Helgarpósturinn - 11.09.1986, Blaðsíða 3
FYRST OG FREMST
TVÆR STÖLLUR sem sögð-
ust vera dyggir lesendur Helgar-
póstsins sendu okkur þessa skop-
mynd frá Bandaríkjunum og þótti
af einhverjum ástæðum við hæfi
að við birtum hana. Við sjáum
okkur ekki fært að skorast undan.
Textinn útleggst á þessa leið:
„Hérna notum við gamaldags að-
ferðir við að græða peninga, frk.
Barnes — við mútum embættis-
mönnum. . .“
Á HJALTEYRI þar nyrðra og
reyndar víða á Norðurlandi hefur
lengi búið útgerðarmaður og sjó-
maður, Henriing Jóhannesson að
nafni. Af honum er það nú að
segja að hann hefur tekið sig upp
með börnum og buru og flutt til
Grímseyjar. Þar hyggst hann
stunda útgerð og er að reisa sér
stórt og myndarlegt einbýlishús í
eyjunni. Þetta þykir sæta tíðind-
um, þvi téð hús mun vera fyrsta
nýbygging í Grímsey í fjölda
ára.. .
GOÐÆRI, góðæri, hvert sem
maður lítur er góðæri! Roskin
kona í Vesturbænum sagði í sam-
tali við einn blaðamann Helgar-
póstsins að það væri ekki nóg
með að sumarið léki við okkur,
heldur spryttu líka rifsberin í
görðum hverfisins sem aidrei fyrr.
En, bætti hún við, nú ber svo við
að börnin vilja ekki líta við því
hnossgæti sem vel þroskuð rifsber
þóttu hér í eina tíð — eða, spurði
hún, er ungviðið einfaldlega svo
vel upp alið að því hrýs hugur við
að læðast í garða nágrannans og
stela rifsberjum. En eitthvað hefur
sumsé orðið lönguninni í rifsber
yfirsterkara, hvort sem það nú er
ráðvendnin eða einfaldlega eitt-
hvað miklu meira spennandi sem
freistar barnanna. . .
OKKAR MAÐUR í Kenya -
nánar tiltekið í höfuðstaðnum,
Nairobi, símaði heim fréttir af
furðulegum réttarhöldum sem þar
fóru fram. Á bekk ákærðra sat
maður, sem gefið var að sök að
hafa átt mök við kú eina skjöld-
ótta. Ákærði harðneitaði í fyrstu,
en viðurkenndi eftir mikla orra-
hríð, að áburðurinn væri réttur.
Hló þá réttarsalur. Aðspurður um
tilgang svaraði ákærði, að hann
hefði verið í mikilli þörf. Enn var
spurt, og nú um það hvort nauð-
synlegt hefði verið að leggjast á
kú til að fá uppfyllt þessum þörf-
um. Svaraði ákærði því til, að sér
sýndist að það væri öruggara,
enda AIDS mjög útbreitt í höfuð-
staðnum. Hló þá réttarsalurinn
öðru sinni.
Dómari ákvað, þegar hér var
komið sögu, að fresta réttarhöld-
um. Mælti hann svo fyrir, að dýra-
læknir skyldi rannsaka kúna — og
skila niðurstöðu rannsóknar til
réttra yfirvalda.
í NÆSTA tölublaði Þjódlífs,
sem væntanlegt er nú um helgina,
verður viðtal við Gudmund J.
Guömundsson alþingismann, þar
sem hann mun gráta á öxl ritstjór-
ans Audar Styrkárdóttur. Viðtal
þetta hefur víst valdið einhverjum
titringi og pirringi í Alþýðubanda-
laginu enda margir allaballar
skammaðir. Okkur var m.a. sögð
sú saga, að Össur ritstjóri Skarp-
héöinsson hefði haft á orði, að
honum væri næst skapi að losa sig
við hluta sinn í Þjóðlífi út af svona
viðtali. Þetta þykir mörgum svo-
lítið kostulegt að heyra úr þessari
áttinni, þar sem Össur hefur verið
talsmaður hinna frjálsu lýðræðis-
sinna í Alþýðubandalaginu og
opins Þjóðvilja. En um leið og
tímarit félagshyggjufólks leyfir
Guðmundi Jaka að tala víkur hug-
sjónin um ritstjórnarfrelsið vegna
þess, að Össur er búinn að taka
afstöðu gegn Jakanum.
HIN HLIÐIN heitir fastur dag-
skrárliður í helgarblaði DV, þar
sem kunnir menn sitja fyrir svör-
um um uppáhöld sín og annað
sem kynni að hafa farið framhjá
mönnum. Nýlega lenti þingmaður-
inn Steingrímur J. Sigfússon í að
greina þannig frá hinni hlið sinni.
Aðspurður um uppáhalds tímarit
sitt nefndi Steingrímur bandaríska
tímaritið „Mother Jones", gagnrýn
ið rannsóknarblaðamennskurit af
vandaðri sort. Steingrímur sagði
ritið svo róttækt að allir áskrifend-
ur væru á skrá hjá bandarísku
leyniþjónustunni CIA. Ætla mætti
að svo hættulegt blað kæmist ekk
víða þar sem bandarísk yfirvöld
eru með starfsemi af einni eða
annarri sort. T.d. að það væri alls
ekki selt á bandarískum herstöðv-
um, þannig að það mengaði ekki
hugarfar dátanna. Engu að síður
er þetta stórhættulega rit selt
hverjum sem hafa vill á blaðsölu-
stöðum varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, án þess að kaupendr séu
spurðir spjörunum úr af frakka-
eða sólgleraugnaklæddum agent-
um...
