Helgarpósturinn - 11.09.1986, Side 18

Helgarpósturinn - 11.09.1986, Side 18
JÓNAS TÓMASSON TÓNSKÁLD OG ÍSFIRÐINGUR í HP VIÐTALI UM MÚSÍKGRÍN OG FLEIRA: EINA TÓNSKÁLDIÐIITAN REYKJAVÍKURSVÆDISINS... Bjarna Harðarson mynd Claude Guillot ,,Já, það var sérstaklega gott næði hjá mér í gœr. Síminn bilaöi og þess- vegna náði enginn í mig,“ segir tónskáldið, flautuleikarinn og kennarinn Jónas Tómasson á ísafirði, framkvœmdastjóri Tónlistarfélagsins þar og af þekktum tónlistarœttum. Blaðamaður nœr honum heima á Tángötu 1 á Isafirði íendaðan júlímánuð. Hafði árangurslítið reyntað síma. Og nú kom- inn á framandi tónlistarheimili; blaðámaður sem hentara er að skrifa um bœndur og dreifbýlinga. Og frekar en að tala um ekki neitt höldum við áfram í „nœðinu". Á velktum miða geymir undirritaður punkta um „eina alvöru modernista íslendinga og bœjartónskáld ísfirðinga". „Jú, næði er mikið atriði. Sumir þola jafnvel ekki umferðarhávaða en ég get nú alveg lokað eyrunum fyrir því. Ég færi mig samt mikið. í sumar hef ég bara setið hérna við borðstofu- borðið en stundum hefi ég verið í húsnæði sem Tónlistarskólinn hefur og er bara þar sem ég hef næði.. — Sem er kannski meira hérna á Isafiröi en sudur í Reykjavík? „Það er afskaplega misjafnt. Ætii maður geti ekki alltaf fundið sér næði hvar sem er.“ — Ener ekki afskekkt fyrir tónskáld ad sitja á ísafirdi, fjarri höfudborginni ad ekki sé talad um másíklífi annarra landa? „Ég veit það ekki, það er fullt af fólki sem býr hérna. Hvort þetta sé eitthvað afskekkt. . . Það er nóg að gera hérna í músíklífinu. Ég taldi 13 tónleika í maímánuði síðastliðnum. Það má nú eiginlega segja að þá hafi okkur þótt mælirinn vera að fyllast, enda hefur sjaldan verið svona mikið að gerast. Nú í sumar er mikið um tón- leika vegna 200 ára afmælisins. Listasafnið og Tónlistarfélagið hérna standa sameiginlega að samkomum sem eru í senn myndlistarsýningar og tónleikar. Og þetta er allt saman mjög vel sótt.“ NÓTNALESTRARKENNSLA HiÁ AFA Og þegar blaðamanni er löngu fullljóst að tón- skáldinu þykir það bæði sjálfsagt og eðlilegt að sitja á ísafirði, er ekki á leiðinni suður og hefur varla dottið það í hug, þá forvitnast hann lítil- lega um aðstæður Jónasar, ísfirskan uppruna og sögu þjóðlagasöngvara og skemmtikrafts sem er í senn tengdasonur og maki tónlistarskóla- stjóra á ísafirði. Jónas Tómasson kirkjuorganisti og bóksali var afi viðmælanda okkar, einn helsti frumkvöðull tónlistarlífs á ísafirði og sá sem fékk Ragnar H. Ragnar til þess að taka að sér skólastjórn Tónlist- arskóla ísafjarðar við stofnun hans 1948. Ragnar gegndi þeirri stöðu svo til 1985 að Sigríður dóttir hans og kona Jónasar viðmælanda okkar tók við. Borðstofuborðið að Túngötu 1 þar sem Jón- as hefur breitt úr aðskiijanlegum nótnablöðum er því um leið skólastjóraborð þessa sama skóla, og herbergið ásamt öðrum herbergjum heimilis- ins kennsiustofur þegar svo ber undir. Sjálfur er Jónas kennari við skóla konu sinnar, en notar sumarfrí, páskafrí, jólafrí og tilfallandi tíma til tónsmíða og er þessutan virkur í þeim geira fé- lagslífsins ísfirska sem snýr að tónlistarlífinu. — Og fœddur Isfirdingur en fluttist síðan. . . „... já, já, bæði út og suður." Jónas sem alla jafna er orðvar, rólyndislegur og næstum feim- inn er nú fjörlegur í frásögn. „Það á að heita að ég hafi verið hérna til 5 eða 6 ára aldurs, en það var óttalegt flakk á þeim árum. Pabbi var þá við nám, ég í fóstri úti á Álftanesi, einn vetur á Súða- vík og svo í sveit á sumrin í Dýrafirði. Svo bjugg- um við í Bandaríkjunum þar sem pabbi var þá að læra í fjögur ár... Síðan alinn upp