Helgarpósturinn - 13.12.1984, Side 16

Helgarpósturinn - 13.12.1984, Side 16
/ BÓKMENNTIR Húsfreyjan á Gljúfrasteini Edda Andrésdóttir rœdir við Auði Sveins- dóttur Laxness: A Gljúfrasteini. Viðtalsbók. (285 bls.). Vaka 1984. Edda Andrésdóttir hefur tekið sér fyrir hendur að setja saman samtalsbók við Auði Sveinsdóttur. Laxness, húsfreyju á Gljúfra- steini í Mosfellssveit. i 32 köflum á tæpum 300 síðum renna þær saman yfir lífshlaup Auðar. Frásögnin hefst á æsku Auðar á Eyrar- bakka og í Reykjavík. Síðan segir frá skóla- göngu og störfum að henni lokinni. í þessum köflum er að finna margar skemmtilegar myndir og minningar frá lífinu í gömlu Reykjavík, Reykjavík áranna milli stríða, og gefa þær frásögn Auðar mjög hugþekkan blæ sem haldið er út alla bókina. Auður kynnist Halldóri Laxness þegar hún er rúmlega tvítug og má segja að úr því sé öll saga hennar mörkuð af honum og hans til- veru.' Rakin er saga þeirra fyrstu kynna og skal enginn eiga þar von á berorðum uppljóstr- unum. Við fáum mynd af ungri stúlku sem heillast af skáldinu sem er 16 árum eldri, sambandið er lengi að þróast og þau giftast að lokum í kyrrþey. Ekki fáum við að kynn- ast hlið skáldsins á þessu máli að ráði. Sú mynd af honum sem þarna kemur fram er öll utanfrá séð, hann virðist furðu sinnulaus framanaf um þessa konu og lætur sína vinnu hafa algeran forgang og má út frá ákveðnu sjónarhorni kalla það bæði sjálfselsku og eig- ingirni. En ætli mikil listaverk séu sköpuð án þess og þá köllum við sama fyrirbærið vinnuögun og einbeitingu. Auður og Haildór giftast í stríðslok. Þau flytjast þá að Gljúfrasteini og segir nokkuð af lífinu þar á bæ. Það markast annarsvegar af einangrun og erfiðleikum við að búa svo fjarri Reykjavík en hinsvegar af friðsæld sveitarinnar með fjölbreyttum gestakomum og boðum, til að mynda eru lengi haldnir þar tónleikar þar sem fram koma heimsfrægir tónlistarmenn. Eftir að þau Auður eru gift og einkum eftir að Halldór hefur fengið Nóbelsverðlaunin lendir líf þeirra að verulegu leyti í ferðalög- um. Frásögnin af Nóbelsverðlaununum er bæði fróðleg og skemmtileg og lýsir vel við- brögðum hér heima og erlendis við þeim. Eftir það segir frá heimsreisu þeirra hjóna. Þá finnst mér frásögnin verða óþægilega upptalningarkennd, örstutt er sagt frá mörg- um stöðum þar sem þau koma en margt af því skilur lítið eftir. Reyndar rofnar þessi upptalning sem betur fer af og til af lifandi frásögnum af eftirminnilegu fólki sem verð- ur á leið þeirra. Frá seinni árum verður jafnvægi frásagn- arinnar betra; er þar jöfnum höndum sagt frá ferðalögum og langdvölum erlendis og lífi og starfi hér heima. Má þar til dæmis nefna skemmtilegar frásagnir af ýmsu sem gerist í tengslum við kvikmyndun Brekku- kotsannáls. Þegar maður fær bók af þessu tagi í hend- ur veit maður ekki alveg á hverju skal eiga von. Auðvitað kitlar mann forvitnin um einkalíf og einkahagi frægs fólks. Þessi, jafn- eftir Gunnlaug Ástgeirsson vel illkvittnislega, forvitni um náungann er mjög rík í íslendingum og ber bókamarkað- urinn þess glöggt vitni. Ef maður á að vera svolítið bókmenntalegur má vissulega