínasta, heldur er litaval hennar
og stíll í samræmi við persónuleika hennar. Hún er
snyrtileg og ber sig vel, platar augað ef með þarf og
„eltir ekki Siggu í næsta húsi“.“
•„Ósmekklega og illa klædd kona hugsar: „Ég er ÉG,
án fata“. Hún klæðir sig ekki í samræmi við tilefnið og
kann ekki að velja saman liti, — gleymir mikilvægum
aukahlutum svo sem tösku, hatti, hárinu og naglalakki.
Ósmekklegar konur er oftast að finna meðal mennta-
og listakvenna. Jafnlyndar og skaplausar konur geta átt
einn morgunslopp, það nægir þeim“.
•Ummælin hér að ofan eru höfð eftir áhugafólki um
fatnað sem Helgarpósturinn fékk til að raða þekktum,
íslenskum konum á lista yfir tíu best og tíu verst klæddu
konurnar í dag.
ÞÆR 10 BEST KLÆDDU
Rúna Guðmundsdóttir
• kaupmaður.
O Vigdís Finnbogadóttir
* Forseti íslands.
ÓBrynja Nordquist
• sýningarstúlka.
mW Marta Biarnadóttir
“ • kaupmaður.
Vala Thoroddsen.
Salóme Þorkelsdóttir
'• alþingismaður.
Dóra Einarsdóttir
búningahönnuður.
j Fanný Jónmundsdóttir
• kaupmaður.
f£ Bóra Sigurjónsdóttir
kaupmaður.
Sigurborg Sigurjónsdóttir
• gjaldkeri.
eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Eftirtaldar konur skipa Iista
tíu best klæddu kvenna á Islandi
ídag:
1. Rúna Guðmundsdóttir
kaupmaður. „Hún klæðist
dýrt og af mikilli kostgæfni og
þekkir sinn stíl. Hún klæðist
smekklega og er ávallt vel til-
höfð. Klæðnaðurinn er smekk-
lega samansettur, aðeins föt
sem hún ber vel. Hann er mjög
skemmtilegur. Hún er alltaf
„elegant" og ber af í klæðnaði
af konum á hennar aldri. Rúna
Guðmundsdóttir sést aldrei
öðru vísi en vel og smekklega
klædd“.
2. Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti íslands. „Að sjálfsögðu
myndir: Jim Smart og fleiri
lendir hún ofarlega á listanum.
Vigdísi heppnast vel í fatavali,
reyndar svo vel að maður snýr
sér við á götu þó svo ætla
mætti að hún fengi hjálp við
valið. Það hefur orðið stökk-
breyting frá leikhússtjóraföt-
unum; pilsi og blússu. Fataval
hennar og litasamsetning eru
til fyrirmyndar. Hún hefur viss-
an „elegans" en er alveg eins
og íslenska sauðkindin; alltaf
fallega klædd en það vantar
kímni í fatnað hennar, svolít-
inn persónuleika".
3. Vala Thoroddsen. „Vala er
fallega klædd við hvaða að-
stæður sem er, jafnvel í sundi.
Hún klæðist fötum sem hæfa
hennar aldri og eru í samræmi
við stað og stund. Fatavalið er
einstakt, það gerir hana
huggulega og dömulega. Klass-
inn leynir sér ekki“.
4. Salóme Þorkelsdóttir al-
þingismaður. „Hún hefur fág-
aðan smekk sem er í samræmi
við stöðu hennar og mann-
gerð, hún tekur mikið tillit til
aðstæðna í vali sínu. Litaval er
til sóma. Hún er falleg og glæsi-
leg kona“.
5. Bára Sigurjónsdóttir kaup-
maður. „Bára hefur þann
„glamour style" sem mjög fáar
konur geta borið án þess að of-
hlaða sig. Hún klæðist mjög
smekklega. Hún er klassi".
5. Brynja Nordquist sýning-
arstúlka. „Brynja er alltaf
mjög lekker. Hún er vel klædd
og samkvæmt nýjustu tísku
sem er ekki verra. Brynja held-
ur sér vel og fylgist vel með á
þessu sviði. Þó er einn Ijóður á
ráði hennar; hana vantar hug-
myndaauðgi í fataval sitt“.
7. Marta Bjarnadóttir kaup-
maður. „Hún heldur sér vel,
er ungleg og frískleg. Marta er
ekki eins fínt klædd og þær
konur sem þegar hafa verið
taldar, hún er „sport-týpa“.
Eina konan sem sést „smart-
sportý" og setur það skemmti-
lega fram, þó svo hún hverfi
stundum í því sem hún klæð-
ist“.
8. Dóra Einarsdóttir búninga-
hönnuður. „Dóra er hér átt-
unda best klædda konan en
telst um leið sú fimmta verst
klædda, smekkur manna er
mismunandi. Dóra er
skemmtilega og eftirtektar-
verð til fara. Hún hefur sinn
stíl, hann er yfirborðskenndur
en í samræmi við persónuleika
hennar. Hún er toppurinn og
botninn, frjálsleg og nýjunga-
gjörn í klæðnaði".
9. Fanný Jónmundsdóttir
kaupmaður. „Fanný klæðir
sig alltaf vel af ungri konu að
vera“.
10. Sigurborg Sigurjónsdóttir
gjaldkeri. „Hún er mjög frísk-
leg í klæðaburði og alltaf vel
. tilhöfð. Hún er smekklega
klædd kona og það er alltaf
gaman að sjá hana því hún er
vel klædd frá toppi til táar“.
28 HELGARPÓSTURINN