Helgarpósturinn - 07.02.1985, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 07.02.1985, Blaðsíða 21
Ofbeldi meðal skólabarna brotna Hope Knútsson geðiðjuþjálfi möur Svava Guðmundsdóttir hjá Sálfræðideild skóla í Reykjavík: Erindi hennar um ofbeldi í skólum hefur vakið mikla athygli. „Töluvert um að börn séu lögð í einelti með háðsglósum o.fl. sem er ekki síður alvarlegt.“ segir faðirinn, „og nokkuð hrotta- legar og það hefði getað farið illa ef hún hefði verið yngri, en hún var ellefu ára þegar þetta var.“ Þeir réð- ust á hana, að því er þeir sögðu, vegna þess að pabbi hennar væri kommúnisti. Hann var þá kunnur fyrir tengsl sín við Alþýðubandalag- ið og það fannst strákunum nægileg ástæða til að kalla hana komma- stelpu og ofsækja hana fyrir það. „Þessir strákar voru nýlega byrj- aðir í sama skóla og hún og það var greinilegt að tveir þeirra sem mest höfðu sig í frammi áttu í töluverðum erfiðleikum," segir móðirin. „Dóttir okkar tók þetta ofboðslega nærri sér. Hún var lamin niður á skólalóð- inni og það virðist sem enginn hafi gert neitt við þessu nema tvær bestu vinkonur hennar sem stóðu með henni og þegar svo var komið að hún harðneitaði að fara aftur í skólann, þá gerðu þær slíkt hið sama. Ég tók þá til minna ráða og fór til skólastjórans og fékk að tala við strákana persónulega. Það lán- aðist. Þeir virtust átta sig og hættu þessu, þó svo að eitthvað hafi borið á smástríðni fyrst á eftir. Hún er ósköp venjuleg stelpa og hefur alltaf átt farsæla skólagöngu ef þetta er undanskilið og ég tel að þessir strák- ar hafi verið á margan hátt skyn- samir en áttu greinilega í erfiðleik- um,“ segir móðirin og bætir því við að hún mæli með því að foreldrar láti til sín taka þegar svona kemur uppá því ekki eigi að setja allt traust á sérfræðinga til að leysa vandann. „í dag eru þessi atvik að mestu gleymd, þó kannski grói aldrei um heilt hjá börnum sem verða fyrir svona árásum. Það er ekki laust við að strákarnir verði stundum skömmustulegir þegar þeir mæta henni á götu í dag, en þetta sýnir líka að kommúnistaofsóknir eru til enn þann dag í dag á íslandi." Upplýsingar Hope eru réttar Annar sálfræðingur, sem haft var samband við, lagði þó áherslu á að aðstæður foreldra væru oft slíkar, bæði útivinnandi o.s.frv., að þau hefðu takmarkaða möguleika til að taka á svona málum sjálf. Það væri einfaldlega staðreynd og ef ábyrgð- in væri færð meira yfir á foreldra gæti það vakið með þeim sektar- kennd og ekkert leystist með því. Frumkvæði til að fyrirbyggja svona atvik og leysa úr þeim ætti að koma frá skólanum sjálfum. Skólalæknir bendir á að þetta sé mjög mismunandi eftir skólum og þar geti umhverfið skipt mestu. Hann grunaði að meira væri um of- beldi í og við skóla en margur héldi. Kona nokkur benti á dæmi úr ísaks- skóla. 5 ára sonur hennar sagði frá því að strákarnir væru alltaf að berja félaga sína. Af hverju gera þeir það? spurði hún. „Æ, það er ekkert annað að gera,“ svaraði hann. Ingólfur S. Sveinsson geðlæknir er einn úr hópi þeirra foreldra sem mikið hafa látið þessi mál til sín taka. „Þær upplýsingar sem Hope Knútsson veitti í erindi sínu veit ég að eru réttar," segir hann. „Það er meira agaleysi í skólum en ég hefði getað ímyndað mér áður en ég fór að kynna mér þetta.“ Stelpur ekkert betri en strákar Gunnar Þór Jónsson, yfirlæknir á slysadeild Borgarspítalans var spurður hvort mikið væri um að komið væri þangað með börn sem orðið hefðu fyrir líkamsmeiðingum af hendi skólafélaga sinna. Hann sagði að þetta væri ekki skráð sér- staklega hjá þeim og mætti búast við að ef það yrði kannað sérstak- lega væru slíkar niðurstöður mjög óáreiðanlegar, þar sem oft segðu börn ekki frá því hvernig þau hafa hlotið meiðsli og eins væri spurning hvað mætti leggja mikið uppúr því sem þau segðu. Þau væru jú ein til frásagnar. „Ég held,“ sagði Gunnar, „að það sé tiltölulega lítið um þetta þó alltaf komi upp eitt og eitt tilfelli." Ofbeldi í skólum er ekki síður andlegt en líkamlegt, eins og Svava bendir á. „Strákar nota meira líkam- legt ofbeldi," segir hún, „en stelpur eru ekkert betri. Þær nota orð, eru með háðsglósur, sem er allt eins al- varlegur hlutur. Það hefur margsýnt sig að börn sem verða fyrir ofbeldi eða eru lögð í einelti brotna niður og missa sjálfsálit sitt." Eins og Hope Knútsson benti á, einkennist þetta mjög af því að eldri nemendur ráðast á yngri börn, kannski aðeins 6, 7, eða 8 ára göm- ul. Við samningu þessarar greinar benti einn viðmælandinn á ráð sem tíðkast víða á Norðurlöndum og hefur gefið góða raun. Þar er hverj- um eldri nemanda ráðstafað að hausti einum yngri nemanda til um- sjónar, í einskonar fóstur yfir skóla- daginn. Svava benti líka á að í Dan- mörku tíðkaðist að ráðnir væru sér- stakir starfskraftar að skólum til þess eins að skipuleggja frítíma skólabarna. Reynslan sýndi að það snardró úr ofbeldi. Haft var samband við fjölmarga aðila við gerð þessarar greinar — í skólum, lögregluna og fleiri aðila — og niðurstaðan var yfirleitt á þá lund að flestir könnuðust við dæmi um ofbeldi meðal barna en töldu það þó ekki útbreitt enn. Lögreglan kvaðst sjaldan fá kærumál vegna árása barna í tengslum við skóla en Hope Knútsson segir við HP að enn fái hún upphringingar frá fólki sem rekur henni dæmi um þetta og vill koma sjónarmiði sínu á framfæri, því þetta er óvenjulegt vandamál á Islandi. Mörgum er gjarnt að líta á ofbeldi barna öðrum augum en þeg- ar fullorðnir eiga í hlut. Þeirra heim- ur er annarskonar og fyrir lítil fórn- arlömb árása er hann líkastur frum- skógarheimi. Líkast til endurspeglar hann þó aðeins heim hinna „upp- vöxnu og þroskuðu", því eins og Svava Guðmundsdóttir segir við blaðamann HP: „Við fullorðna fólk- ið erum ekkert betri en börnin. Við beitum bara öðrum aðferðum. And- legt ofbeldi er t.d. til á öllum vinnu- stöðum. Ég er viss um að það fyrir- finnst á þínum vinnustað líka, ef þú gáir vel að.“ HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.