Helgarpósturinn - 02.05.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTAPÓSTUR
Frumvarp um greiðslujöfnun fyrir húsbyggjendur
■ Á samráðsfundi fulltrúa ASI og fulltrúa ríkisstjórnar-
I innar á mánudag náðist samkomulag um með hvaða hætti
. skuli staðið að aðstoð við húsbyggjendur og íbúðakaupend-
I ur og verður pað gert með lagafrumvarpi um greiðslujöfn-
un. Frumvarpið felur i sér heimildir til þess að jafna út
I greiðslu, ef misgengi verður á milli afborgana af húsnæð-
* ismálalánum og launaþróunar. Þetta þýðir með öðrum orð-
• um að greiðslubyrði þurfi ekki að vera meiri en sem launa-
I þróun nemur. Gert er ráð fyrir að þessar aðgerðir verði aft-
urvirkandi til ársins 1979. Nái frumvarpið fram að ganga í
I þessari mynd, gæti það t.d. þýtt að greiðslubyrði af húsnæð-
' isstjórnarláni á þessu ári léttist um u.þ.b. 60%. ASÍ mun
• beina þeim tilmælum til lífeyrissjóðanna að þeir undirbúi
I svipaðar aðgerðir. Forsvarsmenn ASÍ telja frumvarp þetta
vissulega skref til lausnar húsnæðisvandans en að jafn-
framt þurfi að veita miklu meira fjármagni í húsnæðismála-
kerfið í heild og brýnt sé að niðurstaða náist varðandi
I skattafrádrátt þeirra sem keypt eða byggt hafi húsnæði á sl.
1 árum.
I Óskalisti ráðherranna fer að líta dagsins ljós
' Á þriðjudaginn var gengið frá á ríkisstjórnarfundi svo-
■ nefndum óskalista, þ.e. lista yfir þau mál sem ráðherrarnir
I hyggjast afgreiða fyrir þinglok. Jafnvel er búist við að venju-
legur þingtími muni ekki nægja til afgreiðslu mála, heldur
( muni þingið sitja a.m.k. viku af júni. Á óskalistanum eru
m.a.: lánsfjárlög, nýtt tollafrumvarp, útvarpslagafrum-
I varpið, frumvarp um viðskiptabanka og annað um Seðla-
1 banka, vegaáætlun og loks þríliðan sem forsætisráðherra
i mælti fyrir á mánudag: um Þróunarfélagið, Byggðastofnun
I og Framkvæmdasjóð Islands.
i Kaupmáttatrygging meginatriðið hjá ASÍ
I Miðstjórn ASI hefur ákveðið að fela hópi formanna lands-
sambanda að kanna í viðræðum við VSÍ og VMS möguleika
| á því að ná fram kauphækkunum þegar í vor. Komi engar
kauphækkanir til fyrr en á næsta hausti, segir miðstjórnin
fyrirséð að kaupmáttur muni falla frá mánuði til mánaðar
og verða orðinn 3—4% lakari um mánaðamótin ágúst/sept-
i ember en hann var fyrir samningsgerð á sl. hausti. Mið-
I stjórnarmenn ASÍ eru sammála um að í viðkomandi samn-
ingagerö hljóti megináherslan að vera á tryggingu þess
| kaupmáttar sem um semst. Jafnframt verði í samningnum
að stefna að því að vinna upp i áföngum kaupmáttartap sið-
I ustu ára.
BHMB vill undirbúa verkfallsaflgerðir
I Mikillar reiði gætti i garð Kjaradóms á almennum fundi
* BHMB í síðustu viku. Þar kom fram að ýmis félög ihuga nú
■ eða undirbúa úrsögn úr BHM, t.d. Félag verkfræðinga. Þá
| töldu margir, eins og Kristján Thorlacius formaður HÍ, að
stefna verði að því að fá verkfallsrétt, og falli annar slíkur
I dómur muni margir huga að úrsögn. í tillögu sem samþykkt
var i lok fundarins segir m.a. að fundurinn telji fullsýnt að
I tilgangslaust sé að sækja lögverndaða kjaraleiðréttingu,
• með efnislegum rökum, fyrir Kjaradómi.
