Helgarpósturinn - 26.02.1987, Side 24

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Side 24
DJASS Strákar frá New Orleans Það liðu umþaðbil tuttugu ár frá því klarinettusnillingurinn Jimmy Noone lést þartil saxafónleikarinn Branford Marshalis fæddist. Fæð- ingarborg þeirra var sú sama — New Orleans, er nefnd hefur verið vagga djassins. Jimmy Noone var einna mestur hinna fornu kappa — Branford er hin nýborna tíð, en hvort hann vekur storma og stríð er annað mál og stærra. Hef- ur nokkrum tekist að ganga alvar- lega framaf nokkrum í djassheim- inum síðan Ornette Coleman kom framá sjónarsviðið fyrir rúmum aldarfjórðungi? Það voru að koma út skífur með drengjunum frá New Orleans ný- lega. Önnur með gamalkunnu efni, hin nýju. Víkjum fyrst að því gamla: Jimmy Noone: Apex Club Blues (Affinity/Skífan) er safn af Noone-ópusum frá 1928 til 1941. Þetta er hörkuskífa og allir er unna klarinettuleik og klassískum djassi ættu að næla sér í eintak, því Jimmy Noone-skífur hafa verið eins sjaldgæfar á hljómplötumark- aðnum íslenska og verðtrygging launa á vinnumarkaðnum. Mér er í barnsminni The blues jumped a rabbil á breiðskífunni Introduct- ion To Jazz, sem séra Kershaw gaf út fyrir Brunswick. Ætli sú skífa hafi ekki verið djassskóli margra íslendinga. Þar trommaði Tubby Hall með marsatöktum, Guy Kelly söng drafandi, Preston Jackson urraði í básúnuna og svo kom þessi engilbjarti klarinettusóló Jimmy Noones. Á sömu skífu var Wild man blues með Johnny Dodds. Þeir voru mestir klari- nettusnillingar New Orleans ásamt Sidney Bechet, sem varð þó þekktastur sem sópranisti. Johnny svartur og villtur — hinir kreólar, en Sidney þó grófastur þeirra allra. Kynþátturinn segir sjaldan allt! Jimmy var kreóli framí fingur- góma og fágaður stíll hans af frönskum ættum. Þó kunni hann blúsinn manna best og hiti í hverri nótu. Hann varð aldrei eins þekkt- ur meðal almennings og Barney Bigard, sem lærði margt af honum og lék bæði með Ellington og Armstrong. Silkimjúkur tónn var aðal kreólastílsins og því ekkert skrítið þótt Jimmy Noone ætti ekki í erfiðleikum með að aðlaga sig svínginu. Sérílagi eru upptök- urnar frá 1937 magnaðar. Þar blæs Charlie Shavers í trompetinn og O’Neil Spencer slær trommur — báðir úr stærstu smáhljómsveit heims: John Kirbys sextettnum. Shavers útsetti mest fyrir Kirby og setur mark sitt á ópusa þá er Noone-sveitin leikur og gamli maðurinn einsog draumur uppúr dós — þvílíkt klarinett í I know that your know — enginn gúdd- mann honum betri! Kirsuber Apex-klúbbsveitarinnar á elstu upptökunum frá 1928 er píanó- snillingurinn Earl Hines og þarna er útgáfa frá 1928 á lagi hans My monday date, er hann hljóðritaði um svipað leyti með tímamóta- sveit Louis Armstrongs. Frábær skífa fyrir þá er fíla hinn klassíska djass í botn. Aðeins eitt að: lag 5 á hlið 2 er skráð Sweet Georgia Brown — sem var að vísu hljóðrit- að í sömu upptökuhrinu — en á skífunni hljómar: He’s a different type of guy — og það var Jimmy Noone svo sannarlega. Nýjaskífan hans Branfords Mars- halis nefnist: Royal Garden Blues (CBS/Steinar) og er það nafnið á einum ópusnum er hann blæs þar. Gamalreyndir djassgeggjarar þekkja þar að sjálfsögðu að bragði titillagið; rifjasteikina hans Spenc- ers Williams sem yljað hefur okk- ur alltfrá því Clarence Williams lét prenta hana 1919. Marshalisbræð- ur, Wynton trompetleikari og Branford saxafónleikari, hafa vak- ið blendnar tilfinningar hjá mér alla tíð en ég bráðnaði þegar ég heyrði Royal Garden sópranað af Branford — það gerði ég ekki þeg- ar ég heyrði han n á sviðinu í Mont- martre i haust með Herbie Han- cock augýsa Round Midnight, sem fært hefur Dexter Gordon tilnefn- ingu til Oscars verðlauna — sem bestur karlleikari 1986. (Sú út- nefning segir meira en flest annað um þá virðingu er bandarískir djassmeistarar njóta í heimalandi sínu — eða hafa Dexter Gordon nokkrusinni verið veitt meirihátt- ar tónlistarverðlaun? Á þeim vett- vangi hefur hann þó unnið listræn stórvirki er munuð verða um ald- ir!) Aftur skulum við snúa til Bran- fords. Æskan hefur numið hann með