Helgarpósturinn - 07.02.1985, Síða 15
eftir Eddu Andrésdóttur mynd: Jim Smart
Hvernig myndir þú lýsa sjálfum þér?
Stefán Jökulsson horfir á mig andartak. Tekur síðan til við að tendra pípu sína í
mestu rólegheitum. Lítur út um stofugluggann og festir augun á aðalstöðvum lögregl-
unnar. Hugsar sig lengi um þar til hann svarar: Ég er blanda af skipulagi og skipu-
lagsleysi. Ef til villtogast á íméreinhvers konar rölcnygqja eða skynsemi að öðru leyti
og tilfinningar að hinu. Kannski eru tilfinningar líka rök. Svo brosir hann og spyr: Er
þetta ekki nóg?
Stefán Jökulsson í HP-viðtali
Á virkum degi. Rok á Skúlagötunni að venju.
Dúðað fólk fýkur bókstaflega inn í útvarpshúsið.
Nýr dagur hefur löngu tekið völdin í stúdíói eitt
á fimmtu hæð. Stefán Jökulsson er búinn að
vekja þjóðina, og minna fólk á að slökkva á hell-
unum og taka með sér lyklana. Nú bítur hann í
væna samloku, af því að hann er á sérsamningi
í eldhúsinu, og fitlar við segulband. Óli H. hjá
Umferðarráði var síðasti maður í viðtali að
þessu sinni, svolítið syfjaður eins og ég. „Ætl-
arðu að ieyfa mér að heyra þetta?“ spyr hann.
Stefán kinkar kolli og setur segulbandið af stað.
Stúdíóið fyllist af tónum frá heilli hljómsveit og
sennilega kór líka. Eða svo virðist. „Hvað er
þetta?" spyr ég. Stefán bendir mér á yfirlætis-
laust hljóðfæri úti í horni. „Hljóðgervill. Annar
tveggja á landinu. Ég fékk hann lánaðan til að
fikta svolítið við hann. Mig vantar nokkra eff-
ekta.“ Óli er ekki lengi að hugsa sig um. „Get-
urðu útvegað mér nokkra í umferðarinnskot-
in?“ Ég mæli mér hins vegar mót við Stefán
heima hjá honum og sambýliskonu hans á Rauð-
arárstígnum.
Þrátt fyrir aðvörun niðri, fer ég ekki úr skón-
um. „Það skiptir engu máli," segir Stefán. „Það
er ekkert frekar ætlast til þess,“ og opnar dyrnar
inn í stílhreina ogbjarta íbúð á efstu hæð. Utsýni
á annan veginn yfir port sem er alveg eins og í
útlöndum, og á hinn vítt og breitt yfir Skúlagöt-
una, höfnina og lögreglustöðina. „Ég myndi
sakna þessa útsýnis yfir höfnina," segir Stefán
þegar við setjumst í bláu sófana, og býður ekki
upp á kaffi.
— Hljódgervillinn í morgun, byrja ég. Varstu
ekki einhvern tímann í hljómsveit?
„Jú. Ferillinn hófst í bílsicúrnum hjá foreldrum
mínum í Vogunum. í umhverfi sem var skondin
blanda af sveitabúskap og nýjum blokkum sem
voru að rísa. Ég var líflegur krakki, og á þeim ár-
um var talsvert skemmtanahald í bílskúrnum;
tónleikar og leiklist, og selt inn...“
Stefán leggst makindalega í sófann, með pípu
sína til taks, og heldur áfram:
„Við vorum tíu eða ellefu ára, og stofnuðum
hljómsveit nokkrir saman. Hljóðfærin voru har-
monikka, makintosdollur og flest sem tiltækt
var. Við spiluðum dægurlög þessa tíma og loks
lög Shadows, sem síðar urðu átrúnaðargoð okk-
ar.
Upp úr þessu spratt svo skólahljómsveit í
Vogaskólanum. Við Snorri Örn Snorrason vor-
um samferða í bransanum, og við bættust bróðir
hans, Sigurður Ingvi Snorrason, sem nú er skóla-
stjóri Tónlistarskólans, og Eysteinn Jónasson
skólastjóri í Reykholti. Við tókum mið af
Shadows og hljóðfæraskipan var eftir því. Ég
spilaði á trommur og við fengum inni í skólan-
um til æfinga.
