Helgarpósturinn - 26.02.1987, Side 25

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Side 25
Lettsveitin i pasu i upptokusai utvarpsins. Því miður voru ekki allir hljóðfæraleikararnir mættir. Fyrsta íslenska stórsveitin Léttsveit Ríkisútvarpsins er ein af nýjungunum í íslensku jasslífi. Hún er skipud 14 af bestu hljóðfœraleik- urum landsins í þessari grein tónlist- arinnar. Frá þeim tíma er hljóm- sveitin var stofnuð hefur hún verið iðin við að hljóðrita bœði íslensk lög og klassísk jasslög, bœði gömul og ný af erlendum uppruna. Blaða- maður HP leit inn í Hljómskálann, Vilhjálmur Guöjónsson œfingahúsnœði sveitarinnar, og rœddi við Vilhjálm Guöjónsson, stjórnanda sveitarinnar, og saxó- fónleikarann Stefán S. Stefánsson. Fyrsta spurningin sem þeir svöruðu var hvaða máli stofnun og starfsemi Léttsveitarinnar skipti fyrir hljóð- fœraleikara. Stefán: „í fyrsta lagi skapar þetta atvinnu fyrir hljóðfæraleikara, menn eygja möguleika á að starfa við jass á grundvelli sem ekki var áður fyrir hendi, og þetta er í raun í fyrsta sinn sem svona stór hópur hljóðfæraleikara fær tækifæri til að starfa saman um lengri tíma. Áður fyrr var þetta meira þannig að menn komu saman af sérstöku til- efni og svo kannski aldrei aftur." Vilhjálmur: „Svo ýtir þetta undir sköpun, það eru margir að skrifa fyrir hljómsveitina, bæði þeir sem leika í henni og aðrir. Núna erum við t.d. að æfa verk sem er samið og útsett af Birni Thoroddsen gítarleik- ara. Þetta gefur því hljóðfæraleikur- um og tónskáldum kærkomið tæki- færi til að starfa að sinni músík.“ — Ekki er þetta það eina sem menn fást við, er það? Vilhjálmur: „Þegar hljómsveitin var stofnuð var það stefnan að fá til starfa bestu hljóðfæraleikara lands- ins og það gefur augaleið að þeir eru allir mjög eftirsóttir, flestir eru að spila á þetta tveimur þremur stöðum öðrurn." — Er þá ekki erfitt að ná sveitinni saman til að œfa og spila á tónleik- um? Stefán: „Við höfum fasta æfingar- tíma, tvisvar í viku á föstudögum og þriðjudögum en tónleikarnir hafa oft verið erfiðari, sumir eru að spila í Óperunni, aðrir í Sinfóníunni o.s.frv." — Nú hefur ekki svo ýkja mikið heyrst í hljómsveitinni opinberlega. Stendur til að auka það eitthvað? Vilhjálmur: „Eftirspurnin er mjög að aukast. Þau tæp tvö ár sem hljómsveitin hefur starfað hefur hún ekki verið mikið kynnt, en með meiri kynningu fylgir aukin eftir- spurn í kjölfarið. „Eiginlega má segja að það hafi tekið þennan tíma að fínstilla bandið, núna er þetta að verða mjög gott og hópurinn að verða mjög samhentur." Stefán: „Þetta hefur verið eins- konar neðanjarðarhljómsveit til þessa en nú förum við að koma meira uppá yfirborðið. Það stendur til að við förum í einhver fleiri verk- efni fyrir útvarp og sjónvarp, menn innan stofnunarinnar eru að vakna til vitundar um að nýta sér sveitina og svo eru fyrirhugaðir einir tón- leikar til viðbótar í vor, áður en við tökum okkur sumarfrí." — Hvað með plötu? Vilhjálmur: „Það hefur ekkert Stefán S. Stefánsson verið ákveðið, en vissulega hefur verið rætt um að gefa út plötu. Við höfum hljóðritað mikið af efni og allur grundvöllur hefur verið lagður með æfingum, útsetningum og öllu sem því fylgir.“ — Hvað með önnur framtíðar- plön? Stefán: „Ja, það má helst nefna að við eigum opið boð frá Danmarks Framkvœmdastjóri og upphafs- maður Léttsveitar Ríkisútvarpsins er Ólafur Pórðarson. Undirritaður hitti hann að máli milli funda í kaffi- stofu Hljóðvarpsins að Skúlagötu 4 sem útvarpsmenn munu brátt yfir- gefa, og bað hann að gera stuttlega grein fyrir því hvað varð til þess að sveitin var sett á laggirnar. „Hugmyndin fæddist hjá okkur- Hreini Valdimarssyni tæknimanni þegar við sátum hér dag einn í mat- stofunni og fengum okkur skyr. Út- varpsstjóri, Markús Örn sem þá var nýbyrjaður, tók strax vel í hugmynd- ina og sveitin var síðan stofnuð, hljóðfæraleikurum smalað saman og í maí ’85 hljóðritaði hún 10 Iög, sem var hennar fyrsta verkefni. — Hvert var markmiðið með stofnuninni? „Fyrst og fremst fannst okkur að hver útvarpsstöð þyrfti að eiga hljómsveit sem gæti komið fram við hin ýmsu tækifæri og verið til taks þegar á þyrfti að halda. Hitt var líka að hún var stofnsett til þess að flytja íslensk lög, til að gefa hljóðfæraleik- urum og tónskáldum betri mögu- leika