Helgarpósturinn - 11.09.1986, Qupperneq 22
H
Gunnar Gunnarsson mat-
sveinn í nú nær auðum
salarkynnum Hróks og
gosa. ,,Partýin hér voru alls
ekkert skipulögð fyrirfram.
Stundum vorum við hér
örfá, stundum vorum við
vissulega ansi mörg".
HP RÆÐIR VIÐ GUNNAR GUNNARSSON MATSVEIN, SEM STÓÐ FYRIR
PARTÝSTAÐNUM/NÆTURKLÚBBNUM HRÓKUR OG GOSI AÐ KLEPPSMÝRARVEGI
,,Petta var einseinfalt ogþadgat verid. Hér
á Kleppsmýrarveginn komu mínir vinir og
kunningjar, fólk kom hér meö sitt eigiö vín
eöa átti og svo aörar veitingar eftir þörfum.
Hér hittumst viö fyrir eöa eftir ball, allt eftir
því hvernig á stóö. Við tókum íspil, spiluðum
gjarnan bridds eöa tefldum og hlustuöum á
másík og fengum okkur I glas. En svo fór aö
koma fullt afóviökomandi fólki og DV komst
í spiliö."
Það er Gunnar Gunnarsson, matsveinn,
sem hefur orðið. Gunnar leigir húsnæði að
Kleppsmýrarvegi 8 og nefndi „lókalið"
Hrók og gosa. Húsnæði þetta varð á svip-
stundu landsfrægt þegar DV hóf fréttaflutn-
ing í síðustu viku um að þar væri starfræktur
næturklúbbur í 120 fermetra sal. Enn fremur
var frá því sagt að lögreglan væri með við-
búnað og hefði tekið gesti til yfirheyrslu.
Gunnar neitar því hins vegar alfarið að Hrók-
ur og gosi hafi verið næturklúbbur.
„Þarna var alls ekki selt vín, fólk kom með
sínar eigin veitingar. Lögreglan kom hingað
og ég hafði ekkert við það að athuga, hún
yfirheyrði mig og tók hér myndir, en það
kom ekkert athugavert fram hjá henni. Það
er hins vegar til fólk sem hvenær sem er er
tilbúið til að rakka allt niður. Partýin hér voru
alls ekkert skipulögð fyrirfram."
Partý segir þú. Þetta hafa veriö ansi fjöl-
menn partý?
„Það var allur gangur á því, stundum vor-
um við hér örfá, stundum vorum við vissu-
lega ansi rnörg."
Þú neitar því aö hafa haft afþessu tekjur?
„Ég hafði engar tekjur af þessu. Gestir
mínir tóku þátt í sameiginlegum kostnaði og
keyptu klúbbskírteini."
Var ekki selt inn?
„Nei, aldeilis ekki, þetta varð aldrei form-
legur klúbbrekstur, ég var þarna til heimilis
og bauð til mín gestum."
Var eitthvert launaö starfsfólk þér innan
handar?
„Nei, síður en svo, ég sá um þetta einn."
Þaö er fullyrt aö þarna hafi veriö stundað
fjárhœttuspil. Neitar þú því?
„Já, ég neita því, ég veit ekki til þess að
minnsta kosti, maður veit slíkt reyndar aldrei
fyrir víst, ég var ekki með nefið niðri í öllu
sem gestirnir voru að gera. En svo er það nú
líka teygjanlegt hvað skilgreint er sem fjár-
hættuspil og það hefur enginn getað útskýrt
það fyrir mér svo óyggjandi sé, öðruvísi en
að fjárhættuspil má ekki vera lifibrauð
manna."
ÍDV var minnst á vœndi og í vor var tals-
vert rœtt um aö Pan-hópurinn vœri staönum
tengdur og um mögulegt vœndi t því sam-
bandi.