Það fór afskaplega mikill tími í þetta. Við byrj-
uðum að spila í Breiðfirðingabúð og síðan tals-
vert á Keflavíkurflugvelli. Þar þótti í frásögur
færandi, að við vorum einu hljómsveitastrák-
arnir sem ekki drukku bjór. Við vorum ungir og
saklausir, reglusamir og ekkert í partýlífi.
Heilt sumar vorum við hljómsveit hússins í
gamla Sigtúni, og þá bættist Sigrún Harðardóttir
í hópinn."
— Sem sagt... Orion?
„Einmitt. Þetta var mjög skemmtilegur tími.
Efnisskráin var býsna fjölþætt. Við lögðum
áherslu á leikna tónlist; suður-ameríska og djass.
Það var kannski nokkuð merkilegt í sögu hljóm-
sveitarinnar, að við gerðum nokkra sjónvarps-
þætti. En eftir að hafa spilað tvo vetur í Leikhús-
kjallaranum tvístraðist hópurinn. Sigurður Ingvi
og Snorri Örn héldu til náms í Austurríki, en við
Eysteinn vorum áfram í skóla hérna heima.“
— Hvadan kemur tónlistaráhuginn?
„Úr báðum ættum. Smápolli sat ég fyrir fram-
an grammófón og söng með Gittu Hænning. Ég
þótti músíkalskt barn, og átti að setja mig til
mennta á því sviði. Mér gekk vel í fyrstu píanó-
tímunum. Kennarinn spilaði fyrir mig það sem
ég átti að læra heima. En lögin voru ekki flókn-
ari en svo, að ég lærði þau utanað. Mér fannst
skemmtilegra að spila eftir eyranu, og var ófá-
anlegur til að halda náminu áfram. Þess vegna
les ég ekki nótur.“
— Semuröu tónlist?
„Nei, ekkert nema hvað ég spinn stundum í
morgunleikfiminni. Þegar við byrjum, hef ég
ekki hugmynd um hvað Jónína ætlar að gera. Ég
reyni bara að fylgja henni."
Stefán þagnar og hugsar sig svolítið um.
„En ég hefði gaman af að prófa að semja tón-
list, — einhvern tímann — þegar ég verð stór.“
Fórnarlamb
þjóðfélagsaðstæðna?
— En þegar þú varst minni. Ætlaöiröu aö
veröa eitthvaö sérstakt?
„Ég hafði aldrei ákveðnar skoðanir á því. Ekki
nema á þvt tímabili sem ég las bækurnar um
Tom Swift, Ijóshærða, átján ára uppfinninga-
manninn. Þá ætlaði ég að verða vísindamaður.
Annars hugsaði ég lítið um framtíðina. Ég var
ágætis nemandi í barnaskóla. Upp úr því fór
áhuginn að hneigjast að flestu öðru en náms-
bókunum. Ég fékk hljóðfæra- og hjjómsveitar-
maníu sem sumir fá á vissum tíma. Ég sá ekkert
annað, lifði og hrærðist í þeirri veröld.
Ég lauk landsprófi í Vogaskóla við illan leik.
Ég las mikið og hef alltaf gert, en mér leiddist
námið, áttaði mig ekki á gildi þess að læra utan-
bókar. Hins vegar hafði ég áhuga á tungumálum
og félagsfræði, því sem ég sá að nýttist mér í
dagsins önn. Ástandið fór enn versnandi í MR.
Mér leiddist óskaplega í menntaskóia, þótti
námsefnið Ieiðinlegt. Eftir tveggja vetra nám
hætti ég, staðráðinn í að gerast hljóðfæraleikari.
Við spiluðum í Leikhúskjallaranum um helgar.
Þess á milli seldi ég kjöt hjá Silla og Valda.
Hvorutveggja var lærdómsríkt. Ég held ég hafi
lært mikið í sálfræði á næstu tveimur árum; í
skemmtanalífinu og þegar ég seldi fólki vörur
yfir borðið. Ég þurfti líka að átta mig betur á
sjálfum mér.“
— Hefurðu nýtt þér sálfrœöikunnáttuna?
„Ég les mikið um sálfræði, og fylgist töluvert
vel með því sem er að gerast í þeim efnum. Af
hverju? Líklega af því ég hef gaman af fólki. Jú,
þetta hefur komið óbeint að gagni í starfi, raun-
ar beint í kennslu. En margt af því sem ég geri
byggist fremur á innsæi en kalkúleruðum at-'
höfnum."
