Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 37

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 37
SÓLVEIG ÓLAFSDÓTTIR, lögfræðingur: „SAUMAKLÚBBURINN EINS OG HREPPUR Á ÞJOÐ- VELDISÖLD" ,,Ég á margar mjög góðar vinkonur, en það er ekki þar með sagt að ég tali opinskátt við þær allar. Það eru kannski ekki nema ein eða tvær vinkonur frá unglingsárunum, sem ég myndi tala við um hvað sem væri, ef mér lægi eitthvað á hjarta. Reyndar hef ég haft afskap- lega litla þörf fyrir að tala opinskátt við aðra en manninn minn. í mínum huga er þetta því meira spurning um hvort maður á góða vin- konu, sem maður leitar til þegar á þarf að halda. Samband mitt við þessar konur er einnig gagnkvæmt á þann hátt, að þær vita að ég er til staðar, ef þær þurfa að leita stuðnings af ein- hverju tagi. Síðustu 19 árin hef ég þar að auki verið í saumaklúbb með bekkjarsystrum mínum úr Verslunarskólanum. Þessi skólasystrahópur er í mínum huga mjög mikilvægur frá félagslegu sjónarmiði. Við hjálpumst allar að, jafnvel þvert á pólitískar línur, í prófkjörum, prest- kosningum og slíku. Þá er þetta hópur, sem maður getur leitað til og treyst á. Hins vegar erum við misjafnlega nánar vin- konur innan hópsins og erum fullkomlega meðvitaðar um það. Sumar eru góðar vinkon- ur, sem ég veit að tala kannski meira saman innbyrðis en þær tala við mig. Við höfum hins vegar allar haldið þessum tengslum allt frá því að við útskrifuðumst og vitum að við getum reitt okkur hver á aðra, ef mikið liggur við. Sú vissa er ákaflega þægileg. Þetta er ekkert ólíkt hreppunum á þjóðveldisöld... Hrepparnir virkuðu þá nefnilega eins og nokkurs konar tryggingarfélög. Ef það brann hjá þér, komu allir í sveitinni og byggðu upp húsið þitt. Þetta er svona eins og hjá Amish- fólkinu, sem m.a. var sýnt í kvikmyndinni Wit- ness. Ef maður þarf á því að halda, þá er þessi hópur til taks, þó svo einstaklingarnir innan hans séu mismunandi nákomnir manni. Ég hef aldrei átt karlmann að nánum vini, fyrir utan manninn minn. Karlmenn eru yfir- leitt miklu lokaðri og ég held mér fyndist ég aldrei geta tjáð mig opinskátt við karlmann. Reyndar verð ég að ítreka það, að mér finnst ég ekkert þurfa að tala um mín hjartans mál við neinn, nema þá ef mér liði hugsanlega eitt- hvað illa. Þegar slíku er ekki til að dreifa, finn ég enga þörf á því að tala við Pétur eða Pál um persónulega hluti. Ég á hins vegar von á því að í slíkum tilvikum myndu konur skilja mínar innstu hugsanir betur en karlmenn.“ ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR, dagskrárgerðarmaður: „GRANNARNIR HEFÐU ALDREI BOÐIÐ KARLMANNI í KAFFI" ,,Ég á nokkrar mjög góðar vinkonur, en það er engin ein sem ég myndi beinlínis kalla ,,bestu“ vinkonu mína. Við erum nokkrar saman í saumaklúbb, bekkjarsystur úr menntaskóla, en mínar nánustu vinkonur hef ég þekkt frá því í barnaskóla. Á tímabili fórum við svolítið sín í hverja áttina, en síðan lágu leiðir okkar aftur saman og þar sem grunnur- inn var sterkur, var auðvelt að taka þráðinn upp aftur. Ein þessara vinkvenna minna bjó er- lendis í nokkur ár, en ég hélt alltaf einhverju sambandi við hana og þegar við hittumst var alveg eins og við hefðum aldrei verið aðskild- ar. Einni vinkonu minni kynntist ég tiltölulega seint á lífsleiðinni og hún er ekki á sama aldri og ég. En við hana get ég talað um ALLT. Mér finnst vera ákveðin takmörk fyrir því