Helgarpósturinn - 13.12.1984, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 13.12.1984, Blaðsíða 24
21 -> Fróðleikur aftan úr tíð og ævisögur heiðursmanna Ahugafólk um þjóðlegan fróðleik af ýmsu tagi fær vissulega sitthvað við hæfi fyrir þessi jól. Snjallir rit- höfundar á borð við Hannes Pétursson hafa sýnt þessum flokki bókmennta mikla rækt, Hannes kemur nú út með þætti ættaða norðan úr Skagafirði, „Misskipt er manna láni", framhald frá því sem áður hefur komið. Þá koma og út bækur eftir Jón heitinn Helgason sem var mikill meistari í vefnaði íslenskra örlagaþátta. Gils Guðmundsson leggur og sinn skerf á búðarhillur. Ævisögur birtast — og sumar æði fróðleg- ar: Þorgeir Þorgeirsson hefur skrifað skemmtilega bók um Pétur Karlsson Kidson, Bret- ann sem yfirgaf leyniþjónustu lands síns til að gerast íslenskur ríkisborgari — og þýðandi ís- lenskra bókmennta. Og út er komin ævisaga eða endurminn- ingar Sigurðar Thoroddsen. Sveinn Einarsson leikstjóri og rithöfundur sendir frá sér minn- ingar frá leikhússtjóratíð sinni í Iðnó og kallar bókina ,,Níu ár í neðra" — og er engu líkara en Sveinn líki þeim tíma við dvöl í vondum stað. Kannski ætlar hann sér seinna að skrifa bók um dvöl í „efra" — en hann dvaldi þar líka — í Þjóðleikhúsinu. Einar Magg Ævisögur þekktra sem óþekktra landa vorra, eru eitt sérkennið á íslenskum bókamarkaði. Sérkenni — vissulega, því að með stærri þjóðum eru helst ekki skrifaðar ævisögur annarra en þeirra sem setja sterkan svip á tíðina, valda straumhvörfum, hafa áhrif. Kannski má segja að hver og einn íslendingur hafi áhrif, því að á víðáttu fámennisins verður hver einstakur svo stór. Einar Magnússon fyrrum kennari og rektor við MR er auðvitað ekkert venjulegt núll — hann hefur án efa haft áhrif á fleiri menntamannaspírur en margur úr kennarastétt og þess vegna fróðlegt að fletta bók hans. ,,Úr dagbókum Einars Magg 1914—1922" og var víst þungu fargi af sumum gömlum nemendum hans létt, þegar fréttist að dagbækurnar innihéldu ekki athugasemdir úr kennslustundum fyrri ára. Einar hóf dagbókarritun 14 ára gamall. Á þeim árum var hann sjálfur nemandi í Menntaskólanum og fór svo 1920 í mikið ferðalag með léttan mal suður um Evrópu, um Norðurlönd, Þýskaland, Sviss, Ítalíu, Konstantínopel (þar heitir núna Istanbul) og til Aþenu. Ýmislegt ævintýralegt kom fyrir Einar. Á Ítalíu réðist á hann fasistískur óaldarflokkur og fór langt með að lengja ferð hans yfir í betri heim. Bókin er heilar 400 blaðsíður og víst er um það, að margir gamlir nemendur Einars munu vera forvitnir um kennara sinn á unga aldri í lífsins ölduróti. Þórir Bergsson Hannes skáld Pétursson og Kristmundur Bjarnason fræðimaður hafa annast útgáfu æviminninga rithöfundarins sem áratugum saman leyndist á bak við höf- undarnafnið Þórir Bergsson. Hann má vel bera sæmdarheitið „meistari smásagnanna" — hét í rauninni Þorsteinn Jónsson og var sonur Jóns Magnússonar prests á Mælifelli og Ríp í Skaga- firði og svo á Snæfellsnesi. í Umsjón með bókablaði: Gunnar Gunnarsson endurminningunum segir Þórir frá mótunarárum sínum á þess- um slóðum, en hann gerðist svo opinber starfsmaður í Reykjavík, sinnti ritstörfum í hjáverkum. Þórir bregður upp Ijósum mynd- um af samferðamönnum og lýsir nýjum hliðum á ýmsum þjóð- kunnum persónum. Hiö fjöibreytilega andlega fóður að er raunar nokk sama hvar gripið er niður í bókakistuna í ár — mað- ur heldur jafnan á bók sem geymir fýsilegan fróðleik — eða skemmtun. En vissulega bera bækur þess merki, hve misjafnlega er til þeirra vandað, bæði hvað snertir höfundarvinnuna og svo prentun og band. Hér að framan var talað um blaðamannabækur — og hvarr þá ein sem lætur lítið yfir sér, kilja sem heitir „Verkfallsátök og fjölmiðlafár". Tveir blaðamenn af NT tóku bók þessa saman og fjallar hún um verkfall BSRB nú í haust, virðist við fyrstu sýn gagnleg heimild um gang verkfallsins, anda þess og stemmningu. Kverið er