Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.09.1986, Qupperneq 33

Helgarpósturinn - 11.09.1986, Qupperneq 33
Væringar á Kjarvalsstöðum merkilegur dagur og einhverjar hljómsveitirnar sem fram koma munu spila lög eftir tólfta og nokkur skólaljóð að auki.“ Segdu mér nánar af hljómsveit- unum, Spermi. „Fyrst ber að telja hina frækilegu Stuömenn. Byggðastefnunni sem þeir hafa haldið á lofti í sumar verð- ur slúttað í Höllinni þar sem þeir koma í síðasta skipti fram opinber- lega á þessu ári og verða með ýmis brögð í tafli og á sviði. Svo fara þeir í plötuupptöku, enda bíður Evrópa eftir því í ofvæni að heyra í hinum miklu bingdárum Strax. Þeir eru að fara að koma fram í þýska sjónvarp- inu og á tónleikum þar í landi líka og ýmislegt fleira. Stundaskrá Stuð- manna gerir þeim kleift að spila meira á íslandi í ár, enda er þetta líka orðið gott. Skridjöklarnir mæta síðan frá Akureyri í aðra opinbera heimsókn sína til Reykjavíkur og þeir hafa líka sem kunnugt er haldið miklu fjöreggi á lofti milli sín og vinsældalista þessa lands. Sykur- molarnir sem hafa fengið styrk frá innflytjendum Dan-sukkermolanna spila eldhresst rokk og kynótt. Þeir eru alltaf með ný lög, meira að segja diskólög og taka líka lög eftir þekkta íslenska tónlistarmenn eins og Stuð- menn, Skriðjöklana og Leoncie. Sykurmolarnir eru líka að fara að taka upp hljómplötu, meira að segja tvær, eina litla og eina mini-LR En auk þess koma Sniglarnir með mótorhjólin og spila." — En hverjir eru þessir rasskynn- ar? „Rasskynnarnir eru ennþá svolítið á hinni frægu Huldu,“ sagði Spermi og sötraði kaffið, „og það er eigin- lega ekki hægt að gefa nánari upp- lýsingar um þá.“ Tónleikarnir Fjöregg í Höllinni hefjast kl. 21 ogstanda tilkl. 1. Miða- verð er aðeins 500 krónur og HP er sammála Spermi um að það sé nú ekki mikið. Og Spermi hvetur alla til að rifja upp skólaljóðin en kasta öðr- um skólabókum frá sér í bili, breyt- ast í fjörmenni í eina kvöldstund eða svo, áður en Vetur konungur gengur í garð. Verðum við þá ekki að gera það? „Jú, endilega" voru lokaorð blaðafulltrúans. Mrún Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum, hefur Gunnar Kvaran, list- frœðingur og safnvörður Ásmund- arsafns, nú með höndum starf list- ráðunauts á Kjarvalsstöðum. Ein- ungis er um tímabundið fyrirkomu- lag að rœða og hefur það orðið til þess að kynda undir umrœðu um að Þóra Kristjánsdóttir, forveri hans í starfinu, hafi rokið burt í fússi eða verið bolað burt. Þess háttar fullyrð- ingar eiga ekki við rök að styðjast, en hins vegar má gera ráð fyrir því að til tíðinda dragi í stjórnunarmál- um Kjarvalsstaöa með haustinu. í sumar gekk í gildi breyting á stjórnun allra menningarmála í Reykjavíkurborg. Þau mál heyra nú undir sérstaka menningarmála- nefnd, sem Hulda Valtýsdóttir stýrir. Þessi nýbreytni hefur það m.a. í för með sér, að stjórn Kjarvalsstaða hef- ur verið lögð niður í sinni fyrri mynd, en Einar Hákonarson mynd- listarmaður var formaður hennar þar til í lok kjörtímabilsins við