— Hvaö lestu annaö?
„Ég les mikið af enskum bókmenntum —
pocketbókum. Yfirleitt það sem menn benda á
sem þolanlegar skáldsögur."
— Skrifar þú kannski sjálfur?
„Nei. Ég hef ekki gert það.. . “
Stefán hikar — ég bíð.
„Eitt ljóð hefur reyndar birst eftir mig á
prenti," viðurkennir hann svo. í Lesbók Morgun-
blaðsins fyrir nokkrum árum. Það þvældist
þangað fyrir tilviljun."
— Pá hefur þú skrifaö?
„Meira fyrir sjálfan mig. Kannski maður dundi
sér við það í ellinni. Ég hef aðallega verið að elta
hugsanir annarra með þýðingum.
Eg byrjaði að þýða bækur austur á Hallorms-
stað, þar sem ég kenndi í þrjú ár. Ég hafði kennt
í fimm ár í Breiðholtsskóla, var kominn í sam-
búð og við vildum breyta til. Ég þýddi nokkrar
barnabækur fyrir Örn og Örlyg og bókina Sjafn-
aryndi. Þetta var peningaspursmál. Það á ekki
vel við mig að sitja við skrifborð.
Upp úr Hallormsstaðadvölinni varð reyndar
vendipunktur í lífi mínu. Skilnaður. En mér
fannst gott að vera fyrir austan. Ég hafði áður
verið í basli við að koma undir mig fótunum og
vann mikið, hálf geðveikislega á köflum. Það
var þægilegt að koma þangað sem takturinn var
öllu hægari." __
— Basliö? Attu viö íbúöarkaup?
„Já. Að sumu leyti varð maður fórnarlamb
þjóðfélagsaðstæðna; þess að verja árunum milli.
tvítugs og þrítugs í sleitulausa vinnu til að eign-
ast þak yfir höfuðið. Ég held að ég hafi ekki haft
nægan tíma til að vera til. Mér finnst ekki eðli-
legt að svo mikið af orku manns fari í að full-
nægja þessum brýnustu nauðsynjum. Síðan er
eins og þetta vindi upp á sig. Jafnvel þó fólk hafi
komið sér fyrir, þá hættir það ekki en heldur
áfram. Þangað til það vaknar upp einn góðan
veðurdag innan um ýmsa dauða hluti, og upp-
götvar að eitthvað vantar.
Vinna er mikilvæg, en má ekki verða of mikil-
væg. Fólk má ekki heldur vanmeta vinnuþátt-
inn í mannlegum samskiptum. Ég held að vinn-
an ein skapi verðmæti. Kannski á það líka við
um ástarsamband. Til að það dafni og blómstri
verður að sinna því.
Kapphlaupið birtist víða. Til dæmis í skóla-
kerfinu, alveg upp í Háskóla. Fólk lærir oft til að
ná ytri markmiðum, en ekki vegna þess að það
hafi gildi í sjálfu sér að læra eitthvað."
Ekkert morgunfúll
— Hefur lífiö kennt þér meira en skólarnir?
„Já. Skóli er í raun og veru fjarstæðukennd
stofnun. í námsskrám segir að hann eigi að efla
dómgreind fólks, kenna því að vera gagnrýnið á
sjálft sig og þjóðfélagið. En ef vel tekst til og
nemandinn fer að opna augun og gagnrýna
skólann, er risið upp á afturfæturna og ekki tek-
ið tillit til þessarar gagnrýni. Skólinn er stofnun.
Meðal annars þess vegna er honum svo erfitt að
gegna skyldum sínum.
I grunnskólalögunum stendur að taka eigi tillit
til nemenda sem einstaklinga. Samt eru allir
prófaðir í því sama. Áhersla er t.d. lögð á staf-
setningarpróf, því útkomuna er svo auðvelt að
mæla. Það er aftur erfiðara með ritgerðasmíð.
Prófskírteini og stefnuyfirlýsingar stjórnmála-
flokkanna eiga það sameiginlegt, að veruleik-
inn verður oft annar þegar til kastanna kemur."
— Ert þú pólitískur?
„Nei, ég get ekki talist það. Ég fylgist sæmi-
lega með, og hef skoðun á málum. En mér finnst
að það þurfi að skilgreina upp á nýtt þau hugtök
sem menn nota í umræðunni. Hugmyndir um
pólitískar andstæður; hægri — vinstri, — ég hef
oft á tilfinningunni að menn séu að tala í kross."
