Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Blaðsíða 30
Geturðu passað börnin? eftir Friðrik Þór Guðmundsson Kemur til þess nú eftir mánaðamótin að um fjögur þúsund börn streymi inn á vinnu- markaðinn vegna uppsagna fóstra í Reykja- vík? Fyrir 6 mánuðum sendu á þriðja hundr- að starfandi fóstrur borgarinnar inn upp- sagnarbréf með þriggja mánaða fyrirvara, eða um 80% af öllum fóstrum borgarinnar. Uppsagnarfresturinn var síðan framlengdur en rennur loks endanlega út 1. maí. Nú hefur kjarasamningur Starfsmannafélags Reykja- víkur verið samþykktur, en fóstrur skera sig úr vegna sérkrafna og um þær var fjallað í gær. Eftir sérfundi viðræðunefndar fóstra við fulltrúa borgarinnar síðdegis í gær tóku við viðræður borgarinnar og samninga- nefndar Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar, en fátt benti til þess að samkomulag næðist, þó ekki væri það talið útilokað með öllu. Fyrir um það bil mánuði ríkti neyðar- ástand víða þegar stjórnendur sjúkrahúsa urðu að senda fjölmarga sjúklinga heim vegna háskólamenntaðra starfsmanna Ríkis- spítalanna. Og nemendur landsins áttu á hættu að missa úr námi vegna verkfalls kennara. Mörg stéttarfélög rikis og sveitar- félaga áttu í aðgerðum og viðræðum. í borg- inni gerðist það, að kjarasamningur við starfsmannafélag borgarinnar var felldur í allsherjar atkvæðagreiðslu og þá ekki síst vegna megnrar óánægju launalægstu hóp- anna með sína útkomu. Einna óánægðastar voru fóstrur. En þó ástandið á vinnumark- aðinum hafi ekki verið glæsilegt beindust samt augu manna fyrst og fremst að Alberti Guðmundssyni, sérframboði hans og næstu daga tók æ harðnandi kosningabarátta við. Smám saman hefur verið leyst úr verstu „skærunum" á vinnumarkaðinum, en nú þegar rykið er að setjast á ný eftir kosninga- slaginn blasir við möguleikinn á nýju „neyð- arástandi". Reykjavíkurfóstrurnar hafa nokkra sér- stöðu gagnvart fóstrum annarra sveitarfé- laga í því að byrjunarlaunin eru lægri og auk þess hafa fóstrur víða annars staðar fengið ýmsar „sporslur" og réttindamál í gegn sem ekki hafa fengist í borginni. Hvað fóstrur hjá ríkinu varðar kvarta þær einnig undan lág- um launum, en hafa þó haft í farteskinu „bókun" um endurskoðun launa í vor. Sér- staka athygli vakti snemma í þessum mánuði er foreldrafélag Sólbrekkuheimilisins á Sel- tjarnarnesi bauð fóstrum borgarinnar „gull og græna skóga" ef þær kæmu á Nesið: „Bestu laun sem fóstrum bjóðast á markaðn- um í dag“ og að auki „ýmsar sporslur sem beint eða óbeint skila sér í auknum launum". Ekkert benti til þess að staðan breyttist þegar nýir kjarasamningar starfsmannafé- lagsins fóru til atkvæðagreiðslu um miðjan mánuðinn. Þá gerðist hið óvænta: Davíð Oddsson borgarstjóri bauð í miðri atkvæða- greiðslunni upp á sérstaka tveggja launa- flokka hækkun fóstra, þroskaþjálfa og gæslukvenna umfram téðan samning — gegn því að samningurinn yrði samþykktur! Eins og mönnum er vafalaust í fersku minni voru öll atkvæði brennd undir umsjón brunavarða, sem orðið höfðu fyrir því að vera stöðvaðir af lögreglunni er þeir hugðust sækja fund starfsmannafélagsins. Nú hafa kjarasamningarnir verið sam- þykktir, í þriðju tilraun. Þess vegna gildir áfram tilboð borgarstjóra um tveggja launa- flokka sérstaka hækkun fyrir fóstrur og þroskaþjálfa. Sérstök viðræðunefnd fóstra fundaði í gær með Jóni Kristjánssyni starfs- mannastjóra Reykjavíkurborgar og til hliðar beið samninganefnd starfsmannafélagsins. Það var sem fyrr segir síðastliðið haust að 80% Reykjavíkurfóstra tóku ákvörðun um uppsagnir. Frá upphafi hefur megin krafan verið 