Helgarpósturinn - 11.09.1986, Side 37

Helgarpósturinn - 11.09.1986, Side 37
SIGRÍÐUR ALBERTSDÓTTIR, 25 ÁRA HÁSKÓLANEMI: „Ég held að karlar tali mjög mikið um konur. Ef þeir eru margir saman í hóp gerast þeir oft mjög ruddalegir og hlæja á kostnað kvenna. Ef þeir vilja vera einlægir, tala þeir sín á milli um ákveðnar konur, og helst bara ef þeir eru við skál. Ég held að körlum finnist allt í lagi að ræða um tilfinningar sínar en þær skipta þá engu höfuðmáli og þess vegna vilja þeir helst ekki ræða um þær. Þeir eru svo lokaðir. Svo ræða þeir líka mikið um framtíðarplön sín, og vilja alltaf vera að koma því að hvað þeir séu að gera sniðugt, hvað þeir brilleri í vinnunni o.s.frv. Ég þekki fáa hæverska karlmenn, þeir vilja þvert á móti alltaf láta Ijós sitt skína. Þeir þola t.d. ekki, ef þeir koma inn í kvennahóp, að fá ekki að vera miðpunkturinn í samkvæminu og að enginn veiti þeim eftirtekt. En annars hugsa karlar fyrst og fremst um frama sinn en fjölskyldan, kvennamál og tilfinningar eru í öðru sæti. Kvennahreyfingin hefur að mínu mati ekki haft gagnger áhrif á umræðuefni karla. Karlar tala mikið um pólitík, svona í kaffi- og matartímum á vinnustað. Þótt þeim sé nokkuð sama um þessa hluti, vilja þeir sýnast ábyrgðar- fullir og ræða um þjóðarhag. Vissir hópar karla ræða mikið um tæki og vélar og þá verða þeir alveg eins og litlu strákarnir. Karlar tala al- mennt mikið um bíla, sérstaklega ef þeir eru að kaupa sér einn. Þá fer allur vinnustaðurinn á annan endann, því auðvitað vilja þeir draga alla inn í umræðuna. Þeim finnst mataruppskriftir og hægða- teppa hins vegar tilheyra kvengeiranum. Sum- ir ræða að vísu um barnauppeldi en margir, sérstaklega þeir sem eru komnir yfir fertugt, telja heimilishaldið sig engu skipta, þótt auð- vitað skipti það þá jafn miklu máli og konur. En ef þessir ungu taka á einhvern hátt þátt í umönnun barna sinna og elda mat annað slag- ið þá þurfa þeir alltaf, oft ómeðvitað, að koma því á framfæri. Og þá grípa allir andann á lofti og tala um hvað konan sé heppin að eiga svona góðan mann. Karlar tala líka sjaldan saman um sína veiku punkta eða annað sem kemur til með að skaða ímynd þeirra út á við. Þó getur verið að ein- hverjir ámálgi það við besta vin sinn á fylleríi að þá gruni að konan haldi framhjá. Karlmenn eru ágætir í hófi, en ef maður um- gengst þá of mikið verður návist þeirra þrúg- andi. Þeir vilja alltaf hafa orðið og alltaf vera sá sterkari, hvort sem það er í hjónabandi eða vináttu. Svo eru auðvitað til karlmenn sem láta alla ganga yfir sig. Eldri menn sem viður- kenna að þeir séu hreinir og beinir karlpungar, eru oft heiðarlegri en yngri menn sem þykjast vera svo iíbó en eru það ekki. Þeir eru oft hræðilega íhaldssamir, kæra sig t.d. ekki um það að konan sín gangi í stuttu pilsi, þótt aðrar konur geri það. Konurnar eiga bara að vera fyrir þá og helst heima við. Auðvitað eru karl- menn eins misjafnir og þeir eru margir og ég myndi ekki vilja vera án þeirra. Margir eru mjög skemmtilegir og það getur oft verið gagnlegt að tala við þá en oft eru þeir svo upp- teknir af sjálfum sér og að þeir hafa lítið að gefa öðrum." HÖRÐUR ERLINGSSON, 39 ÁRA FÉLAGSFRÆÐINGUR OG ATVINNUREKANDI: „íslenskir karlar trúa vinum