Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 11
megnið af þessum margumtöluðu
48 atkvæðum. Við það felldi Ingi
Björn Albertsson (S) Skúla Alex-
anderson (G)af þingi, Kristinn H. (G)
kæmi inn og felldi Sighvat (A), Lára
(A) kæmi inn og felldi við það Geir
(D) og Björn Dagbjartsson (D) kæm-
ist á þing. Enn sem fyrr yrði Máltn-
fríður (V) flakkarinn. Alvarlegustu
breytingarnar verða ef Framsóknar-
flokkurinn ætti þessi atkvæði öll
eða að minnsta kosti öll nema eitt.
Þá væri það Davíð Aðalsteinsson
(B) sem kæmi inn sem kjördæma-
kjörinn og felldi Skúla (G) af þingi.
Við það bættu framsóknarmenn við
þingflokk sinn og yrðu eftir það 14
á þingi. En þeir næðu ekki mannin-
um af Alþýðubandalaginu, því
Kristinn H. Gunnarsson (G) á Vest-
fjörðum kæmi inn og felldi Sighvat
(A). Alþýðuflokksmenn fengju þá
uppbótarmann Austurlands og
Guðmundur Einarsson (A) kæm-
ist á þing. Við það lægi Egilí Jóns-
son (D) úti, en félagi hans, Björn
Dagbjartsson (D) á Norðurlandi
eystra kæmi á þing. Við það félli
sjötti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík, Geir H.
Haarde, og lægi óbættur hjá garði.
Sjálfstæðismenn yrðu eftir þetta 17
á þingi. En breytingarnar eru ekki
um garð gengnar, því Reykvíkingar
ættu enn rétt á uppbótarmanni. Sá
yrði Guðrún Halldórsdóttir af
Kvennalista. En þar sem þær konur
eiga ekki rétt á fleiri uppbótar-
mönnum dytti Danfríður Skarp-
héðinsdóttir út af þingi og Málm-
fríður Sigurðardóttir á Norðurlandi
eystra yrði flakkarinn í hennar stað.
Breytingarnar yrðu ekki jafn af-
drifaríkar ef megnið af atkvæðun-
um lenti hjá öðrum flokkum en
þeim sem að ofan greinir. En þessi
48 atkvæði geta skipt sköpum fyrir
13 manns og valdið því að Fram-
sókn vinnur þingmann af sjálfstæð-
ismönnum. Svona til fróðleiks má
bæta því við að þessi þúfa er
0,52637% af greiddum atkvæðum í
Vesturlandskjördæmi og 0,31084%
af greiddum atkvæðum á landinu.
Þau eru um margt kostuleg nýju
kosningalögin. ..
Börn líta á lífið
sem leik.
Ábyrgöin er okkar-
fulloröna fólksins.
Þaðerdýrt
rafmagnið sem þú dregur að borga
Rafmagn er svo snar þáttur
í lífi okkar að við veitum því
varla athygli. Flest heimilistæki
og vélar á vinnustað ganga
fyrir rafmagni og við erum svo
háð þeim að óbeint göngum
við sjálf fyrir rafmagni.
Þessu ,,sjálfsagða“ raf-
magni er dreift til okkar af
rafmagnsveitu. Rafmagnsveita
Reykjavíkur leggur metnað
sinn í stöðuga og hnökralausa
dreifingu til neytenda. Dreif-
ingarkostnaður greiðist af
orkugjaldi.
Ógreiddir reikningar hlaða
á sig háum vaxtakostnaði sem
veldur því að rafmagnið er nær
þriðjungi dýrara hjá þeim
skuldseigustu — þar til þeir
hætta að fá rafmagn.
Láttu orkureikninginn hafa
forgang!
RAFMA3NSVEITA
REYKWÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222
HP-áskrifendur Helgarpóstsins œttu nú aö vera búnir aö fá heimsenda
gíróseöla frá blaöinu. Þeir eru vinsamlegast beönir aö greiöa skuld
sína ekki síöar en 15 dögum eftir móttöku seöilsins. Aö þeim tíma
liönum veröur hún sett í innheimtu sem hefur í för meö sér
aukakostnaö fyrir áskrifendur. Dráttur á greiöslu hefur og í för meö
sér aö blaöiö berst ekki lengur til áskrifenda.
ATH!! ELDRI GÍRÓSEÐLAR ERU ÓGILDIR
HELGARPÓSTURINN 11