40 þúsund króna lágmarkslaun al- mennra fóstra. Nýgerður samningur með „bónusi" borgarstjóra gerir hins vegar ráð fyrir að lágmarkslaun fóstra verði 36.229 krónur. Fóstrur eru reiðubúnar til að sam- þykkja hækkun sem fari þarna bil beggja, en vilja á móti fá í gegn ýmsar sérkröfur, sem lengi hafa verið hafðar uppi. Þessar sérkröfur snúast meðal annars um fjölgun svokallaðra undirbúningstíma, sem nú eru tveir á viku, að forstöðumenn heimila ráði fjölda starfsmannafunda, að námskeið verði metin til launa, að greiddur verði hlífð- arfatastyrkur og þá vilja fóstrur að tekin verði upp ný starfsheiti, „deildarfóstra" og „yfirfóstra". Hvað síðarnefnda heitið varðar þá er það að vísu til á stærstu dagheimilun- um, en fóstrur vilja slíka stöðu á öllum dag- vistarstofnunum. Deildarfóstra myndi bera meiri ábyrgð en almenn fóstra og fengi þá eins launaflokks hækkun. Þessar sérkröfur munu flestar þegar hafa náðst víða í öðrum sveitarfélögum. í viðræðunum í gær var viðræðunefnd fóstra að ræða sérstaklega við fulltrúa borg- arinnar um þær kröfur sem ekki eru beint kjaralegs eðlis, en auðvitað er samhengi á milli þeirra og hvort og þá hversu mikið um semst hvað launahækkunina varðar. Eitt- hvað mun hafa þokast áleiðis í viðræðunum síðdegis en almennt var ekki talið að endar næðust saman í gærkveldi. Ef af uppsögnum fóstra verður, flæða rúm- lega fjögur þúsund börn yfir vinnumarkað- inn. Þegar Helgarpósturinn leitaði upplýs- inga hjá nokkrum stærstu fyrirtækjum Reykjavíkur, kom í ljós að ekkert þeirra hafði gert neinar ráðstafanir þar að lútandi. For- svarsmenn fyrirtækjanna virtust líta svo á, að börn væru einkamál foreldranna, nú sem endranær. Einstæðir foreldrar eru ekki vinsælir starfskraftar. Þeir þurfa að fara heim á sama tíma á hverjum degi til að sækja barnið sitt. Þeir taka einnig fleiri veikindadaga þar sem börn veikjast frekar en fólk á besta starfs- aldri. Þrátt fyrir hlutfallslega fjölgun einstæðra foreldra og nauðsyn heimilanna á tveimur fyrirvinnum, hafa fyrirtæki ekki talið börn starfsmanna sinna á sinni ábyrgð. Það er því kannski ekki furða, að þau grípi ekki til sér- stakra ráðstafana nú. Foreldrar verða því sjálfir að finna ráð til að uppsagnir fóstra bitni ekki á starfinu. Afstaða fyrirtækjanna ætti í raun ekki að koma neinum á óvart. Hún er samstíga af- stöðu opinberra aðila til dagvistarmála. Hingað til hefur stefnan verið sú að skammta dagvistarrými, eins og reyndar alla félags- lega þjónustu. Reynt hefur verið að halda kostnaðinum í lágmarki, þar sem ekki hefur veirð litið á dagvist sem arðbæran atvinnu- rekstur. Ef til vill verða uppsagnir og kjarabarátta fóstra til að breyta þessum viðhorfum eitt- hvað. Að minnsta kosti er árangur af baráttu þeirra undir því kominn að það takist. Þegar kjarabarátta fóstra er skoðuð má heldur ekki gleyma því, að barátta þeirra er kvennabarátta, á sama hátt og kjarabarátta annarra kvennastétta. Ef menn vilja teygja sig langt, er hægt að túlka úrslit alþingis- kosninganna sem innlegg í þá baráttu. Refjar í Washington og óhreinskilni forseta þeirra bitna á Austur- ríkismönnum Seint að sakfella Waldheim eftir ítrekaðar sýknanir ERLEND YFIRSYN Viðleitni Bandaríkjastjórnar, eftir dúk og disk, að lýsa Kurt Waldheim Austurríkisfor- seta óalandi og óferjandi fyrir stríðsglæpi, er fáheyrt ódrengskaparbragð stjórnar stór- veldis til að niðurlægja af annarlegum hvöt- um hlutlaust smáríki. Ferill Waldheims, ekki síst í herþjónustu fyrir Stór-Þýskaland, er þaulrannsakaður. Að helstu könnunum stóðu bandarísk stjórnvöld. Hvorki á fyrstu árum eftir