sínum fyrir framtíðaráætlunum sínum og leyndarmálum í starfi en þeir ræða nánast aldrei saman um til- finningamál. Ef þeir eiga við vandamál að stríða í hjónabandi, sér maður fyrr húsið þeirra standa autt en að þeir ræði þessa hluti. Þegar ég fór út í nám til Vestur-Þýskalands fyrir tæpum 20 árum varð ég mjög hissa að kynnast þar karlmönnum sem ræddu ódrukknir saman um vanlíðan sína, samskipta- örðugleika við foreldraog fleiri tilfinningamál. Þetta voru karlar af 68-kynslóðinni sem höfðu alist upp á eftirstríðsárunum og voru fyrst á þessum tímum að gera sér grein fyrir hörm- ungum nasismans. Höfðu þar af leiðandi mikla þörf fyrir að tjá sig. Þótt þessir þýsku karlmenn tali svolítið undir rós er tjáningarmáti þeirra nokkuð beinskeyttur á meðan íslenskir tjá sig með því að segja sögur og brandara af þriðja aðila, líkt og þeir hafi aldrei losnað úr hug- myndaheimi eða frásagnarmáta íslendinga- sagna. íslenskir námsmenn gengu líka fyrr yfir hús og bíla á fylliríum en að ræða um til- finningaleg vandamál, en flýttu sér svo í partý til að kyrja ættjarðarlög undir svefninn. Líttu á þessa karlaklúbba; J.C., Rotary, Frí- múrararegluna eða hvað þetta nú heitir. í ein- um klúbbnum láta menn mata sig á upplýsing- um sérfróðra manna en í öðrum keppa þeir um hver þeirra tali mest og lengst, eru í eins- konar þjóðhöfðingjaleik. 1 þessum klúbbum slappa menn ekki af, allir eru í keppni og þess vegna eru klúbbarnir bara framhald af stritinu og samkeppninni í hversdagslífinu. Og svo eru það þeir sem hittast á veitingahúsi til að borða saman hádegisverð. Yfirleitt eru það jafnaldr- ar úr millistétt, bissnissmenn sem eru mjög ánægðir með sig, segja sögur og brandara og sá fyndnasti er mátulega klúr. Þeir ræða sko ekki um tilfinningar sinar en eru svo ánægðir með sig af því að þeir þekkja ekki annmarka sína, sem auðvitað er ákveðin heimska. Og um leið og einhver bendir þeim á að þeir séu ekki nafli alheimsins og konur gætu jafnvel verið án þeirra, bregðast þeir við með offorsi og hræðslu. Það kann að vera skýringin á því hvers vegna þessir karlar sjá rautt þegar minnst er á kvennahreyfinguna, því það er aðallega sú hreyfing sem upplýsir þá um þeirra eigin vanmátt. Karlar tala annars um allt og alltof mikið um það sem þeir hafa takmarkað vit á. Þetta kem- ur m.a. fram á fundum þar sem bæði kynin koma saman en þá hafa karlarnir sterka hvöt til að stíga í pontu áður en einhver kona grípur orðið. Þessi ræðuþörf karlmanna er brosleg til lengdar, því oft segja þeir ekkert af viti en kon- an fer ekki í pontu nematiún hafi eitthvað að segja. Karlarnir hafa flestir farið á ræðunám- skeið og þurfa sífellt að sýna fram á fornt for- ystuhlutverk sitt í þjóðlífinu en konur komast ekki að, enda kurteisari og kunna síður þessa ræðutækni. Ég held að kvennahreyfingin hafi lítið breytt umræðuefnum karla. Samt er enginn vafi á því að kvennahreyfingin hefur komið við þá. ís- lenskir karlmenn eiga lengi eftir að berjast gegn henni. Allir sem horfast í augu við valda- missi bregðast við af hörku og dónaskap. Karl- ar hafa flestir fæðst með drottningu í forgjöf, eins og sagt er á skákmáli, og hafa engan áhuga á að missa forréttindi sín. Þegar nýja kvennahreyfingin spratt hér upp fyrir