Helgarpósturinn - 30.04.1987, Side 35
Dagbókin hennar Dúllu
Kæra dagbók mín.
Það varð nú allt heldur betur vit-
laust hérna á kosninganóttina.
Pabbi var búinn að kaupa sér eitt-
hvert sérstakt tölvuforrit til þess að
spá í úrslit kosninganna, kunni
sama og ekkert á það og tókst ein-
hvern veginn að þurrka út fimm
kafla af bókinni, sem mamma er að
þýða!!! Sú varð heldur betur
snælduvitlaus. Ég get ekki látið mér
detta í hug nein blótsyrði eða sví-
virðingar, sem hún notaði ekki á
hann. (Hún blandaði meira að segja
símastelpunni í vinnunni hjá honum
í þetta og sagði að hún væri með
einhverja „sótt", hvað sem það kem-
ur nú pabba við...) Pabbi greyið gat
ekkert varið sig. Hann margreyndi
að biðja hana fyrirgefningar, en það
þýddi nú lítið. Að lokum sagði hann
bara að mamma væri greinilega að
byrja á túr! Mér fannst það nú bilað.
Heldur maðurinn að það blæði inn
á heilann á manni eða hvað?
Amma á Einimelnum var ekki hjá
okkur á kosninganóttina. Það hefur
sko ekki skeð fyrr svo ég muni.
Pabbi varð voða dularfullur þegar
við spurðum út í þetta, en mömmu
tókst einhvern veginn að draga það
upp úr honum, þegar við heyrðum
ekki til. Þá sagði hún, að það rynni
upp fyrir sér ljós og að amma væri
augsýnilega ekki dauð úr öllum æð-
um. Ég held að hún hafi verið að
meina æðahnútaaðgerðina í fyrra
og núna er ég skíthrædd um að
amma fari að deyja, eins og Gíslína
frænka. Ætli maður geti virkilega
dáið úr æðahnútum?
Hún virtist nú ekkert lasleg, hún
amma, þegar hún mætti í heimsókn
til okkar fyrir hádegi á sunnudag-
inn. Við vorum öll sofandi, en dyra-
bjallan hefði næstum getað vakið
afa gamla upp frá dauðum. Mamma
harðneitaði að opna augun og lét
pabba og mig um að hella upp á og
svoleiðis. (Það var næstum hvergi
hægt að setjast niður fyrir afgöng-
um af snakki og brennivínsglösum,
en amma bara minntist ekki á drasl-
ið.) Ég veit eiginlega ekki til hvers
amma kom. Hún talaði bara og tal-
aði um gamlan kall, sem heitir Guð-
jón, og býður henni stundum í bíl-
túra til Hveragerðis og Þingvalla.
Hann ætti örugglega ekki að vera
með bílpróf, enda þurftu þau t.d. að
gista í Borgarnesi í bíltúrnum á sum-
ardaginn fyrsta. Það sauð á bílnum,
held ég. Þegar mamma heyrði það,
sprakk hún af hlátri og sagði að eitt-
hvað hefði greinilega „komið upp
á”, en pabbi var svolítið sár og sagði
að hún væri dónaleg.
Nóg í bili,
Dúlla.
ÁFANGAR
FERÐAHANDBOK
SEXTÍU LEIÐARLÝSINGAR
OG SÉRTEIKNUD KORT
Safnrit ferðanefndar
Landssambands hestamannafélaga
HESTAMANNSINS
Bókaútgáfa Hetgarpóstsins s: 681511
NUTIMAFOLK
Bókin um einstaklinginn í einkalífi og
starfi. Gagnleg bók handa fólki á öllum aldri
Islensk bók sem á
erindi vid alla og þig
líka
Höfundar Nútímafólks eru
hinir kunnu sálfræðingar Álf-
heiður Steinþórsdóttir og
Guðfinna Eydal. Þær reka í
sameiningu sjálfstætt fyrirtæki
á sínu sviði, Sálfræðistöðina,
þar sem þær bjóða m.a. upp á
einkaviðtöl og starfsráðgjöf.
Álfheiður og Guðfinna hafa á
undanförnum árum efnt til
námskeiða um land allt og hafa
þúsundir manna sótt þessi
námskeið, sem bæði hafa verið
sniðin að þörfum almennings,
sérhæfðra starfshópa og at-
vinnufyrirtækja. Þá hafa þær
ritað fjölda greina í blöð og
tímarit.
/ Nútímafólki er m.a. leitast uid að
svara þessum spurningum:
• Hvað mótar einstaklinginn?
• Hvernig pössum við saman?
• Hvers vegna ganga sum sambönd
en önnur ekki?
• Hvers vegna rífumst við?
• Hvernig hjálpum viö börnum
best í skilnaði?
• Hvernig vegnar þér í starfi?
• Hvernig eru samskiptin á
vinnustað?
• Andlegt heilbrigði — hvað er
að vera ,,normai‘?
HELGARPÓSTURINN 35