hljómsveit Stings — listafrík- in með bróðurnum Wynton, en bestur er hann einn einsog á þess- ari skífu. Stíll hans er ekki fullmót- aður enn — Coltrane að sjálfsögðu áberandi en aldrei yfirþyrmandi. Tónlistin nokkuð margvísleg, enda sama liðið aðeins í tveimur lögum mest. Þarna er módernism- inn einsmikið í ætt við ECM og ESP (fyrir þá sem skilja ekki skammstafanirnar: ECM = Evr- ópskur djassmódernismi og ESP = Davisisminn fráþví hann varp- aði My funny Valentine fyrir borð til Bitchers Brew). Píanistar ráða ferðinni þar: Kenny Kirkland og Larry Willis í módernisma og gamíi pabbinn Ellis Marshalis stjórnar boppinu. Branford samdi einn ópus og Wynton annan en meira þótti mér til um tenórblástur Branfords í gamla góða Gershwin- ópusnum Strike up the band. Þar hellir hann sér beint útí sólóinn — jafnvel enn brattar en Parker í annarri töku Koko — og svo er göngubassi undir og alltí einu einn taktur, laglína og meiri spuni og á stundum einsog Roland Kirk væri kominn með tvo saxa — og þá meiri melódía en samt í miklu hófi. Besta Marshalis-skífa sem ég hef heyrt og er þá sama hvor bróðir- inn er skrifaður fyrir plastinu. MYNDLIST ÞRÁÐUR ödrum hádur Um þessar mundir sýnir Áslaug Sverrisdóttir í Gallerí Hallgerði að Bókhlöðustíg 2. Þetta er lítill sýn- ingarsalur, svo notalegur að þegar maður kemur inn hefur hinn venjulegi það á tilfinningunni að hann sé kominn inn í ferhyrndan, hlýjan móðurkvið með einum glugga. Það hefur færst í vöxt í vefnaði að vefa ekki. I stað þess er þráður- inn, sem getur stundum verið reipi eða kaðall, látinn leika sér óháð- ur öðrum við það eitt að teikna línu. Línan er þá tíðum látin liðast niður úr loftinu, fram með veggj- um eða um gólf. En þráður Áslaugar er öðrum háður, þótt vefnaðurinn sé næst- um hafður í lágmarki. Hann minn- ir á lauslega ofið sárabindi. Sem er til þess gert að sýna margræðið í einfaldleikanum. Ef hægt er að segja að vefnaður sé á ferð, þá vísa hinir litlu ofnu hlutir frá hinu smáa að stærri lík- önum. I.þeirri mynd sem vefnaður Áslaugar er hafður til sýnis, er hann aðeins tilvísun til stækkaðr- ar myndar — og jafnvel ólíks efnis. Efni verkanna er spunninn tog- þráður. En vegna eiginleika síns — sveigjanleika og hörku (þetta tvennt er látið leika saman, togast á) — vísar togþráðurinn til vírs eða fléttaðs vírnets. Og verkin benda ímyndunaraflinu líka á að þau gætu vel verið — í stækkaðri mynd — til að mynda hlið eða hluti af stærra gerði. Smáhlutirnir leyna sér í „höggmynd". í þessum vef er engin bein frá- sögn. Þetta er ekki myndvefnaður. Eðli verkanna er frumspekilegt. Mér liggur við að segja að verkin séu í ætt við þær örlitlu tjásur sem goppast stundum óvænt upp úr til- finningalífinu eða maður sér brot úr eðli sínu og fegurðarskyni í fundnum hlut, vírnetsbútum sem náttúran hefur málað með því að veðra þá. Sökum nálægðar við þennan náttúruanda fer Áslaug varlega í það að ,,lita" vefnaðinn. Allir litir eru notaðir sparlega. Hér á ég við aðra liti en hinn svarta. Svarti liturinn er notaður óspart vegna þess hve hann er nátengdur þeirri hugmynd sem við gerðum okkur af línu. í huga okkar er hún að öllu jöfnu svört. Aðrir litir Ás- laugar eru ekki litir, heldur eru þeir hugblær. Berast kemur litur hugblæsins fram í myndum númer 8 og 9. Og síðari myndin er margbrotin að því leyti að auk þess að vera ofin mynd (Ferna) er hún eins og grófum pensli hafi ver- ið strokið um blað fjórum sinnum, afar laust. Og sem hlutlæg tilvísun bendir hún okkur á fjórar vírnets- rúllur sem hefur verið staflað af til- viljun en samt á svo nefndan „list- rænan” hátt. Listaverk Áslaugar láta augað ekki taka eftir sér, nema augað sé beinlínis á höttum eftir einhverju sjónrænu. Þau láta samt ekki lítið yfir sér í venjulegri merkingu. Þau eru unnin af ásettu ráði og tals- verðri skólun. Það er að segja: hugurinn er lærður í því að finna smáheima. Áslaug er talsvert í hinni hreinu „teoríu”. Sú er jafnan hætta smámyndar- innar að hún verði einvörðungu hönnun eða yfirborðskenndur stíll sem heillar augað aðeins andartak fyrir sakir smæðar og leikins