1 Seðlabankastjóri boðar verflbréfamarkað
' Aðalfundur Seðlabankans var haldinn sl. þriðjudag. í
■ ræðu sinni gagnrýndi Jóhannes Nordal seðlabankastjóri
1 vaxtastefnu viðskiptabankanna og taldi þá ekki hafa stjórn
á útlánum sínum. Sagði hann þetta m.a. stafa af veikleika
nýju vaxtastefnunnar og svo því að á íslandi væri enginn
skipulagður verðbréfa- eða peningamarkaður, sem hins veg-
I ar stuðlaði að því að vextir réðust af framboði og eftirspurn,
I sem væri affarasælast. Sagði hann að Seðlabankinn væri
fyrir sitt leyti að undirbúa reglugerð um verðbréfamarkað
| sem lögð yrði fyrir ríkisstjórnina á næstunni. Jóhannes
Nordal telur að verðbréfamarkaður geti e.t.v. skapað nægi-
| lega festu í íslenskum vaxtamálum.
Bílafríflindi ráðherra numin úr gildi
Á þriðjudag var undirrituð á Alþingi ný reglugerð sem af-
nema á að mestu bílafríðindi ráðherra. Hin nýja tilhögun
| felur i sér að ríkissjóður kaupir og á bíla þá sem ráðherrarn-
I ir nota. Þessi breyting tekur til bankastjóranna einnig,
■ þannig að þeir hafa ekki lengur þau fríðindi sem þeir hafa
I haft varðandi niðurfellingu á aðflutningsgjöldum.
I í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar og ráns
Bannsóknarlögregla ríkisins hefur krafist gæsluvarð-
halds yfir tveimur ungum mönnum, 24 og 28 ára, og 19 ára
I gamalli stúlku, sem talin eru hafa ráðist á og rænt tvo menn
með nokkurra stunda millibili fyrir rúmri viku. Talið er víst
I að fyrirætlun fólksins hafi verið að útvega fé til að standa
' straum af kostnaði við fíkniefnaneyslu sina.
| Fréttamolar
I • Fimmtán starfsmenn NT, þar á meðal Magnús Ólafsson
. ritstjóri, sögðu upp störfum sinum 30. apríl.
| • Bætur Almannatrygginga hækkuðu 1. maí um 7%.
• íslandsmeistaramót i vaxtarrækt var háð i Broadway sl.
I sunnudagskvöld. Akureyringar komu, sáu og sigruðu. Sig-
urður Gestsson varð íslandsmeistari í karlaflokki en Aldís
I Árnadóttir i kvennaflokki, en þau eru bæði Akureyringar.
1 • Á sunnudagskvöld hreppti FH íslandsmeistarabikarinn í
l handknattleik annað árið í röð, eftir úrslitaleikinn við Vik-
* inga.
I • Á þriðjudag var samþykkt á Alþingi ný reglugerð sem ger-
ir ráð fyrir mun frjálsari notkun á gjaldeyrisreikningum.
• Frá og með föstudegi verða kvöld- og helgarvaktir lagðar
I niður á heilsugæslustöðvunum á Beykjavikursvæðinu.
Þessar vaktir hefjast ekki aftur fyrr en læknar telja sig fá
I sómasamlega greitt fyrir þessa vinnu.
* • Háskólabíó hefur tekið Begnbogann á leigu og er stefnt að
• því að það yfirtaki allan rekstur Begnbogans frá og með 1.
( maí.
Andlát
• Björn Jónsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra,
andaðist 26. apríl, 68 ára að aldri.
I • Páll Pálmason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, lést aðfara-
* nótt 24. apríl, 93 ára að aldri.
• • Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ), rithöfundur og vísnasöngv-
I ari, andaðist aðfaranótt 1. maí, 71 árs að aldri.
2 HELGARPÓSTURINN
Hispurslaus játning á notkun hormónalyfja:
TVEGGJA HOR:
Opinskátt viðtal Helgarpóstsins vió Stefán
Sturlu Svavarsson sem birtist í síðustu viku, um
nöturlega reynslu hans af notkun
hormónalyfja, vakti mikla athygli og umtal, jafnt
innan íþróttahreyfingarinnar sem utan.
Útvarpió fylgdi þessu máli eftir í kvöldfréttatíma
sama dag, er fréttamaður ræddi við Stefán
Sturlu í framhaldi af umræddu viótali. Viðbrögó
manna hafa verió mismunandi, enda í fyrsta
skipti sem kraftlyftingamaður ríður á vaðió og
Guðni Halldórsson
formaóur Frjáls-
íþróttasambandsins:
Óæskileg
opnun á umræóunni
,,Það sem mér finnst aðal-
lega hafa verið athugavert við
umræðuna um þessi mál hér á
landi, er „hysteríukastið" sem
segja má aó hafi staðið hér tvö
eóa þrjú síðastliðin ár. Það
sem mér finnst vanta er hlut-
laus umfjöllun um þessa stað-
reynd; notkun hormónalyfja
hefur átt sér stað í 30 ár í er-
lendum íþróttaheimi."
— Er notkun hormónalyfja
staóreynd hér?
, Ja, menn eru þegar í banni.
Og hér er komin yfirlýsing frá
þessum unga manni, þannig
að það er ekki hægt aó sverja
fyrir það. En að koma í veg fyr-
ir þetta, þaó er vandamál sem
íþróttahreyfingin í öllum heim-
inum hefur átt við að stríða í
meira en 30 ár."
„En hvaö finnst þér um þaó
aö Stefán ríður á vaðió núna og
segir hreinskilnislega frá sinni
reynslu?
,,Það er í sjálfu sér ekkert
um það að segja, þetta er
ákvörðun hans og hann lýsir
eigin reynslu."
— Ertu feginn því að umræð-
an skuli opnuó svona eða
skaðar það íþróttahreyfing-
una?
„Það er alltaf hætta á því,
þegar þetta er sett svona fram,
aó almenningur sem ekki veit,
dæmi af því fyrsta sem hann
sér. Og hvernig dæmir al-
menningur nú? Ætli hann
spyrji ekki sem svo; ætli það
séu allir á kafi í þessu? Stefán
nefnir nokkrar. íþróttagreinar.
Það verður að segjast eins og
er, að það er erfitt að vinna að
því að benda æskunni á að
íþróttir séu vænlegur kostur
og fá svona stimpil á móti."
— Þannig að þetta er ekki
æskilegasta opnun á umræð-
unni að þínu mati?
„Nei; ég get ekki sagt það,
síður en svo. Ég hefði viljað fá
umfjöllun lækna um þetta og
manna sem hafa kynnt sér
þetta vandamál, t.d. í sjón-
varpi.
Annars bendi ég á að það að
samkvæmt reglum lyfjaeftir-
litsnefndar hlýtur hún að
veróa að taka þetta mál fyrir,
með tilliti til þess að sá íþrótta-
maóur sem reynist sekur um
brot á fimmtu grein, skal úti-
lokaður frá þátttöku í íþrótta-
mótum á vegum sérsambanda
ÍSÍ í minnst 18 mánuði. Sam-
kvæmt henni er öll notkun á
hormónalyfjum og öðrum lyfj-
um til aó bæta árangur sinn í
íþróttagreinum bönnuð. Þessi
spurning hefði ekki komið upp
ef hann hefði sagt sögu sína án
þess að birta jafnframt nafn
sitt.