rúmum 15 árum gerðu karlar góðlátlegt grín að henni eða reyndu að þegja hana í hel en nú eru þeir orðnir hræddir og níð og rógburður er eina andsvarið sem þeim dettur í hug. En sagan sýnir að þekkingin og fylgifiskur hennar, rétt- lætið, sigrar alltaf að lokum, þótt það taki tíma. Og kvennabaráttan er réttlætisbarátta." GESTUR GUÐMUNDSSON, 34 ÁRA FÉLAGSFRÆÐINGUR: „Það er erfitt að alhæfa um trúnaðarmál og umræðuefni kvenna, þær eru svo ólíkar. Um- ræðuefni þeirra mótast af stöðu þeirra og nán- asta umhverfi. Ég held að kvennahreyfingin hafi haft töluverð áhrif á umræðuefni kvenna og konur ræða nánast um alla hluti sín á milli. Samt eiga konur sín tabú; ég ímynda mér að þær tali t.d. ekki mikið um alkóhólisma eða kynlífsmál sín, þótt það sé eflaust að breytast. Hins vegar held ég að konur bregðist frekar^ trúnaði hvor annarrar en karlar því þær hafa ekki eða hlýða ekki samskonar föstum, óskráðum reglum og karlar um það hvað mað- ur segir í trúnaði og hvað ekki og hversu mikið. Þannig stinga þær oft á óhreinni hátt hver undan annarri en karlar sem virða forgang og „eignarrétt" hvers annars þegar þeir reyna við hitt kynið. Konur sem elska sama manninn geta oft ekki talað um hlutina fyrr en allt er komið í hnút. Auðvitað hefur þetta skeytingar- leysi kvenna gagnvart óskráðum reglum líka kosti, á sama hátt og virðing karla fyrir þess- um reglum hefur ókosti í för með sér fyrir þá. Konur eiga auðveldara með að ræða opin- skátt um tilfinningar sínar. Þeir karlar sem vilja ræða slíka hluti við kynbræður sína þykja enn hálfskrítnir, og ef þessi mál ber á annað borð á góma hafa karlar tilhneigingu til að færa umræðuna á eitthvert fræðilegt plan. Körlum finnst eftirsóknarverðara að ræða um fótbolta, stjórnmál og þvíumlíkt og mikill minnihluti þeirra ræðir um barnauppeldi, heimilishald, hjúkrunar- og aðhlynningar- störf. Mér finnst mikið til kvenna koma og ég tel mig hafa lært mikið af þeim og mér líður vel samvistum við þær. Þær sýna meiri natni í mannlegum samskiptum, hafa meira innsæi og tilfinningar og skynsemi eru ekki eins að- greind fyrirbæri meðal þeirra og meðal karla. í öllum körlum býr ákveðinn kvenleiki, á sama hátt og karlmennska býr í konum, og ég tel að ef kynin rækta ekki báðar hliðar sínar, leyfi þau ekki öllum þáttum persónuleikans að njóta sín. En það er svolítið átak fyrir hvern og einn að gera slíkt í samfélagi sem miðar að því að njörva konur og karla niður í stöðluð fyrir- bæri. Kynin geta lært mikið hvort af öðru. Konur eiga t.d. auðveldara með að skilja Iög- mál, jafnvægislist og endurnýjun náttúrunnar, á meðan hugsun karla snýst um að ná valdi á umhverfinu og þessi árásargirni þeirra getur leitt til tortímingar. Þess vegna er nauðsynlegt að þröngva kvenlegum hugsunarhætti upp á karla. Kvenréttindakonur mega heldur ekki alfarið taka upp hugsunarhátt karla, þótt sú leið sé auðveldust til áhrifa, því þá er ósköp lít- ið unnið. Þær eiga mun frekar að berjast fyrir hugarfarsbreytingu, að þær verði metnar á eigin forsendum." BALDUR HERMANNSSON, 43 ÁRA KERFISFRÆÐINGUR: „Karlar tala óskaplega mikið sín á milli um metnaðarfull áform sín, hvernig þeir geti látið innstu þrár sínar í þeim efnum rætast og gefa hver öðrum holl ráð í því