— Aftur á bak í tíma. Þú hélst áfram námi?
„Reynsla mín af skólum og þörfin fyrir að gera
eitthvað annað en að selja kjötfars og spila á
trommur, toguðust á í mér. Ég gat ekki hugsað
mér að leggja það fyrir mig til frambúðar. Einn
daginn lagði ég því leið mína í Kennaraskóiann
að hitta Brodda Jóhannesson. Móttökur hans á
þessum tímamótum höfðu mikil áhrif á mig.
Hann hafði einhvern pata af spilamennskunni,
og spurði gjörla út í trommur og trommuleik.
Það lýsti honum vel, manneskjulegur áhugi á
svo ótal mörgu.
Ég fékk inngöngu og strax að afloknu stúd-
entsprófi fór ég að kenna. Það varð mitt aðal-
starf. Ég hefði hlegið ef einhver hefði spáð því
fimm árum áður. Með kennslunni stundaði ég
nám í ensku og sagnfræði í Háskólanum."
— Tilheyrandi aukavinna í íbúöarharkinu?
„Þýðingar hjá sjónvarpinu í nokkur ár, sem
var afskaplega góður skóli hvað íslensku snertir.
Tungumál hafa alltaf verið mínar ær og kýr.“
— Spurning sem ekki á heima í viötali: Áttu
kaffi?
Stefán hlær. „Ég er búinn að vera í startholun-
um allan tímann." Snarast fram í eldhús og hellir
uppá. Kemur aftur að vörmu spori með rjúkandi
kaffi og tvo bolla.
— Útvarpiö — ertu morgunmaöur?
„Ég taldi mig lengst af vera kvöldmann frem-
ur en morgunmann. En ég er ekkert morgunfúll.
Mér finnst gott að vera til á kvöldin. Ég legg mig
um miðjan dag fremur en að fara snemma að
sofa. Ég er oft sofandi um þetta leyti og vakna
klukkan fjögur. Mér skilst að Rómverjar hafi haft
þennan háttinn á.“
— Hvernig er virkur dagur hjá þér?
„Ég vakna klukkan hálf sex og tek tíma í að
fara í sturtu og fá mér morgunmat. Síðan fer ég
niður í útvarp, að undirbúa útsendingu. Að þætti
loknum hefst undirbúningur þess næsta; við
setjum meðal annars saman nákvæmt handrit,
sem er lykilatriði.
Ég borða hádegismat í útvarpinu, og fer svo
heim og legg mig. Síðan fer ég út að hjóla eða
í góðan göngutúr. Ég geng mikið um gamla bæ-
inn. Hvað ég hugsa? Ekki um útvarpið held ég.
Kannski hugsa ég sem minnst. Mér finnst gaman
að fylgjast með fólki.
Að þessu loknu kem ég við í útvarpinu og
geng frá lausum endum. Ef það gengur vel,
finnst mér gott að fara í sjö-bíó. Þá á ég talsvert
eftir af kvöldinu, sem ég nýti til að lesa eða horfa
á sjónvarp. Tómstundir eru fáar. Það má eigin-
lega segja að morgunútvarpið sé „a way of life“.“
Veit að ég er ekki
að tala við vindinn
— Hefuröu aldrei sofiö yfir þig?
„Nei. Mér gengur vel að vakna, og finnst gott.
að vakna snemma í kyrrðinni sem ríkir í borg-
inni. Hins vegar nýt ég ekki til fullnustu þessarar
sérstöku stemmningar, því mjög fljótlega stilli ég
mig inn á útvarpsbylgjuna; hvernig er veðrið, er
eitthvað sem ég get notað í upphafi útsendingar.
Fyrsti hálftíminn er sérstakur. Við erum í raun-.
inni að vekja þjóðina. Það veldur því að tónninn
er annar en síðar í þættinum. Óljóst gerir maður
sér grein fyrir að þetta er viðkvæmur tími. Ég
reyni að vera ég sjálfur fyrst og fremst, að tala
við hlustandann fremur en að tala til hans."
— Hvernig skynjaröu hlustandann?
„Innan þessara lokuðu veggja? Útvarpið er
óendanlega flókinn miðill. En ég skynja hlust-
andann og veit að ég er ekki að tala í vindinn.