skreytt fjölda mynda ásamt upplýsingum og kaupdeiluna. Okkur hér á Helgarpóstinpm finnst hins vegar að höfundum, Baldri Kristjánssyni og Jóni Guðna Kristjánssyni hafi heldur en ekki skotist þar eð þeir gleyma að geta þess að í þessu verkfalli, þegar allir fjölmiðlar stöðvuðust, var þó eitt blað sem kom út, nefnilega HP, prentaður erlendis. Það hefur ekki gerst áður í íslandssögunni að fréttablað hafi vtrið prentað í útlöndum og flutt hingað heim með flugi. Kornungt tröll fær sér vöfflur ráinn Bertelsson ætlar ekki að gera það enda- sleppt við kímni-málin á íslandi. Það er ekki nóg með að hann hafi dregið svo að segja hvern mann í bíó að sjá „Dalalíf" heldur er hann kominn með bók handa yngstu kynslóðinni, hefur snúið saman útsmoginn og spennandi texta, einmitt svona frásögn sem maður vill lesa fyrir skemmtileg börn. Sagan greinir frá trölli sem er hundrað ára í sögunni og hittir af tilviljun börn, ákaflega skemmtileg systkini sem plata það með sér heim — og við segjum ekki meir, nei nei, segjum ekki meir — nema að tröllið lendir í knattspyrnuleik og fær að borða slatta af vöfflum og... og .. . Rétt að benda á myndirnar í bókinni. Þær eru eftir Brian Pilkington og öldungis frábærar. Og svo þeir sem misstu af. . . Bókamarkaðurinn er merki- legur markaður og þótt sumir bölvi því að illa gengur að gefa út bækur á öðr- um árstíma, þá er gaman að fylgjast með í þessu sannkallaða flóði í nóvember og desember. Sumir misstu meira að segja af flóabát íslenskra bókmennta þegar hann öslaði út í áætlunar- ferð sína núna. Við höfum þann- ig fengið njósnir af því, að Pétur Gunnarsson hafi orðið seinn fyrir í ár, og ekki náð bátnum. Hann bíður þá bara á bakkanum þar til næsta ferð verður farin... FORLAGIÐ kynnir glettilega góðar bækur Ak á viðráðanlegu verði Wdjarn HINSEGIN SOGUR YDD Guðbergur Bergsson Þórarinn Eldjárn Skáldið skyggnist inn í leyndustu afkima þjóðlífsins og dregur sitthvað fram í dagsljósið. Þrettán sögur eftir einn fremsta og frumlegasta rithöfund okkar. Meðal þeirra má nefna Hanaslag hommanna, Undrið milli læranna, Sætu ánamaðkastúlkuna og Náttúrulausa karlinn. Seiðandi sögur - tileinkaðar ástarlífi Islendinga á öllum sviðum. Þórarinn hvessir stílvopnið og yrkir á opinskáan hátt um lífsreynslu sína og stöðu sem listamaður. Honum verður málið, máttleysi þess og möguleikar að yrkisefni og á skorinorðan hátt yrkir hann um líf þjóðar sinnar í andlegu stefnuleysi og tilfinningadoða. Áleitin jjóð sem hitta í mark. Verð kr. 494,00. Verð kr. 691.60. EKKERT SLOR Rúnar Helgi Vignisson Sögusviðið er Fiskhúsið hf. í iðandi mannlífi sögunnar birtast ungir þorpsbúar sem fengið hafa slor í hárið og dreymir drauma um lífið utan frystihússins. Oftar en ekki tengjast draumar þeirra hinu kyninu sem flögrar fyrir augum þeirra meðan bónusinn sveiflar sviþunni yfir mannskapnum. Ólg- andi og ósfyrilát skáldsaga ungs höfundar. Verð kr. 494,00. GAGA Ólafur Gunnarsson Saga Valda í sjoppunni, mannsins sem ákveður að skipta um plánetu og vaknar morgun einn á Mars. Saga mannsins sem lesið hefur yfir sig af tískusögum okkar tíma, Ifkt og henti Don Kíkóta forðum daga. Sagan um átök einfarans sjúka við sljóan og tilfinningadauðan heim. En er Valdi alveg gaga? - Meistaraleg skáldsaga eins af ágætusfu rithöfundum okkar. Verð kr. 494,00. BRÚÐUBÍLLINN KYNNIR: AFMÆLISDAGURINN HANS LILLA Helga Steffensen Hvaða börn kannast ekki við Brúðubílinn? Nú situr Gústi frændi við sfyrið og flytur gesti í afmælið hans Lilla. Allir krakkar eru velkomnir! - Ein fallegasta barnabók sem út hefur komið á íslandi. Pfydd Qöruti'u stórum litmyndum. Verð kr. 389,00 NY MYNDASAGA: o/g/no/-,^ ,atur- Lindirförull, hrekkjóttur, morgunsvæfur, matgráðugur. Samt er Grettir ómótstæðilegur. Kattahatarar elska hann líka ef hann nær að læsa í þá klónum. Verð kr. 163,00. FORLAGIÐ FRÁKKASn'G 6A, SÍMh 91-25188 24 HELGARPOSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.