Helgarpósturinn - 26.02.1987, Síða 32
SKÁK
Stálin stinn
Nú stendur IBM skákmótið sem
hæst, öflugasta skákmót sem hald-
ið hefur verið á Islandi, og reyndar
á Norðurlöndunum öllum.
Við íslendingar erum líkir öðr-
um dvergþjóðum í því að okkur er
gjarnt að grípa til stórra orða, og
sú árátta hefur frekar aukist en hitt
eftir að auglýsingamennskan hélt
innreið sína. Þannig var skák-
keppnin milli Norðurlandanna og
Bandaríkjanna, sem haldin var
hér í fyrra með tilstyrk VISA, skírð
„All Star Chess Match“, og skák-
mótið sem nú fer fram heitir
„Super Chess Tournament". Nú
eru þetta vissulega afar öflug
skákmót, en engu að síður gæti
verið hyggilegt að eiga svo sem
eitt eða tvö hástig aflögu til að lýsa
stórviðburðum framtíðarinnar —
ef vera kynni að einhvern tíma
yrðu haldin enn öflugri skákmót
hérlendis.
En hversu öflugt er skákmót
eins og IBM-mótið? Því er líklega
einfaldast að svara með því að vísa
til stigalistans góðkunna. Tilraunir
hafa verið gerðar i ýmsum lönd-
um til þess að meta afrek skák-
manna í tölum, en sú er mestra
vinsælda nýtur og er viðurkennd
um allan heim — og notuð hjá al-
þjóðaskáksambandinu FIDE — er
kennd við Arpad Elo, finnskan
stærðfræðing í Bandaríkjunum,
og er byggð á alltraustum tölfræði-
grunni. Samkvæmt þessari skrá
eru stig hundrað snjöllustu skák-
manna í heimi á bilinu frá 2500
upp að 2800, en menn sem á ann-
að borð tefla á skákmótum, sem
metin eru til stiga, geta verið með
stig niður undir 1600. En kannski
þykir einhverjum fróðlegt að sjá
stigatöl garpannna á toppi pýra-
mídans:
1. Kasparov 2735
2. Karpov 2710
3. -4. Sokolov og Júsúpov 2645
5. Kortsnoj 2625
6. Ljubojevic 2620
7. -8. Húbner og Short 2615
9. Portisch 2610
10. —11. Tal og Spasskí 2605
16. Timman 2590
19.—21. Polugajevskí 2585
Stigahæstir skákmanna á Norð-
urlöndum eru:
12. Ulf Andersson (Sví.) 2600
30.—33. Bent Larsen (Dan.) 2565
34.-38. Simen Agdestein
(Nor.) 2560
40,—43 Helgi og Jóhann 2555
52.-62. Jón Loftur,
Curt Hansen 2540
63.—71. Margeir.
Þetta er samkvæmt nýjustu töl-
um í stigaskránni, frá 1. jan. 1987.
Þeir sem eru skráðir með feitu
letri taka þátt í IBM-mótinu.
Ti! gamans má geta þess að
hæsta stigatal sem nokkru sinni
hefur verið skráð er 2785, en
þeirri stigatölu náði Fischer 1972
þegar hann hafði lagt Tajmanov,
Larsen og Petrosjan að velli með
ótrúlegum yfirburðum og unnið
Spasskí i einvíginu í Reykjavík.
En hvernig stendur IBM-mótið
miðað við önnur sterk skákmót?
Eins og áður er sagt er það öflug-
asta skákmót sem haldið hefur
verið á Norðurlöndum. Fyrra met-
ið áttu Danir með minningarmóti
sínu um Nimzowitsch 1985. Þar
voru tólf keppendur eins og hér og
meðalstigafjöldi þeirra 2553, en
hér er hann 2583. Úrslit þar urðu
þessi:
1.—3. Browne, Larsen og
Vaganjan 6,5 (af 11)
4.-6. Nikolic, Short og Tal 6
Agdestein varð í 10. sæti með 4,5
vinninga.
Annars héldu Svíar tvö milli-
svæðamót á sjötta áratugnum: í
Saltsjöbaden 1952 og í Gautaborg
eftir Guömund Arnlaugsson
1955. Þetta var á þeim árum þegar
Folke Rogard var forseti FIDE.
Þessi mót voru stór í sniðum og vel
setin, en erfitt er að bera þau
saman við nútímamót.