hverju ég segi vinkonum mínum frá ... einhver lína, sem ég fer ekki yfir. Ég tala ekki alveg um hvað sem er. Þó kemur einstaka sinnum upp sú staða, að maður verður að létta á sér! Þá er ómetanlegt að eiga góða vinkonu að leita til. Enn ein mjög góð vinkona mín býr í norður- hluta Noregs. Við hittumst stundum ekki í mörg ár, en vorum óaðskiljanlegar á mennta- skólaárunum. Það er mjög sérkennilegt að hitta hana aftur, því það er alitaf eins og hún hafi verið hér allan tímann. Okkar aðstæður eru mjög ólíkar, en samt er sambandið jafn- sterkt og það var þegar við vorum unglingar. Alveg sömu tengslin. Það hafa myndast þarna vináttubönd, sem ekkert virðist bíta á, hvorki fjarlægðir, mismunandi aðstæður eða neitt annað. Ég hef ekki orðið vör við að maðurinn minn sé neitt óhress með samband mitt og vin- kvennanna. Hann skammar mig meira að segja stundum, ef ég vanræki þær mikið. Af einhverri ástæðu held ég ekki að vinátta kvenna við karlmann væri möguleg á svipuð- um nótum og meðal vinkvenna. Það er eins og maður hafi örlítið meiri fyrirvara á því sem sagt er við karlmann, þó svo hann sé vinur manns. Þegar börnin okkar voru yngri, höfðum við hjónin óreglulegan vinnutíma og reyndum að skiptast á um að vera heima. Fyrst var ég heima á morgnana en hann seinni hluta dags- ins og þá var mikið um að nágrannakonurnar litu inn í morgunkaffi. Þær komu þó ekki, ef þær sáu að maðurinn minn var heima. En um leið og hann var farinn, létu þær í sér heyra. Þannig eimdi enn eftir af óskráðu reglunum, sem giltu hjá eldri kynslóðinni, um það að tím- inn með eiginmanninum væri mikilvægari og hefði forgang. Þegar ég vann fyrri hluta dags- ins, kom hins vegar enginn í morgunkaffi til Einars! Hann kvartaði líka stundum undan því hvað það væri einmanalegt hjá sér. En hvað heldurðu að fólk hefði sagt, ef konurnar í blokkinni hefðu farið að kalla á karlmann í morgunkaffi? Það hefði þótt stórskrítið. Það hringir heldur enginn í karla til að kjafta við þá þegar þeir eru heima á daginn, en við konurnar fáum oft upphringingar frá vinkon- um okkar, án þess að þær eigi ákveðið erindi. Þetta gerir það að verkum, að karlmenn sem sinna heimilisstörfum eru miklu einangraðri en við konurnar. Þeir hafa eflaust alveg jafn- mikla þörf fyrir svona tengsl og ég sárvor- kenni þeim fyrir að vera í þessari aðstöðu.“ GUNNHILDUR JÓNSDÓTTIR, grunnskólanemi: „TÖLUM NÁTTÚRULEGA UM STRÁKA" „Ég á auðvitað nokkrar vinkonur í skólan- um og við erum oft margar saman. Þessi hóp- ur hittist svona af og til, en það er samt ekki neinn formlegur saumaklúbbur eða svoleiðis. Ein stelpan er hins vegar svona ,,aðal“ eða „bestá' vinkona mín. Það er stelpa sem ég hef þekkt frá því að ég flutti í Breiðholtið fyrir um 7 árum. Hún á heima rétt hjá mér og þess vegna var það kannski svolítil tilviljun að ein- mitt við tvær skyldum verða vinkonur. Fyrst vorum við alltaf tvær saman, en svo fór hún að vera mikið með öðrum stelpum í skólanum. En þegar við byrjuðum í 7. bekk, var það eftir nýju bekkjakerfi og þá fór hún aftur að vera með okkur hinum. Og núna erum við bara all- ar saman. Við tölum alveg örugglega um svolítið aðra hluti en strákarnir gera sín á milli. Til dæmis tölum við náttúrulega um stráka og það gera þeir væntanlega ekki mikið! Stundum segjum við hver annarri allt um það, sem er að ske hjá okkur. En ekki nema stundum ... Við stelpurn- ar tölum auðvitað um