Helgarpósturinn - 30.04.1987, Page 38
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 1. maí
18.30 Nilli Hólmgeirsson.
18.55 Litlu Prúðuleikararnir.
19.30 Poppkorn.
20.00 Fréttir.
20.40 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
Evrópu 1987.
21.00 Göngum í reyklausa liðið.
21.10 Landsmót íslenskra lúðrasveita
1986.
21.30 Mike Hammer.
22.25 Kastljós.
23.05 María Skotadrottning ★★★ (Mary
Queen of Scots). Bresk bíómynd frá
árinu 1971. Leikstjóri Charles Jarrett.
Aðalhlutverk: Vanessa Redgrave,
Glenda Jackson, Trevor Howard, Pat-
rick McGoohan og Nigel Davenport.
Á sextándu öld kom upp sú staöa í
Englandi að tvær konur þóttust eiga
tilkali til krúnunnar, þær Elísabet
Túdor og María Stúart Skotlands-
drottning. María var kaþólsk og lenti í
illdeilum við þegna sína og varð að
flýja til Englands. Lýsir myndin síðan
samskiptum þeirra drottninganna og
illdeilum stuðningsmanna þeirra.
01.15 Dagskrórlok.
Laugardagur 2. maí
15.00 Íslandsglíman.
16.30 íþróttir.
18.00 Garðrækt.
18.30 Þytur í laufi.
19.00 Háskaslóðir (Danger Bay).
19.30 Smellir.
20.00 Fréttir.
20.35 Lottó.
20.40 Fyrirmyndarfaðir.
21.10 Með hálfum huga (Cold Feet).
Bandarísk bíómynd í léttum dúr frá ár-
inu 1984. Leikstjóri Bruce Van Dusen.
Aðalhlutverk Griffin Dunne og
Marissa Chibas. Tom hefur sagt skilið
við konu sína og Marty hefur fengið
nóg af sambýlismanni sínum. Þau laö-
ast hvort að öðru en eru bæði hikandi
við að binda sig á ný vegna fyrri
reynslu.
22.45 Varmenni s/h (A Touch of Evil)
★★★★ Bandarísk bíómynd frá árinu
1958. Leikstjóri Orson Welles. Aðal-
hlutverk: Charles Heston, Orson
Welles, Janet Leigh, Marlene Dietrich
og Akim Tamiroff. Hjón í brúðkaups-
ferð komast í hann krappan í viðskipt-
um viö kaldrifjaðan og spilltan lög-
reglustjóra í smábæ við landamæri
Bandaríkjanna og Mexíkó. Atriði í
myndinni eru ekki við hæfi barna.
00.25 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 30. apríl
§ 17.00 Myndrokk.
§ 18.00 Knattspyrnan.
19.05 Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.05 Opin lína.
20.25 Ljósbrot.
21.05 Morðgóta (Murder She Wrote).
§ 21.50 Af bæ í borg (Perfect Strangers).
§ 22.15 Tilgátan (Nosenko). Bandarísk
sjónvarpsmynd með Tommy Lee
Jones, Josef Sommer, Ed Lauter og
Oleg Rudnik í aðalhlutverkum.
Þrem mánuðum eftir morðið á John
F. Kennedy er Warren rannsóknar-
nefndin aö kanna allar mögulegar
tilgátur og samsæriskenningar. Var
Lee Harvey Oswald einn að verki
eöa voru þeir fleiri? KGB maðurinn
Yuri Nosenko lekur upplýsingum
sem nefndinni finnst ástæða til aö
kanna nánar.
§ 23.45 Charley Hannah (Charley
Hannah). Bandarísk sjónvarpsmynd
með Robert Conrad, Red West,
Shane Conrad og Joan Leslie í aðal-
hlutverkum. Leikstjóri er Peter Hunt.
Þrautreyndur lögreglumaður veitir
þrem afbrotaunglingum eftirför. Fyr-
ir slysni verður hann einum þeirra að
bana. Vinur drengsins er mikilvægt
vitni í málinu og í Ijós kemur aö hann
er með glæpamenn á hælunum,
Hannah tekur að sér að leysa mál
drengsins.