Tónninn skiptir jafnmiklu máli og það sem sagt
er á þessum tíma sólarhrings. Það er mjög sér-
kennilegt — þetta ósýnilega samband milli út-
varpsmanna og hlustenda í loftinu."
— Hefur svona þáttur ákveönar skyldur?
„Hann á að veita hlustendum ákveðnar upp-
lýsingar og þjónustu, sem líklegt er að komi að
gagni að morgni dags. Og einfaldlega að leika
tónlist og flytja annað efni sem léttir lund fólks.
Það skiptir miklu máli í skammdeginu."
— Mistök?
„Það eru alltaf einhver mistök í þessu starfi.
Þau eru af hinu góða. í beinni útsendingu ætlast
fólk ekki til þess að við séum fullkomin. Ég veit
að ég geri mistök og geri hluti verr en ég vildi.
I þætti sem þessum ríkir stundum meðal-
mennska. Ég veit að það væri hægt að gera
svona þátt miklu betur.
Ég hitti breskan kollega minn, sem hélt að ég
væri bilaður á geðsmunum að halda úti tveggja
tíma útsendingu með tveimur manneskjum.
Það fer orka í að halda þættinum gangandi. Ég
reyni að vinna starf mitt vel, en tek sjálfan mig
ekki of alvarlega. Mér finnst ég ekki missa niður
um mig buxurnar þó ég geri mistök."
— Fœröu mikla gagnrýni?
„Nei, viðbrögðin eru yfirleitt góð. Sem merkir
ekki að ég sé sáttur við morgunútvarpið eins og
það er núna. Þátturinn þarf að breytast. Þann
dag sem ég verð ánægður, sný ég mér að öðru!“
— Hvers vegna?
„Það hlýtur að tákna stöðnun."
Dulur og feiminn —
í aðra röndina
— Framtíö útvarpsins?
„Það er athyglisvert að menntunarmálin hafa
alveg gleymst. „Free-lance" kerfið er við lýði,
sem hefur ótvíræða kosti. Hins vegar er dag-
skrárgerð fag sem krefst menntunar. Sé ætlunin
að breyta og bæta þurfum við að sækja okkur
menntun, t.d. til nágrannalandanna. Þessi út-
varpsstöð er einstök í veröldinni að því leyti að
þar starfa engir pródúsentar. „Free-lance“ fólkið
nýttist betur ef fagmenn ynnu með því. Margar
góðar hugmyndir fara fyrir bí, því fólk hefur
ekki næga þekkingu á miðlinum. Ég er ekki að
segja að efnið sé lélegt, en það vantar herslu-
muninn. Við sem erum að fást við dagskrárgerð,
hefðum gott af að læra meira, fá vitneskju um
það sem er að gerast í öðrum löndum. í tækni-
deild er til dæmis krafist faglegrar menntunar af
starfsmönnum, enda mjög góð deiid.“
— A útvarpiö hug þinn aö miklu leyti?
„Þar sameinast býsna margt sem ég hef áhuga
á; íslenskt mál, tónlist, fólk — þetta er mjög
skapandi starf."
— Ætlaröu aö halda þig áfram innan veggja
þess?
„Ég veit það ekki. Satt að segja hefur lengi
brotist í mér þörf fyrir að eiga heima annars
staðar en í þessu ágæta landi. Það er allt opið.
Hins vegar fer að verða tímabært að ég taki
ákvörðun um hvað ég ætla að verða. Þó ég hafi
ekki haft brýna þörf fyrir að vera eitthvað sér-
stakt. En eftir því sem ég eldist, leiðist mér meira
að vasast í mörgu."
— Hvernig viltu eldast?
„Það er afskaplega erfitt að svara þessari
spurningu. Ég vildi gjarnan vera nokkurn veg-
inn sáttur við sjálfan mig. Finnast sem svo að
mér hefði tekist að nokkru leyti að gera eitthvað
sem skiptir mig verulegu máli, og kannski aðra
í leiðinni. Menn vanmeta oft þær kröfur sem
þeir ættu að gera til sjálfra sín, — vegna sjálfra
sín."
— Ég baö þig aö lýsa sjálfum þér. En hvaöa
mynd helduröu aö fólk hafi af þér?