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Góðæri „Þetta var mjög gaman og viö fengum kók
Undrast menn árferði slíkt, og popp, KSI borgaöi."
allt er að verða svo ríkt. - SIGURÐUR JÓNSSON, LANDSLIÐSMAÐUR i
Góðæri kvað vera gott, en gott væri að sjá þess nú vott. FÓTBOLTA, EN UNDIRBÚNINGUR SIGI HELD ÞJÁLFARA FYRIR LEIKINN GEGN FRÖKKUM i GÆRKVÖLDI FÓLST MEÐAL ANNARS I BÍÓFERD.
Niðri.
SMARTSKOT
Ertu svona svaka-
lega skemmtilegur?
Hallgrímur Thorsteinsson,
dagskrárgerðarmaður á Bylgjunni
„Ég held að þessi tími dagsins sé aðallega svona skemmti-
legur."
— Kom það þér á óvart hve mikla hlustun þátturinn
þinn fær?
„Ekki svo mjög, því þessi tími var tiltölulega óplægður akur.
Þar að auki hafði ég fengið ágæt viðbrögð við svipuðum þætti,
sem ég var með í ríkisútvarpinu í sumar. Auðvitað varð ég þó
mjög ánægður, en hafði sem sagt hálfpartinn átt von á því að
um mikla hlustun yrði að ræða.
Það er hins vegar síður en svo ástæða til að ofmetnast yfir
svona tölum, t.d. vegna þess að 49% aðspurðra voru alls ekki
að hlusta á útvarp. Kvöldfréttir í ríkisútvarpinu hafa yfirleitt haft
um 60% hlustun og jafnvel þar yfir. Kannski er það takmarkið,
sem við stefnum að."
— Ertu undir auknu álagi eftir birtingu þessarar
könnunar?
„Það er náttúrulega aukið álag, ef eitthvað er. Við reynum öll
hérna að halda flugi og hækka það."
— Verður þetta til þess að þú heldur þig við það form,
sem komið var á þáttinn, eða muntu gera einhverjar
breytingar?
„Það kemur allt til greina og þátturinn kemur til með að
batna fremur en hitt."
— Hvernig líst þér á hugmynd auglýsingastofanna
um að birta mánaðarlega lista yfir vinsældir útvarps-
þátta?
„Ég fæ ekki annað séð en þörf sé á þessu, auglýsendanna
vegna. Það er nauðsynlegt að hafa einhverja viðmiðun, þegar
auglýsingaverð er ákveðið. Kannanir eru einfaldlega eina leiðin,
því það þýðir ekkert að hafa það bara á tilfinningunni hve marg-
ir hlusta.
Þegar auglýsendur setja hundruðir þúsunda í að auglýsa,
vilja þeir að sjálfsögðu vita hvað þeir fá út úr slíkum fjárútlátum.
Á meðan ríkisútvarpið hefur t.d. ekki lækkað sína auglýsinga-
taxta, finnst mörgum eflaust að þeir séu að kaupa köttinn í
sekknum. Mennerujúaðkaupasérhlustun. . ,(HP:Já,að-
gang að eyrum). Já, ekki bara tíma, heldur fólk sem er að
hlusta. Ríkisútvarpið er í þessari stöðu í raun og veru að selja
svikna vöru."
— Býður svona vinsældalisti ekki heim hættu á
stríði þáttagerðarfólks um stig, eins og f Bandaríkjun-
um?
„Auðvitað er viss hætta á því. Nú er hins vegar að koma önn-
ur sjónvarpsstöð, sem einnig verður rekin með auglýsingum,
og það er hreinlega engin önnur leið. Fyrst menn hafa ákveðið
að fara út í markaðsútvarp og sjónvarp, hlýtur að koma að því
að einhver mæling fari fram."
— Þannig að búast má við því að fjölmiðlafólk bíði
skjálfandi eftir „úrslitunum" í hverjum mánuði í fram-
tíðinni?
„Ja, leikarar hafa gagnrýnendur og við verðum væntanlega
að sætta okkur að einhverju leyti við það að mið verði tekið af
niðurstöðum þessara kannana."
— Býstu við miklum breytingum þegar næsta könn-
un verður gerö og hiö svokaliaða forvitnitímabil verður
kannski á enda?
„Við skulum bara vona að þetta forvitnitímabil standi sem
lengst. Ég held því fram að forvitni sé sá eðlisþáttur, sem er
hvað ríkastur í fari okkar, og ég tel að fólk haldi áfram að vera
forvitið."
— Hvernig líkar þér að vera þinn eigin tæknimaður á
Bylgjunni?
„Þetta er nú allt að koma. Ég geri kannski tvær reginskyssur
á dag núna, miðað við tíu þegar við byrjuðum!"
— Er léttir að hafa ekkert útvarpsráð?
„Maður er kannski ekki sífelltað hugsa um útvarpsráð þegar
maður vinnur hjá ríkisfjölmiðli, en það er þó partur af þessari
hefð og þeim stellingum sem maður setur sig í þarna. Hérna
á Bylgjunni er maður vissulega meira sinn eiginn herra."
Samband (slenskra auglýsingastofa lét (síðustu viku gera hlustenda-
könnun á höfuðborgarsvæðinu. Kom þá í Ijós að meira en helmingur
útvarpshlustenda hlustaði á Bylgjuna, hina nýju stöð Islenska útvarps-
félagsins, þennan tiltekna dag. Af útsendingartfmunum var tíminn á
milli klukkan fimm og sex síðdegis langvinsælastur, en þá er Hallgrímur
Thorsteinsson við hljóðnemann. Okkur þótti rétt að kanna hvort hinar
miklu vinsældir væru farnar að stlga þessum fyrrverandi blaðamanni
HP til höfuðs
HELGARPÓSTURINN 3