sambandi. Karlmenn ræða líka í trúnaði um þá hluti kynlífsins sem yfirborðslegastir eru — mekaníska hluti ástar- innar og tæknibrellur — og opinskátt og með miklum hlátrasköllum og flissi um samskipti við lauslætisdrósir og vændiskonur. Hins vegar ræða karlmenn aldrei um samskipti sín við konur sem þeir meta einhvers, en menn sem lent hafa í skilnaði eru margir gjörsam- lega niðurbrotnir andlega og vilja oft ræða um þau mál í trúnaði við vini sína. Þó held ég að það sé vegna þess að þeir líta á skilnað eins og hvern annan ósigur, eins og í kappleik, frekar en að tilfinningalíf þeirra sé svo sært. Jú, jú, karlmenn ræða um andlega vanlíðan sína, en einungis í sambandi við ákveðin at- vik, t.d. ef þeir hafa þurft að standa á sínu máli gagnvart einhverjum, hafa tapað í skák, misst vinnuna og þvíumlíkt. Þeir ræða líka um and- lega vellíðan sína á sömu forsendum. En um hvorttveggja tjá þeir sig aðeins með því að gefa í skyn, því þetta er nokkuð sem karlar al- mennt skilja og þurfa ekki nánari útskýringu á. Konur hafa yfirleitt betri orðaforða en karl- ar og orðaforði þeirra lýtur meira að þessum mannlegu þáttum í tilverunni og þær tjá sig um vellíðan og vanlíðan sína án þess að skil- greina sérstök atvik eða kringumstæður. Körl- um er hins vegar ekki eins lagið að tjá sig, sem betur fer. Það væri hreinasta viðurstyggð ef maður þyrfti daginn út og inn að hlusta á fé- laga sína röfla um það hvernig þeim liði! Mað- ur er fljótur að forða sér ef maður verður var við þannig fólk í kringum sig! Yfirleitt erum við kaldlyndari en konur og tilfinningalíf okkar er grynnra. Karlar ræða annars um allt, og miklu meira en þeir vilja viðurkenna. Þeir eru fullt eins miklar kjaftatífur og konur, venjulega miklu meiri. Við erum hins vegar útsmognari, enda höfum við verið hinn ráðandi aðili í þjóðfélag- inu og verðum það vonandi áfram um aldir alda. Við köllum okkar kjaftatarnir fundi. Þeg- ar við félagarnir sitjum einhvers staðar með lappirnar uppi á borði og höfum í frammi hið versta blaður koma oft konur inn og spyrja með óttablandinni virðingu, sem auðvitað er uppgerð, hvort þær séu að trufla. Svona myndi karl aldrei segja við konur í samræðum. Hann myndi miklu frekar spyrja hress í bragði hvort þær ætluðu sér að sitja þarna og kjafta í allan dag. Auðvitað er þetta kvenfyrirlitning, hver einasti karl sem ég þekki er þrunginn kven- fyrirlitningu, þótt þeir vilji stundum ekki við- urkenna það. Öllum er í blóð borið að forsmá minnimáttar, því miður. Á æðra plani eru sál- irnar auðvitáð eins, en þær lenda í mismun- andi gervum, sem kallast karl og kona. Kvennahreyfingin hefur gjörbreytt konum, sem nú eru miklu djarfari og duglegri en for- mæður þeirra, þora að taka á sig ábyrgð og standa undir henni. Þetta sjá karlar og um- gangast konur nú af meiri virðingu. Kvenna- hreyfingin hefur hins vegar engu breytt um tjá- skipti karla innbyrðis. Allir karlar hafa ímugust á henni, nema einhverjir mjög veik- geðja menn og lítilsigldir. Við hinir höfum megnustu skömm á henni, því við skynjum að þessu er beitt gegn okkur og er að miklu leyti stjórnað af öfuguggum í hópi kvenna; lesbíum. Víst! Og ég fer ekkert ofan af því.“ HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.