Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 26.02.1987, Qupperneq 26

Helgarpósturinn - 26.02.1987, Qupperneq 26
ý0*i p:|;i Lesandinn gabbaður Umberto Eco sýnir hvernig James Bond 007 kemur hvergi á óvart í seinni tíd hafa frœöimenn, sem fást uiö bókmenntir og menningar- rýni almennt, í æ ríkari mœli beint sjónum sínum aö því sem kallast einu oröi afþreying. Menn hafa fariö aö gera sér grein fyrir því aö ef þeir œtla sér aö reyna aö þekkja þann veruleika sem alvörubókmenntirn- ar og menningin fást viö, er þeim nauösyn á aö þekkja líka heim af- þreyingarbókmenntanna: Einn af þessum frœöimönnum, og jafn- framt einn af frumkvöölunum aö þessu leyti, er Umberto Eco, ítalski táknfrœöingurinn sem sló svo eftir- minnilega í gegn meö sinni fyrstu skáldsögu, Nafni rósarinnar. Sá bók nýtir sér einmitt eitt af grunnatriö- um reyfarans, þ.e. samband hins snjalla spæjara (Holmes) og hins vit- granna aöstoöarmanns (dr. Wat- son). Greinin sem hér fer á eftir, um eina frœgustu hetju síöari tíma, bœöi í bókmenntum og kvikmynd- um, James Bond 007, er einmitt eftir Eco. Hán er skrifuö á 7da áratugn- um og fjallar um svokallaöa form- gerö sagnanna um James. í grein- inni sýnir Eco fram á aö reyfarinn, og einkum sögur Flemings um Bond, gangi í raun útá aö koma le- sandanum ekki á óvart, heldur fylgi alþekktri formálu sem gabbi les- andann stööugt til aö finnast hann vera oröinn spenntur vegna at- buröarásarinnar, sem er í raun allt- af sú sama og eykur þannig sköp- unargáfu hans leti. lan Fleming gaf út fyrstu bók sína um James Bond, Casino Royale, 1953. Bókin var undir miklum áhrif- um frá þeim reyfurum sem þá voru ríkjandi á markaðnum, nefnilega hinum harðsoðna bandaríska reyf- ara, einkum þeim sem Mickey Spill- ane skrifaði um spæjarann Mike Hammer. í Casino Royale tekur Fleming upp tvo einkennandi þætti sem hann hefur beint frá Spillane. í fyrsta lagi Konuna, Vesper Lynd, og viðhorf Bonds til hennar, og í öðru lagi óþægilega endurminningu sem veldur söguhetjunni hugarangri. Þessi minning verður orsök tauga- veiklunar, sadómasókisma og lík- lega getuleysis hjá Hammer. Þess- vegna verður öxullinn, sem bækur Spillanes snúast um, fyrst og fremst sálfræðilegur, en Fleming kýs að greiða úr flækjunni á annan hátt. Þegar Bond liggur á sjúkrahúsi, eftir að hafa framið sitt fyrsta morð sem 007, veltir hann því fyrir sér hvort 26 HELGARPÓSTURINN hann hafi verið að berjast fyrir rétt- an málstað. Félagi Bonds kemur þá til sögunnar og sannfærir hann um að hann verði að útiloka hugsjón- irnar úr lífi sínu og verða vélrænn atvinnumaður. Með þessum hætti afmarkar Fleming persónugerð Bonds fyrir komandi sögur og gerir hann um leið að sálarlausu fyrirbæri sem drepur eftir skipun, gerir hann að vél einsog lesendur og höfundurinn vildu að hann væri. Upp frá þessu veltir Bond aldrei aftur fyrir sér spurningum um réttlæti og sann- leika, líf og dauða. ÆVINTYRAFORM Sögurnar byggjast því ekki upp á sálrænum flækjum, eins og í tilfelli Mike Hammers, heldur á einföldu lögmáli andstæðna sem sóttar eru í átök af allra einföldustu gerð og hafa gengið í gegnum bókmenntir sögunnar með litlum breytingum. Þessi andstæðupör eru lykillinn að uppbyggingu sagnanna um fræg- asta spæjara vorra tíma, James Bond. Andstæðupörin eru af tvennum toga, annarsvegar er um persónur að ræða, hinsvegar gildi. Sem dæmi um þessi pör eru Bond gegn M, Bond gegn Skúrknum, Bond gegn Konunni og Konan gegn Skúrknum. Gildispörin eru t.d. Hinn frjálsi heimur gegn Sovétríkjunum, engil- saxneski kynstofnin gegn ýmsum óæðri og blönduðum kynstofnum og óeðli gegn sakleysi. í raun má líta á formið sem hlið- stæðu við ævintýrin, kóngurinn (M) sendir riddarann hugprúða (Bond) af stað útí heim til að bjarga prins- essunni (Konunni) úr höndum drek- ans illa (Skúrksins). Nánari útfærsla á þessu í átta lið- um lítur einhvern veginn svona út (og mætti ef til vill likja við skák í átta leikjum þarsem Bond mátar andstæðinginn í lokin): 1) M sendir Bond af stað. 2) Skúrkurinn og Bond hittast. 