borg- arstjórnarkosningarnar í vor. Full- trúar í hinni nýstofnuðu nefnd eru að sjálfsögðu allir tilnefndir af stjórnmálaflokkunum. Þetta eru fimm konur, þær Kristín Á. Ólafs- dóttir, Ingibjörg Rafnar, Elín Pálma- dóttir og Ragnheiður Björk Guð- mundsdóttir, auk Huldu Valtýsdótt- ur. Tvö störf gerð aö einu? Um leið og kjörtímabil stjórnar Kjarvalsstaða rann út í vor, var einn- ig útrunninn ráðningartími listráðu- nautsins, Þóru Kristjánsdóttur. Það var því ekkert óeðlilegt við að hún skyldi láta af störfum, þó svo Þóra hafi lengi átt í einhverjum útistöð- um við forstöðumann Kjarvals- staða, Alfreð Guðmundsson. Við- mælendur Helgarpóstsins voru allir á einu máli um að það hefði gefið slæma raun að hafa tvo yfirmenn við stofnun af þessari stærð. Enda gerir nýleg samþykkt um Kjarvals- staði ráð fyrir því að starf forstöðu- manns og listráðunauts verði sam- einað í eina stöðu í framtíðinni. Var þetta samþykkt í stjórn safnsins í tíð Einars Hákonarsonar, en fram- kvæmd á þessu eina atriði var hins vegar frestað um óákveðinn tíma þegar nýju reglurnar tóku gildi. Alfreð Guðmundsson hefur starf- að mestan hluta ævinnar hjá stofn- unum á vegum borgarinnar og hann nær 70 ára aldri eftir tvö ár. Það er því ljóst að 95-ára reglan svo- kallaða gerir það að verkum að hann gæti hætt störfum hvenær sem er á fullum eftiriaunum. Slík ákvörðun hefur þó ekki verið til- kynnt. Helgarpósturinn hafði samband við Huldu Valtýsdóttur, formann menningarmálanefndarinnar, og spurðist frétta um það hvort staða listráðunauts við Kjarvalsstaði yrði bráðlega auglýst til umsóknar. Sagði Hulda að málið væri í biðstöðu, því verið væri að „skoða aðra mögu- leika", eins og hún komst að orði. Óánœgja með nefndina Ljóst er, að menn eru mjög mis- hrifnir af hinu nýja fyrirkomulagi við stjórnun Kjarvalsstaða, þ.e.a.s. menningarmálanefndinni. Einn þeirra, sem eru ágætlega sáttir við þessa nýbreytni, er Einar Hákonar- son. Sagði hann í viðtali við HP að hann væri hlynntur breytingunni, m.a. sökum þess að við hana hlyti sjálfstæði hverrar stofnunar innan borgarinnar að aukast. Taldi Einar það óréttmæta gagnrýni að segja listalíf í borginni nú lúta flokkspóli- tískri stjórn og aö það væri engin trygging fyrir ópólitískum vinnu- brögðum að færa völdin í hendur listamanna sjálfra. „Listamenn eru sjálfir þrælpólitískir," voru orð Ein- ars Hákonarsonar. Meðal ýmissa annarra eru hins vegar uppi megnar óánægjuraddir með hið nýja fyrirkomulag. Telja menn í þessum hópi það afar baga- legt að fólki innan stjórnmálaflokk- anna skuli fengin yfirumsjón með starfseminni á Kjarvalsstöðum. Einn þessara listamanna sagði í við- tali við HP, að þó svo að flokkarnir reyndu að skipa fulltrúa með áhuga á listalífi í menningarmálanefndina yrðu þeir samt fyrst og fremst tals- menn sinna flokka á þeim vett- vangi. Og viðmælandi okkar hélt áfram: „Þetta er tilraun til að mið- stýra listalífinu í borginni og þeir sem völdin fá í hendur, eru flokks- bundnir aðilar. Hinn almenni borg- arbúi er hins vegar yfirleitt