handbragðs. Það veit maður vegna þeirrar reynslu sem málverkið varð ríkt af á meðan smámálverkið var stundað bein- línis sem listgrein. Svo ekki sé tal- að um skartgripasmíðina, öll hin örsmáu nisti með örmálverkum. Smámyndagerð nútímans hefur reynt að forðast sömu örlög og smámálverkið hlaut forðum tíð, með því að nota aðeins örfáa liti. í list samtímans hérlendis vinnur hið smágerða stöðugt á, eða list- sköpunin sveiflast milli stórra verka og smárra. Það er orðið fremur sjaldgæft að sjá listaverk í „stofustærð". Ég kann enga skýr- ingu á þessu aðra en þá að al- menningur sé hættur að kaupaj listaverk í stofur sínar, sér til augnayndis, og þess vegna skapi listamenn verk fyrir „væntanlegj eftir Guðberg Bergsson söfn“ eða til að hafa þau í einka- eign. Þetta er dálítið dapurleg þróun. Að skapa list fyrir söfn er jafn dap- urlegt og það að skapa hana ein- vörðungu í eigin þágu. Söfn hér- lendis geta aldrei tekið við af „hinni borgaralegu stofu” eins og til að mynda erlendis. Það er vegna þess að hér er ekki til nein raunveruleg borgarastétt — og hér myndast aldrei hæfilega menntað- ur lýður sem eigrar oft stefnulaust um söfn sér til dægrastyttingar, vegna þess að af tímum iðnvæð- ingar hefur, eða er, nú tími iðjuleys- isins að taka við, tími hinnar enda- lausu hvíldar, sú gleðitíð sem draumóramenn dreymdi um í lok 19. aldar eða næstum alltaf við aldamót, á öllum tímum. I útlönd- um eru öll gallerí að deyja. Fólk fer ekki í sýningarskála. Það fer í „stór söfn” til að týna sér. Sýning- arskálinn er of „einstaklingsbund- inn” fyrir lýðinn. Maður sem hefur glatað persónuleika sínum og „eigin áræði” þorir beinlínis ekki að fara inn í sýningarsal. Það er vegna þess að hann fer inn í hann sem einstaklingur og hittir fáa fyr- ir, kannski lamandi þögn og kyrrð. í söfnum nútímans er aftur á móti hægt að týnast í formlausan fjölda. Glatið ekki séreinkennum ykk- ar. Farið fremur á sýningar en í söfn. STEFNUMÓT heitir nýútkom- ið smásagnasafn eftir unga konu, Rögnu Sigurdardóttur. í bókinni eru sjö smásögur, sem allar fjalla um stefnumót af ýmsu tagi. Bókin er hönnuð af höfundi, prentuð með fjólubláu á ljósblátt, og myndskreytt með fimm dúkskurðarmyndum. Stefnumót er fyrsta bók Rögnu, en hún hefur áður birt sögur í tímarit- um. Upplag bókarinnar er eitt hundrað og fimmtíu eintök og fyrstu ellefu eintökunum fylgja þrjár tölu- settar og áritaðar grafíkmyndir eftir höfundinn. Ragna er nemandi í ný- listadeild Myndlista- og handtda- skóla íslands. KEX heitir keðja sýninga ungra listamanna frá Islandi, Noregi og Svtþjód, sýninga sem ferðast á milli landanna þriggja. Þann 31. janúar síðastliðinn var íslensk og norsk sýning opnuð í Stokkhólmi. í mars verður síðan íslensk og sænsk sýn- ing opnuð í Osló og þær norsku og sænsku koma svo hingað í vor, fyrst sú norska í maí en sú sænska í júní. Verða þær báðar haldnar í Nýlista- safninu. Hugmyndin að baki sýningum þessum er sú, að íbúar landanna fái að kynnast því sem ungir myndlist- armenn eru að gera í hinum löndun- um tveimur. Leitast var við að velja saman myndlistarmenn, sem vinna á ólíkan hátt, þannig að fá mætti sem mesta breidd í sýningarnar. Á sýningunum eru málverk, skúlptúr- ar, myndbönd, grafík, hljóðverk, gerningur, bækur og fleira. íslensku þátttakendurnir eru Ásta Ólafsdótt- ir, Eggert Pétursson, Finnbogi Pét- ursson, Rúna Þorkelsdóttir, Helgi Fridjónsson, Ingólfur Arnarson, Jan Voss, Kristinn G. Hardarson, Sólveig Adalsteinsdóttir, Tumi Magnússon, Steingrímur E. Kristmundsson og Þór Vigfússon. NORRÆN fræði, staða þeirra og stefna, verða gerð að umræðu- efni á fundi í stofu 101 í Odda, hug- vísindahúsi Háskólans, á föstudag kl. 17.15. Tilefnið er veiting heiðurs- doktorsnafnbóta við heimspeki- deild HÍ á háskólahátíð á laugardag. Heiðursdoktorsefnin Hermann Pálsson, prófessor í Edinborg, Oskar Bandle, prófessor í Zúrich, og Peter Foote, professor emeritus frá University College í London, taka til máls. Fundarstjóri verður Bjarni Gudnason prófessor. Öllum er heimill aðgangur. 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.