§ 01.15 Dagskrárlok.
Föstudagur 1. maí
§ 17.00 Gildran II (Sting) ★★ Bandarlsk
kvikmynd frá 1982. Aðalhlutverk:
Jackie Gleason, Teri Garr, Karl
Malden og Oliver Reed. Leikstjóri er
Paul Kagan. Eins og nafnið gefur til
kynna er þetta óbeint framhald af
hinni geysivinsælu mynd Gildran
(Sting), og gerist þessi 6 árum síðar
en sú fyrri. Margt hefur breyst á
þessum árum, en brellumeistararnir
finna sér ný fórnarlömb.
§18.35 Myndrokk.
19.00 Myrkviöa Mæja. Teiknimynd.
19.30 Fróttir.
20.00 Opin lína.
20.20 Klassapíur (Golden Girls).
§ 20.45 Hasarleikur (Moonlighting). Nýr
bandarískur sakamálaþáttur í léttari
kantinum.
§ 21.30 Námamennirnir (The Molly
Maguires) ★★ Bandarísk kvik-
mynd frá 1969 með Sean Connery,
Richard Harris og Samantha Eggar
í aðalhlutverkum. Leikstjóri er
Martin Ritt. Molly Maguire er nafn á
leynilegu fálagi námamanna í Penn-
sylvaniu fyrir síðustu aldamót. Félag
þetta hikar ekki við að grípa til of-
beldisaðgerða til þess að ná fram
rétti sínum gegn námueigendum.
Leynilögreglumaður gerist meðlim-
ur í Molly Maguire í þeim tilgangi aö
Ijóstra upp um þá. Hann öðlast
traust námamanna og um leið skiln-
ing á málstaö þeirra.
§ 23.30 Á haustdögum (Early Frost). Ný
áströlsk spennumynd frá 1985. í
aðalhlutverkum eru Mike Hayes,
Diana McLean og John Blake. Þegar
einkalögreglumaöur er að vinna í
skilnaðarmáli finnur hann lík! Hann
grunar að um morð sé að ræöa, en
hver er sá seki? Því betur sem hann
rannsakar málið, þeim mun flóknara
og dularfyllra reynist það.
§ 01.10 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrórlok.
Laugardagur 2. maí
§ 09.00-12.00 Barna og unglingaefni.
§ 16.00 Ættarveldið (Dynasty).
§ 16.45 Myndrokk.
§ 17.05 Bíladella (Automania).
§ 17.30 NBA — körfuboltinn.
19.00 Koalabjörninn Snari. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Undirheimar Miami (Miami
Vice).
§ 21.00 Spóspegill (Spitting Image).
§ 21.25 Bróöum kemur betri tíð (We'll
Meet Again).
§ 22.20 Rússibanar (Rollercoaster) ★★
Bandarísk spennumynd frá 1977
með George Segal og Timothy
Bottoms í aðalhlutverkum. í banda-
rískum skemmtigörðum, þéttskip-
uðum fólki, verða hræðileg slys
þegar leiktæki eru sprengd í loft
upp. Fjárkúgari er á ferðinni og hann
hótar að láta aftur til skarar skríöa
verði ekki gengið að kröfum hans.
Leikstjóri er James Goldstone.
§ 00.10 Þróhyggja (Obsessive Love). Nýleg
bandarísk sjónvarpsmynd. Líf Lindu
Foster er heldur tilbreytingarsnautt.
Öskadraumur hennar er að hitta
stóru ástina í lífi sínu, sjónvarps-
stjörnu í sápuóperu. Dag nokkurn
kaupir hún sér f lugmiða til Los Ang-
eles og ákveður að beita öllum til-
tækum ráðum til að láta draum sinn
rætast. Aðalhlutverk: Yvette
Mimieux og Simon MacCorkindale.
Leikstjóri: Steven Hillard Stern.
§ 01.45 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrárlok.