stríð né í upphafi áttunda tugar aldarinnar þótti þeim nokkru sinni ástæða til athugasemda, hvað þá aðgerða, gagnvart manninum sem í hlut á. Það er ekki fyrr en Austurríkismenn hafa kjörið Waldheim forseta, meðal annars vegna samúðar sem síðbúnar, utanaðkom- andi árásir öfluðu honum, sem bandaríska dómsmálaráðuneytið hefst handa og kemst að þeirri niðurstöðu, að honum sé óheimil landvist í Bandaríkjunum. Þá eru liðin sautján ár frá því Bandaríkjastjórn tók þátt í að skipa sama mann aðalritara Sameinuðu þjóðanna í áratug með aðsetri í New York. Slík framkoma gagnvart réttkjörnum þjóð- höfðingja lýðræðisríkis, sem Bandaríkja- stjórn þykist vilja eiga vinsamleg samskipti við, er í senn siðleysi gagnvart þjóðinni sem fyrir verður og yfirdrepsskapur gagnvart eig- in fortíð í sama máli. Úr því sem komið er, skiptir ekki megin- máli að Kurt Waldheim hefur stórlega spillt fyrir sjálfum sér með því að reyna í endur- minningabók, og síðar yfirlýsingum í barátt- unni fyrir síðustu forsetakosningar, að draga fjöður yfir herþjónustu sína á Balkanskaga á síðari árum heimsstyrjaldarinnar síðari. Um- gengni hans við sannleikann er mál Austur- ríkismanna og forsetans sem þeir völdu sér. En það varðar siðgæði og sómatilfinningu í alþjóðlegum umgengnisháttum að slá því fram, löngu eftir að maðurinn náði athuga- semdalaust hátindi alþjóðlegs embættis- frama, að hann sé orðinn á forsetastóli lands síns brennimerktur stríðsglæpamaður. ísraelsstjórn, sem væntanlega hefur látið kanna sömu gögn og dómsmálaráðuneyti Bandarikjanna, kveðst ekki sjá tilefni til málatilbúnaðar á hendur Waldheim. Rann- sókn á stríðsferli hans hófst 1947, þegar Stríðsglæpanefnd Júgóslavíu færði nafn hans á lista grunaðra. Stríðsglæpanefnd SÞ lét það standa á listanum, sem hún útbjó næsta ár, og enn var maðurinn færður á lista grunaðra, sem gerður var á vegum Banda- ríkjahers ári síðar. Út úr öllum þessum at- hugunum komu engar sakargiftir. Waldheim gekk í utanríkisþjónustu endurreists Austur- ríkis og varð utanríkisráðherra þess. Þá tók við kjör hans til aðalritarastarfs hjá SÞ. Val á mönnum í þá stöðu veltur á stuðn- ingi allra rikjanna fimm, sem fara með neit- unarvald í Oryggisráðinu. í þeim hópi eru Bandaríkin, og óhugsandi er að stórveldin láti hjá Iíða að kanna vandlega fortíð og feril hvers þess, sem valist getur til slíkrar ábyrgð- ar. Stuðningur Bandaríkjamanna við Wald- heim í aðalritarastarfið sviptir því sam- kvæmt allri sanngirni Bandaríkjastjórn sið- ferðilegum rétti til að setja manninn á svart- an lista seint og um síðir, vegna gagna sem henni bar að kynna sér og taka afstöðu til fyrir aðalritarakjörið 1971. Rudolf Kirchschláger, fyrirrennari Wald- heims á forsetastóli í Vín, féllst á að fara yfir gögnin sem World Jewish Congress í New York safnaði og bandaríska dómsmálaráðu- neytið byggir úrskurð sinn á. Þau varða her- þjónustu í Júgóslavíu og á Grikklandi. Þar fann Kirchschláger engin sakarefni, en snupraði jafnframt forsetaframbjóðandann fyrir að láta sem hann hefði ekki einu sinni vitað af grimmdarverkum nasista í þessum löndum. Annar Austurríkismaður, og sá maður nú- lifandi sem marktækastan má telja um stríðs- glæpi nasista, Simon Wiesenthal, hefur einn- ig tjáð sig um mál Waldheims. Hann hefur frá stríðslokum helgað því krafta sína að koma lögum yfir stríðsglæpamenn. Plöggin frá World Jewish Congress sanna að hans dómi enga sekt á Waldheim. „Mitt starf hefur ver- ið að leita uppi glæpamenn, ekki lygara," sagði Wiesenthal nýlega í viðtali sem Egill Helgason átti við hann fyrir Helgarpóstinn. Úr því