Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 30.04.1987, Qupperneq 28

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Qupperneq 28
eftir Gunnar Smára Egilsson myndir Jim Smart I KOSNINGUNUM Einhverra hluta vegna hefur stjórnmálamönnum og fréttamönn- um reynst erfitt ad vidurkenna kosn- ingasigur Borgaraflokksins. Við út- hlutun á sigurvegurum kosning- anna hafa þessir aðilar tilnefnt Kvennalistann, Alþýðuflokkinn og jafnvel Framsóknarflokkinn áður en Borgaraflokkurinn hefur komið til tals. Sigur Borgaraflokksins er hins vegar einstakur í sögunni. Aldrei áður hefur nýr flokkur fengið jafn mikið fylgi í fyrstu kosrýngum sín- um. Borgaraflokkurinn fékk 10,9% fylgi á landsvísu. Það framboð sem hefur komist næst árangri Borgara- flokksins er Samtök frjálslyndra og vinstri manna er hlaut 8,9% at- kvæðaíkosningunum 1971.Aðbaki því framboði stóðu þá tveir sitjandi þingmenn, þeir Hannibal Valdi- marsson og Björn Jónsson, for- seti og varaforseti ASÍ. Þriðja besta árangri nýrra framboða náði Bandalag jafnaðarmanna, með Vilmund Gylfason í fararbroddi, með 7,3% árið 1983. Þar á eftir koma Bændaflokkurinn með 6,4% árið 1934, Þjóðvarnarflokk- urinn með 6,0% árið 1953 og Kvennalistinn með 5,5% árið 1983. Ekkert þessara framboða komast með tærnar þar sem Borgaraflokk- urinn og Albert Guðmundsson hafa hælana. Auk þess að ryðjast inn á þing við sjöunda mann, er það Albert Guð- mundsson sem felldi stjórnina, kom í veg fyrir að hægt yrði að mynda viðreisnarstjórn og riðlaði gamla flokkakerfinu svo að enginn spáir því endurkomu. En sigur Kvennalistans var engu að síður stór. Hann jók fylgi sitt um 83,6% frá síðustu kosningum. Á þessari öld hefur einungis Alþýðu- flokkurinn aukið fylgi sitt meir í kosningum, en það var 1978 þegar flokkurinn jók fylgi sitt um 119%. En sigur Kvennalistans verður ekki eins stór, ef tekið er tillit til þess að nú bauð hann fram í öllum kjör- dæmum, en 1983 einungis í þremur. Ef fylgisaukning hans í þessum þremur kjördæmu m er borin saman við aukið fylgi Alþýðuflokksins í sömu kjördæmum, kemur í Ijós að Kvennalistinn jók fylgið um 36,7%, en Alþýðuflokkurinn um 32%. Það er því ekki alveg úr lausu lofti gripið hjá Jóni Baldvin Hannibalssyni að telja árangur Alþýðuflokksins í þessum kosningum líkan árangri Kvennalistans. Þegar fylgisaukning flokkanna frá síðustu kosningum er skoðuð í ein- stökum kjördæmum, kemur ýmis- legt einkennilegt í ljós. Tvímælalaus sigurvegari kosninganna er Guð- mundur Einarsson, sem jók fylgi Alþýðuflokksins um 72,5% í Austur- landskjördæmi miðað við hlutfall flokksins í síðustu kosningum. Það dugði hins vegar ekki til að hann ynni Alþýðuflokknum sæti í kjör- dæminu. Ekki er víst að Guðmundur héldi sæti sínu sem sá er náði mestum ár- angri í einu kjördæmi, ef til væri að- ferð til að bera saman fylgi þeirra sem bjóða fram í fyrsta sinn og fylgisaukningu þeirra er reyna enn á ný. En ef þeir sem buðu fram síðast eru bornir saman, og hinum sleppt, þá heldur Guðmundur titlinum. Fast á hæla Guðmundar fylgja kvennalistakonur í Reykjavík, með Guðrúnu Agnarsdóttur í broddi fylkingar. Fylgisaukning þeirra nam 66,7%. Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra er næstur með 66,4% aukningu frá síðustu kosningum. Aðrir juku fylgi flokka sinna minna. Jón Baldvin Hannibalsson jók fylgi Alþýðuflokksins í Reykjavík um 48,1%, Jón Sæmundur Sigur- jónsson jók fylgi sama flokks^ um 41,7% á Norðurlandi vestra og Árni Gunnarsson fylgir á eftir flokks- bræðrum sínum með 30% aukningu á fylgi. Það er ekki fyrr en eftir þessa runu af alþýðuflokksmönnum að kvennalistakonur koma aftur til sögunnar. í Reykjanesi tókst Krist- ínu Halldórsdóttur að auka fylgið um 26,6%. Þá koma Kjartan Jó- hannsson og Karl Steinar Guðnason, sem í sama kjördæmi bættu 22,3% við fylgi Alþýðuflokks- ins. í níunda sæti á þessum sigurlista eru Páll Pétursson og Stefán Guð- mundsson á lista Framsóknar á Norðurlandi vestra. Þeir bættu 22,2% við fylgi flokksins í því kjör- dæmi. Ingólfur Guðnason, spari- sjóðsstjóri, bauð hins vegar fram BB-lista fyrir síðustu kosningar og ef tekið er tillit til fylgis hans þá snýst sigurinn í 13% tap. Tíundu á sigur- listanum eru þeir Karvel Pálma- son og Sighvatur Björgvinsson með 13,7% fylgisaukningu. Flokks- bróðir þeirra, Eiður Guðnason, fylgir fast á hæla þeirra á Vestur- landi með 12,6% aukningu. Kvennalistakonur koma aftur til sögunnar í tólfta sæti yfir kjör- dæmasigurvegarana. Framboði þeirra á Norðurlandi eystra, með Málmfríði Sigurðardóttur í farar- broddi, tókst ekki að auka fylgi list- ans nema um 8,6% frá síðustu kosn- ingum. Þar sem mjög hefur verið talað um varnarsigra eftir kosning- arnar, má sjálfsagt kalla frammi- stöðu Kvennalistans á Norðurlandi eystra „sóknartap”. Önnur framboð sem juku við fylgi flokka sinna voru þeir Guðmundur G. Þórarinsson og Finnur Ing- ólfsson sem bættu stöðu Fram- sóknarflokksins um 2,2% í Reykja- vík og flokksbróðir þeirra Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra, sem kom út með 1,6% fylgis- aukningu á Austurlandi. Til þess að fá önnur framboð upp fyrir núll-punktinn þarf að beita brögðum. Ef menn gleyma fram- boði Sigurlaugar Bjarnadóttur á Vestfjörðum '83 bæta sjálfstæðis- menn 5,8% við sig frá því þá. Síðan er hægt að setja Stefán Valgeirs- son strax í þingflokk framsóknar- manna og þá hafa þeir í sameiningu bætt við sig 6,6% í Norðurlandi eystra. Önnur framboð er ekki hægt að hífa upp úr tapinu. Þau töpuðu öll, en mismiklu. Menn hafa notað ýmsar aðferðir til að meta fylgistap Sjálfstæðis- flokksins í einstökum kjördæmum í því augnamiði að f inna þá frambjóð- endur sem best stóðu sig í kosninga- slagnum — eða verst. Sverrir Her- mannsson, menntamálaráðherra, komst til dæmis að því að framboð flokksins á Austurlandi hefði staðið sig einna best, þar sem tap flokksins í kjördæminu hefði ekki numið meira en 8,1%. Kosningarnar væru því nokkur sigur fyrir sig og Egil Jónsson í öllu tapi Sjálfstæðis- flokksins. Skýringin á þessu lága prósentuhlutfalli er hins vegar sú að Sjálfstæðisflokkurinn naut minna fylgis í Austurlandskjördæmi fyrir kosningarnar en í öðrum kjördæm- um. í raun tapaði flokkurinn hvergi meira en einmitt á Austfjörðum. Sverrir og Egill töpuðu 34,3% af því fylgi er flokkurinn hefði fengið ef þeim hefði tekist að halda í horfinu. Sjálfstæðismenn á Reykjanesi, þau Matthías Á. Mathiesen, utan- ríkisráðherra, Ólafur G. Einars- son, þingflokksformaður, Salóme Þorkelsdóttir, Ellert Eiríksson og Gunnar G. Schram, komu næst með 33,6% tap. Þar næst komu Reykvíkingarnir með 32,7% tap, svo Friðjón Þórðarson og Vald- imar Indriðason á Vesturlandi með 30,2% tap og Pálmi Jónsson og Vilhjálmur Egilsson á Norður- landi vestra með 30% tap. Matthías Bjarnason, samgöngu- ráðherra og Þorvaldur Garðar Kristjánsson, þingforseti, voru einu sjálfstæðismennirnir sem bættu við fylgi lista flokksins í sínu kjördæmi. Það var þó ekki stórt, eða 5,82%. En á það ber að líta að Sigur- laug Bjarnadóttir bauð fram sérlista fyrir kosningarnar 1983 og fékk töluvert fylgi, þó ekki næði það til þess að koma henni inn á þing. Ef þetta fylgi er tekið með í dæmið koma þeir Matthías og Þorvaldur Garðar út með 26,2% tap. Það er aðeins meira tap en flokk- urinn mátti þola í Norðurlandskjör- dæmi eystra, þar