segja að upplýsingar um einkalíf skáldsins mikla varpi ljósi á hans höfundarverk og getur aukið skilning samtíðar og framtíðar á hon- um. Ef þetta sjónarmið er haft í huga er ekki sérlega mikið á þessari bók að græða. Þegar á allt er litið birtir þessi bók helst mynd af merkilegri konu sem hefur haft það fyrir ævistarf að vera eiginkona mesta skálds okkar á þessari öld og þess frægasta. Sú kona á fjölbreytta lífsreynslu að baki, en ég hef það á tilfinningunni að ég kynnist henni ekki nema til hálfs í þessari bók. Ég held að ástæða fyrir því sé sú að höfund hef- ur skort stefnu við samningu bókarinnar eða hörku til að fylgja þeirri stefnu eftir. Þrátt fyrir þá ágalla sem síðast voru taldir er hér um að ræða mjög hlýlega bók sem er oftastnær skemmtileg aflestrar. Eftir situr mynd af mikilhæfri manneskju sem lesandi vill gjarnan kynnast betur. ROKK Bubbi út úr blindgötunni Das Kapital — Lili Marlene Fyrr á þessu ári komu út tvær plötur þar sem Bubbi Morthens átti hlut að máii. Hann var þá sakaður um offramleiðslu á tónlist sinni og fleira í þeim dúr og miðað við það sem hann var þá að gera, var það að mínu mati réttmæt gagnrýni. Samt sem áður skell- ir hann skollaeyrum við og sendir nú frá sér sína þriðju plötu á þessu ári og eftir því sem ég fæ best heyrt þá hefði þetta átt að vera eina platan hans. Bubbi er nú með nýja hljómsveit og að öllum líkindum er Lili Mar- lene besta rokkplata sem hann hefur sent frá sér til þessa. Hún er að vísu ekki gallalaus en samt sem áður á heildina litið nokkuð góð. A þessari plötu er að finna að minnsta kosti fimm góð lög. Þau bestu eru Blindsker og Snertu mig, sem hafa bæði til að bera góðar laglínur, ágæta texta og síðast en ekki síst eru útsetningar þeirra nokkuð góðar og þá sérstaklega þess fyrrnefnda. Þar nýtur Das Kapital aðstoðar Arnþórs Jónssonar, sem leikur á selló og gefur leikur hans laginu aukna dýpt, og saxófónleikarans Jens Hanssonar, sem gefur aukinn kraft og er ég raunar hissa á að þeir skyldu ekki nota hann meira en í þessu eina lagi. Þá eru lögin Launaþrællinn, Svartur gítar og Giftu þig 19 einnig góð. Það síðastnefnda er greinilega samið undir áhrifum frá Chuck Berry, svo sem heyra má á gítarleiknum en ég held að það hefði mátt gefa lagi þessu enn meira líf með því að bæta í það gamaldags rokk og ról píanóspili. 10000 króna frétt og Bönnum verkföll eru kraftmiklir rokkarar sem hefðu sjálfsagt skilað sér betur ef meira hefði verið lagt í útsetningar þeirra. Mike Pollock syng- ur svo Fallen Angels, sem einnig er mjög þokkalegur rokkari. Það eru eiginlega ekki nema tvö lög á plötunni sem ekki hrífa mig neitt og það eru Lili Marlene, sem ég var bú- inn að fá leið á eftir að hafa hlustað á það tvisvar eða þrisvar sinnum og Leyndarmál frægðarinnar, en það er dæmigert Bubba- lag. Raunar margendurtekin laglínutugga. Það er greinilegt að Bubbi er nú um þessar mundir að reyna að brjóta sér leið út úr þeirri blindgötu sem hann var kominn í sem lagahöfundur og það tekst honum í flestum tilfellum á þessari plötu, þ.e. nema í Leynd- armáli frægðarinnar og það er verulega fín- ar laglínur að finna