Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 34

Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 34
Bölv og ragn (5) Nú verð ég víst að standa við loforð mitt í síðasta þætti að tína til einhver þeirra nafna á djöflinum, sem mér vannst ekki rúm til að ræða þá. Orðið grefiller ekki óalgengt blótsyrði. Ég hefi meira að segja séð það á sjónvarpsskján- um. Þetta orð er kunnugt í íslenzku frá því um 1650 úr orðabók Guðmundar Andrés- sonar, sem raunar var ekki gefin út fyrr en rúmum þrjátíu árum síðar (Lexicon islarid-' icum ... scriptum a Gudmundo Andreœ... Havniæ 1683). 1 bókinni er orðið þýtt ridicule dœmon, sem líklega á að merkja „spottsamur andi". Orðið kemur einnig fyrir í tveimur orðabókum frá 18. öld. í orðabók Jóns frá Grunnavík er orðið þýtt malus genius („illur andi“) og sagt komið úr þýzku greuel (a germ greuel). Framan greinda vitn- eskju hefi ég fengið úr Orðabók Háskólans. En bæta má við öðru átjándu aldar dæmi úr orðabók Björns í Sauðlauksdal. Þar er orðið grefill sem sagt er merkja monstrum, abominamentum, þ.e. „óvættur, andstyggi- legur hlutur" (BH 1,303). Vel má vera sam- band milli þess, að þeir Jón Grunnvíkingur og Björn í Sauðlauksdal rekja uppruna orðs- ins á sama veg. Ég hygg, að þeir hafi rétt fyrir sér, að orðið sé þýzkt tökuorð, sbr. miðhá- þýzku griuwel, nútímaþýzku Greuel, en lík- lega liggur miðlágþýzk mynd orðsins til grundvallar. Af sömu rót er íslenzka orðið grýla. Orðið grefill er notað í upphrópunar- setningum, t.d. hver grefillinn, einnig sem atviksorð, t.d. grefill ertinn. Og eignarfallið grefils er notað sem lýsingarorð, t.d. grefils óþokkinn. Annað einkennilegt blótsyrði er þremill. Eldri mynd þess virðist vera tremill. Sú orð- mynd kemur fyrir í kvæði eftir Eggert Olafs- son (d. 1768): tremilinn allan eta þeir (Kvœdi Eggerts Olafssonar, Ijóspr. frá 1974, bls. 147). Orðabók Háskólans hefir annað dæmi um þessa orðmynd frá sömu öld úr orðabók Grunnavíkur Jóns. Þar segir, að tremill sé al- þýðlegt mál, en vægt um illan anda eða óvætti (vocula plebeia sed modesta pro genius malus vel dæmon). Um orðmyndina þremill hefir orðabókin hins vegar ekki dæmi fyrr en frá Jónasi Hallgrímssyni. Trem- ill virðist vera myndað af tramr, trami „illur andi, óvættur", sem fyrir kemur í fornmáli og minnzt var á í þætti mínum í HP 5. marz 1987. Gera verður ráð fyrir, að tremill hafi breytzt í þremill. Athuga ber, að hljóðin t og þ eru skyld. Þau eru bæði tannhljóð. Munur- inn er aðallega sá, að þ er önghljóð, en t er lokhljóð. Það er engin tilviljun, að hið forna þ hefir í Norðurlandamálum breytzt í t (sbr. t.d. ísl. þak, dönsku tag). Víxl þessara hljóða í íslenzku eru sjaldgæf. Þó má minna á, að þ hefir breytzt í t í fuglsheitinu teista, sem í fornmáli var þeisti. Eg þekki ekki orðmynd- ina tremill úr nútímamáli, en þremill er al- gengt. Þremill er notað í upphrópunarsetn- ingum, t.d. hver þremillinn, einnig í spurnar- setningum, t.d. hvern þremilinn viltu vera að eiga við þetta. Þá er eignarfall orðsins, þ.e. þremils, notað sem lýsingarorð, t.d. þremils hnýsni. Élzta dæmi Orðabókar Háskólans um orðið rœgikarl er úr Vídalínspostillu (11,203). Það er, eins og tekið var fram í síðasta þætti mínum í HP, tökuþýðing úr grísku diabolos, sem í rauninni merkir „rógberi". Sýnilegt er, að á 18. öld er orðið borið fram með dl, því að Björn í Sauðlauksdal skrifar rœgikall og segir, að í alþýðumáli sé sagt rœ-kall, en með því að skrifa svo hlýtur hann að eiga við, að borið sé fram rœkadl. í nútímamáli kemur einnig fyrir myndin rœkarli, fram borin rœkadli eða rœkali. Sagt er í upphrópunar- setningum hver rœkadlinn eða hver rœkal- inn. Þá er eignarfallið af rœkarl, fram borið rækals, notað sem lýsingarorð, t.d. rœkals strákurinn, einnig með greini rœkalans