Helgarpósturinn - 07.02.1985, Blaðsíða 16
/
FREE
STYLE
ÍÐRMSKIJM
L'OREAL
IKé
33a.
Já — nýja lagningarskúmið
frá L'ORÉAL
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
J.H. PARKET
auglýsir:
Er parketið
orðið ljótt?
Pússum upp og lökkum
parkp:t
Einnig pússumvið
upp og lökkum
hverskyns
viöargólf.
Upplýsingar í síma
78074.
Geymiö auglýsinguna.
INNIHURÐIR
m
NÝJA LÍNAN
• Getum nú boðið gæðahurðir frá Svenska Dörr.
• Hurðirnar fást í mörgum gerðum, í furu hvít-
málaðar og spónlagðar.
• Gott verð og góðir greiðsluskilmálar.
HARÐVIÐARVAL HF.
Skemmuvegi 40, Kópavogi Sími 74111.
SÝNINGAR
Árbæjarsafn
eropið skv. samkomulagi líktog undanfama
vetur. Upplýsingar i slma 84412.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í Ásgrímssafni er að finna sýningu á mynd-
um Ásgríms Jónssonar sem eru í eigu safns-
ins og lýsa lífi og starfi til sveita. Sýningin er
hugsuð sem skólasýning fyrir grunnskóla-
nemendur og munu safnkennarar annast
fræðsluna í safninu. Upplýsingar eru gefnar
í síma 621550. Safntímar eru á mánud. kl.
13:30—16 og fimmtud. kl. 9—12. Safniö er
opið fyrir almenning á þriðjud., fimmtud. og
laugard. kl. 13:30—16. Sýningin stendur til
aprílloka.
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Laugardaginn 9. febrúar verður opnuð sýn-
ing á vatnslitamyndum Nikulásar Sigfús-
sonar íÁsmundarsal. Sýningin er opin virka
daga frá 16—22 og um helgar frá 14—22.
Sýningunni lýkur þann 17. febrúar nk.
Gallerí Grjót
Skólavöröustíg 4a
Samsýningu aðstandenda Gallerís Grjóts er
nú að finna á Skólavörðustíg 4a. Þar eru ým-
iskonar verk til sýnis og sölu, s.s. myndlist,
gullsmíði, keramik og handprjónaðar peys-
ur. Opið er daglega frá 12—18.
Hafnarborg
Strandgötu 34, Hf.
í menningarmiðstöðinni Hafnarborg er yfir-
standandi sýning á verkum þriggja lista-
manna, þeirra Gests Guðmundssonar, Sig-
urbjörns Öskars Kristinssonar og Jónínu
Guðvarðardóttur, en þar má finna málverk,
teikningar og leirlist. Sýningin er opin dag-
lega frá 14—19 og stendur til 17. febrúar.
Höggmyndasafn
Ásmundar Sveinssonar
við Sigtún
„Vinnan í list Ásmundar Sveinssonar" er yf-
irskrift sýningar sem stendur yfir í safninu. Á
henni er sýnd hin tæknilega hlið högg-
myndalistarinnar, s.s. tæki, efni og aöferðir,
og einnig höggmyndir þar sem myndefnið
er „vinnan". Safnið er opið daglega frá kl.
10-17.
Kjarvalsstaðir
við Miklubraut
I vestursal Kjarvalsstaða sýnir Sveinn
Björnsson málverk. Sýningin stendur til 17.
febr.
Um helgina stendur fyrir dyrum sýning í
austursal, Kjarvalssal, á samkeppnistillög-
um um skipulag Arnarhóls. Hér munu lands-
lagshönnuðir eiga hlut að máli en það eru
ríki og bær sem standa fyrir hugmyndasam-
keppninni.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega fyrir gesti
og gangandi kl. 14 — 22.
Listasafn Íslands
við Suðurgötu
í Listasafni íslands stendur nú yfir sýning á
vatnslitamyndum Gunnlaugs Scheving sem
er hluti af dánargjöf hans til safnsins. Einnig
eru til sýnis glermyndir eftir Leif Breiðfjörö
og ýmis önnur verk í eigu safnsins. Safnið er
opiö fjórum sinnum í viku; á þriðjudögum,
fimmtudögum, laugardögum og sunnudög-
um kl. 13:30-16.