Árið 1979 var haldið í Montreal
skákmót sem margir töldu eitt-
hvert öflugasta skákmót sem hald-
ið hafði verið. Þar voru fjórir kepp-
endur sem hér eru aftur saman-
komnir á IBM-mótinu: Ljubojevic,
Portisch, Tal og Timman. Kepp-
endur voru tíu og tefld var tvöföld
umferð. Meðalstigafjöldi kepp-
enda var 2622. Úrslit urðu:
1,—2. Karpov og Tal 12 (úr 18
skákum).
3. Portisch 10,5
4. Ljubojevic 9
5. Spasskí og Timman 8,5
7.-9. Hort, Húbner, Kavalek 8
10. Larsen 5,5
Júgóslavar eru þjóða duglegastir
við að halda skákmót, og hefur
smábær þar uppi í fjöllum,
Bugojno, orðið kunnur fyrir mörg
meiriháttar mót. Þar var haldið
ákaflega öflugt mót á síðasta ári
með átta þátttakendum og tvö-
faldri umferð. Þar var meðalstiga-
fjöldinn 2624 og úrslit:
1. Karpov 8,5
2. -3. Ljubojevic og Sokolov 7,5
4.-6. Júsúpov, Portisch, Spasskí 7
7. Miles 6
8. Timman 5,5
Loks má nefna að nú í desember
síðastliðnum var haldið myndar-
legt skákmót í Brússel með sex
þátttakendum er tefldu tvöfalda
umferð:
1. Kasparov 7,5
2. Kortsnoj 5,5
3. -4. Húbner, Nunn 5
5. Short 4
6. Portisch 3
Þarna var meðalstigafjöldinn
2634.
Eins og sjá má af þessu er af
ýmsu að taka ef spurt er um öflug-
ustu skákmót í heiminum. Einnig
sést að það eru oftast sömu garp-
arnir sem koma við sögu á þessum
mótum, og að þetta eru einmitt
mennirnir sem nú eru gestir Skák-
sambandsins. IBM-mótið er ágæt-
lega skipað, einnig að því leyti að
þar eigast við listrænir og baráttu-
glaðir meistarar, enda hafa marg-
ar snjallar og skemmtilegar skákir
þegar litið dagsins ljós á mótinu og
fleiri eiga áreiðanlega eftir að bæt-
ast í hópinn. Okkar ungu meistar-
ar eiga á brattann að sækja, því að
þeir eru stigalægstir í hópnum. En
þetta verður þeim vafalaust mikil
og góð þjálfun.
GÁTAN
Hvað rennur sjaldnast langt frá
eikinni?
Svar:
!jese|dg
LAUSN Á MYNDGÁTU
SPILAÞRAUT
Eftir opnun austurs á 3 tíglum,
veikt og langlitur, verður suður
sagnhafi í 6 hjörtum. Útspil vest-
urs tígul-5:
N
A762
KD964
104
A3
S
D854
AG1083
KG75
Þú trompar heima og tekur
tvisvar tromp, austur fylgir tvis-
var, en vestur fleygir tígli í seinna
trompið. Þú snýrð þér næst að
laufinu, tekur ás og kóng og
trompar lauf í blinoum, og daman
kemur niður í vestur. Tígull er
trompaður og hirt á laufgosa og
vestur kastar enn tígli, en spaði
látinn úr borði.
Og nú er komið að spaðaíferð-
inni. Ef þú hefur fylgst sæmilega
með ætti spilið nú að vera öruggt.
Þú spilar spaða og ...
Lausn á bls. 10.
Lausnin á verðlaunamyndgátunni
sem birtist á þessum stað í blaðinu
fyrir tveimur vikum er: Gób auglýs-
ing er gulls ígildi enda bítast fjöl-
midlarnir um auglýsingamarkaö-
inn.
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum. Vinningshafinn heitir
Steinunn Jóhannesdóttir, Teiga-
gerði 11 í Reykjavík. Hún fær senda
spennusöguna Líkib í rauba bílnum
eftir Ólaf Hauk Símonarson sem
Sögusteinn gaf út fyrir síðustu jól.
Frestur til að skila inn lausn á
myndgátunni hér að neðan er til
annars mánudags frá útkomu þessa
tölublaðs. Verðlaunin að þessu sinni
er bókin Nútímafólk eftir sálfræð-
ingana Guðfinnu Eydal og Álfheiði
Steinþórsdóttur.
Góða skemmtan.
32 HELGARPÓSTURINN