„Hér hefur aldrei neitt viðgengist sem á
nokkurn hátt á skylt við vændi. Þú getur
leiðrétt það hér með, ég frábið mig með öllu
að vera bendlaður við slíkt. Um þetta getur
fjöldi fólks vitnað. Það hafa verið búnar til
alls kyns sögur um vínsölu, vændi og ólæti,
sem síðan leiddi til þess að fólk fór að hópast
hingað óboðið. Það ímyndaði sér eitthvað
sem ekki var. Ég fór út í þetta með það í huga
að athuga grundvöllinn fyrir víðari félags-
starfsemi á þessum saklausu nótum, þar sem
fólk gæti komið saman í friði og ró.“
Var lögreglan aögangshörö?
„Hún var alls ekki með hótanir, eða neitt
svoleiðis. Það fór allt saman friðsamlega
fram hvað hana snertir. En í og með varð
maður að hætta að bjóða fólki hingað vegna
þess að mitt vinafólk gat hvenær sem er ver-
ið tekið til yfirheyrslu. Og svo fór allt þetta
portfólk að koma og þá var í sjálfu sér ágætt
að hafa lögregluna nálægt."
Þú ert þá hœttur aö standa í þessu?
„Já, vegna þess að þetta var farið að verða
ómögulegt í framkvæmd. Og það stóð reynd-
ar aldrei til að þetta yrði framtíðarvettvang-
ur og auðvitað átti ég von á því að þurfa að
flytja. En það er satt sem hefur komið fram,
að það stóð til að hefja hér tilraunaeldhús. Ég
er matsveinn og hingað komu margir af koll-
egum mínum sem ræddu þessa hugmynd.
En af framkvæmd varð hins vegar aldrei.
Þetta var hugsjónamennska, sem síðan end-
aði á þennan hátt. Ég þurfti að vísa æ fleira
óviðkomandi fólki frá, fólki sem kannski hef-
ur orðið afbrýðisamt og hlaupið í DV,
kannski til að fá greitt fyrir fréttaskotið með
tilheyrandi söguburði."
Var þetta þá allt svona sáraeinfalt? Frétt-
irnar tilhœfulausar?
„Já. Þetta var ósköp léleg og óþörf frétta-
mennska. Hérna fór allt fram á löglegan hátt
og í friði og ró, þar til portfólkið tók að koma
í straumum."
Hvaö sögöu þtnir gestir, veröur þú var viö
að fólk sé ekki búiö aö fá nóg þegar
skemmtistaðirnir loka og að þörf sé á e.k.
nœturklúbbi?
„Já, það er greinilegt, alveg augljóst. Ætli
það hafi ekki komið ágætlega fram einmitt í
DV núna á mánudaginn, þar sem birt var
mynd úr miðbænum af miklum sóðaskap eft-
ir ölvun og læti þar. Fólk sem gjarnan vill
skemmta sér áfram hefur í ekkert hús að
venda. Það bitnar á miðbænum og lögreglu-
klefarnir fyllast. Mínir gestir nefndu það fjöl-
margir við mig að sniðugt væri og nauðsyn-
legt að næturklúbbar væru starfandi."
Burtséö frá Hróki og gosa. Veist þú um ein-
hverja dulbúna eöa ódulbúna nœturklúbba?
„Ég skal ekki segja. En það eru til staðir
þar sem fólk kemur saman fyrir og eftir ball
og drekkur saman vín sem það á, staðir sem
ekki eru beinlínis heimahús né kannski held-
ur s.k. næturklúbbar. Það er til dæmis einn
slíkur staður til í námunda við lögreglustöð-
ina á Hverfisgötunni."
Hefur þú hugsaö þér einhverja slíka félags-
starfsemi í framtíðinni?
„Mönnum er auðvitað frjálst að stofna fé-
lög, en þessu er lokið hjá mér hérna á
Kleppsmýrarvegi. Ég sný mér að öðru í bili,
en það er aldrei að vita hvað maður gerir ein-
hvern tíma seinna. Ég er kokhraustur og enn
þá bara þrítugur. Það er kannski til marks
um fréttaflutninginn í DV að þar var því hald-
ið blákalt fram að ég væri á förum utan, sem
er þvæla, eins og aðrar sögur sem hafa verið
spunnar upp í kringum þetta."
leftir Friðrik Þór Guðmundsson mynd Jim Smartl
22 HELGARPÓSTURINN