MEÐMÆLI
Þættir llluga Jökulssonar á fimmtu-
dagskvöldum ó Rás 1 eru alltaf
skemmtilegir og fræðandi. í ríkissjón-
varpinu er fróbær mynd eftir Orson
Welles á laugardagskvöldiö.
©
Fimmtudagur 30. apríl
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Daglegt mál.
19.45 Að utan.
20.00 Frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói 25.
þ.m.
21.40 „Hænan", smásaga eftir Mercé
Rodoveda.
22.20 ,,Þeir deyja ungir . . "
23.00 Kvöldtónleikar.
24.00 Fróttir. Dagskrárlok.
Föstudagur 1. maí
Hátíðisdagur verkalýðsins
7.03 ,,Fyrir þór ber óg fána . . "
9.05 Morgunstund barnanna.
10.30 Sögusteinn.
11.05 Samhljómur.
12.20 Hódegisfróttir.
14.15 Fró útihátíðarhöldum á Lækjar-
torgi.
15.15 Sinfóníuhljómsveit Islands leikur
lótta tónlist.
16.05 Dagbókin.
16.20 Barnaútvarpið.
17.05 Síðdegistónleikar.
17.40 Torgið.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Daglegt mál.
19.40 Nóttúruskoðun.
20.00 ,,Sögusinfónían" eftir Jón Leifs.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Lúðrasveit verkalýðsins leikur.
22.20 Vísnakvöld.
23.00 Aö kvöldi fyrsta maí.
00.10 Næturstund í dúr og moll.
Laugardagur 2. maí
7.03 ,,Góðan dag, góðir hlustendur."
9.30 I morgunmund.
10.25 Óskalög sjúklinga.
11.00 Vísindaþótturinn.
11.40 Næst ó dagskró.
12.00 Hór og nú.
14.00 Sinna.
15.00 Tónspegill.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Afmælistónleikar Karlakórsins
Þrasta í Hafnarfirði.
17.45 Martial Nardeau leikur ó flautu.
18.00 Islenskt mál.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 öðruvísi var það ekki.
20.00 Harmoníkuþóttur.
20.30 Ókunn afrek.
21.00 islenskir einsöngvarar.
21.20 Á réttri hillu.
22.20 Tónmál.
23.00 Danslög.
00.05 Miðnæturtónleikar.
01.00 Dagskrárlok.
áir
Fimmtudagur 30. apríl
19.30 Vinsældalisti rósar 2.
J
20.30 I gestastofu.
22.05 Nótur að norðan.
23.00 Við rúmstokkinn.
00.10 Næturútvarp.
02.00 Á frívaktinni.
Föstudagur 1. apríl
Hátíðisdagur verkalýðsins
6.00 I bítið.
9.05 Morgunþóttur.
12.45 Á milli móla.
16.05 Hringiðan.
19.30 Lög unga fólksins.
21.00 Merkisberar.
22.05 Fjörkippir.
23.00 Á hinni hliðinni.
00.10 Næturútvarp.
02.30 Ungæöi.
Laugardagur 2. maí
6.00 I bltið.
9.03 Tíu dropar.
11.00 Lukkupotturinn.
12.45 Listapopp.
14.00 Poppgátan.
15.00 Við rásmarkið.
17.00 Savanna, Ríó og hin tríóin.
18.00 Fróttir á ensku.
18.10 Tilbrigöi.
19.30 Með sínu lagi.
20.00 Rokkbomsan.
21.00 Á mörkunum.
22.05 Snúningur.
00.05 Næturútvarp.
vöv
rBYL GJANl
Fimmtudagur 30. apríl
19.00 Anna Björk Birgisdóttir ó Flóa-
markaði Bylgjunnar.
20.00 Jónfna Leósdóttir ó fimmtudegi.
21.30 Spurningaleikur Bylgjunnar.
23.00 Vökulok.
24.00 Næturdagskró Bylgjunnar.
Föstudagur 1. maí
07.00 Á fætur meö Sigurði G. Tómas-
syni.
09.00 Póll Þorsteinsson á lóttum nót-
um.
12.00 Fróttir.
12.10 Þorsteinn J. Vilhjólmsson á há-
degi.
