Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 3
FYRSI OG FREMST
ÁRANGUR Flokks mannsins í
kosningunum varð meiri en flestir
bjuggust við en hins vegar mun
minni en sjálfur formaður FM,
Pétur Gudjónsson, taldi líklegan. í
kosningabaráttunni sagði Pétur
skoðanakönnuði blekkja vísvitandi
og fela fylgi FM, sagði að á
Reykjavíkursvæðinu væri flokk-
urinn með 5—10% fylgi, sennilega
um 8%. Því hljóta vonbrigði hans
að hafa orðið ærin þegar loka-
niðurstöðurnar sýndu 1—2% fylgi
víðast hvar. í heildina fékk FM
1,6% og ef landið væri allt eitt
kjördæmi byði það upp á akkúrat
einn þingmann af 63. En kosn-
ingalögin eru smáflokkum ekki
hliðholl og sennilega kemst Pétur
ekki á þing á næstunni — nema
þá helst sem þingvörður. . .
OPNUVIÐTÖL Helgarpóstsins
hafa löngum verið mikið lesin,
eins og m.a. kom fram í lesenda-
könnun blaðsins á síðasta ári. En
það eru fleiri sem gleypa í sig
HP-viðtölin, því bókaútgefendur
virðast einnig sýna þeim mikinn
áhuga. Tveir viðmælendur okkar
úr læknastétt urðu heldur betur
varir við þetta fyrr í vetur, því
eftir að rætt hafði verið við þá í
blaðinu fengu þeir hvor um sig
þrjár upphringingar frá bókafor-
lögum, sem vildu koma viðtals-
bókum við þá á þrykk fyrir næstu
jólavertíð. Læknarnir, Björn
Gudbrandsson og Oddur Ólafsson
SMARTSKOT
munu ekki hafa tekið illa í hug-
myndina, svo ekki er ótrúlegt að
þeir brosi báðir til okkar úr hillum
bókaverslana eftir svo sem sjö
mánuði. Helgarpósturinn virðist
því eiga tilkall til titilsins
„hugmyndabanki íslenskra bóka-
útgefenda", eða hvað?
KONUR verða sem kunnugt er
13 af 63 nýkjörnum alþingis-
mönnum eða um það bil 1 kona á
móti 4 karlmönnum, 20.6%. Alls
38 frambjóðendur munu bera
titilinn „Fyrsti varamadur“ en af
þeim sem þannig bíða við
þröskuldinn eru 12 konur eða
31.6%. En ef allir hinir 63 ný-
kjörnu þingmenn yrðu skyndilega
forfallaðir yrði að kalla til 63 vara-
menn sem nú mynda einhvers
konar „skuggaþing". Af þessum
skuggaþingmönnum eru 24 konur
eða 38.1% og er þá enn langt í
jafnræðið. Ætli til þess þurfi ekki
að koma samhliða stjórnarskrár-
breyting og stórfelldar náttúru-
hamfarir . ..
ÍTREKAÐ hefur komið fram
hversu mikið framboð var af fram-
boðslistum fyrir nýafstaðnar
kosningar. Við höfðum Flokk
mannsins, Flokk litla mannsins,
Flokk þreytta mannsins, Flokk
yfirmannsins, Flokk sveita-
mannsins, Flokk kvennamannsins,
Flokk mannsins hennar Bryndísar,
Flokk fyrirgreiðslumannsins, Flokk
landsmannsins og Flokk fágæta
mannsins. ..
OKKUR skilst að eftir „sam-
skipti" Alberts Gudmundssonar og
ljósmyndara Þjóðviljans á Hótel
Borg fyrir kosningarnar sé algjör-
lega bannað að taka þar ljós-
myndir. Þar megi aðeins taka
höggmyndir. . .
SA ÆSTI sjónvarpsprestur,
Jerry Falwell, sem leitt hefur
„siðvædda meirihlutann" í Banda-
ríkjunum og verið einn hornsteinn
stuðningsins við Reagan átti áður
í harðri samkeppni við aðra sjón-
varpsklerka um vinsældir, fé og
áhrif. Nú er orðið einum keppi-
naut færra, vegna þess að Jim
Baker æsiklerkur gerðist sekur
um framhjáhald með einka-
ritaranum í trúarfyrirtækinu
„Lofið Drottin". Falwell upplýsti
landsmenn sína um að engin
hætta væri á að honum yrði á
slíkt brot: „Ef ég væri akandi á
bílnum mínum aleinn, og konan
mín víðs fjarri, og ég æki framhjá
ungri stúlku í söfnuði mínum, sem
stæði úti í rigningu síðla kvölds og
biði eftir strætó, þá dytti mér ekki
í hug að stöðva bílinn til að bjóða
stúlkunni far.“ Með þessari yfir-
lýsingu þótti hann sýna mikla
móralska yfirburði yfir hinn fallna
klerk . . .
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Uppgjör „Það má Guð vita hvað hefur orðið af
Ormarnir iöa í hræinu þessum atkvceðum.
af Alþýðubandalaginu. RÚNAR GUÐJÓNSSON SÝSUJMAÐUR i BORGAR-
Svo það eina sem gammarnir geta NESI í SAMTALI VIÐ DV, MIÐVIKUKDAGINN
er að gogga hver annan og éta. 29. APRiL, SPURÐUR HVAÐ HEFÐI ORÐIÐ AF ÞEIM ATKVÆÐUM i VESTURLANDSKJÖRDÆMI SEM
Niðri. VIRÐIST VANTA.
