Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 39

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 39
FRÉTTAPÓSTUR Tveggja flokka stjórn óhugsandi Niðurstöður kosninganna lágu fyrir árla morguns sl. sunnudag, þó síðar hafi hins vegar verið tilkynnt um dular- fullt hvarf 48 atkvæða í Vesturlandskjördæmi, sem hugsan- lega gætu hreytt myndinni eitthvað. Alþýðuflokkurinn fékk 15,2% atkvæða og 10 menn kjörna, Framsóknarflokkur fékk 18,9% og 13 menn, Bandalag jafnaðarmanna fékk 0,2% og engan mann, Sjálfstæðisflokkur fékk 27,2% og 18 menn, Alþýðubandalag fékk 13,4% og 8 menn, framboð Stefáns Valgeirssonar í Norðurlandi eystra fókk 1,2% (12,1% í kjördæminu) og 1 mann, Flokkur mannsins fékk 1,6% og engan mann, Borgaraflokkur fékk 10,9% og 7 menn, Kvennalisti fékk 10,1% og 6 þingmenn, en Þjóðarflokkur fékk 1,3% atkvæða og engan mann kjörinn. Borgaraflokkur, Kvennalisti og Alþýðuflokkur voru sam- kvæmt þessum úrslitum sigurvegarar kosninganna, en út- koma Steingríms Hermannssonar í Eeykjanesi, þar sem hann náði kjöri ásamt Jóhanni Einvarðssyni, þykir einnig mikill sigur. Miklar breytingar urðu á skipan þingmanna, 21 nýr þingmaður kemur inn og sex þingmenn náðu ekki endurkjöri, þó ekki munaði miklu hjá alþýðuflokksmann- inum Guðmundi Einarssyni í Austfjarðakjördæmi, sem skorti einungis 7 atkvæði. Af nýju þingmönnunum eru 12 konur, eða þremur fleiri en á síðasta þingi. Forseti íslands ætlar að bíða með að veita einhverjum póli- tísku foringjanna umboð til stjórnarmyndunar, en óform- legar viðræður hafa þó átt sér stað á undanförnum dögum. Jón Baldvin Hannibalsson hefur hug á að veita forsæti stjórn Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Kvennalista, en Steingrímur Hermannsson ihugar möguleika á því að bjóða nýjum flokki inn í mynstur fráfarandi stjórnar. Skoðanakönnun stöðvuð Fréttamenn Stöðvar 2 hugðust gera skoðanakönnun um kosningarnar og bjórinn meðal kjósenda á kjörstöðum á höfuðborgarsvæðinu og birta niðurstöður hennar í kvöld- fréttum á kjördag. Könnunin var stöðvuð af yfirkjörstjórn í Keykjavík, sem hefur lögsögu yfir kjörstöðum og lóðum þeirra. Forráðamenn stöðvarinnar ætla að höfða mál á hendur kjörstjórninni. Guðrún vill landsfund Guðrún Helgadóttir, þingmaður Alþýðubandalags, hefur krafist þess að landsfundur verði kallaður saman til þess að ræða um og bregðast við útreið þeirri, sem flokkurinn fékk í nýliðnum kosningum. Ákveðið hefur verið að halda mið- stjórnarfund um miðjan maí. Samningar Bankamenn sömdu við viðsemjendur sína aðfaranótt 29. apríl, en degi fyrr sömdu línumenn og rafvirkjar hjá Raf- magnsveitum ríkisins. Félagsráðgjafar hjá ríkinu hafa einnig samið og eru þvi hættir í verkfalli, sem skall á þann 26. mars. Samningur er hins vegar ekki í sjónmáli hjá leið- sögumönnum og ljóst er að um 80% fóstra í Reykjavík láta af störfum 1. maí og ætla ekki að draga uppsagnir sínar til baka. Hestar í siglingu Um 300 hross lögðu af stað í siglingu frá Þorlákshöfn í síð- ustu viku. Þetta voru bæði reiðhestar og sláturhross, á leið á ýmsa staði í Evrópu með milligöngu búvörudeildar SÍS. Fréttapunktar: • 60 ára gömul kona var fermd í Dómkirkjunni síðastliðna helgi, en á sínum tíma hafði það af einhverjum ástæðum far- ist fyrir. • Ef innflutningur á nýjum bílum heldur áfram út árið á svipuðum nótum og verið hefur frá janúarbyrjun, verður um 24% aukning á bílainnflutningi milli ára. • Kynferðisafbrotamaðurinn Steingrímur Njálsson, sem nauðgaði ungum blaðburðardreng fyrir u.þ.b. ári, hefur fengið þriggja ára fangelsisdóm og verður að greiða 300 þús- und króna skaðabætur. • Húsfyllir var í Þjóðleikhúsinu á sumardaginn fyrsta, þegar þar fór fram dagskrá til heiðurs hinu 85 ára afmælis- barni, Halldóri Laxness. • Námskeið nokkurra presta fyrir hjón og hjónaleysi njóta nú mikilla vinsælda fólks, sem vill tryggja góða liðan í „hnappheldunni" og betri endingu hjónabandssælunnar. BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÓS veitir eftirtalda þjónustu: tjöruþvott, djúphreinsun teppa og sœta, mótorþvott. Mössum lökk, bónum og límum d rendur. Opiö virka daga kl. 8—19. Opið laugardaga kl. 10-16. Bón- og þvottastöðin Ós, Langholtsvegi 109 Sími 688177 Tökum hunda í gœslu til lengri eða skemmri dvalar Hundagæsluheimili Hundavinafélags íslands og Hundaræktarfélags íslands Arnarstöðum, Hraungerðishreppi 801 Selfoss — Símar: 99-1031 og 99-1030 oq þú flýgur í gegnum daginn PONTUNAl Q't cMáÍTi öl VUJfilyt „ afla daga vikunnar kl. 9JH)-22.0 Póstverslunin Príma HELGARPÓSTURINN 39

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.