Ég vil að lokum láta það
koma fram, aó Frjálsíþrótta-
sambandió sem slíkt hafói
ekkert með stöðvun á útgáfu
blaðs ÍR að gera, eins og fram
kom í umræddu viðtali. Þaö er
alfarið í,höndum frjálsíþrótta-
deildar ÍR."
Stefán Sturla Svavarsson:
Finn aó fólk
stendur meó mér
„Nei, égsé ekki eftir að hafa
opnað mig um notkun mína á
hormónalyfjum í þessu viðtali.
Ég var kvíðinn áður en það
birtist en núna iórast ég einsk-
is.
Ég haföi meóal annars gert
ráð fyrir mjög neikvæðum við-
brögðum. en staðreyndin er
sú að ég hef minnst orðið var
vió þau. Viótalið vakti mikla at-
hygli og hvar sem ég kem er
talað um þetta, bæði innan
íþróttahreyfingarinnar og ut-
an. Viðbrögðin hafa nær und-
antekningarlaust verið já-
kvæð. Fólk hefur meira að
segja tekið í höndina á mér og
þakkað mér fyrir. Mér finnst
gott að finna hvað fólk stendur
vel með mér. Og auðvitað er
ég feginn því að hafa ekki
fengið eina einustu „nastí"
hringingu.
— I viðtalinu sagðist þú hafa
byrjað aó nota hormónalyf í
lyftingum. Hefurðu heyrt eitt-
hvað frá félögum þínum þar?
„Nei, ég hef ekkert heyrt frá
þeim. Hins vegar hef ég heyrt
jákvæö viðbrögð úr frjáls-
íþróttahreyfingunni og vaxtar-
ræktinni. Eigínlega má segja
að einu neikvæðu viðbrögðin
sem ég hef fengið séu við því
orðalagi mínu að hafa verið „á
baki alla nóttina" og öðru í
þeim dúr. Fólki hefur fundist
ég einum of opinskár — jafn-
vel grófur. Ég álít þetta tepru-
skap og vona_ aó enginn erfi
þaó vió mig. Ég taldi frá upp-
hafi rétt að þetta viðtal yröi op-
inskátt."
— Þú komst fram í viótali í
fréttatíma útvarps í beinu fram-
haldi af viótalinu.
„Já, og mest undrar mig að
hin blöóin skuli ekki hafa tekið
þetta mál upp. Blöðin þegja al-
gjörlega. Það þykir mér væg-
ast sagt undarlegt."
Jón Páll Sigmarsson:
Ég er ekki
í neinu „stöffi“
„Ég hef ekki lesið viðtalið,
en eitthvað hef ég heyrt talað
um þaó."
— í viðtalinu segist Stefán
hafa orðið var við notkun hor-
mónalyfja í frjálsum íþróttum,
vaxtarrækt og lyftingum.
Kannast þú við það?
„Nei, ég kannast ekki við
það. Ég kannast ekki við lífs-
hættuleg lyf."
— En hormónalyf?
,,Ja, maður heyrir alltaf sög-
ur, sérstaklega núna upp á síó-
kastið. Þetta er mikið í sviös-
ljósinu, sérstaklega eftir að ég
vann titilinn „sterkasti maður í
heimi"”
— Hafa grunsemdir vaknað í
sambandi við þig?
„Ég næ árangri, og það er
ákaflega grunsamlegt í
margra augum. Sumum finnst
það. Ég hef orðið var við það.
En ég er ekki hálfdauður og
ég er ekki að drepa mig. Mér
líður ákaflega vel. Náði Stefán
árangri?
— Hefur þú notaó hormóna-
lyf?
,,Ertu frá þér? Ég get alveg
skilað af mér sæðisprufu. Ég
er nýbúinn að eignast barn og
það er örugglega mitt þarn.
Það er ekkert að mér. Ég er
gjörsamlega heilbrigður. Ég
er ekki í neinu „stöffi."
I