3) Bond skákar Skúrknum — eða öf- ugt. 4) Konan leikur og sýnir sig Bond. 5) Bond tekur konuna (kemst yfir hana eða byrjar tilraun til þess). 6) Skúrkurinn handsamar Bond og pyntar hann (með eða án Kon- unnar). 7) Bond drepur Skúrkinn. 8) Bond, á batavegi, nýtur konunn- ar sem hann missir síðan. KARLMENNSKA OG GETULEYSI Eins og áður er getið eru and- stæðupörin annarsvegar samsett úr persónum og hinsvegar úr gildum en stundum fela persónurnar í sér gildin og öfugt. Samband þeirra Bonds og M felur þannig í sér and- stæður kerfisbundinnar hugsunar og þjóðhollustu (M) gegn hugarflugi og frelsi og skorti á afstöðu (Bond), vegna þess að hetjan fræga er ekk- ert annað en vél og tekur því ekki afstöðu til eins né neins nema hvernig hún á að bjarga sjálfri sér. Andstæður Bonds og Skúrksins eru mjög greinilegar og í þeim speglast þær höfuðandstæður sem uppbygging sagnanna nærist á. Bond stendur fyrir Karlmennsku og Fegurð en þeim vonda er einatt lýst sem hálfgerðu skrímsli og kynferð- islega getulausum, hann er hommi eða á einhvern hátt óeðlilegur. Hann er bundinn af kerfishugsun sem Bond vinnur á með hugarflugi sínu og klókindum. Skúrkurinn er aldrei Breti, upp- runi hans er jafnan óviss; oft er hann kynblendingur og fæddur ein- hversstaðar á ótilteknum stað með- al slava eða niðri við Miðjarðarhaf. Aætlanir hans eru jafnan stórfeng- legar og ógna öryggi Englands eða hins vestræna heims, oftast í þágu Rússa. Hann er gjarna rauðhærður. Gegn þessu stendur hinn hreinrækt- aði Bond, vörður hins engilsax- neska stofns. Skúrkurinn hefur alltaf Konuna á valdi sínu þegar Bond kemur til skjalanna. Hún hefur vegna slæmra uppvaxtarskilyrða orðið handbendi hans og líf hennar er farið að taka óæskilega stefnu. Hún er hinsvegar hrein mey í flestum tilfellum, vegna þess að Skúrkurinn er getulaus, hommi eða afbrigðilegur á ein- hvern hátt. Af þeim sökum eru and- stæður milli Konunnar og Skúrksins sakleysi og óeðli. Konan er alltaf falleg og góð undir niðri og fundir þeirra Bonds verða til þess að hún getur brúkað hina manneskjulegu eiginleika sem hún hefur orðið að halda leyndum svo lengi. Samband Bonds og hennar stendur sjaldnast lengi, enda er stúlkan oftast af þeim uppruna að hún myndi verða til þess að blanda hinn hreina engilsaxneska kynstofn miður æskilegu blóði. EINFALDLEIKINN SÝNU BESTUR Eins og áður er getið byggist form- gerð sagnanna á því að draga upp andstæður sem þróa fléttuna áfram þartil niðurstaðan, sigur Bonds (hins góða) yfir Skúrknum (hinu vonda) verður að veruleika. Þessar and- stæður koma fram í persónum og gildum og þessi gildi koma fram í stöðu persónanna sem oft er hægt að lesa útúr nöfnum þeirra. Hinn illi maður lifir af fjárhættuspili og heitir Talan (Le Chiffre). Kóreanskur leigu- morðingi, sem beitir óvenjulegum aðferðum, er Annarlegur (Oddjob). Einn er heltekinn af gulli og er GuII- fingur (Goldfinger) og annar er maður miður góður og heitir því Nei (No). Hið sama gildir um konunöfn- in; Tiffany Case bendir til Tiffany‘s, demantaverslunar í New York. Til- finningarík japönsk ástkona er Kissy Suzuki. Blygðunarleysið end- urspeglast í Pussy Glory og peð í ójöfnu tafli er Domino. Þær sem minna máli skipta heita Goodnight eða Trueblood. Nafn söguhetjunnar bendir á glæsileika Bondstrætis og fjármálaviðskipta (treasury bonds). í stuttu máli má segja að sögur lan Flemings gangi þannig fyrir sig að Bond er sendur á ákveðinn stað til að koma í