Helgarpósturinn - 13.12.1984, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 13.12.1984, Blaðsíða 5
Úr ritdómi í Morgunblaðinu 4.12. 1984 eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur: „En hraðinn í frásögninni og skemmtilega óþvingaðar lýsingar á þeim stöðum sem heimsóttir eru vítt og breitt um veröldina, Ijá bókinni þekkilegt aðdráttarafl. . . En hvað sem hnökrunum líður er hér á ferðinni afþreyingarbók eins og mér finnst þær gerast hugnanlegastar." Gefðu þig fram Gabriel eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk íslenska sveitabarnið Linda, sem verður kjördóttir bresks blaðakóngs og síðan þekktur blaðamaður með allan heiminn að vettvangi, virðist eiga sér verndarengil. iiver er hinn dularfulli Qabríel, sem alltaf fylgist með henni og gerir vart við sig á ólíklegustu stöðum? Eftir flugslys dvelst Linda um hríð hjá innfæddum á Tristan da Cunha og getur síðan ekki gleymt námaverkamanninum Tony. En starfið krefst hennar á ný, hún fer víða og kynnist fleiri mönnum Steve Raynor, auðugum glaumgosa, sem hún hyggst fietta ofan af sem stórbófa . . . Santor, frægum listmálara, sem felur sig bak við dulnefnið . . . en Tony flytur í nágrennið oggerir henni erfitt fyrir. ævinti,ri ráðgátur og spenna Bókin um Stærðfræði Gönguleiðir á bijóstagjöf eftir Máire Messenger í þýðingu Halldóru Filipusdóttur Brjóstamjólk er besta fæða sem hægt er að gefa nýfæddu barni, en þrátt fyrir það eru margar mæður, sem ekki gefa brjóst eða gefast upp eftir mjög skamman tíma. Oft má kenna um skorti á sjálfstrausti og stuðningi. Bókin um brjóstagjöf leggur fram rök, hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar, sem nauðsynlegar eru til að ýta undir sjálfstraust móður og hjálpa þannig til að gera brjóstagjöfina einfalda, ánægjulega og vel heppnaða. Handbók fyrír foreldra, kennara og nemendur eftir Kristján Guðjónsson námsstjóra. Þessari bók er ætlað að leysa úr vandamálum og svara spurningum sem upp koma t.d. á heimilum þegar foreldrar vilja hjálpa börnum sínum við heimadæmin en muna ekki einstaka reikningsaðferðir og þær finnast ekki í viðkomandi reikningsbók sem barnið notar þá stundina. Þetta er sem sagt bók sem margir hafa beðið eftir og kemur nemendum, foreldrum og kennurum í góðar þarfir. flomströndum og Jökulfjörðum eftir Snorra Grímsson með jarðfræðiskýringum eftir Leif A Símonarson jarðfræðing Höfundur bókarinnar á ættir að rekja til Hornstranda og er einn af kunnugustu mönnum þar um slóðir. í bókinni segir frá helstu gönguleiðum um Hornstrandir og Jökulfirði, tíndireru saman fróðleiksmolar úr ýmsum áttum og þetta tengt frásögnum Þórleifs Bjarnasonar í Hornstrendingabók. Leifur A. Símonarson veitir iesandanum mikilsverðar jarðfræðiskýringar í bókinni og er að þeim mikill fengur. BÓKAÚTGÁFAN ÖRIN & ÖRLVGUR Síðumúla 11, sími 84866 HELGARPÓSTURINN 5 Sigurþór

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.