Helgarpósturinn - 18.02.1988, Blaðsíða 6
Smárahvammsmálið
A sis OG FRJÁLSU FRAMTAKI
Smárahvammsmáliö í Kópavogi tók einkennilega
U-beygju á fimmtudag í síðustu viku, þegar bœjarstjórn
skyndilega skrifaöi undir samninga við Hagkaup, Byko
og Frjálst framtak um ráðstöfun landsins. Þar sem Hag-
kaup og Byko höfðu fyrir lóðir í Kópavogi má segja, að
með þessu vœri tekin ákvörðun um að skipta á stœrsta
fyrirtœki landsins, SÍS, og Frjálsu framtaki, útgáfufyrir-
tœki Magnúsar Hreggviðssonar.
EFTIR ÓLAF HANNIBALSSON MYNDIR JIM SMART
Þessi ráðstöfun er því einkenni-
legri, þegar þess er gætt að í Kópa-
vogi er meirihluti svonefndra ,,fé-
lagshyggjuflokka", og að þessi mála-
lok voru samþykkt einróma í bæjar-
stjórn — þ.e. einnig með samþykki
Framsóknarfulltrúans. Þá er það
athyglisverð staðreynd, að einn af
bæjarfulltrúum Alþýðubandalags-
ins er starfsmaður Frjáls framtaks.
Þegar spurðist á sl. hausti, að SÍS
hefði fest kaup á Smárahvamms-
landi, 33 hektörum, á tæpar 120
milljónir, varð uppi fótur og fit. Mikl-
ar vangaveltur voru uppi um að SÍS
hygðist flytja höfuðstöðvar sínar úr
Reykjavík til nágrannabyggðarlags-
ins, þegar gengið hefði verið frá sölu
núverandi höfuðstöðva við Sölv-
hólsgötu, sem hefði þýtt 50 milljóna
króna tilfærslu gjalda frá höfuðborg-
inni til Kópavogs auk aðstöðugjalda
af hverjum þeim öðrum fyrirtækj-
um, sem komið yrði á fót á landinu.
I samninganefnd SÍS voru forstjórinn, Guðjón B. Ólafsson, og Kjartan P. Kjartansson fjármálastjóri. Hér stendur Kjartan við líkan, sem SÍS lét gera af
svæðinu og útskýrir hugmyndir Sambandsmanna um uppbyggingu þess.
FJAN DSAMLEGT
UMHVERFI
Samvinnuhreyfingin hefur iðu-
lega kvartað undan því að hún
byggi við fjandsamlegt umhverfi í
Reykjavík, þar sem borgarstjórnar-
meirihlutinn hefði hvorki viljað
veita KRON eða SÍS lóðir undir starf-
semi sína og á sínum tíma þvælst á
móti Miklagarði, sem fékk tíma-
bundið starfsleyfi á tíma vinstri
meirihlutans. Var því ástæða til að
ætla að SÍS tæki því fagnandi að
komast með starfsemi sína í byggð-
arlag þar sem „félagshyggjuflokk-
ar“ eru í öruggum meirihluta með 7
bæjarfulltrúa af 11.
En Davíð Oddsson brá við skjótt,
veitti Miklagarði starfsleyfi til 10 ára
og lóð við Vesturlandsveg undir höf-
uðstöðvar. Eftir sölu Sölvhólsgötu-
hússins var svo ákveðið, að kaupa
upp hlut meðeignarmanna í Kirkju-
sandi hf., byggja við og endurbæta
hús þar og flytja höfuðstöðvarnar
þangað fyrst um sinn.
Þrátt fyrir þetta var haldið áfram
viðræðum við bæjarstjórn Kópa-
vogs frá 9. október og áfram um
uppbyggingu landsins. Virðist báð-
um aðilum bera saman um að þær
hafi verið í vinsamlegum anda. SIS-
menn segja að bæjarstjórnin hafi
lengi vel ekki minnst á nein skilyrði
um hraðari uppbyggingu landsins
en svo, að fyrstu byggingar risu
1993 og lokið 1995, og aldrei farið
fram á framlengingu ákvörðunar-
frests um að neyta forkaupsréttar
síns fram yfir þann frest til 15. febrú-
ar, sem fúslega var veittur, en lögum
samkvæmt er fresturinn 28 dagar.
SÍS-menn telja, að ef Kópavogsbæ
var svo mikið í mun að þróa þetta
svæði á 5 árum í stað sjö, hefði verið
eðlilegast að bæjarstjórn setti þeim
tímafrest, áður en hún ákvað að
ganga til viðræðna við aðra aðila.
Þess í stað var forstjóra Sambands-
ins tilkynnt um viðræður við nýja
aðila daginn, sem þær hófust, og
áskildi hann þá Sambandinu rétt til
að skila inn tillögum sem gerðu ráð
fyrir sama framkvæmdahraða og
nýju aðilarnir höfðu gert tilboð um.
Var tillögum um þetta skilað inn 10.
febrúar ásamt samstarfssamningi
við Hagvirki um þróun landsins. Þá
er allt í einu hlaupið svo illt blóð í
bæjarfulltrúana alla sem einn, að
þeir lýsa þessum tillögum, sem al-
gerri sýndarmennsku, yfirskini til
að breiða yfir það, að SÍS hafi verið
búið að missa allan áhuga á landinu.
Þessi viðbrögð komu forsvars-
mönnum Sambandsins á óvart. Þeir
segja viðræður hafa farið fram af
mikilli vinsemd og hreinskiptni allt
til loka janúar. Þegar viðhorf Sam-
bandsins hafi breyst nokkuð eftir að
ákvörðun hafði verið tekin um upp-
byggingu Kirkjusands hafi Kópa-
vogsmönnum verið frá því skýrt og
þeim boðið, hvort sem þeir vildu, að
SÍS afsalaði sér nokkrum hluta
landsins til bæjarins eða að skipulag
þess og uppbygging yrði þróað í
nánu samráði þessara aðila.
VIÐRÆÐUSLIT í
SJÓNVARP
Þá kom það illa við Sambands-
menn, að viðræðuslit skyldu verða
með þeim hætti, að innborgun
þeirra í kaupverðið skyldi fyrirvara-
og samráðslaust afhent þeim og
lið frá sjónvarpinu, undir forystu
Helga H. Jónssonar fréttamanns,
mætt samtímis á staðinn, þannig að
ljóst var að fréttastofa þess vissi
hvað til stóð langt á undan Sam-
6 HELGARPÓSTURINN