allt öðruvísi hluti en maður ræðir um heima hjá sér. Fjölskyldan nennir ekkert að hlusta alltaf á það sem ÉG er að tala um! Þessi hópur á líka ýmis sameiginleg áhuga- mál sem maður getur ekki sinnt með fjölskyld- unni, en við erum samt ekkert endilega allar mjög líkar. Við förum saman út að skemmta okkur eða æfa ein hverjar íþróttir og svoleiðis. Það gerir maður náttúrulega ekki með foreldr- um sínum. Við ráðleggjum auðvitað oft hver annarri, ef við á annað borð höfum einhver svör við vandamálunum. Þegar eitthvað slíkt er á ferðinni, eru það nú kannski bara allra nánustu vinkonurnar sem maður ræðir við. Mér finnst ofsalega mikilvægt að eiga vin- konur. Það er alveg nauðsynlegt að eiga að minnsta kosti eina mjög góða. En það er mjög gaman að eiga fleiri, því það er ekkert sniðugt að vera alltaf að tala við sömu manneskjuna. Maður verður líka að geta talað við aðrar stelpur." ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR, rithöfundur: „ÞARF EKKI AÐ LEITA ÚT FYRIR HEIMILIÐ" „Þegar ég var unglingur, fundum við skóla- systurnar fljótt að við gátum talað um ýmsa hluti, sem strákarnir virtust ekki tala um. Síð- an hefur þetta þróast gegnum tíðina og ég hef verið svo heppin að geta byggt mig upp tilfinn- ingalega í gegnum sambönd við nokkrar trún- aðarvinkonur. Ég er fædd og uppalin á ísafirði og var þar í saumaklúbb með ákveðnum hóp af stelpum á meðan ég var í menntaskóla. Þegar maður flytur síðan til Reykjavíkur, slitna tengslin við upprunann hins vegar svolítið. Þessi hópur hefur nú tvístrast, en sumar af þeim stelpum sem ég var með þarna, finnst mér alltaf vera mínar bestu vinkonur. Þau tengsl haldast, jafn- vel þó svo einhverjar búi erlendis og maður sjái þær kannski ekki svo árum skipti. Um leið og við hittumst aftur, getum við farið að tala saman um nákvæmlega sömu hlutina og áður. Það hefur alltaf verið mér mjög mikilvægt að eiga góða vinkonu, þó svo það hafi kannski ekki verið sama manneskjan sem gegndi því hlutverki frá upphafi og fram á þennan dag. Ég hef þó alla tíð átt einhvern að, sem ég hef verið í slíku trúnaðarsambandi við. Ég er lesbía og bý með konu, en mér sýnast konur sem búa með karlmönnum leita í það að eiga a.m.k. eina góða vinkonu, sem þær geta talað við um alla hluti. Mér finnst stundum eins og konur, sem eru í sambúð með körlum og sækjast eftir trúnaðarsamböndum við aðr- ar konur, séu þar með að létta af sér einhverju, sem þær geta ekki talað um við manninn sinn heima fyrir. Ég þarf kannski ekki að leita svo mikið eftir slíkum vináttutengslum, vegna þess að sú kona sem ég bý með er jafnframt trúnaðarvinkona mín! Bestu vinir mínir hafa þó ekki alltaf verið konur. Ég hef átt karlmenn að vinum og gat talað við þá um alla hluti. Slíkt er hreint ekkert útilokað, þó svo það fari auðvitað mikið eftir persónuleika karlanna sem í hlut eiga. Karl- menn eru mishæfir til að vera einiægir og opn- ir, eins og gefur að skilja. Kannski á ég líka auðveldara með að eiga karlmenn að góðum vinum, þar sem spurningin um hugsanlegt kynferðislegt samband þar á milli er ekki til staðar. Mér gengur þess vegna ef til vill ekki síður vel að stofna til vináttusambands við karlmenn en konur. Þar sem ég er yfirlýst lesbía, virðast sumar konur líka pínulítið óöruggar gagnvart manni. En þetta er aðal- lega við fyrstu kynni og það gengur yfir!" HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.