Helgarpósturinn - 11.09.1986, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 11.09.1986, Blaðsíða 21
miðilsins þráskallast við að bera fram hin viðkvæmu orð, hefur fréttastofa sama miðils notað þau eftir þörfum án þess svo mikið sem að hiksta.. . E tt íslenskt heimsmet, sem lítið hefur verið hampað, er sú stað- reynd að hér á landi er læknahlut- fall á íbúa það hæsta í heimi. Við höfum 230 starfandi lækna fyrir hverja 100 þúsund íbúa, en sam- bærileg tala er 128 í Japan, 154 í Bretlandi, 192 í Bandaríkjunum og 213 í Svíþjóð. Þrátt fyrir þetta hafa mörg dreifbýlissvæði á íslandi iðulega verið með ótrygga læknis- þjónustu. Það stendur þó vonandi til bóta, því fjöldi útskrifaðra lækna út yfirstandandi áratug er að öllum lík- indum fjórum sinnum meiri en þörf krefur miðað við óbreyttar aðstæð- ur... ESitthvað virðast framsókn- armenn eiga í vandræðum með að ákveða hvaða not þeir ætli að hafa af Tímanum eftir að hafa lagt allt í sölurnar til þess að endurreisa hann úr rústum NT. Þeir völdu Níels Árna Lund, æskulýðsfrömuð, til þess að stjórna endurlífguninni en hann var ekki fyrr sestur í ritstjóra- stólinn en kosningaskjálftinn heltók hann. Það hefur því lítið farið fyrir ritstjórn hjá Níelsi og blaðamenn því verið sem höfuðlaus her og ekki vitað til hvers var ætlast af þeim af eigendum blaðsins, Framsóknar- flokknum. Þó hafa nokkur skilaboð komist inn á ritstjórnina. Fyrstur kom Eysteinn Sigurðsson, sem rýmt hafði sæti blaðafulltrúa Sam- bandsins fyrir Helga Péturssyni fyrrv. ritstjóra NT. Eysteinn hefur eitt takmarkaðasta hlutverk í ís- lenskum blaðaheimi en það felst í að skrifa einungis um SÍS og kaup- félögin. Nú nýlega komu önnur skilaboð frá flokknum inná ritstjórn Tímans. Þau eru á þá lund að þing- fréttaritari blaðsins næsta vetur verði ráðinn og launaður af Fram- sóknarflokknum. Á sama tíma og SÍS og flokkur þess hefur verið að koma sínum mönnum að á ritstjórn- inni hefur blaðamönnum fækkað og í sumar báru 2—3 blaðamenn hit- ann og þungann af fréttaskrifum blaðsins og þurftu oft á tíðum að skrifa í innblaðið líka. Engin bót virðist ætla að verða á þessu og því eru flestir blaðamannanna farnir að hugsa sér til hreyfings. Reyndar aug- lýsti Tíminn eftir blaðamönnum um daginn en hann hyggst ekki nota þá á ritstjórninni heldur í komandi kosningabaráttu úti á landi. Nú hef- ur fréttastjóri Tímans, Guðmundur Hermannsson, sagt upp störfum og við það mun sjálfsagt enn draga úr metnaði Tímans í fréttaskrifum. En þó virkir fréttaskrifendur á Tíman- um séu ekki nema 2—3 þá eru á rit- stjórninni 14 manns, eða jafnmargir og á Degi. Sumar þessar stöður eru leifar frá því að Tíminn var stærra blað en flestar eru til að þjóna flokknum og SÍS.. . iLiandsþing SÍS stendur yfir þessa dagana, eða 10,—12. septemb- er. í dag (fimmtudag) mun Magnús Ólafsson fyrrum ritstjóri NT sál- uga, flytja þar ræðu um mannlíf á tækniöld. Magnús moðar þar úr ýmsum fróðlegum upplýsingum um íslenskt þjóðfélag framtíðarinnar, sem komið hafa fram í starfi Fram- tíðarnefndarinnar svokölluðu, en hann er einmitt starfsmaður nefnd- arinnar. Sem dæmi um þessa fram- tíðarsýn má nefna þá spá, að fjöldi þeirra Islendinga sem smitast hafi af AIDS í árslok 1988 verði tólf þús- und. Og búast má við því, að fram til ársins 1995 hafi 1200 íslendingar látist af þessum sjúkdómi... Kynningarfundur Kynningarfundur verður haldinn miðviku- daginn 17. september kl. 20.30 að Síðumúla 35, uppi. ★ Námskeiðið getur hjálpað þér að: ★ öðlast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST. ★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfær- ingarkrafti í samræðum og á fundum. ★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU. ★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu komin undir því, hvernig þér tekst að umgang- ast aðra. ★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI — heima ,og á vinnustað. ★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum og draga úr kvíða. Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt. Innritun og upplýsingar í síma: 82411 0 STJÓRIUUIMARSKÓLIIMIM c/o Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðin" EINANGRUÐ HITAVEITURÖR KAPPKOSTUM AÐ EIGA ÁVALLT A LAGER ALLT EFNI í HITAVEITU- LAGNIR - MARGRA ÁRA REYNSLA TRYGGIR GÆÐIN - SENDUM UM ALLT LAND. -45 SET HF. EYRAVEGI 43 P.O. BOX 83 800 SELFOSS SÍMI 99-2099,-1399 Að afmælisdryHhurínn er með 10% hreinum appelsínusafa. 9 9 . ...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.