kerl- ingin. Vera má, að sumir beri þessar eignar- fallsmyndir fram með dl. Þá er myndin rækarli, fram borin rœkali, notuð sem at- viksorð, t.d. rœkali duglegur. Þetta minnir á djöfulli, af djöfull. Einkennilegt er orðið ólukki. Orðið lukka er gamalt tökuorð (líklega frá 14. öld) úr mið- lágþýzku (gejlucke, en ólukki er íslenzk ný- myndun. Þetta blótsyrði er mér ekki tamt, en það virðist hafa verið algengt fyrr á öld- inni. Það kemur fyrir í upphrópunarsetning- um, t.d. mikill ólukki, hver ólukkinn, einnig í annars konar setningum, t.d. þau gátu ekki dottið, hver ólukkinn sem á gekk (úr Morg- unbl. 1921, bls. 258), enn fremur sem atviks- orð, t.d. hvaða ólukki er þeim ógreitt um svar (úr Lögréttu 1915, bls. 18). Þá er eignarfallið ólukkans notað sem lýsingarorð, t.d. ólukk- ans lœti eru þetta. Gamalt nafn á Óðni er Herjann. Eignarfall- ið af því er notað sem blótsyrði í samsettum orðum, t.d. herjanslœti. Sum nöfn á djöflinum eru ekki notuð sem blótsyrði. Svo er því t.d. háttað um orðið kölski, einnig mun fátítt, að Satan sé í ís- lenzku notað sem blótsyrði. Þetta er síðasti þáttur minn um bölv og ragn. Ég biðst afsökunar á, hve margt hefir vantað í þá. Ég hefi t.d. lítið rætt um sam- runaorð eða blendinga eins og ansvíti (úr andskoti og helvíti) og déskotans (úr djefill og andskoti). Þá hefði ég getað tekið fleiri lið- felld orðasambönd eins og farðu kollóttur, grákollóttur, bölvaður, grábölvaður, grá- skjóttur o.s.frv. Einnig hefði mátt hafa sér- stakan þátt um styrkleikamun blótsyrða. Þá gleymdi ég hinu skemmtilega blótsyrði farðu í hurðarlaust hólakot. Ég bið lesendur að athuga, að verkefnið bölv og ragn er svo víðtækt, að rannsókn á því er efni í heila doktorsritgerð, ef efnið er brotið til mergjar bæði frá málfræðilegu og menningarsögulegu sjónarmiði. Þetta skemmtilega verkefni bíður einhvers efni- legs orðfræðings framtíðarinnar. HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA UM HELGINA? HREFNA BJÖRNSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI HJÁ PRENTLIST SF. Á laugardaginn verð ég að vinna eins og við gerum á hverjum laugardegi. Við erum um þessar mundir að filmuvinna fyrir nýja auglýsingastofu, auglýsingastof- una Næst. Á laugardagskvöldið reikna ég með að vera heima og horfa á sjónvarpið. Cosby er eftir- lœtisþátturinn minn og ég reyni að missa aldrei af honum. Á sunnu- daginn fer ég á skíði í Bláfjöllum svo fremi sem gott skíðafœri er, enda nýti ég alla frídaga til skíða- iðkunar þegar veður leyfir. 34 HELGARPÓSTURINN STJÖRNUSPÁ HELGINA 1.-3. MAÍ Hættu við hugsanleg ferðalög á föstudag og haltu þig fjarri bílum, ef kostur er. Það getur líka reynst hættu- legt að skipta skyndilega um skoðun eða átt. Ef þú verður fyrir töfum, er ekki um ann að að gera en taka því. Á sunnudag geturðu lent upp á kant við einhvern í fjöl- skyldunni vegna mála heima fyrir, loforð gætu veriö svikin og það skortir eitthvað á að samvinna við þína nánustu sé eins og best verður á kosið. unmnmBsmmmmm Þú verður að viðhafa aðhald í fjármálum á næstunni. Láttu það ekki á þig fá, þó svo fólk telji ráðagerðir þínar ópraktískar. Ef þú kemur auga á ný tækifæri og mögu- leikavið hverja breytingu, og hættir að hafa áhyggjur af vandamálum síðustu mánaða, líður ekki á löngu þar til þú sérð heiminn frá nýju sjónarhorni. TVIBURARNIR (22/5-21/6] Þér kann að hafa brugðið verulega við fréttir, sem þú fékkst nýlega. Kannski er tími til kominn að þú horfist í augu við erfiðleikana, segir meiningu þína hreint út og komir fólki í skilning um það hve viljasterkur þú getur verið. í einkalífi þínu virðist allt yfirfullt af hinum ýmsu hindrunum, hjartasárum og vandræðum almennt. Eftir nokkrar vikur muntu hins vegar sjá hve heppinn þú ert í raun og veru. l.ci.Mll.'l.'itnr.