Helgarpósturinn - 11.09.1986, Page 40

Helgarpósturinn - 11.09.1986, Page 40
s ^^^amkvæmt áreiðanlegum heimildum Helgarpóstsins hafa sterk öfl innan Sjálfstæðisflokksins lagt hart að Valgerði Bjarnadótt- ur (áður BJ) að hún bjóði sig fram í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Val- svissneskum banka. Úr því varð hins vegar ekki, því Interpol fær ekki slíkar upplýsingar nema geta sýnt fram á, að um ótvírætt sak- næmt athæfi sé að ræða. RLR treysti sér ekki til að ganga svo langt í ósk sinni. Þá hefur það vakið nokkra at- hygli, að samkvæmt framburði munu óskir um þennan dollara- flutning hafa komið frá Danmörku, nánar tiltekið skrifstofum NAF, og jafnframt tekið fram, að um ein- hverjar endurgreiðslur kynni að verða að ræða. Enn er bent á, að í telexum frá NAF hafi verið talað um dollarafjárhæðir til Sviss, sem skyldu teknar af umframverðinu, en ekki raunverulegu verði. Nú spyrja menn því eðlilega: Voru Danir á skrifstofum NAF með í kaffibauna- fléttum? Og enn er velt vöngum yfir öðrum þáttum málsins. T.d. telja ýmsir lögmenn, að Þórður Björns- son fv. ríkissaksóknari, hafi verið fullmildur í ákæru sinni og hefði í raun átt að ákæra Val Arnþórsson stjórnarformann SÍS og Kaffi- brennslu Akureyrar líka ásamt hin- um fyrir þá sök, að hafa svikið hvorki meira né minna en um 200 milljónir króna út úr samanlögðum kaupendum Braga-kaffis. Raunar fullyrða sumir, að annað hvort sé um mistök Þórðar að ræða eða framsóknarmildi. Við dómsrann- sóknina hefur hringurinn um Hjalta Pálsson fv. framkvæmda- stjóra innflutningsdeildar þrengst stöðugt, og nú mun svo komið, að Hjalti ætli að draga Erlend Einars- son með sér í fallinu. . . Einsog kunnugt er hefur Páll Magnússon tekið við starfi frétta- ritstjóra hjá íslenska sjónvarps- félaginu og er Páll raunar í HP-yfir- heyrslu af þessu tilefni. íslenska sjónvarpsfélagið mun hafa verið bú- ið að ganga frá auglýsingasamningi við Þýsk-íslenska áður en kunn- gjört var um ráðningu Páls og er sagt að þar hafi verið um drjúgar fjárhæðir að ræða. En Páll er fráleitt besti vinur Þýsk-íslenska, enda var hann einn þeirra fréttamanna sjón- varps sem hvað harðast gengu fram í fréttaflutningi af skattsvikum fyrir- tækisins. Forráðamönnum þýsk-ís- lenska mun heldur ekki hafa dámað þegar þeir fréttu að þeir yrðu í slag- togi með Páli í nýrri sjónvarpsstöð og munu þeir að sögn hafa sagt upp auglýsingasamningnum. . . Lítið hefur farið fyrir Haf- skipsfréttum undanfarið. Nú fer hins vegar að styttast í lok RLR- rannsóknar. Þá eru bústjórar og skiptaráðendur enn að störfum í þessu mikla gjaldþrotamáli og verð- ur enn einn skiptafundurinn hald- inn á morgun, föstudag. .. A ^^^^ndófsdeildin innan Lands- sambands verslunarmanna heldur áfram að starfa af fullum krafti. Samkvæmt heimildum HP munu andófsmennirnir gegn miðstýringu úr Reykjavík hafa hist síðastliðinn mánudag. Meðal þeirra eru Steini Þorvalds frá Selfossi, Hólmfríður Ólafsdóttir frá Keflavík og fleira gott fólk. Þau munu hafa verið að ganga frá kröfum landsbyggðarfé- laganna til að ganga til viðræðna við VSÍ.. . D 'BBP agvistarstofnanir eru viða undirmannaðar fóstrum og