14.00 Pótur Steinn á réttri bylgjulengd.
17.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykja-
vík síödegis.
19.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóa-
markaði Bylgjunnar.
22.00 Haraldur Gíslason.
03.00 Næturdagskró Bylgjunnar.
Laugardagur 2. maí
08.00 Valdís Gunnarsdóttir.
12.00 Fróttir.
12.10 Ásgeir Tómasson.
15.00 Vinsældalisti Bylgjunnar.
17.00 Laugardagspopp Bylgjunnar.
19.00 Rósa Guðbjartsdóttir.
21.00 Anna Þorláksdóttir.
23.00 Jón Gústafsson.
04.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
ÚTVARP
eftir Óskar Guðmundsson
Sú var áður önnur tíðin
SJÓNVARP
Ingvi Hrafn féll
Stundum var imprað á því í kosningabar-
áttunni, að aukinn fjöldi fjölmiðla hefði sett
mark á þann siag. Sjaldnast var skýrgreint
ítarlegar hvaða afleiðingar fjöldi miðlanna
hefði haft hvort áhrifin væru góð og þá
hvers vegna eða siæm og þá hvers vegna.
Ekki ætla ég mér heldur þá dul að segja út
í hörgul um þessar afleiðingar, en má ég
greina hér af íhaldssemi minni, sem hvort
eð er hefur tapað slagnum, frá einu sjónar-
horni:
í einum umræðuþáttanna fyrir kosning-
ar í útvarpinu ræddu nokkrar gamlar
kempur um kosningabaráttuna í stutta
stund (hefði gjarnan mátt verða lengri um-
ræða); Eysteinn Jónsson, Helgi Sæmunds-
son, Kjartan Ólafsson og Sigurlaug Bjarna-
dóttir. 1 máli þeirra kom m.a. fram, að kosn-
ingabaráttan hefði verið meira í návígi í
þann tíð. Haldin hefði verið t.d. ein löng út-
varpsumræða, þar sem flokksleiðtogar
deildu hart í návígi. Allir landsmenn, eða
því sem næst, hefðu getað fylgst með slík-
um umræðum og þær hefðu reynt mjög á
menn og málafylgju þeirra.
Hér er komið að einum þætti, sem er
býsna forvitnilegur. Það er ekki margt sem
tengir okkur saman sem eina þjóð fyrir ut-
an sameiginlega tungu okkar og þvíumlíkt.
Við erum þó flest saman um eina trú og á
síðustu áratugum höfum við tengst menn-
ingarlega saman í gegnum útvarpið.
Ganga mátti að því vísu, að flestir lands-
menn hefðu saman aðgang að þessu tæki,
sem flutti menningu og upplýsingu í hvurs
manns rann.
Þegar hinir nýju fjölmiðlar eru mærðir
og lofaðir sem og fjölbreytnin öll, gleymist
stundum að taka fram, að ýmislegt sem við
áttum, getur ekki verið metið af viti fyrr en
löngu eftir okkar daga. Þannig mætti
álykta, að það sameiginlega útvarp sem
við áttum, hafi verið a.m.k. að mörgu
leyti mikilvægur tengiliður allra lands-
manna. Þegar við eigum ekki lengur þenn-
an sameiginlega miðil, þ.e. að við verðum
einnig háð öðrum, þá missum við samein-
ingarapparat, og ekki að vita hvers við för-
um á mis né heldur hvernig rétt er að meta
afleiðingar þess, fyrr en einhvern tíma í
framtíðinni.
Stjórnmálaflokkunum með allar sínar
auglýsingar var að vissu leyti vorkunn að
auglýsa sig út um þorp og grundir í öllum
miðlum, því hvernig gátu þeir öðruvísi náð
til allra landsmanna? Ekki höfðu þeir út-
varpið eins og Eysteinn forðum ...