í Blindsker og Snertu mig. Það sem mér finnst helst ábótavant við plötuna er að hljóðfæraleikurinn er ekki nógu fjölbreyttur og sakna ég þess að Björg- vin Gíslason skyldi hætta í hljómsveitinni áð- ur en hún lék inn á þessa plötu, því ég er viss um að leikur hans hefði lyft tónlistinni mikið upp. Þá finnst mér saxófónninn skammar- lega lítið notaður en sellóið setur skemmti- legan svip þar sem það er að finna. Bassaleik- ur og trommuleikur er víðast hvar þéttur en gítarleikurinn er helst til einhæfur. Þá hefði og mátt gera tónlistina skemmtilegri með fleiri skemmtilegum röddunum. I byrjun árs var ég alveg búinn að afskrifa Bubþa Morthens en hann hefur svo sannar- lega rifið sig uþp úr ládeyðunni og sýnir nú með Das Kapital að hann er fær um að gera ágæta hluti ennþá, en þó vantar enn herslu- muninn á að hann vandi nóg til verksins. Pax Vobis og Kikk Eftir fremur dauft ár í íslenskri hljómplötu- útgáfu hefur aðeins lifnað yfir nú á síðustu vikum. Nú fyrir skömmu komu út á vegum Steina hf. tvær plötur með hljómsveitum sem óneitanlega verða að teljast í hópi þeirra efnilegri hér á landi um þessar mund- ir. Það eru Pax Vobis og Kikk, en í raun eiga þessar hljómsveitir lítið annað sameiginlegt en það að vera nú að senda frá sér sínar fyrstu plötur. Tónlist Pax Vobis á rætur að rekja til tölvu- poppsins svokallaða en samt sem áður er varhugavert að koma þeim fyrir þar í flokki. Raunar er hægt að segja nánar til um hvað- an áhrifin eru komin, því á köflum hljómar hljómsveitin sem vasaútgáfa af Japan og er margt sem hjálpast að til að svo sé. í fyrsta lagi syngur Ásgeir Sæmundsson mjög líkt og David Silvian og í öðru lagi svipar bassaleik Skúla Sverrissonar mjög til leiks Mick Karn. Þessir strákar eru báðir ágætir á sínu sviði en þó tekur maður einhvern veginn eftir bassa- leiknum. Það er samt greinilegt að Skúli er hinn liðtækasti bassaleikari. Raunar er Pax Vobis þétt og jöfn hljómsveit, það er bara meira gert úr bassaleiknum hjá þeim heldur en oft á tíðum gítarleiknum og hljómborðs- leiknum. Það sem mér finnst neikvæðast við þessa plötu Pax Vobis er hvað hún er ófrumleg og eftir Gunnlaug Sigfússon nánast gamaldags. Ekki svo að skilja að ekki sé alltaf verið að gera gamla og margreynda hluti í rokkbransanum, því það gerist nánast á hverjum degi, heldur var þessi tónlist vin- sæl í Bretlandi fyrir svo sem tveimur eða þremur árum og þegar hún skýtur upp koll- inum hér í dag virðist hún á köflum svolítið þreytt. Raunar er tónlist Kikk ósköp lítið frumleg en sú tegund rokktónlistar sem þau leika er mun klassískari en hjá Pax Vobis. Það eru einkum tveir meðlimir Kikk sem mest ber á, hin ágæta söngkona þeirra, Sig- ríður M. Beinteinsdóttir og gítarleikarinn Guðmundur Jónsson. Annar hljóðfæraleik- ur er lítið áberandi en traustur og má til dæmis benda á einfaldan og látlausan hljóm- borðsleik Nikulásar Róbertssonar, sem mætti vera svolítið ævintýralegri en hann er, þó hann veiti góða fyllingu. Lögin eru öll fremur jöfn að gæðum og hirði ég ekki um að telja þar eitt öðrum frem- ur, en þess ber að geta að þau eru ekki nema sex. Þrátt fyrir það er