ERTU EKKERT
EINMANA?
Pétur Ásbjarnarson bifvélavirki
„Jú, óneitanlega er ég stundum dálítið einmana hérna."
— Hvernig hefur vistin verið?
„Hún hefur verið svona þokkaleg."
— Hvaö gerirðu þér til dægrastyttingar?
„Ég hef verið að bíða eftir hringingum frá þeim sem ætla að
ánafna samtökunum peningum. Meðan ég bíð hef ég verið að
skrá niður þau fyrirtæki sem hafa stutt samtökin og ætla að
koma þeirri tilkynningu til fjölmiðla. Svo hugsar maður náttúr-
lega hitt og þetta, hugsar til vinkonu sinnar, les bækur og horfir
á sjónvarp. Það er svo furðulegt að maður fréttir svo margt
hingað upp."
— Hvaðan?
„Ja — frá fólki sem hringir í mig og segir mér fréttir."
— Hringja margir í þig?
„Nei, ég get ekki sagt það. Það hafa verið mjög litlar undir-
tektir. Það er eins og fólk geri sér ekki grein fyrir því að hér sé
þörf á að vera með björgunarstöð fyrir krakka á aldrinum
14-20 ára."
— Þú segist lesa þér til dægrastyttingar. Ertu að
verða búinn með allar bækurnar sem Svart á hvítu gaf
þér um daginn?
„Nei, reyndar ekki. Ég er núna að lesa eina bók frá þeim, ís-
lendingasögurnar. Annars hef ég verið með bækur sem ég kom
sjálfur með hingað."
— Segðu okkur frá Krýsuvíkursamtökunum.
„Þau voru stofnuð á sumardaginn fyrsta í fyrra og ætla sér
að reyna að gera Krýsuvíkurskólann að skóla fyrir krakka sem
eiga við fíkniefnavandamál að stríða. Það er gert ráð fyrir að
krakkarnir verði þarna í meðferð frá 6 mánaða tímabili upp í tvö
ár."
— Hvað kostar að fullklára húsið?
„Það kostar 33 milljónir króna. Hins vegar er gert ráð fyrir að
koma einhverjum hluta hússins upp áður svo hægt verði að
byrja starfsemina."
— Hvenær á hún að hefjast samkvæmt áætlun?
„Bara eins fljótt og hægt er en það fer auðvitað eftir þeirri
fjárhæð sem safnast."
— Trúirðu að þið munið fá milljón?
„Það var nú verið að stappa í mig stálinu í morgun og sumir
vilja meina að þessi auglýsing sé ágæt, þótt ekki safnist í þess-
ari atrennu þá muni það koma síðar. En milljón er auðvitað að-
eins brot af því sem þarf en yrði þó alltaf í áttina."
— Hringirðu sjálfur út?
„Ég hef reynt það en fengið dræmar undirtektir. Ég byrjaði
á A í símaskránni og er ekki enn kominn í gegnum A-ið. Það
virðist enginn geta tekið ákvörðun um þetta í fyrirtækjunum og
hver vísar á annan. Það að einn maður ætli að hringja eftir fjár-
framlögum er hugmynd sem fellur um sjálfa sig um leið og
maður ætlar að framkvæma hana."
— En ertu þá viss um að það hafi ekki verið bara á tali
hjá þér þegar fólk ætlar að hringja inn áheit til þín?
„Ég veit ekki, það er alveg möguleiki jú."
— Hvernig salernisaðstaða er þarna á þakinu?
„Ég er með fötu hérna í næsta tjaldi. Föturnar eru fjarlægðar
daglega og komið með nýjar."
— Hvað með mat? Klifrar einhver upp til þín á hverj-
um degi?
„Já, mörgum sinnum á dag. Þú gætir vel komið hingað í
heimsókn til mín ef þú vilt! En Pítubær styrkir samtökin og þeir
gefa mér mat."
— Færðu heimsóknir?
„Já, félagar mínir hafa litið hingað til mín og teflt við mig
skákir á kvöldin."
— En hvers vegna varst þú fenginn í þetta?
„Ég er í Hjálparsveit skáta í Reykjavík og svo er ég víst það
rólegur að þeir hafa treyst mér til að þrauka hérna! Annars var
ég ekki í Krýsuvíkursamtökunum fyrr en núna."
— Ert þú sá eini sem hægt er að hringja í með
áheit?
„Nei, það er líka hægt að hringja í Krýsuvíkursamtökin í síma
621005 eða borga með póstgíró en númerið þar er það sama og
símanúmerið."
— Ertu ekki hræddur um að verða of langt niöri þegar
þú ferð af þakinu?
„Maður er nú alltaf uppi öðru hverju svo það hlýtur að verða
í lagi!"
Pétur Ásbjarnarson bifvélavirki er hátt uppi þessa dagana. Hann hefur
síðastliðna viku dvalið á þaki Laugardalshallarinnar til að vekja athygli
á málsstað Krýsuvíkursamtakanna. Slminn á þakinu hjá Pétri er 687115
og í það númer hringdum við til að vita hvort Rétur væri nokkuð að
missa móðinn en eins og kunnugt er hefur ekki safnast nema 1/10 hluti
þeirrar fjárhæðar sem stefnt er að
HELGARPÓSTURINN 3