sem Halldór Blöndal og Björn Dagbjartsson misstu 23,2% af fylgi Sjálfstæðis- flokksins til annarra framboða. Minnst tapaði flokkurinn í kjör- dæmi Þorsteins Pálssonar, Eggerts Haukdal og Árna Johnsen, eða 18,5%. Það er at- hyglisvert, þar sem Borgaraflokkur- inn naut þar meira fylgis en í nokkru öðru landsbyggðarkjör- dæmi og jafn mikils fylgis og í Reykjanesi. Menn hafa velt þessari þversögn fyrir sér og komist einna helst að þeirri niðurstöðu að sigur- vegari sjálfstæðismanna í kosning- unum sé enginn annar en Árni Johnsen. Hann barðist hetjulegri baráttu í Vestmannaeyjum og kom því inn hjá fólki að hinn Vestmann- eyingurinn í franíboði, Magnús H. Magnússon, væri öruggur inn á þing. Því væri atkvæðum Vest- mannaeyinga best varið með því að kjósa D-listann. Niðurstaðan varð sú að Suðurland var eina kjördæmið þar sem Alþýðuflokkurinn tapaði fylgi og hvorki Magnús né Árni komust á þing. Það eru sérstaklega ömurleg örlög fyrir Árna, sjálfan sigurvegara sjálfstæðismanna. Þegar óumflýjanleg uppstokkun stendur fyrir dyrum í Alþýðubanda- laginu er mönnum á þeim bæ sjálf- sagt einnig hollt að velta því fyrir sér hver tapaði í raun mestu og hver minnstu í kosningunum. Sá sem ber ábyrgðina á að hafa tapað hlutfalls- lega mestu af fylgi sínu er Skúli Alexandersson á Vesturlandi. Á það ber reyndar að líta að á Vestur- landi stóðu Kvennalistinn og Borg- araflokkurinn samanlagt best í öll- um kjördæmum, að Reykjavík einni slepptri. Skúla er því kannski vor- kunn. Á hæla Skúla koma Svavar, Guð- rún og Ásmundur í Reykjavík sení töpuðu 27,4% af því fylgi sem Al- þýðubandalagið hefði átt að fá, éf tekist hefði að halda í horfinu. Næst koma Hjörleifur Guttormsson og Unnur Sólrún Bragadóttir, sem töpuðu 22,8% af fylgi flokksins, Steingrímur Sigfússon, sem glopraði niður 22% af fylginu á Norðurlandi eystra, Margrét Sæ- unn Frímannsdóttir, sem tapaði 20,7% af fylgi Garðars Sigurðs- sonar á Suðurlandi, Olafur Ragnar Grímsson og Geir Gunn- arsson, sem töpuðu 19,8% af fylg- inu á Reykjanesi og Kristinn H. Gunnarsson sem tapaði 13,7% af því fylgi sem Kjartan Ólafsson hafði verið að byggja upp á undan- förnum árum. Sá sem stóð sig best af alþýðubandalagsmönnum var Ragnar Arnalds, sem missti ekki „nema" 12,7% af fylgi sínu frá síð- ustu kosningum. Sá sem slær öðrum framsóknar- mönnum við í að eyða sigri Stein- gríms Hermannssonar, er fyrrum meðframbjóðandi hans á Vestfjörð- um, Ólafur Þ. Þórðarson. Hann tapaði 24,8% af fylgi Steingríms til annarra flokka. Reyndar töpuðu Guðmundur Bjarnason og Val- gerður Sverrisdóttir meiru, eða 28,2%, en þau áttu við ramman reip að draga, sem var Stefán Valgeirs- son. Alexander Stefánsson, félags- málaráðherra, ber ábyrgð á að hafa tapað 15% af fylgi Framsóknar á Vesturlandi, ásamt Davíð Aðal- steinssyni. Þá töpuðu þeir Páll Pét- ursson, þingflokksformaður og Stef- án Guðmundsson 13% af fylgi B- og BB listans á Norðurlandi vestra frá 1983. Jón Helgason, dómsmála- ráðherra og Guðni Ágústsson á Suðurlandi bera síðan ábyrgð á minnsta tapi kosninganna, eða 6%. Ofan á allt annað sem gerir þessar kosningar sögulegar bætist árangur núverandi forsvarsmanna Banda- lags jafnaðarmanna. Aldrei áður hefur nokkur flokkur tapað jafn stórt. Bandalagið tapaði 97% af fylgi sínu í Reykjavík og 97,5% á Reykjanesi. Það er sjálfsagt óhætt að fara með þann árangur út fyrir landsteinana til að finna samjöfnuð. ÚTTEKTÁ FYLGISAUKNINGU OG-TAPI FLOKKANNA. HVERJIR UNNU STÆRSTU SIGRANA FYRIR SÍNA FLOKKA OG HVERJIR TÖPUÐU MEST? lii 1 b i§ Veitingahús í hjarta Hafnarfjardar BORÐAPANTANIR í SÍMA 651130 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.