alls ekki innritaður í stjórnmálaflokk og því eru þessir nefndarmenn hreint eng- ir fulltrúar fólksins í borginni." Það er greinileg óánægja ríkjandi meðal fjölda listamanna yfir því að þeir skuli ekki sjálfir hafa meira um starfsemina á Kjarvalsstöðum að segja. Bandalag íslenskra lista- manna fær að vísu að tilnefna tvo áheyrnarfulltrúa í menningarmála- nefndina, en þeir hafa ekki atkvæð- isrétt í málefnum sem varða fjármál eða stjórnsýslu. Vildu margir lista- menn sjá þá breytingu á rekstri Kjar- valsstaða að stjórnun væri sett í hendur listfræðinga og listamanna, sem hefðu þessi völd einungis í fá- ein ár hver til þess að koma í veg fyrir stöðnun og ýta undir fjöl- breytni og frumkvæði. Sýningaraðstaöan ókeypis Síðasta stjórn Kjarvalsstaða sam- þykkti undir lok kjörtímabils síns, að listamenn skyldu fá sýningarað- stöðu í húsinu endurgjaldslaust í framtíðinni og að einungis skyldi seldur aðgangseyrir inn í húsið, en ekki á hverja sýningu fyrir sig eins og nú er. Samkvæmt núverandi fyrirkomulagi taka listamennirnir salina á leigu og bera sjálfir allan kostnað af sýningu, svo sem útsend- ingu boðskorta og annað slíkt. Þetta kostar auðvitað drjúgan skilding, en á móti kemur að listamennirnir halda sjálfir eftir öllum aðgangseyri, sem inn kemur. Það eru því hags- munir hinna yngri og óþekktari, sem ekki eru ennþá „pottþétt sölu- vara“, að fyrirkomulaginu verði breytt samkvæmt samþykkt stjórn- arinnar frá í vor. Breytingin virðist hins vegar ekki líkleg til þess að komast í framkvæmd á næstunni. Fyrst þarf að samþykkja hana í borgarkerfinu, en þar hefur tillagan ekki verið tekin til afgreiðslu og því er erfitt að geta sér til um væntanleg afdrif hennar. Til tíðinda gæti dregið varðandi yfirstjórn Kjarvalsstaða á næstunni. Það kemur væntanlega í ljós þegar, eða ef, staða listráðunauts verður auglýst í haust. Ef nýkjörin borgar- stjórn tekur sig síðan til og fram- kvæmir samþykkt stjórnar stofnun- arinnar varðandi salaieigu og inn- gangseyri, verður vissulega um töluverðar breytingar að ræða á safninu við Miklatún. Það hnikar þó ekki til þeirri staðreynd, að stjórn- endur Kjarvalsstaða eru flokkspóli- tiskir fulltrúar, sem mikill fjöldi lista- manna er óánægður með. Ekki virðist hins vegar nokkur von til þess að á því fyrirkomulagi verði breyting með óbreyttum borgar- stjórnarmeirihluta. MánaÖarkort í aerobik kostar kr. 1.840. Dæmi: Jazz-modern-ballet 3 sinnum í viku Jazz-modern 3 sinnum í viku Jazz-ballet 3 sinnum í viku Jazz 2 sinnum í viku 3ja mánaða námskeiÖin kosta: 2 sinnum í viku kr. 5.500.- 3 sinnum í viku kr. 7.000.- Stúdíókort kr. 8.000.- EINNIG HÁDEGIS- TÍMAR íAEROBIK AÐ OKKAR HÆTTI ími til að þú.. Haustnámskeiðin okkar hefjast 15. september nk. Innritun hefst 8. sept.frá kl. 11—18 i sima 68 7801 og 687701. - Er ekki komin farir aÖ hugsa þér til hreyfings? Mi..... VIÐ KENNUM: JAZZ-MODERN-BALLET OG AEROBIK Shiriene Alicia Blake Sigtúni 9, s: 687701-687801 . HELGARPÓSTURINN 33

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.