Helgarpósturinn - 30.04.1987, Qupperneq 40
hafa bakþanka eftir kosningarnar
eru hæstvirtir kjósendur á Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum. Þeir
uppgötvuðu nefnilega að enginn úr
þessum fjölmennu plássum ætti
sæti á Alþingi íslendinga eftir kosn-
inganóttina. í Vestmannaeyjum var
rekinn stífur áróður fyrir því, að
Árni Johnsen ætti raunverulega
möguleika á þingsæti, — og að krat-
ar næðu örugglega kjöri með sinn
Eyjamann, Magnús H. Magnús-
son. Annað kom á daginn eins og
kunnugt er. Á síðasta þingi sat Akur-
eyringurinn Ingvar Gíslason á
þingi, en í dag er enginn þaðan.
Svona er heimurinn harður og veru-
leikinn beiskur. . .
■ ræðslustjóramálið í Norður-
landi eystra ætlar að draga ýmsa
dilka á eftir sér. Nú heyrist að
fræðslustjórar aðrir en sá í fyrr-
nefndu umdæmi hafi slegið saman
og greitt í sjóð 10 þús. krónur hver,
til þess að greiða fyrir hressingar- og
heilsubótardvöl Sturlu Kristjáns-
sonar á Majorka. Sturla er þó ekki
einn á ferð á sólarströndu því fylgd-
armaður hans og sálusorgari í
strandlífinu er Helgi Jónasson. Sá
er hinsvegar fræðslustjóri í Reykja-
neskjördæmi . . .
H
■ ■ Ijóðbylgjan, Útvarp
Norðurland, tekur til starfa í dag,
fimmtudag. Þetta er fyrsta eiginlega
útvarpsstöðin utan Reykjavíkur og
er áætlað að í upphafi muni hún ná
til Eyjafjarðarsvæðisins alls, þar
með talinn Ólafsfjörður og að auki
eitthvað austur yfir Vaðlaheiðina
þar sem sendirinn er þar staðsettur,
jafnvel austur til Húsavíkur. Þegar
fram líða tímar þá mun vera á dag-
skránni að setja upp sendi í Grímsey
og telja menn að þannig verði hægt
að þjóna Norðurlandi öllu. Til að
byrja með mun stöðin senda út frá
klukkan 6.30 til 19.00 virka daga en
um helgar verður næturútvarp til
5.00 á morgnana. Útvarpsstjóri er
hinn góðkunni leikari norðan
heiða, Gestur Einar Jónasson, en
enn hefur ekki verið ráðinn frétta-
maður að stöðinni.
USA
KOM/Ð OG REYNSLUAKIÐ
ÞEIM NÝJU AMERÍSKU
MERCURY TOPAZ
FRAMHJÓLADRIFINN LUXUSBÍLL MEÐ SJÁLFSKIPTINGU, VÖKVASTÝRI,
RAFMAGNSRÚÐUM OG LÆSINGUM, LUXUSINNRÉTTINGU, ÚTVARPIOG
ÝMSUM AUKABÚNAÐIÁ AÐEINS kr. „
FORD BRONCOII
ÓSKABÍLL ALLRA JEPPAÁHUGAMANNA, 140HÖVÉL, VÖKVASTÝRI, MIKILL
AUKABÚNAÐUfí OG VEfíÐIÐ AÐEINS kr. 998,000.-
á
Stöð 2 hefur orðið sú
breyting, að Jónas R. Jónsson
dagskrárstjóri fram til þessa hefur
hætt störfum hjá stöðinni vegna
ágreinings við sjónvarpsstjórann
Jón Óttar Ragnarsson og fleiri
um stefnumörkun í dagskrárgerð
næstu mánaða og missera. I hans
stað hefur verið ráðinn Goði nokk-
ur Sveinsson (Sæmundssonar hjá
Flugleiðum). Ágreiningsmálin sner-
ust, að því er HP veit best, um þá
hugarfarsbreytingu Stöðvarmanna,
sem felst í því að fara að leita meira
eftir efni til sýninga frá Evrópu, en
hingað til hefur nær allt erlent efni
á Stöð 2 komið frá Bandaríkjunum.
Sagt er, að Jónas sé stífur á amer-
ísku linunni. ..
||
■ ■ já bandaríska fréttatímarit-
inu Time velta menn nú vöngum (á
miðvikudegi) yfir tveimur kostum á
forsíðumynd næsta tölublaðs. Ann-
ars vegar kemur til greina að vera
með mynd af Waldheim forseta
Austurríkis og hins vegar mynd af
kvennalistakonum á Islandi.
Myndaritstjórar Time hafa þegar
pantað ljósmyndir hjá Ragnari
Axelssyni (RAX) á Morgúnblaðinu,
sem hann átti að senda vestur um
haf í morgun. Nú er bara að sjá hvor
kosturinn verður ofan á . . .
v
wm iðtal okkar við ungu kon-
una, sem bundin er við hjólastól eft-
ir að ígerð komst í skurði á mjöðm-
um hennar þegar hún lá á Land-
spítalanum fyrir fjórum árum,
vakti að vonum mikla athygli. Eftir
að hún birtist, fóru hjólin líka heldur
betur að snúast. Ráðuneytið hefur
veitt konunni svokallaða gjafsókn,
sem þýðir að ríkið borgar lögfræði-
og málskostnað fyrir hana. Sú upp-
hæð gæti nálgast eina milljón, svo
það munar um minna. Að auki barst
konunni fyrir viku langþráð bréf frá
Læknaráði, sem beðið hefur verið
eftir vikum saman og hefur staðið í
vegi fyrir því að réttarhöldin hafi
getað byrjað. Um leið og bréfið barst
Borgardómi var líka allt sett í gang
og er málflutningur þegar hafinn...
rátt fyrir að nýir þingmenn á
Alþingi verði tuttugu og einn er
ljóst að meðalaldur þingmanna hef-
ur aukist lítillega frá því sem var í
upphafi síðasta kjörtímabils 1983.
Yngsti maður á Alþingi verður Guð-
mundur Ágústsson, 28 ára, en
hann er jafn gamail og Stein-
grímur J. Sigfússon var þegar
hann tók sæti á Alþingi fyrir fjórum
árum. Elsti maður sem sat síðasta
þing var Stefán Valgeirsson og á
hann ennþá heiðurinn af því að
vera elstur. Meðalaldur þingmanna
á síðasta kjörtímabili var 48,05 ár en
er nú 49,02...
þeirra sem fengið
40 HELGARPÓSTURINN