Helgarpósturinn - 07.02.1985, Blaðsíða 27
yfir athugun á því, hvort svokallað-
ar reikningsskilavenjur séu í heiðri
hafðar hjá bönkunum. Það sem
rannsóknin beinist að er hvernig
skuldbindingar þessara banka
vegna lífeyrissjóða eru skráðar í árs-
uppgjöri. Eins og nú er í pottinn bú-
ið, hafa bankarnir skráð þessar
skuldbindingar sem samtals skipta
hundruðum milljóna sem gjöld.
Meðal endurskoðenda eru ýmsir á
þeirri skoðun að þessi aðferð sé
röng. Það sem bankarnir séu að
gera, sé að breyta arði í gjöld og
þannig takist þeim hreinlega að
svíkja undan tekjuskatti. Sömu
reikningsskilavenjur nota önnur
fyrirtæki, t.d. Eimskip. Fyrir árið
1983 nam það sem kallað er eftir-
launaskuldbinding rúmum 80 millj-
ónum króna hjá Eimskipi. Um þetta
er deilt og telja aðrir endurskoðend-
ur að þessi bókhaldsaðferð sé í góðu
lagi og líta þá gjarnan til þess að við-
komandi fyrirtæki og stofnanir séu
að gera starfsmönnum sínum gott
með því að taka á sig skuldbinding-
ar sem þeim ber í raun ekki. Niður-
stöðu úr athugun Seðlabankans er
að vænta í marslok.. .
A
^^^«ram með ölduganginn.
Umferðaröldurnar hafa siglt gegn-
um öll embættisráð og -nefndir
borgarinnar fyrirhafnarlaust. Allir
eru fylgjandi „öldum", enda er ljóst
að þær eru eina raunhæfa leiðin til
að draga úr ökuhraða bíla í íbúðar-
hverfum og í kringum skóla. Málið
stöðvast hins vegar í borgarráði.
Það samþykkti aðeins 16 „öldur“ af
40 sem voru lagðar til í fyrra og nú
gengur hægt að fá samþykki ráðsins
fyrir 86 til viðbótar. Margir hafa
reynt að átta sig á einhverri skyn-
samlegri skýringu á stirfni borgar-
ráðs í þessu máli, en gengið frekar
illa. Nú eru menn þó búnir að koma
Barnamyndatökur
Tækifærismyndatökur
Brúðarmyndatökur
Fjölskyldumyndatökur
I J()SM\'ND;\ST()FA RKYKIAVIKUR
HVERFISGÖTU 105, 2. HÆÐ, RÉTT VIÐ HLEMM. SÍMI 621166.
auga á eina þó ljót sé: Borgarráðs-
menn eiga allir fína bíla sem þeim
finnst gaman að keyra hratt. Þeir,
persónulega, vilja vera lausir við
,,öldur“ á götunum. Aðeins er talið
að einn borgarfulltrúi sjálfstæðis-
manna, Katrín Fjeldsted læknir,
sé meðmælt fleiri „öldum“ á götum
bæjarins. Alþýðubandalagið gerði
„öldurnar" að stefnumáli sínu í
fyrra, en hefur lítið haft sig í frammi
síðan. Sigurjón Pétursson, borg-
arfulltrúi þess, á líka þennan fína
Pajero-jeppa, sem hann hefur gam-
an af að keyra. Umferðarfræðing-
um, skólamönnum, íbúasamtökum
og foreldrum er farið að blöskra, og
finnst blóðugt að þurfa að greiða
fyrir akstursánægju nokkurra
manna með lífi og limum reykvískra
skólabarna. . .
SKÁK
Framhald af bls. 22.
dugar aðeins til jafnteflis vegna 1.
- ab5.
Margar snjallar þrautir hafa ver-
ið spunnar úr þeirri hugmynd sem
laust niður í David Joseph á vetr-
armorgni 1921, og væri freistandi
að koma að því síðar. En í bili læt
ég nægja eina sem hlaut verðlaun
4. Proskurovsky 1964.
í keppni sem pólskt skáktímarit,
Szachy, efndi til árið 1964, þar sem
einmitt átti að spinna úr þessari
hugmynd.
Þarna er sama þema á ferðinni,
í nokkuð breyttu formi, og er lík-
lega best að gefa lesandanum
sjálfum kost á að glíma við þraut-
ina. Ég kem væntanlega að henni
síðar.
Fyrsta flokks
sturtuklefar
f rá Keralk
Afgreiðum einnig sérpantanir með stuttum fyrirvara
Hornklefi
2 hlutar
hver hlið
Hornklefi
3 hlutar hver
hlið
Rennihurð
f. sturtubotn
3 hlutar
Rennihurð
á baðkar
Föst hlið
vinstra eða
hægra megin
Vænghurð
Sturtuhlið
á baðkar
VATNSVIRKINN/J
ÁRMÚLA 21 REYKJAVÍK
SÍMAR: 686455, 685966, 686491
SKEIFAN 11 - SÍMAR 82220-82221
HELGARPÓSTURINN 27