Listamiðstöðin
Hafnarstræti 22
Sýning á plakatlist í Listamiðstöðinni við
Lækjartorg verður opnuð á laugardaginn, 9.
febr. kl. 14. Sýningin er á vegum plakatversl-
unarinnar Hjá Hirti. Veggspjöldin eru frá hol-
lensku fyrirtækjunum Art Unlimited og
Verkerke. Sýningin stendur til 17. febr. nk.
og er opin daglega frá 14—18. Aðgangur er
ókeypis.
Norræna húsið
(Sýningin í anddyri stendur enn yfir.)
Guðmundur Björgvinsson opnar sýningu
sína á laugardaginn kl. 14 í kjallara Norræna
hússins en það munu vera vaxlitateikning-
ar sem verða til sýnis. Sýningin verður opin
daglega frá kl. 14—22. Áætlað er að hún
standi til 24. febrúar nk.
Mokka
Skólavörðustíg 3b
Nú stendur yfir Ijósmyndasýning Lofts Atla
á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þetta er
3ja einkasýning hans en auk þess hefur
hann tekiö þátt í nokkrum samsýningum. Á
sýningunni eru hvorttveggja svart/hvítar
myndir og litmyndir. Sýningin er opin til 25.
febr.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning er opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum kl. 14—16.
Þjóðminjasafnið
Sýning á myndverkum Sölva Helgasonar
stendur enn yfir í Þjóðminjasafninu og verð-
ur svo um nokkurt skeið. Athyglisverð þó
ekki væri nema fyrir þær sakir að Sölvi var
meö þeim fyrstu sem helgaði sig nær ein-
göngu myndlistinni. Sýningin er í stofu við
hliðina á Fornaldarsalnum og er opin á
þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum
og sunnudögum kl. 13.30—16.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
Austurbæjarbíó
Purple Rain
★
Sjá umsögn í Listapósti.
Sýnd í sal 1, kl. 5, 7, 9 og 11:15.
Gullsandur
★★
Sýnd í sal 2, kl. 5, 7, 9 og 11.
Hrafninn flýgur
★★★
Endursýnd í sal 3, kl. 5, 7, 9 og 11.
Bíóhöllin
I fuliu fjöri
(Reckless)
Bandarísk. Arg. 1984. Leikstjóri: James Foly.
Aðalleikarar: Daryl Hanna (skutlan íSplash),
Aidan Quinn, Cliff Young. Þessi mynd er frá
MGMUA um unglinga sem kunna að lifa og
leika sér, eins og það heitir víst.
Sýnd í sal 1, kl. 5, 7, 9 og 11.
1984
★★★
Bresk. Árg. 1984. Kvikmyndataka: Roger
Deakins. Framleiðandi: Simon
Perry/Umbrella Films. Handrit og leikstjórn:
Michael Radford (eftir sögu George Orwells,
1984). Aðalhlutverk: John Hurt, Richard
Burton, Suzanna Hamilton, Cyril Cusack,
Gregor Fisher o.fl.
Hin sígilda skáldsaga Orwells um mar-
tröðina í verkamannaríki fámennisstjórnar.
Góður leikur og vönduð sviðsetning í um-
hverfi eftirstríðsáranna.
Sýnd í sal 2, kl. 9 og 11:05.
Stjörnukappinn
(The Last Starfighter)
Árg. 1984. Handrit: Jonathan Betuel. Kvik-
myndataka: King Baggot. Leikstjóri: Nick
Castle. Aðalhlutverk: Lance Guest, Dan
O'Heliby, Catherine Mary Stewart og Robert
Preston.
Sýnd í sal 3, kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Sagan endalausa
(The Never Ending Story)
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Wolfgang
Petersen. Handrit: Herman Weigel, eftir bók
Michaels Ende. Framleiðandi: Bernd Eich-
inger og Dieter Geissler. Tónlist: Giorgio
Moroder (Cat People, Flashdance). Aðal-
hlutverk: Barret Oliver, Noah Hathaway,
Tami Stronach, Moses Gunn.