í Reykja- vík... Ég gæti best trúað að það hafi verið afi sem hafi kennt mér barni að lesa nótur. Ég fór svo í tónlistarskóla 11 ára, þá til að læra á píanó. í gaggó hætti ég svo en byrjaði aftur í mennta- skóla og fór þá að læra á fíautu og hljómfræði með það fyrir augum að semja. Ætli ég hafi svo ekki verið 18 ára þegar þær Guðný Guðmunds- dóttir fiðluleikari og Lára Rafnsdóttir fluttu mitt fyrsta verk á sal í MR, smákafla fyrir píanó og fiðlu." — En þjóðlagasöngurinn, — plötuútgáfa og uppákoma ykkar Heimis Sindrasonar, — hinir landsfrœgu Heimir og Jónas.. .? „Það var fyrr. Þá vorum við svona 16 til 17 ára, en eiginlega hættir þegar við komum upp í fimmta bekk. Við vorum í þessu í tvö ár og gáf- um plöturnar svo út eftir að við vorum eiginlega hættir. Á þessum árum var þetta nýstárlegt. Við kom- um eiginlega á eftir Savanna tríóinu og það var ekki fyrr en seinna sem Ríó tríóið kom upp og varð feikivinsælt. En það var oft mikið að gera hjá okkur. Á þorranum var árshátíðavertíðin og á sumrin fórum við á böllin úti á landi." VARAHREYFINGAR í UPPTÖKU OG MÚSÍKGRÍN. . . — Ená sveitaböllunum, heyröist eitthvad í ykkur? „Já, við fórum fram á það að fá að vera frekar snemma á kvöldin með okkar prógramm. Ef við lentum í því að vera seint þá var orðið helst til hávaðasamt. Við vorum með 20 mínútna pró- gramm og á þessum árum var skemmtikröftum borgað alveg gífurlega vel. Fengum álíka og hljómsveitin sem spilaði allt kvöldið, en það hef- ur breyst." En þrátt fyrir nokkuð skjótan uppgang og vel- gengni í skemmtanaiðnaði létu þeir félagar Heimir og Jónas af iðju sinni um eða fyrir tví- tugt. Höfðu þá tekið þátt í sjónvarpsþáttagerð hjá nýfæddu sjónvarpi íslendinga og sömuleiðis sést á skjánum í Svíþjóð þegar þarlendir gerðu þátt um ísland. Upptökutækni á þessum árum var ófullkomnari en nú... „. . .þá var gerð hljóðupptaka í stúdíói og síð- an farið til Þingvalla þar sem myndin var tekin. Þar urðum við svo að syngja eftir upptökunni þannig að varahreyfingar yrðu eðlilegar. Þetta var bæði svona í fyrstu sjónvarpsþáttunum og eins hjá Svíunum. Gat verið ansi erfitt. Við vorum einmitt með í fyrsta skemmtiþætt- inum sem sjónvarpið lét gera. Þá var notaður gamall sjónvarpsbíll frá Danmörku. Tæknin var ekki betri en svo að ekkert var hægt að klippa og þessvegna mátti alls ekki neitt klikka. Við byrjuðum snemma að morgni og vorum til klukkan 11 að kvöldi. . . svo fór þetta þannig að þessi þáttur var aldrei sendur út.“ — En hafa Isfirdingar ekki notið þín sem skemmtikrafts á sínum uppákomum? „Það hefur ekki verið oft. Helst á kabarettsýn- ingum til styrktar tónlistarskólabyggingunni og svo á Sunnukórsböllum. Þegar Hjálmar mágur minn var hér á ísafirði og stjórnaði þessum kór komum við saman nokkrir tónlistarkennarar, útsettum nokkur lög eftir Fúsa Halldórs, fórum í kjólföt, settum upp pípuhatta og lékum svona músíkgrín... Síðan þá hefur nokkrum sinnum komið fyrir að við höfum skemmt svona, ef eitt- hvað sérstakt hefur komið uppá.“ — En þá œtlar ekki að leggja þetta fyrir þig? „Nei, nei, nei. Það er enginn tími til þess með- an maður er á kafi í tónlistarkennslu og tímar í henni oft langt fram eftir kvöldi. Svo reynir mað- ur að nota öll frí til þess að semja." RÓSKA FYLLTI ALLT AF REYK „Gunnar Reynir Sveinsson var búinn að vera þarna í músíkinni nokkrum árum áður og svo voru nokkrir í myndlistinni. Sigurður Guð- mundsson sem var giftur hollenskri, Kristján bróðir hans kom nokkru á eftir mér og Hreinn Friðfinnsson ásamt Hlíf Svavarsdóttur baller- ínu.