Eðlilega höfðu pólitíkusarnir vinninginn
í sjónvarpinu síðustu dagana fyrir kosning-
ar. Hringborðsumræðurnar á föstudags-
kvöldið voru þó með því daufasta sem ég
hef lengi séð. Ekki einu sinni Jón Baldvin
komst í ham og það var ekki fyrr en Guð-
rún Agnarsdóttir reiddist svo yfir sig, að
hún gleymdi að vera kurteis að eitthvað
„fútt“ varð í þættinum. Denni missti
ábyggilega atkvæði út á þetta yfir til
Kvennalistans.
Hitchcock myndin var ekkert Hitchcock-
leg ef hægt er að taka svo til orða en eitt-
hvað veldur því samt að maður sest mak-
indalega fyrir framan sjónvarpið þegar sá
maður á í hlut og horfir á til enda.
Kosningakvöldið fór að mestu í undir-
búning fyrir nóttina sem framundan var og
þess vegna varð Cosby að víkja fyrir
sjoppuferðum og símtölum. Klukkan tíu
var hægt að byrja að stressa sig yfir því á
hvora stöðina ætti að horfa. Lengi framan
af var fjarstýringin í efsta sæti enda kvarta
þeir fjarstýringarlausu sáran þessa dagana
yfir tímanum sem fór í að ganga að sjón-
varpinu til að skipta um rás. Það leið þó
ekki á löngu þar til ljóst var að það yrði
Stöð 2 sem hefði vinninginn enda létt yfir
fólki á þeim bæ. Ingvi Hrafn og félagar
voru samt ekki alveg látnir eiga sig; ég
skipti yfir á Ríkissjónvarpið þegar Svala-
auglýsingin var að koma mér í vont skap
(svo ekki sé minnt á Ara Garðar með rósa-
kálið í Bláa borðanum). Hins vegar verður
að segjast eins og er að blessað Ríkissjón-
varpið var eins og úr forneskju miðað við
Stöð 2. Einhvern veginn virtist allt svo
þunglamalegt og alvarlegt hjá þeim og
Ingvi Hrafn bjargaði engu með því að
syngja „Er ég kem heim í Búðardal“.
Valgerður Matthíasdóttir spilaði reyndar
út á köflum og á tímabili var mann farið að
renna í grun að þetta væru allt vinir henn-
ar sem hringt var til. Nema ein, enda var
það stúlka mér kunnug og fékk hún ekki
nema eina spurningu á móti tveimur hjá
öllum hinum sem gátu ekki svarað þeirri
fyrstu. Til hvers er þetta fólk svo að kalla
hvert annað gælunöfnunum í beinni út-
sendingu? Á það að vera til að sanna af-
slappaða andrúmsloftið?
Burt frá neikvæðum dómum. Gys-bræð-
ur urðu þess valdandi að fólk sem hafði
fullyrt að það ætlaði ekkert að vaka (þar á
meðal skrifarinn sjálfur) hélt sér vakandi
fram eftir öllu til að sjá þeim bregða fyrir.
Annars var gott hjá Páli hvað hann var fljót-
ur að skrúfa niður í skemmtiatriðunum til
að koma tölunum að, það var annað en
Ríkissjónvarpið sem lét Kristin Sigmunds-
son halda áfram að syngja rétt eins og töl-
urnar skiptu minna máli en skemmtiatrið-
in. (Kallast þetta jákvætt?!) Nokkrir góðir
kaflar Gys-bræðra komu þó ekki á skjáinn
fyrr en milli 7 og 8 um morguninn og ætti
Stöð 2 því að taka til vandlegrar athugunar
að setja þessa skemmtiþætti á spólu og
endursýna svo þjóðin geti séð enn betur
hvað við eigum góða grínleikara. Atriðið
um misheppnaðar upptökur má gjarnan
fylgja þar með.
Þegar allt kemur til alls þá mætti halda
að ég væri annað hvort skotin í Páli eða eigi
hagsmuna að gæta á Stöð 2. Það segja að
minnsta kosti vinir mínir sem vilja heldur
Ríkissjónvarpið. En þetta er allt fallega
meint og aldrei of seint fyrir neinn að bæta
sig, ekki heldur Ríkissjónvarpið.
38 HELGARPÓSTURINN