öðru starfsfólki, þannig að loka hefur þurft deildum og önnur vandræði skapast af. Síendurteknar auglýs- ingar eftir starfsfólki hafa borið mjög takmarkaðan árangur: Fóstr- urnar láta þær sem vind um eyru þjóta. Það eru launakjörin sem fæla frá og nú hefur Helgarpósturinn fregnað að fóstrur hyggi á aðgerðir í haust. Fóstrur í þjónustu ríkisins íhuga hópuppsagnir 1. október og fóstrur í þjónustu borgarinnar hafa að undanförnu gengist fyrir skoð- anakönnun innan stéttarinnar um fylgi við hópuppsagnir og rætt um 1. nóvember í því sambandi. Enn hafa engar ákvarðanir verið teknar, en Ijóst að nú fer að hitna í kolun- um. . . gerður mun hafa látið í ljós þá skoð- un, að hún gæti vel hugsað sér að fara í framboð fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Hins vegar munu vera vöflur á henni að fara út í pólitík á nýjan leik eftir harðan slag með eiginmanni sínum Vilmundi Gylfasyni heitn- um. Málið er enn galopið og gera menn ráð fyrir því, að Valgerði yrði ekki skotaskuld úr því að skjóta sér fram fyrir marga flokkshesta og kvenmann númer eitt á Reykjavík- urlista íhaldsins Ragnhildi Helga- dóttur.. . Þ rlr ungir menn vilja ólmir komast á listann, en þeir eru Jón Magnússon lögfræðingur, Vil- hjálmur Egilsson hagfræðingur VSI og Geir Haarde aðstoðarmað- ur Þorsteins Pálssonar... H yrirsjáanlegt er að miklar breyt- ingar verða á lista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík í næstu kosningum. Það sem einna mesta athygli vekur í því sambandi er að Eyjólfur Kon- ráð Jónsson, sem verið hefur þing- maður fyrir Norðurland vestra, hyggst fara fram í höfuðstaðnum. Eyjólfur Konráð var ritstjóri Morg- unblaðsins frá 1960—1975, en fór á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1974. Þá kom það mjög á óvart, að Eyjólf- ur Konráð skyldi leita eftir kjöri á Alþingi í dreifbýliskjördæmi, maður sem í málflutningi þótti „þéttbýlis- þingmaður" holdi klæddur. Skýr- ingin var sú, að ráðamenn flokksins töldu ekki pláss fyrir Eyjólf Konráð í Reykjavík árið 1975. Hugmynda- fræðingurinn, Eyjólfur Konráð Jónsson, mun breyta landslagi Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Og gera stöðu valdamikilla dreifbýlisþing- manna erfiðari.. . ^Í^^liargir þeirra, sem fylgjast með kaffibaunadómsrannsókninni velta vöngum yfir háum dollarayfir- færslum á nafn einhvers Pierre Lougons með bankareikning í Sviss. Við rannsókn málsins hjá RLR var leitað til Interpol vegna þessa og óskað eftir upplýsingum um þennan reikning frá viðkomandi 40 HELGARPÓSTURINN VIStLEGT " UMHVERFI A VINNUSTAÐ únaður á vinnustað hefur mikil áhrif á afköst starfsmanna og vellíðan þeirra. Þess vegna skiptir miklu rrtáíi að umhverfi þar sé vistlegt og öll starfsaðstaða þægileg. Þetta vitum við hjá Káess rVIT, HAGKVÆMNI OG STILL ■ > umgjörð skipulágðrar rstarfsemi ********* ■ þarf að véra þaulhugsuð. Allt frá minnsta smáatriði upp í heildarútlit hvers vinnustaðar. tilgangi síimim, hvernig sem á er litið stflhrein og setja svip á vinnustaðinn 5 húsgögnin þjöna Þau eru hagkvæm, ömusta .... i j É BBa hmdb ■ —,—... —- ;-*r r' ' • -—'

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.