veg fyrir „science-fiction" -áætlun sem eitthvert skrímsli af ókunnum uppruna hefur sett sam- an. Þetta mannskrípi, sem alltaf er óhemjuauðugt, gengur erinda óvina vestursins. I þessari baráttu hittir Bond konu sem er á valdi óvin- arins, en Bond frelsar hana bæði frá þeim vonda og erfiðri fortíð sinni. Þau eiga í kynferðislegu sambandi sem er truflað af handtöku þeirra með viðeigandi pyntingum af hálfu Skúrksins. En Bond ber hærri hlut og skírmslið hlýtur hryllilegan dauðdaga en Bond hvílist eftir þungar raunir og erfiði í örmum stúlkunnar sem hann síðan missir að lokum. Hér er á ferðinni regluleg endur- tekning þar sem lesandinn veit í raun alltaf hvað gerist, bara ekki hvenær og hvernig. Þannig lýsa bækurnar hinu Þekkta en ekki hinu Óþekkta og valda lesandanum eng- um erfiðleikum. Hann nýtur þess að fylgjast með örlitlum breytingum frá bók til bókar, vitandi það að í lok- in munu allir þræðir renna saman og að allt er gott sem endar vel... Frjálsleg endursögn KK ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ er nú að undirbúa frumsýningu á nýlegu finnsku leikriti, „Eru tígrisdýr t Kongó?" eftir þá Bengt Alfons og Johann Bargum. Tígrisdýrin fjalla um eyöni, þó ekki á hefðbundinn hátt. Persónur leikritsins, tveir giftir heimilisfeður og rithöfundar, setjast inn á kaffihús til að ræða um leikrit, sem þeir ætla að skrifa um eyðni. Þeir ræða síðan um sjúkdóminn vítt og breitt og frá öllum hugsanlegum sjónarhornum, þeir reyna að ímynda sér hvernig þeir myndu bregðast við, ef þeir væru haldnir eyðni, velta fyrir sér siðferðislegu hlið málsins, o.s.frv. Leikrit þetta hefur verið sýnt fyrir fullu húsi í Finnlandi í eitt og hálft ár, og ætla Alþýðuleikhúsmenn að sýna það eins lengi og nokkur vill sjá það. Frumsýningin verður um miðjan mars og sýningarstaðurinn verður veitingahúsið Gaukur á Stöng, í há- deginu. Síðan eru uppi um það hug- myndir um að fara með leikritið í skóla og á vinnustaði, ef óskir ber- ast. Verkið tekur 45 mínútur í flutn- ingi og leikendur eru tveir, þeir Harald G. Haralds og Viöar Eggerts- son. Leikstjóri er ínga Bjarnason og þýðandi er Guörún Helga Siguröar- dóttir. SÖGUSVUNTAN brúðuleik- hús Hallveigar Thorlacius, er nú komin aftur á kreik á dagheimilum og leikskólum höfuðborgarsvæðis- ins. Að þessu sinni sýnir Hallveig nýjan brúðuleik, sem hún nefnir Smjörbitasögu. „Smjörbitasaga er hugarsmíð mín, þó að hún byggi á gamalli sögu, sem ég heyrði í bernsku," seg- ir Hallveig. Söguna sagði henni amma hennar, sem var úr Þingeyjar- sýslunni, og segist Hallveig ekki hafa orðið vör við söguna annars staðar á landinu. Leikurinn segir frá litla stráknum Smjörbita og Gullintanna, hundin- um hans, leit stráksa að hundinum og viðureign þeirra við tröllskessu, sem veit um veikleika Smjörbita; honum þykja nefnilega kleinur svo fjarskalega góðar. Smjörbitasaga var frumsýnd um síðustu helgi og segir Hallveig að viðtökurnar hafi verið mjög góðar. „Á frumsýningunni voru allir ald- urshópar og það voru ekki endilega börnin, sem skemmtu sér best,“ seg- ir Hallveig og á þar við foreldrana. Annars er sagan skrifuð með leik- skólaaldurinn, 2—5 ára, í huga. Hallveig segir, að áhugi á brúðu- leikhúsi hafi aukist að undanförnu, m.a. vegna nýsýndra sjónvarps- þátta, þar sem Jim Henson Prúöu- leikarapabbi kynnti helstu leik- brúðumeistara heimsins. Smjörbitasaga verður næst sýnd á morgun, föstudag, kl. 14.30 á dag- heimilinu Víöivöllum í Hafnarfiröi. Á þriðjudag, sprengidag, verður hún svo sýnd í Völvuborg í Völvu- felli kl. 14. ÁSMUNDARSALUR við Freyjugötu er nú vettvangur ljós- myndasýningar framhaldsskóla- nema. Ljósbrot kalla þeir hana og er hún opin til 8. mars næstkomandi.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.