Sýnd í sal 2, kl. 3, 5 og 7.
Rafdraumar
(Electric Dreams)
★
Sýnd í sal 4, kl. 5, 7:05, 9:10 og 11:15.
Háskólabíó
Vistaskipti
(Trading Places)
★★
Bandarísk. Árg. 1983. Handrit: Timothy
Harris/Herschel Weingro. Tónlist: Elmer
Bernstein. Leikstjórn: John Lands. Aðalhlut-
verk: Dan Aykroyd, Eddie Murphy, Denholm
Elliot, Ralph Bellamy, Don Ameché o.fl.
„Ríkur gerður fátækur, fátækur gerður rík-
ur... Leikstjóranum hefur tekist að gera bráð-
fyndna mynd um þvælt þema... frábær
afþreying... Stjörnuleikur. Handrit pottþétt
og plottþétt." -IM.
Sýnd kl. 5, 7:05 og 9:15.
Laugarásbíó
Lokaferöin
(The Final Mission)
Bandarísk. Árg. 1984. Aðalhlutverk: Richard
Young, John Dredsen. Myndin ku vera í stíl
við The First Blood sem sýnd var hér fyrir
nokkru. Sögusviðið er Laos, árið 1971.
Ósannsöguleg. Léttgeggjaður krimmi.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Nýja Bíó
Bachelor Party
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Neal Israel.
Aðalleikarar: Tom Hanks, Tarny Kitaen. Þessi
filma hefur að geyma gamanmál: Ungur
maður hyggst steypa sér, sjálfviljugur, útí
mýrarfen hjúskapar og vinirnir sjá sig knúna
til að koma saman og kveðja í hinsta sinn...
Sýnd frá og með föstudegi, kl. 5, 7,9 og 11.
Regnboginn
Cannonball Run II
Bandarísk. Árg. 1984. Framhald Cannonball
I frá 1981. Leikstjóri: Hal Needham. Aðalhlut-
verk: Burt Reynolds, Dom DeLuise, Shirley
McLaine, Marilou Henney og fleiri stjörnu-
gestir. Tja, já.. .best að segja ekki neitt!
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11:15.
Úlfadraumar
(The Company of Wolves)
★★
Bresk. Árg. 1984. Leikstjórn: Neil Jordan.
Handrit: Neil Jordan ásamt Angelu Carter.
Kvikmyndun: Bryan Loftus. Aðalleikarar:
Sarah Pátterson, Angela Lansbury, Tusse
Seilberg, David Warner.
1 „...en ef vel er að gáð, klikkar leikstjórinn
jaldrei. Það eru hvergi lausir þræðir í flétt-
|unni, og með jafn vel unninni sviðsmynd,
jförðun og kvikmyndun sem verkið prýöa,
verður þessi nýstárlega meöhöndlun á
gömlum sögusögnum góður skemmtiþriller
sem ástæöulaust er aö óttast. Þetta var jú
draumur." -SER.
Sýnd kl. 5:05, 7:05, 9:05 og 11:05.
Uppgjörið
(The Hit)
★★
Bresk.Árg. 1984. Handrit: Peter Prince. Kvik-
myndataka: Mike Moloy. Tónlist: Eric Clap-
ton o.fl. Leikstjórn: Stephen Frears.
Aðalhlutverk: John Hurt, Tim Roth, Terence
Stamp, Laura Del Sol, Bill Hunter, Fernando
Rey o.fl.
„. . .The Hit fer vel af stað, gefur góðar vonir,
en handritshöfundur og leikstjóri lenda í
vandræðum með fléttuna og lausnin verður
skjót, vanhugsuð og illa unnin — og kvik-
myndin fellur í lokin." -IM.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11:15.
Nágrannakonan
(La Femme d'a Cöté)
★★★
Sýnd kl. 7:15.
Tónabíó
Rauö dögun
(Red Dawn)
★
Bandarísk. Árg. 1984. Handrit: Kevin Reyn-
olds og John Milius eftir bók Reynolds. Tón-
list: Basil PDledoyrid. Leikstjórn: John
Milius. Aðalhlutverk: Patrick Swayze, C.
