Helgarpósturinn - 11.09.1986, Síða 12

Helgarpósturinn - 11.09.1986, Síða 12
YFIRHEYRSLA nafn: Páll Magnússon heimili: Engihjalli 19, Kópavogi bifreið: Volvo árg. 1982 staða: Fréttastjóri Stöðvar 2 laun: Trúnaðarmál áhugamáL: Skák, veiðiskapur og lestur heimilishagir: María S. Jónsdóttir, börn: Eir, 11 ára, og Hlín 6 ára „Eg hef endanlegt oftir Gunnar Smára Egilsson myndir Jim Smart Um síðustu helgi var Páli Magnússon, fréttamaður á sjónvarpinu, ráðinn fyrsti „frjálsi" sjónvarpsfréttastjórinn á íslandi. Hann hóf störf við að skipuleggja frétta- tíma Stöðvar 2 og leita uppi starfsmenn til að manna fréttastofuna. Páll hefur skamman tíma til stefnu þar sem forráðamenn Sjónvarpsfélagsins stefna að því að hefja útsendíngar að þremur vikum liðnum. Páll hefur verið talsmaður hinnar svokölluðu hörðu fréttamennsku í starfi sínu á fréttadeild sjónvarpsins og lent upp á kant við útvarpsráð af þeim sökum, og reynd- ar af öðru tilef ni líka. Það má því búast við að fréttastofa hinnar nýju sjónvarpsstöðv- ar verði um eitthvað frábrugðin ríkissjónvarpinu. Um þetta og fréttamennsku yfir- leitt er Páll Magnússon yfirheyrður í HP. — Þú hefur látið hafa eftir þér að þú munir koma til með að sakna allra á sjónvarpinu, að útvarpsráði slepptu. Hafði það svona lamandi áhrif á frétta- stofu sjónvarpsins? Nei, ég segi ekki beint lamandi. En hins- vegar heíur mér alltaf fundist þetta „batterí" frekar þrúgandi. Þetta á reyndar ekki við um allra síðustu vikur. Það var haldinn sameig- inlegur fundur útvarpsráðs og fréttastjóra sjónvarps, mín og Ingva Hrafns, og eftir hann hefur verið þíða í þessum samskiptum. Mér finnst að á þessu augnabliki séu þessi sam- skipti í lagi. Allavega liggur niðri sá vottur af fjandskap sem var ríkjandi áður. — Fréttastjórarnir hafa ekki verið svínbeygðir undir vilja útvarpsráðs á þessum fræga lokaða leynifundi? Nei. Þetta gerðist einfaldlega þannig að við skýrðum okkar sjónarmið og þeir sín. Sumar af þeim umkvörtunum sem þeir lögðu fram voru fyllilega réttmaetar og sner- ust um hluti sem við erum að reyna að laga. En ég treysti því líka og það eru engin merki um annað en þeir hafi líka tekið okkar sjón- armið gild og góð. Þessi fundur hreinsaði a.m.k. andrúmsloftið þó það sé ekki komið neitt fullkomið samkomulag um hvernig hlutirnir eigi að vera hjá sjónvarpinu. — Nú hefur þú oftar en aðrir frétta- menn komist upp á kant við útvarpsráð. Er það vegna þess að þú ert harðari og óvægnari fréttamaður en gengur og ger- ist? Ég held að ég hafi ekki lent oftar upp á kant við útvarpsráð en aðrir fréttamenn. Hinsvegar verða menn að líta á það að út- varpsráð er ekki fyllilega samstæður hópur og það er erfitt að tala um útvarpsráð sem eina heild. Ég hef lent í hnútukasti við ein- staka menn innan ráðsins en þarna eru sjö manns og kannski hver með sína skoðun á því hvernig hlutirnir eiga að vera. En margar af þeim kvörtunum sem hafa komið um mig í útvarpsráði hef ég náttúru- lega bara tekið sem gulihamra. Mér finnst það ágætt ef maður hegðar sér þannig í fréttamennskunni að það komi við kaunin á þeim sem sitja með valdið. Útvarpsráðs- menn eru fulltrúar stjórnmálaflokkanna og ef umkvörtunin er þess eðiis að ég hafi verið of aðgangsharður við stjórnmálamenn