“ Við erum byrjaðir að tala um námsár Jónasar úti í Amsterdam. Þangað fór Jónas 1969, skrimti á stopulum námslánum í hálft fjórða ár en vann hérna heima á sumrin hjá Ferðaskrifstofu ríkis- ins. „En ég var heppinn að fá leigt mjög ódýrt her- bergi og lifði spart. Við vorum allir mjög saman í þessu að vera blankir. Þessir þrír myndlistar- menn, ballerína og þeirra fjölskyldur. Gegnum þetta fólk kynntist maður hollenskum myndlist- armönnum og þetta var mátulega stór hópur. Nú er allt orðið breytt þarna úti — Sigurður sagði mér um daginn að hann væri löngu hætt- ur að hafa tölu á öllum þeim íslendingum sem fara í gegn.“ En það var heilmikið um að vera þarna á þess- um árum og einu sinni héldu súmmararnir eina sýningu saman í Borgarlistasafninu í Amster- dam. Þetta voru bæði íslenskir og erlendir súmmarar sem tróðu upp og lögðu undir sig allt húsið með uppákomum sem voru bland af myndlist og performönsum eða gjörningum. Og dálítil músík með líka. Ég lék undir í einu verki hjá Rósku. Var reynd- ar aldrei alveg inni í því hvað ég átti að gera. Sat bara þarna með píanista og við máttum spila það sem okkur sýndist. Við vorum mjög upp- teknir af því og tókum lítið eftir því sem var að gerast á sviðinu fyrr en í lokin að það var kveikt í púðri, bleiku púðri og kom af því alveg ofsaleg- ur reykur svo allt fólkið var rekið út. Svona 5 metra fram í salinn var bleik rák, reykurinn var líka bleikur og virkilega slæmur. Það voru allir hóstandi þegar þeir þustu út og brunaverðirnir komu hlaupandi. í sama húsi voru þá geymd meðal annars verk eftir Picasso og Chagall. Það var eins gott að þetta var síðasta verkið á dagskránni." ÓÆT NÓTNABLÖÐ OG ÓDRJÚG TEKJULIND Frekar samt en að týna öllu viðtalinu suður í myndlist og Amsterdam flytjum við okkur aftur heim í stofu hjá Jónasi þar sem skólastýran Sig- ríður Ragnarsdóttir hefur boðið okkur að setjast við borðstofuborðið að snæðingi. Nótur bónd- ans hafa verið fjarlægðar enda tæpast góðar til átu. En ætli það megi samt lifa af svona skrift- um? „Nei, þetta er aldrei neitt drjúg tekjulind. Ég fær árlega stefgjöld fyrir flutning í útvarpi og sjónvarpi en svo fær maður ekki nein höfundar- laun greidd af tónleikum. Algengast er að flytj- endur biðja mann um að semja án þess að hafa nein fjárráð eða borgun aðra en þá að flytja verkið í útvarpinu. Þá fær maður stefgjaldið. Það er líka mjög misjafnt hvað maður fær fyrir það sem maður til dæmis semur eftir formlegri pöntun og líka hvað maður er lengi að því. Ef ég man rétt þá fékk ég pöntun frá Svíþjóð fyrir tveimur árum og voru boðnar 8 þúsund danskar krónur fyrir 5 mínútna kórverk. Þetta er nátt- úrulega vel borgað ef maður getur lokið verkinu á nokkrum dögum. En í annarri pöntun sem kom líka frá Svíþjóð og var líka góð borgun í boði þá stóð það í mér í 7 mánuði að ganga frá verkinu. Ef upphæð af þessari stærðargráðu er deilt niður á 7 mánuði þá eru það orðin ansi lág laun. Það eru sárafáir sem geta lifað af þessu. Það er gott við kennsluna að þar hefur maður löng sumarfrí og frí um hátíðir sem hægt er að nota til að semja." Og Jónas notar þessi frí, — er sagður eitt afkastamesta tónskáld sem við eig- um, búinn að setja saman nálægt 60 verk, án þess að það hafi verið talið nákvæmlega. . . ....en Þorkell Sigurbjörnsson er kominn yfir hundraðið. Ég er með um 40 verk á skrá niðri í Tónverkamiðstöðinni og þarf nú að fara að henda sumum. Ég hef ekki heldur bætt neitt miklu við síðustu tvö eða þrjú árin. Verið þann tíma alveg fastur við að skrifa eitt verk fyrir tvö píanó og hljómsveit og það er alveg feikileg vinna. Maður hefur verið að glefsa í þetta á vet- urna og hefur svo sumarfríið." — Verk fyrir tvö píanó er þó