Thomas Howell, Lea Thompson, Ben John-
son o.fl.
„Þetta er ekki góð mynd. í fyrsta lagi er
handritið harla ósannfærandi. . . Í ööru lagi
er söguþráðurinn afar slitróttur, einstaka at-
burðir tengjast illa í eina heild og maður
botnar eiginlega hvorki upp né niður í þess-
um skæruhernaði.
Rauð dögun er áróðursmynd gegn þjóð-
frelsishreyfingum S-Ameríku og óvenjulega
farðalaust hatur á Sovétmönnum og Kúbön-
um." -IM.
Stjörnubíó
The Karate Kid
Bandarísk. Árg. 1984. Framleiðandi: Jerry
Weintraub. Handrit: Robert Mark Kamen.
Kvikmyndun: James Crabe. Leikstjóri: John
G. Avildsen. Aðalhlutverk: Ralph Macchio,
Noriyuki „Pat" Morita, Elisabeth Shue,
Martin Kove, Randee Heller, William Zabka,
Ron Thomas, Rob Gerrison, Chad Mc-
Queen o.fl. Tónlist: Bill Conti.
Sýnd í A-sal, kl. 5, 7:30 og 10.
Draugabanar
(Ghostbusters)
★★
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjórn og fram-
leiðsla: Ivan Reitman. Handrit: Don Aykroyd
og Harold Ramis. Kvikmyndun: Lazlo Kov-
acs. Brellur: Richard Edlund. Tónlist: Elmer
Bernstein og Ray f^arker jr. Aðalleikarar: Bill
Murrey, Dan Aykroyd, Sigourney Weaver,
Harold Ramis, Rick Moranis.
„Myndin er BÍÓ, full af mikilfenglegu fjöri
sem oft kostar bakföll. Stemmningin er þess
eölis að menn taka þátt í henni, ekki ósvipað
og þegar setið er framan viö beina útsend-
ingu. . . ." -SER
Sýnd í B-sal, kl. 5 og 9.
LEIKLIST
Leikfélag Akureyrar
Stykkið sem Sveinn Einarsson útbjó fyrir
Leikfélag Akureyrar, „Ég er gull og gersemi",
verður sýnt í kvöld, fimmtudag og á laugar-
daginn, 9. febr. Þetta er næstsíðasta sýning-
arhelgi. Sjónleikurinn hefst báða dagana kl.
20:30.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Þau ánægjulegu tíöindi berast úr Alþýðu-
leikhúsinu að það muni halda áfram sýning-
um á Beiskum tárum Petru von Kant í a.m.k.
mánuð. Þeir sem hafa hug á því að sækja
leikhúsið heim, verða að sitja á sér enn um
sinn, því það mun vera uppselt á sýningam-
ar um helgina.
TÓNLIST
Austurbæjarbíó
Bandaríski píanóleikarinn Ruth Slenczynska
hélt tónleika fyrir fullu húsi um sl. helgi og á
því engan annan kost en að setjast viö flygil-
inn á ný. Það verður á laugardaginn kemur
kl. 14 í Austurbæjarbíói. Á efnisskránni
verða 12 etýður op. 10 eftir Chopin og
Nokturna eftir Aaron Schumann, 12 etýður
op. 25 eftir Chopin.
Háskólabíó
Áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands verða haldnir í Háskólabíói í kvöld,
fimmtudag og hefjast þeir kl. 20:30. Þor-
steinn Gauti Sig. verður einleikari á píanó.
Stjórnandi tónleikanna verður Jean-Pierre
Jacquillat.
Kjarvalsstaðir
Myrkir músíkdagar standa fyrir flaututón-
leikum á sunnudaginn kemur, kl. 21. Einleik-
ari á tónleikunum verður Kolbeinn Bjarna-
son.
VIÐBURÐIR
Kvennahúsið
Hótel V[k
Að venju hittast konur á laugardaginn í
Kvennahúsinu kl. 13 til skrafs og ráðagerða
en þá mæta vorkonur Alþýðuleikhússins og
ræða um Klassapíur, efni verksins og vinnu
við það.
16 HELGARPÓSTURINN