„Ég veit það ekki. Ég veit ekki að hve miklu
leyti ég kemst til skila í útvarpi. Ég held að hver
verði að skilja mig og skynja á sinn hátt. Ég reyni
að vera ég sjálfur, að eins miklu leyti og ég get.
Það merkir — ef ég er dulur og feiminn — sem
ég er í aðra röndina, þá reyni ég ekki að vera
eitthvað annað.
Ef þú ert ekki mjög upprifinn að morgunlagi
í útvarpi, þá ættirðu ekki að reyna það. Það
finnst fremur en það heyrist."
— Ert þú sáttur viö lífshlaup þitt?
„Nei. Ef ég ætti að byrja upp á nýtt, vildi ég
vera samkvæmari sjálfum mér. Þá kem ég að því
sem ég sagði áðan; um þessar skyldur manns
gagnvart sjálfum sér.“
— Hvar hefur þú brugöist?
„Ég held það sé ekki hollt fyrir fólk að reyna
að gera öðrum til hæfis nema að takmörkuðu
leyti. Fólk leiðist oft út í að gera það sem það er
ekki sátt við. Um leið fer of mikil orka í að róa
gegn andstreymi, og fólk verður ekki aflögufært
gagnvart öðrum. í fáum orðum: Ég held að ég
hafi verið allt of hræddur við að vera til. Ekki að
ég sitji og gráti vegna þess, en mér finnst ég sjá
þetta betur núna. Þó held ég að þessi illúsjón sé
aigengari meðal kvenna en karla; að það sé af
hinu góða að fórna sér.“
Að missa ekki
jarðsambandið
— Ert þú kvenréttindamaöur?
„Ég er ekki kvenréttindasinni."
— Af hverju ekki?
„Vegna þess að ég sýni það ekki í verkum mín-
um. Ég á svo langt í land með að aðlagast þess-
um breyttu viðhorfum. Ég skil þau og viður-
kenni á borði, og gæti haldið langar ræður þar
um. En hérna heima hjá mér gengur það ekki
nógu vel. Við vinnum bæði úti og eigum að
skipta með okkur verkum, en sú skipting er ekki
jöfn.“
— Er konan þín sátt viö þetta?
„Nei.“
— Reynir þú aö breyta því?
„Já. En þá komum við að því að húsverkum
karla fylgir ákveðinn byrjendabragur. Konurnar
vilja að þeir vinni störfin á þeirra forsendum, og
enda með að segja: Það er alveg eins gott að ég
geri þetta sjálf. Eg held að konur eigi sinn þátt
í að viðhalda þessu mynstri."
— Eg held áfram aö vera persónuleg. Ertu trú-
rœkinn, eöa öllu heldur trúaöur?
„Ég er ekki trúrækinn. Það er að segja, ég
sæki ekki kirkju á sunnudögum. En ég er trúað-
ur — einhvern veginn. Enn hef ég þó fremur litla
þörf fyrir að skilgreina Guð. Það kemur. Ég held
að hver verði að rækta Guð í sjálfum sér. Enda
hlýtur hver að skilja hann á sinn hátt."
— Attu maroa vini?
„Nei.“
— Nójgu marga?
„Já. Eg held að einn góður vinur sé alveg nóg.
Eg á reyndar fleiri en einn, en þeir eru ekki
margir. Ég umgengst marga starfs míns vegna,
en ekki þess utan.“
— Ertu sjálfum þér nógur?
„Já, nokkuð svo. Ég kann að meta einveru, og
þarf á henni að halda stundum.“
Líturöu á þig sem þekktan mann?
„Ég upplifi mig ekki þannig. Þó veit ég að
býsna margir þekkja nafnið mitt og málróminn.
I verunni er ég oft ósáttur við þá mælistiku
sem blaðamenn nota í þessu sambandi."
-Nú?
„Mér finnst ekkert merkilegra að vinna hjá út-
varpinu en annars staðar.
Ég skal nefna þér dæmi. Ég fer út klukkan sex
á hverjum morgni. í hvert skipti sé ég mann í
rauðum fötum á leið til vinnu, ég held við sorp-
hreinsun. Af hverju ertu ekki að tala við hann?“
— Aha...
„Mér finnst það eigi að vera meginhlutverk út-
varpsins að þjóna fólki. Ég held það sé mikil-
vægt fyrir þá sem starfa í fjölmiðlum að missa
ekki jarðsambandið, — að tapa ekki áttum
vegna eðlis starfsins.“