ekki svo fráleitt. Þú ert þekktur fyrir þaö að hafa sett saman tón- verk fyrir furðulegra samspil af hljóðfœrum en við annars þekkjum, ekki satt? „Jú, það hafa komið fyrir furðulegar samsetn- ingar. Oftast vegna ytri aðstæðna. Eitt fyrsta verk sem ég gerði fyrir Sunnukórinn var fyrir kór, selló, orgel, flautu og fiðlu. Nú, svo vantaði fólk í kórinn og þá endurskipulagði Hjálmar allt saman, setti mig og fiðluleikarann í kórinn og undirspilinu var breytt í það að vera fyrir selló og orgel. Kennaraliðið var eitt sinn með tónleika og þá vantaði verk fyrir flautu, fiðlu, gítar og píanó. Þá kom í ljós að það er sáralítið til af verkum fyrir gítar og píanó saman, — það endaði því þannig að ég samdi fyrir þessa grúppu." Og í framhaldi af öllum þessum uppákomum segir Jónas okkur frá því þegar vantaði tónlist við leikritið ímynd- unarveikina fyrir flautu, fiðlu og gítar. „Þá samdi ég illa gerða 17. aldar músík með vitlausa tóna á stöku stað, — eins og lélegur kompónisti hefði verið þarna á ferðinni.“ TÓNVERK OG TÚLKUN FLYTJANDA „Það er voða þægilegt að semja á meðan maður er til dæmis að þvo upp. Líka að leggjast á bakið. En svo verður maður að byrja að krota. Þá veit ég yf irleitt hvað verður. Kannski ekki svo vel að ég byrji strax á að hreinrita en það liggur þó við.“ — En þegar þú sendir nýtt verk til flutnings, — þarftu þá ekki að vera viðstaddur þegar það er fyrst spilað? „Það kemur fyrir. Ég þarf til dæmis að fara suður núna eftir mánuð og vera viðstaddur plötuupptöku hjá Sinfóníuhljómsveitinni þar sem ég á eitt verk. En ég er alls ekki viss um að tónskáldið þurfi alltaf að vera viðstatt. Ég reyni yfirleitt að ganga þannig frá verkun- um að þau séu klár. Eftir það tekur flytjandinn við og málið er hans höfuðverkur eftir það. Ef verkið er fullfrágengið þá er sú tónaveröld tilbú- in til flutnings. Það getur svo ýmislegt komið upp á í spilamennskunni og margar aðferðir til þess að túlka hlutina. Það eru til menn sem gerast sérfræðingar í einstökum tónskáldum og fá þær hugmyndir að einhver flytjandi sé með hina einu réttu túlkun. Rögnvaldur Sigurjónsson hafði mjög skemmti- lega þætti í útvarpinu í vetur þar sem hann bar saman smá snifsi úr tónverkum ákveðinna tón- skálda í ólíkri túlkun. Þarna eru menn farnir að leggja höfuðáherslu á flutninginn. Tónverkið býður í raun og veru upp á svo margháttaðan flutning, — persóna flytjanda er þar með í spil- inu. Alveg eins og þegar þú sérð leikrit, tvær uppfærslur á sama leikritinu eru alls ekki eins. Éf verk væri alltaf eins þá væri eiginlega nóg að hlusta bara á það einu sinni. Eins og plötur sem eru alltaf eins. Mér finnst það einmitt svo spennandi við lifandi músík að þar getur maður alltaf verið að upplifa eitthvað nýtt og nýtt í nýj- um og nýjum flutningi." FORN MÚSÍK AF HANDRITUM — En flytjendur vilja oft hafa tónskáld hjá sér þegar þeirra verk eru leikin. Ertu ekkert hrœdd- ur um að þín verk séu af þeim sökum minna leikin en verk þeirra sem búa á höfuðborgar- svœðinu? „Ég veit það ekki — nei, ætli það nokkuð. Flest verk eftir mig liggja frammi í íslensku tón- verkastöðinni og ég er oft beðinn um að semja eitthvað fyrir einhvern sérstakan flytjanda. Núna er ég til dæmis að ganga frá verki sem Kol- beinn Bjarnason flautuleikari bað mig um að gera. Hann ætlar að halda tónleika í haust, svo það er ekki seinna vænna að ganga frá þessu. Annars sagði Hjálmar mágur við mig um dag- inn að ég væri eina tónskáldið utan Reykjavíkur- svæðisins. En ég veit ekki hvort að það er nokk- ur þörf á því fyrir tónskáld að sitja þar.“

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.