þá tel ég hana merki um að ég sé að gera rétt. — Þú hefur gefið út yfirlýsingar um að á Stöð 2 verdi rckin hörð fréttamennska. Hvað er hörð fréttamennska? Ég get tekið sem dæmi, af því ég var að taia um útvarpsráð, að það kvartaði yfir því að sjónvarpið hefði sýnt of mikla aðgangs- hörku í sambandi við Guðmundar-þáttinn í Hafskipsmálinu. Það var mál sem við á fréttastofunni vorum algerlega ósammáia útvarpsráði um. Og það sem þeir kvörtuðu yfir í því máli verður reglan á Stöð 2. Það er fyrsl og fremst þetta sem ég á við með harðri fréttamennsku. Það er sú harka í fréttaflutn- ingi, sem hefur íarið fyrir brjóstið á útvarps- ráði, sem verður sú lína sem Stöð 2 mun vinna eftir. — Felst > þessu að aðaláherslan verði lögð á að stilla mönnum upp við vegg í beinni útsendingu eða verður áherslan líka lögð á að kafa djúpt í fréttamál? Það verður vonandi hvort tveggja. Það verður aðgangsharka í viðtölum við stjórn- málamenn og þá sem fara með völd hér í þjóðfélaginu og jafnframt komum við til með að hafa meiri möguleika og frjálsar hendur til að kafa dýpra í viðkvæm mál heldur en tíðkast hefur hjá sjónvarpinu. — Þú hefur einnig látið hafa eftir þér að Stöð 2 muni ekki sinna sama þjón- ustuhlutverki og fréttastofa sjónvarps. Hvað óttu við með því? Ég á einfaldlega við það að ríkisfréttastof- urnar báðar hafa allskonar þjónustuhlut- verki að gegna og það er ekki alltaf hart fréttamat sem ræður því sem þar kemur fram. Ég get tekið sem dæmi, að það hefur verið „standard'-afgreiðsla í fréttatíma sjón- varps að segja frá sinfóníu-tónleikum og aiis- kyns hlutum, sem hafa orðið að „rútínu". Það kemur ekki til með að vera pláss fyrir svona efni í fréttum á Stöð 2. Með þessu er ég ekki að útiloka menningarumfjöliun eða slíkt, en það er ýmislegt af þessu tagi sem mér hefur fundist draga niður fréttatímann hjá sjónvarpinu og þetta mun ekki fá inni í fréttatímum á Stöð 2. — Nú segir þú ad á Stöð 2 verði stund- uð hörð fréttamennska og að þið munið ekki lenda í sjálfkrafa afgreiðslu á nokkru máli. Mér skilst að þið munið ekki hafa nema 4—5 manna fréttastofu og að þið munið senda út 20 mínútna fréttatíma alla daga vikunnar. Er ekki hætt við því að raunveruleikinn eigi eftir að draga draumana niður? Auðvitað ræðst þetta náttúrulega fyrst og síðast af þeim fréttamönnum sem ég fæ til liðs við mig og fréttastofan verður hvorki betri né verri en það fólk. Aðalfréttatíminn á Stöð 2 verður hinsvegar styttri en aðalfrétta- tími sjónvarpsins sem helgast af því að þeir þurfa að vera með ýmislegt efni sem við verðum ekki með. Þannig að ef ég fæ rétt fólk með mér þá held ég að það sé meira en nóg hæfni og mannafii til þess að gera frétta- tímana allt öðru vísi en tíðkast hefur. Ég held að 5 fréttamenn fyrir utan mig ráði alveg við að búa til þann fréttatíma sem ég sé fyrir mér. — Hefur þú einhverja tryggingu fyrir því að stjórn Sjónvarpsfélagsins verði ekki með athugasemdir við fréttaflutn- ing á Stöð 2 og verði þ.a.I. sem annað út- varpsróð? Ég tel enga hættu á því að stjórn Sjón- varpsfélagsins verði eitthvert útvarpsráð yfir mér. Fyrir það fyrsta eru mennirnir sem þar eru í forsvari þannig stemmdir að ég og það starfsfólk sem verður með mér fær að starfa sjálfstætt. En komi upp