^ng—■ Föstudagurinn verður svolítið erfiður fyrir þig og þú verður að leggja mikið á þig til þess að komast klakk- laust í gegnum hann. Gömul vandamál geta líka skotið upp kollinum. Á laugardag máttu síðan til að grípa ekki til neinna blekkinga í einkalífinu. Hjónabandssælan blómstrar þegar líður á helgina, en það sama er ekki að segja um rómantíkina hjá þeim, sem ekki eru í föstum samböndum. Þar gengur þetta brösótt. Þú mátt eiga von á tilfinningalegri togstreitu á næst- unni og þá þarftu að gera upp hug þinn varðandi það hver á tryggð þína. Ættingjar og samstarfsmenn eru í einhverri varnarstöðu og það er óráðlegt að hundsa óskir þeirra; jafnvel þó svo þú þurfir að breyta áætlun- um þinum. Þú hlýtur núna að sjá að ákveðinn aðili hefur skipt um skoðun og ganga verður frá málunum, þó svo það þýði að vissu tímabili í lífi þínu sé þar með lokið. Þótt þú vildir hafa betri tryggingu áður en þú söðlar algjörlega um í ákveðnu máli, gefst ekki kostur á því. Þú verður að kasta þér til sunds. Þú færð núna óvenjulegt eða óvænt tækifæri til þess að láta tilfinningar þínar í Ijóseða binda endi á afskaplega erfitt tlmabil. Þú verður undir miklu álagi um helgina. Komdu fólki í skilning um að þú lætur ekki snuða þig. Það borgar sig ekki að standa í neinum ferðalögum á föstudag og daginn þann gætu ættingjar og þeirra vandamál valdið þér erfiðleikum. Á laugardag langar þig að öllum líkindum til að gera eitthvað annað en fjöl- skyldan hefur áhuga á og þetta getur valdið sárindum. Vertu vel á verði, svo þú látir ekki gabbast. Á sunnudag er það síðan eyðsla maka sem er I brennidepli. SPORÐDREKINN (23/ 1Q--22/11 Frestaðu mikilvægum fjármálum, sem áttu að af- greiðast á föstudag, því þær aðgerðir munu ekki borga sig. Fólk hefur auðveldlega áhrif á þig á laugardag svo þú fáir traust á persónu eða hlut, sem ekki er þess virði. Á sunnudag ættirðu að taka þér eitthvað fyrir hendur með maka þínum, þó svo þú hafir ætlað að gera annað. Það er of mikið um að vera hjá þér og þreyta gæti því sest að. BOGMAÐURINN (23/11—21 /12 Eitthvað, sem nákominn aðili segir við þig, virðist mjög óréttlátt. Láttu það ekki á þig fá. Þetta er úrslita- tími varðandi framadrauma þína og þú ættir að setja markið enn hærra en áður. Ákveðið samband gæti ver- ið að líða undir lok eða þú hefur einfaldlega þörf fyrir að byrja á einhverju upp á nýtt. Kannski eru aðrir jafn- áfjáðir í að gleyma fortíðinni og þú! STEINGEITIN (22/12-21/1 Þú ert í einhverju ójafnvægi á föstudag og lætur' minnstu smáatriði koma þér (uppnám. Gættu þess að þreytast ekki á of mikilli vinnu og láttu leyndar áhyggjur ekki magnast innra með þér. Ef þú hefur hugann of mik- ið við fortíðina, getur þú ekki einbeitt þér. Sunnudagur- inn er heppilegur til allrar listrænnar tjáningar og ímyndunaraflið verður upp á sitt besta. Láttu ekki aðra um að vera milliliði, heldur talaðu beint við þá sem þú þarft að hafa samband við. VATNSBERINN (22/1-19/2 Þó svo fólk virðist hrokafullt og ósveigjanlegt, skaltu halda ró þinni enn um sinn. Það koma ekki öll kurl til grafar fyrr en eftir miðjan mánuðinn. Áherslan er á tilfinningamálin þessa dagana, en vertu ekki of kröfuharður. Á sunnudag er þér vissara að láta ekki reiðikast eyðileggja samband, sem langan tlma hefur tekið að byggja upp - hvað svo sem þér finnst fólk óréttlátt. FISKARNIR (20/2-20/3! Þér finnst ástvinir ekki sýna nægan áhuga á því sem þú ert að fást við eða leggja á ráðin um. En eyðilegðu nú ekki fyrir þér með neinni vitleysu. Það er örugglega hægt að draga fólk út úr skel sinni, en það hefst ekki með ofstopa. Reyndu að muna hvernig þér líður sjálfum, þegar þú vilt helst fá að vera í ró og næði. Gættu að þvf hvað þú segir og gerir, því ekki er allt sem sýnist.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.