Austurríkismenn kjöru Waldheim forseta sinn, bitnar sakfelling hans án dóms og laga af hálfu Bandaríkjastjórnar á austur- rísku þjóðinni allri, rýrir álit hennar að minnsta kosti í Bandaríkjunum, þar sem menn upp til hópa trúa umsvifalaust öllu misjöfnu sem stjórn þeirra dettur í hug að segja um útlendinga, og torveldar stjórn Austurríkis að koma fram á alþjóðavettvangi af fullri reisn. Ástæðuna til svo dæmalausrar framkomu stórveldis við hlutlaust en vin- samlegt smáríki er trúlega einkum að leita í bandarísku stjórnmálaástandi um þessar mundir, eins og síðar verður að vikið. Utan- ríkispólitísk ástæða getur helst verið illur bif- ur núverandi valdhafa í Washington á hlut- leysisstefnu í hverri mynd sem er, og síðustu áratugi hafa austurrískar ríkisstjórnir leitast við að reka virka hlutleysisstefnu eins og Sví- þjóð, nota stöðu sína og legu til að auka skiln- ing og greiða fyrir samskiptum milli and- stæðra hluta klofinnar Evrópu. Einkum létu stjórnir, sem sósíaldemókrat- inn Bruno Kreisky veitti forustu á síðasta ára- tug, að sér kveða í þessu ef ni. Lögð voru drög að miðstöð í Vín fyrir ýmsar stofnanir SÞ. Austurríki gerðist dvalarstaður flóttafólks frá löndum Austur-Evrópu um lengri tíma eða skemmri. Austurríkismenn tóku á móti og hlynntu fyrst í stað að flestum þeim gyðing- um, sem heimilað var að flytjast búferlum frá Sovétríkjunum. eftir Magnús Torfa Ólafsson Kreisky er af gyðingaættum sjálfur, en andsíonisti. Gerði hann sér títt um málstað Palestínumanna og beitti sér fyrir viðleitni af hálfu Austurríkisstjórnar til að stuðla að frið- argerð milli ísraels og arabaríkja, sem hefði í för með sér að landsréttindi Palestínu- manna yrðu viðurkennd. Veitti stjórn hans PLO takmarkaða viðurkenningu og heimil- aði samtökunum að koma sér fyrir í Vínar- borg með diplómatískum réttindum. Fyrir þetta varð Kreisky iila þokkaður af útþenslusinnuðum síonistum, og var ýmissa ráða leitað af þeirra hálfu, til að láta Austur- ríki gjalda stefnu kanslarans. En ekki var svo auðvelt að koma höggi úr þessari átt á stjórn- málamann af gyðingaættum, sem hafist hafði til æðstu valda í föðurlandi Hitlers. Því var færið gripið og reitt hátt til höggs, þegar á sjónarsviðið kom maður með fortíð Wald- heims. Var honum meðal annars borið á brýn, að hafa í starfi aðalritara SÞ dregið taum PLO í hvívetna, sér í lagi þegar Jasser Arafat var boðið að ávarpa Allsherjarþingið. En til að koma ár sinni fyrir borð, varð World Jewish Congress, sem þrátt fyrir víð- feðmt nafn er einvörðungu einn gyðingafé- lagsskapur af mörgum í Bandaríkjunum, að fá bandarísk stjórnvöld til að gera málið að sínu. Sú viðleitni hefur nú staðið á annað misseri, og borið árangur einmitt þegar stjórn Reagans forseta telur mikið við liggja að efla fylgi við málstað sinn meðal banda- rískra gyðinga. Makkið við íran hefur ekki síður farið fyrir brjóstið á gyðingum en öðrum Bandaríkja- mönnum. Kominn er upp krytur milli stjórna Bandaríkjanna og ísraels út af máli banda- ríska leyniþjónustumannsins Pollards, sem gekk á mála hjá ísraelskum njósnurum og hefur nýlega hlotið lífstíðar fangelsisdóm. Stuðningur Bandaríkjastjórnar við hugmynd um alþjóðaráðstefnu til að undirbúa frekari friðargerð milli ísraels og arabaríkja er síður en svo skörulegur, en þó eitur í beinum út- þenslusinna meðal síonista. Mætti þannig lengi telja. Af öllu athæfinu leggur þó einkum og sér í lagi stækan eim kúrekamennskunnar í milliríkjasamskiptum, sem viðgengist hefur í Washington undir núverandi stjórn. 30 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.