á að starfa." — Hvenœr kom hún svo fyrst fram? „Það var 17. júní ’85 og það telst eiginlega vera opinber afmælisdag- ur hljómsveitarinnar, hún kom þá fram á Lækjartorgi. Síðan hefur hún komið fram við ýms tækifæri og haldið nokkra hljómleika og hljóð- ritað fullt af efni, tæplega 50 lög. Allt sem æft er hefur verið hljóðrit- að og er til í útvarpinu á böndum. Það má geta þess að stjórnandi var ekki ráðinn fyrr en síðastliðið haust, áður stjórnaði sá sami og útsetti, oft einhver af hljóðfæraleikurunum. En Radio Big Band, og áætlum að taka því en hvenær er ekki ákveðið. Svo er ýmislegt fleira í deiglunni sem ekki er tímabært að greina frá. — Eitthvað að lokum? Stefán: „Þú mátt geta þess að ef fólk vill heyra í léttsveitinni þá þarf ekki annað en að hringja inní út- varp og biðja um að hún verði spil- uð. Þá verður það gert.” í haust var Vilhjálmur Guðjónsson semsagt ráðinn stjórnandi og það var breyting til hins betra.” — Fá landsmenn að heyra eitt- hvað í sveitinni á nœstunni? „Já, hún kemur fram í sjónvarpi í sambandi við Söngvakeppni sjón- varpsstöðva. Þar mun hún flytja syrpu af lögum eftir Magnús Eiríks- son, honum til heiðurs, og á sjó- mannadaginn mun hún líka kom fram í sjónvarpinu og spila sjó- mannalög. Síðan má nefna að 26. mars verða tónleikar á Hótel Sögu þar sem sænskur básúnuleikari, Mikael Ráberg, mun koma fram með sveitinni og hann verður með efni með sér sem meiningin er að spila. Að auki kemur Pétur Östlund líka á þessa tónleika og trommar með.” KK --------------®- Hugmyndin fædd- ist yfir skyrinu „MYNDLISTARMENN framtíðarinnar” heitir samsýning rúmlega 70 ungra myndlistar- manna, sem opna á Kjarvalsstöð- um á laugardag kl. 14. Á sýningunni verða á þriðja hundrað verk; mál- verk, skúlptúrar, teikningar og vefn- aður eftir þekkta jafnt sem óþekkta listamenn. Samsýning þessi er runnin undan rifjum IBM á íslandi. Fyrirtækið á tuttugu ára afmæli á þessu ári og vildu forráðamenn þess minnast tímamótanna á veglegan hátt. Síð- astliðið haust var því auglýst eftir verkum frá listamönnum yngri en 35 ára, og voru viðbrögð listamann- anna góð. Nálægt eitt hundrað manns sendu inn myndir og sýning- arnefnd, sem í voru Einar Hákonar- son, Halldór Björn Runólfsson, Daði Guðbjörnsson, Friðrik Friðriksson frá IBM og Gunnar Hanson forstjóri IBM, valdi síðan úr innsendum myndum. Tilgangur þessa framtaks hjá IBM var sá að gefa ungum myndlistar- mönnum tækifæri á að koma verk- um sínum á framfæri. Við opnunina á laugardag verður síðan eitt verk verðlaunað sérstaklega og fær höf- undur þess afhentar eitt hundrað þúsund krónur. Öll verkin eru til, sölu og var Úlfar Þormóðsson í Galleríi Borg listamönnunum inn- an handar við verðlagninguna. Sýn- ingin er í báðum sölum Kjarvals- staða og stendur hún til 8. mars. SIGURÐUR Guðmundsson í Amsterdam hefur um langt árabil verið einn af fremstu myndlistar- mönnum okkar. Hann er nú loksins á heimleið með sýningu, fyrstu einkasýningu sína í Reykjavík í tíu ár. Að þessu sinni ætlar hann að sýna grafík, vatnslitamyndir og eina höggmynd í Galleríi Svörtu á hvítu við Óðinstorg og verður sýning hans opnuð föstudaginn 6. mars kl. 20. Sigurður stundaði nám í Reykja- vík og Hollandi, þar sem hann hefur verið búsettur síðan 1970. Hann var einn af stofnendum SÚM og Nýlista- safnsins og hann hefur haldið einka- sýningar og tekið þátt í fjölda sam- sýninga víða um heiminn. Mörg verka Sigurðar eru í eigu opinberra aðila og safna, og má þar nefna Listasafn fslands, Nýlistasafnið, Stedelijk Museum, Amsterdam, Musée dArt Moderne í París, Mod- erna Museet í Stokkhólmi o:fl. Sýning Sigurðar verður opin til 15. mars, daglega kl. 14—18, og verður nánar sagt frá henni í næsta Helgarpósti. SULD, hljómsveit nokkurra valin- kunnra músíkanta, heldur tónleika í Duus-húsi í kvöld, fimmtudag, og mun leika frumsamið efni og fjöl- breytt að auki. Súld er skipuð þeim Szymoni Kuran fiðlara úr Sinfóní- unni, Tryggva Húbner gítarleikara, Stefáni Ingólfssyni bassaleikara og Steingrími Guðmundssyni bumbu- leikara. Húsið opnar kl. 21.30. Súld var stofnuð fyrir fimm mánuðum og á þeim tíma hefur sveitin m.a. leikið í sjónvarpi og útvarpi, og árrisulir rásar-tvö neytendur gátu heyrt í þeim þar í morgun. HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.