plata þessi lítið styttri en plata Pax Vobis, sem hefur að geyma átta lög. Það leiðir hugann að því að í raun eru flestar íslenskar poppplötúr of stuttar til þess að geta talist eiginlegar LP-plötur, þar sem lágmarkslengd er í kringum sextán mínútur en þær íslensku iðulega ekki nema tólf til þrettán. Annars verður ekki annað sagt um þessar tvær skífur en að þar sé um að ræða hin ágætustu byrjendaverk og vel þess virði að þeim sé gaumur gefinn. JAZZ Framsókn Mezzoforte Mezzoforte: Risino — Steinar records STE LP 06) Þá er sjöunda breiðskífa Mezzoforte út- komin og sú hin fyrsta sem ekki er gefin út á íslandi heldur innflutt frá Bretlandseyjum. Piltarnir eru þó fluttir frá þeim eyjum og Ey- þór, Friðrik og Gunnlaugur hafa undanfarið leikið bíbopp á bjórkrám bæjarins ásamt bassaleikaranum Tómasi R. Einarssyni. Þeim leik er lokið að sinni enda mikið að gera hjá Mezzoforte-piltunum við æfingar fyrir stórtónleikana í Háskólabíói á sunnu- daginn kemur. I mínum eyrum hljómar Rising betur en nokkur önnur skífa sveitarinnar. Veldur því margt. Hljómsveitin er enn kraftmeiri og samanþjappaðri en fyrr, hinn gerilsneyddi hljómur í rýþmanum er horfinn og dúllu- söngurinn hallærislegi sömuleiðis. Laglín- urnar eru kannski ekkert betri en fyrr en skífan heilsteyptari. Djassbragðið er líka sterkara og einleikurinn markvissari. Upp- hafsverkið er eftir þá alla, en önnur lög semja Eyþór Gunnarsson og Friðrik Karls- son. Höfundareinkenni hvors um sig eru nokkuð skýr og oftast einhver minni frá eldri verkum í þeim nýju — stundum nokkuð sterk. Mezzoforte hafa fengið tvo hljóðfæraleik- ara til liðs við sig — ásláttarleikarann Frank Ricotti og saxafónleikarann Dale Barlow. Barlow blæs bæði í Northern Comfort og Fiona, eru sólóar hans ágætir og stundum dálítið Ammonslegir; en mikið hefði verið gaman að fá einhvern stórsnilling til að blása þessa sólóa. Eyþór og Friðrik fara á kostum í lögum þessum báðum og það gera þeir oft- ar, ekki síst í Blizzard, hinu stórgóða verki Eyþórs þar sem hann spinnur á flýgilinn. Það er firnagóður djass. Check it out eftir sama höfund er líka til yndisauka. Þar hljóma raftólin einsog stórsveit og rýþma- leikararnir fara á kostum í kjötkveðjusveiflu. Ekki má heldur gleyma fögru verki Friðriks, Rising, sem hefst á ljóðrænu bassans. Þó Eyþór og Friðrik séu í sviðsljósinu einsog markakóngar í fótbolta má ekki gleyma að Jóhann Ásmundsson bassaleikari og Gunn- laugur Briem trommari eru sú kjölfesta er þeir byggja á og kannski á aukinn þroski þeirra ekki sístan þátt í gæðum þessarar skífu. Auðvitað er margt sem mætti vera betra — eða öðruvísi. Tónsmíðarnar mættu vera djarfari, sólóarnir lengri, rýþminn frjálsari og tónalitirnir fjölbreyttari — en listrænn metnaður þeirra félaga er ekki einráður, markaðslögmálin láta ekki að sér hæða. Vonandi halda Mezzoforte-piltarnir áfram að leika sem mest og best og ef næsta skífa þeirra ber af þessari einsog þessi af Yfirsýn verður hátíð í islenska djasskotinu. Það verður gaman að heyra hvað þeir hafa uppá að bjóða í Háskólabíói á sunnudaginn. 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.