skiptar skoðanir um hvað eigi að vera í þessum fréttatíma og hvað ekki, sem ég á ekki von á, þá hef ég endan- legt vald þar um. Það er samningsbundið þannig að ég á ekki von á að það verði höggvið inn á það. — Nú hefur mikið verið rætt um tengsl frétta og auglýsinga að undanförnu. Finnst þér að skilin þarna á milli hafi verið of óljós hjó fréttastofu sjónvarps- ins? Nei, ég tel að þau hafi ekki verið of óljós. Fréttastofa sjónvarps má eiga það að hún hefur verið mjög sjálfstæð gagnvart auglýs- endum. Hitt er annað mál að það eru margar fréttir sem eru óbeinar og mjög sterkar aug- lýsingar fyrir vissa aðila. Við getum tekið sem dæmi að ef íslenskt fyrirtæki tekur nýja vald“ vöru til framleiðslu og selur hana í stórum stíl til útlanda þá er frétt af því ein af þessum dæmigerðu góðu fréttum, sem eru hafðar með t bland. Það að segja frá því er að sjálf- sögðu heilmikil auglýsing fyrir fyrirtækið en jafnframt er það frétt. Og það er fyrst og síð- ast fréttamatið sem ræður og það kemur til með að vera þannig á fréttastofu Stöðvar 2 líka. Ef við teljum það frétt, sem fyrirtæki í iandinu eru að gera, þá fjöllum við að sjálf- sögðu um slíkt, vitandi það að það er mikil auglýsing í leiðinni. En það verður auðvitað fréttagildið sem ræður. — Það gengur nú fjöllunum hærra að Þýsk-íslenska hafi sagt upp 7 milljón króna auglýsingasamningi við Sjón- varpsfélagiö eftir að fréttist að þú yrðir ráðinn sem fréttastjóri hjá félaginu. Jáhá. Nú segir þú mér tíðindi. Eg hef að minnsta kosti ekki heyrt minnst orði á það. — En geta ekki orðið árekstrar á milli fréttastof unnar og hagsmuna Sjónvarps- félagsins vegna auglýsingatekna? Það getur náttúrulega skapast allskonar þrýstingur og Þýsk-íslenska hefði þess vegna getað sagt upp auglýsingasamningi við ríkis- útvarpið vegna þess að þar var sagt frá þeirra máli í fréttum. En ef fréttastofa Stöðv- ar 2 hefði verið komin í gang undir minni stjórn þegar mál Þýsk-íslenska kom upp hefði það verið afgreitt á nákvæmlega sama hátt og hjá sjónvarpinu. Eins og ég sagði áð- an kemur fréttamatið fyrst og síðast en ekki hagsmunir einhverra fyrirtækja út í bæ. — Nú eru sterkar raddir uppi um að þú hyggist fara í framboð fyrir Alþýðu- flokkinn á Suðurlandi og erfa með því þingsæti föður þíns? Ég sá það nú að karl faðir minn var að gera því skóna í blaðaviðtali um daginn að hann ætlaði í framboð þarna sjálfur, svo ég erfi í það minnsta ekki sæti hans. Auk þess hefur það aldrei komið til greina hjá mér að fara í framboð. Menn hafa tekið það sem gefið að ég færi í framboð af því að faðir minn hefur setið á veldisstóli í kjördæminu en það hefur aldrei komið til greina. Það stendur enn. — Ert þú ekki búinn að ráða þig í frek- ar ótrygga vinnu? Hvað heldur þú að Stöð 2 lifi lengi? Ég vona bara að hún gangi út í það óend- anlega. En auðvitað er þetta happdrætti. Það er verið að fara út í nýja hluti sem ekki hafa verið gerðir áður í fjölmiðlun á íslandi, þ.e.a.s. sjónvarpsstöð í einkaeign. Fyrir mann sem hefur mikinn áhuga á fjölmiðlum og fréttum, eins og ég, er það til vinnandi að taka áhættu með hvort geriegt sé að reka sjónvarpsstöð, sem byggir ekki á öðru en því að fólk vilji horfa á hana.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.