Helgarpósturinn - 18.02.1988, Blaðsíða 13
DAGBOKIN HENNAR DULLU
Kæra dagbók.
Ég er búin að loka mig inni í her-
bergi, því það er hættuástand
frammi. Mamma er nefnilega að
gera tilraun númer tuttugu og eitt-
hvað til að baka bolludagsbollur.
Hún byrjaði á þessu fyrsta árið sem
hún og pabbi voru gift og af því að
mamma er í Nautsmerkinu kann
hún ekki að gefast upp. Naut eru svo
rosalega þrjósk. Fyrsta árið notaði
hún uppskrift frá mömmu sinni,
sem alltaf hafði heppnast. Það fór
allt í tunnuna og þannig hefur þetta
gengið í meira en tuttugu ár. Boll-
urnar hafa bókstaflega ALDREI ver-
ið ætar. (Það er að vísu kannski ekki
alveg satt, en í þau fáu skipti sem
bragðið hefur verið OK hafa þær
verið algjör skandall í útliti — t.d.
flatar eins og pönnukökurnar, sem
mamma kann heldur ekki að baka!
Enginn af okkur krökkunum hefur
a.m.k. ennþá treyst sér til að fara
með heimabakaðar bollur í skól-
ann. Ekki einu sinni til þess að
gieðja mömmu...) Samt hefur hún
notað nýja uppskrift á hverju ári,
bæði frá bestu vinkonum sínum, öll-
um í saumaklúbbnum, úr flestum
kokkabókum sem gefnar hafa verið
út og örugglega uppskriftir úr öllum
dagblöðum og tímaritum á landinu.
Eitt árið braut hún m.a.s. alveg of-
boðslegan odd af oflæti sínu og fékk
lánaða uppskriftina hjá ömmu á
Einimelnum. Það var ferlega erfitt
fyrir hana, greyið, en amma naut
þess alveg í botn og hringdi á fimm
mínútna fresti til að fylgjast með
bakstrinum. (Mamma sagði, að
þetta hefði bara klúðrast hjá sér af
því að hún þurfti alltaf að vera að
hlaupa í símann! Þetta var meiri-
háttar niðurlæging fyrir hana, því
amma pínir hana oft með því hvað
pabba þyki Einimelsbollurnar sjúk-
lega góðar. Meira að segja pabbi
vorkenndi mömmu svo mikið þetta
ár, að hann mútaði okkur til að þykj-
ast fara með bollurnar í skólann.)
Addi bróðir er líka búinn að loka sig
inni, en ekki út af bollubakstrinum
og móðursýkinni í mömmu. Hann
er ennþá að jafna sig á því að bænd-
urnir fyrir norðan skyldu drepa
litla, sæta ísbjörninn. Það var eins
og hann hefði sjálfur verið skotinn í
hjartað, þegar þeir sýndu mynd af
dýrinu í sjónvarpsfréttunum í gær.
Gráturinn, maður... Það varð algjört
stríðsástand á heimilinu. Mamma
hélt með Adda og sagði, að þetta
væri viðbjóðslegt og að kallarnir
væru villidýr en ekki grey bjarndýr-
ið. Addi grenjaði og grenjaði, en
pabbi trylltist og sagði að mamma
væri að gera strákinn að aumingja.
Þetta væri lífshættulegt óargadýr,
VIIMIMUN/ÉLAR
eru óæskilegar á akbrautum,
sérstaklega á álagstímum i
umferöinni.
( sveitum er umferö dráttar-
véla hluti daglegra starfa og
ber vegfarendum aö taka tillit
til þess. Engu aö síöur eiga
bændur aö takmarka slíkan
akstur þegar umferö er mest,
og sjá til þess aö vélarnar séu i
lögmætu ástandi, s.s. meö
glitmerki og ökuljós þegar ryk
er á vegum, dimmviöri eöa
myrkur.
sem hefði getað drepið fjölda
manns og fullt af skagfirskum gæð-
ingum. Hann sagði, að mamma
hefði örugglega fengið kast ef kall-
arnir hefðu fylgst í rólegheitunum
með dýrinu og það hefði svo drepið
einhvern. Þá hefði hún sakað menn-
ina um að fórna mannslífum fyrir
eina skepnu. Hann sagði líka, að
það væri ekki fyrir neinn lifandi
mann að þóknast mömmu. Þetta
varð alltof persónulegt rifrildi til að
við krakkarnir gætum verið áfram
inni í stofu, svo við læddumst bara
út. En ég skil nú bara ómögulega af
hverju var ekki hægt að fá einhvern
dýralækni til að skjóta svona svefn-
meðali í bjarndýrið og setja það í
búr. Síðan hefði vel verið hægt að
láta búrið um borð í skip og sleppa
dýrinu lengst í burtu — kannski við
Grænland. Einfalt mál! Þetta var
bara eins árs ræfill og ekkert miklu
stærri en Labradorhundur. Svei mér
ef ég er bara ekki alveg að fara að
grenja yfir þessu, eins og Addi...
Bless, bless. Dúlla.
ÍS
PIZZAHÚSIÐ
Grensásvegi 10 s: 39933
og
Öldugötu 29 s: 623833
prófaðu deep-pan pizzur
TAKPANA HEIM
Launareikningur
Alþýðubankans er
tékkareikningur með háa
nafnvexti og skapar
lántökurétt.
Cegn reglubundnum
viðskíptum á launareikningi í
a.m.k. 3 mánuði fást
tvennskonar lán án milligöngu
bankastjóra, að ákveðnum
skilyrðum uppfyiltum.
Allt að kr. 50.000
á eigin víxli til
fjögurra mánaða.
Allt að kr. 150.000
á skuldabréfi til
átján mánaða.
Við gerum vel við okkar fólk
Alþýðubankinn hf
HELGARPÓSTURINN 13
KRASS