Helgarpósturinn - 07.02.1985, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 07.02.1985, Blaðsíða 4
Gómaði gómurinn ★ Þessi saga mun hafa gerst í Bakkahverfinu í Breiðholti um nýliðna helgi. Hún er sönn, nema hvað.. . enda höfð eftir mömmu aðalsöguhetjunnar, sem ekki er gjörn að fara með ýkjur: Átta ára gamall dreng- hnokki var á leik með félögum sínum á laugardagsmorgninum ekki allfjarri skemmtistaðnum Broadway. Þeir voru í byssu- og bófaleik, og fylgir það sögunni að drengurinn lék löggu. Hann kom sér fyrir í felum í innskoti í útvegg skemmtistað- arins, alls líklegur til að góma næsta misgjörðarmann sem færi hjá. Eitthvað létu hinir síð- arnefndu á sér standa, þannig að strákurinn ákvað að taka sér sæti í horninu, svo biðin yrði þægilegri fyrir hann. En þegar hann settist fann hann eitthvað grunsamlegt þrýsta á þjóhnappa sína, og þar að auki vonda lykt stíga upp af staðnum. Hann stóð sam- stundis upp og leit niður fyrir sig og sá þá sér til mikillar furðu efri góm úr fölsku tann- setti liggja í ófrýnilegri ælu á jörðinni. Ópjattaður tók stráksi efri góminn upp og virti fyrir sér, viss um það að hér hefði hann fundið firnadýrmætan hlut og þá ekki síður ómissandi fyrir þann sem gloprað hafði honum þarna niður. Hann hljóp af stað með góminn á fund leikfélaga sinna og fann þá loks við and- dyri skemmtistaðarins, alla í hnapp umhverfis fullorðinn mann, harla niðurlútan að því er hann best sá. Þegar strákarnir sáu þennan fundvísa félaga sinn nálgast, kallaði einn þeirra til hans, hvellri röddu: „Heyrðu Hilmar (en svo heitir stráksi), maðurinn hérna segist ætla að gefa okkur fimmhundruðkall ef við leitum og finnum svolítið sem hann missti út úr sér einhverstaðar hérna í gærkveldi.. .!"☆ G%varahlutir Hamarshöfða 1 36510 og Athuc,iö að við sérpöntum alla varahluti í Fíat biireiðar. Afgreiöslutími er ca. 14-20 dagar. Póstsendum hver á land sem er. séðrí karate-mynd ★ Oðruhvoru taka bíóhúsin í borgmm til sýningar kvikmyndir sem tæpa á sjálfsvarnarlist Japana. Hún heitir karate. Þeg- ar hður á sýnmgar bregst ekki að nágrannar viðkomandi bíós að sJá fram á nokkra vinnu við endurbætur á girðingum eða oðru því sem þeir hafa komið fyrir í görðum sínum Það er nefnilega svo með vel- flesta þá sem sækja þessar myndir að þeir þurfa alla jafna a prófa með sér spörkin úr myndinni þegar út af sýninq- unm er komið. Og þá er það bara tilviljun ein sem ræður hvað fyrir fótunum verður oq hinu lika hvort lætur fyrr undan SSfö!**”eða Þaí umhb ágætisbíómynd um þetta efm sem sýnd er í Stjornubiói um þessar mundir ogokkur hér á Helgarpóstinum lék forvitn, á að fylgjast með hattalagi þeirra sem þar koma ut nu um stundir. Ljósmyndari okkar lagðist því í fe|ur fyrir fvdrn|^'kmyndahÚSÍð' SkÖmmu fyrir lok emnar sýningarinnar m helgina Hann þurftj ekkj gð biða lengi, því þeir fyrstu sem komu ut af myndinni sýndu til- Pntin sem myndir sýnir. Siálf- sagt er að geta hljóðanna fylgdu. „Hagaaa-hatsý- huuu.. ."☆ i sem ervteekkun Felgur ............. Stuðarar ........... Grill............... Stefnuljós framan . Frambretti ......... Útispegill ......... o.fl. o.fl. . kr. 1.760. . kr. 3.351. . kr. 1.868. . kr. 1.885. . kr. 1.800. . kr. 848. i i I i i I I i l l UNO VARAHLUTIR w-t ibák. laáW, iMcA. & cm, ,.i\ afr ZOi.QOo Gaman, gaman, okkar getið í myndasögu í þetta skiptið! ★ Hvorki íslands né íslendinga er oft getið í erlendum stór- blöðum, nærfellt aldrei í mörg- um sama dag, hvað þá að okkar sé getið í myndasögum þessara blaða. En hvað um það. . . þetta gerðist hérna um daginn. Jeff MacNelly er heims- frægur bandarískur teikni- myndahöfundur, enda birtast sögur hans í víðlesnustu dag- blöðum heims, einkanlega í heimalandi hans. Og Jeff hefur verið lengi í bransanum. Kannski er hann þessvegna far- inn að sækja æ lengra þær hugmyndir sem hann þarf til að halda sögunum sínum daglega úti. Annað verður að minnsta kosti ekki lesið af myndasög- unni hérna, sem við klipptum úr bandarísku dagblaði á dög- unum. Við erum ekkert að skemma söguna með þýðingu, en lifum bara í gömlu góðu voninni, að hún hafi prentast vel og skýrt.. .☆ 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.