Helgarpósturinn - 18.02.1988, Blaðsíða 40

Helgarpósturinn - 18.02.1988, Blaðsíða 40
II m þessar mundir vinnur Háskólakórinn að því að setja upp nýstárlega sýningu. Hér er um að ræða eins konar músíkleikhús með kórnum í aðalhlutverki og hefur stjórnandi hans, Árni Harðarson, gert tónlist við Disney-rímur eftir Þórarin Eldjárn. Þetta er í annað skipti sem kórinn vinnur að verk- efni sem þessu þar sem sameinaður er leikur og söngur, fyrra skiptið var þegar hann setti upp Sóleyjar- kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum fyrir einum þremur árum við mikla hrifningu. Eins og þá verður einn leikari með í förinni, að þessu sinni Halldór Björnsson. Að auki hefur Kári Halldór verið kórnum innan handar. Frumsýning er áætluð í síð- ari hluta mars og verður sýnt í Tjarnarbíói... l nýjasta tölublaði breska tónlist- artímaritsins Melody Maker, sem út kom fyrr í vikunni, er fjallað um Sykurmolana og þá sérstaklega söngkonuna, Björk Guðmunds- dóttur. Við þetta er ekkert að at- huga, nema síður sé. En í lok grein- arinnar segir að stóra platan sem Sykurmolarnir senda að líkindum frá sér í maí verði gefin út á merki útgáfufyrirtækisins „One Iittle indian“, eins og þær smáskífur sem hljómsveitin hefur þegar sent frá sér í Bretlandi. Af þessu mætti ætla að eftir öll tilboðin sitji Sykurmolarnir uppi án samninga við stóru bresku útgáfufyrirtækin, og milljónirnar sem blöstu við þeim á síðasta ári séu víðs fjarri. Eftir því sem HP hermir mun þetta þó málum blandið. Samn- ingaviðræður standa enn yfir er- lendis og Molarnir eru einmitt staddir í Bretlandi m.a. við hljóð- blöndun á nýju plötunni... D ótturfyrirtæki bandaríska stórfyrirtækisins Warner Com- munications í Bretlandi skipti ný- lega um leyfishafa Warner á Islandi og tóku Steinar hf. við af Tefli hf. Milli Warner og Teflis standa þó eftir óútkljáð mál og ágreiningur um skuldastöðu hins íslenska fyrirtækis gagnvart rétthöfunum ytra, sem telja sig eiga inni talsverðar upp- hæðir í ógreiddum þóknunum og vörureikningum. Samkvæmt heim- ildum HP hefur Warner ákveðið að hefja málarekstur til innheimtu meintrar skuldar, sem með öllu á að hljóða upp á um 70.000 dollara eða um 2,6 milljónir króna á núgildandi gengi. Fyrir utan ágreining um þóknunargreiðslur mun Warner hafa ákveðið að skipta um leyfishafa hér á landi vegna dvínandi sölu hjá Tefli — umfram hinn almenna sam- drátt á myndbandamarkaðinum.. . I ýlega var ráðið í fastar stöður tveggja fréttamanna hjá Ríkissjón- varpinu. Umsækjendur munu hafa verið tólf talsins, þar af aðeins tveir vanir sjónvarpsfréttamenn, þau Arnþrúður Karlsdóttir og Jón Valfells, sem hóf störf hjá stofnun- inni fyrir stuttu. Stofnunin hafði mælt með þeim tveimur í störfin en Markús Orn Antonsson útvarps- stjóri ákvað þessu sinni að fara eftir atkvæðagreiðslu útvarpsráðs. Par fékk Jón Valfells fimm atkvæði, Ólafur Jóhannsson, blaðamaður á DV, þrjú og Arnþrúður tvö. Ólaf- ur Jóhannsson verður því næsti fréttamaður Ríkissjónvarpsins. Það er ekki skrýtið að menn spyrji hvers konar karlaveldi þetta sé orðið á fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Að- eins tvær konur eru þar við störf, Katrín Pálsdóttir og Arnþrúður Karlsdóttir, en Edda Andrésdóttir og Ólína Þorvarðardóttir eru báðar í fríi. . . SÍ^Bii það er ekki aðeins spurn- ingin um karlaveldið sem menn velta fyrir sér. Þegar tekið er tillit til þess að Arnþrúður Karlsdóttir var fréttaritari Ríkissjónvarpsins í Osló í tvö ár og á að baki nærri þriggja ára starf innan sjónvarpsins hefðu menn ætlað að hún væri kjör- in í starfið. Að auki hefur Arnþrúður að baki fjögurra ára nám í blaða- og fréttamennsku. Útvarpsráð greiddi hins vegar atkvæði með manni sem aldrei hefur unnið á hljóðmiðli. Ekki er ólíklegt að keppinauturinn Stöð 2, sem er greinilega mun „jafnréttis- sinnaðri" stöð, hugsi sér gott til glóðarinnar þegar Arnþrúður losn- ar.. . S ... _ tveir fimmtíu og tveir er þín leið til aukinna viðskipta... Nýr auglýsingasími 625252 \ I SJÓNVARPSBINGÓ Á STÖD 2 Aðalvinningur á hverju mánudagskvöldi er VOLVO 740 GL frá VELTI að verðmæti kr. 1.100.000.- Sannkaliaður draumabíll Aukavinningar eru 10 talsins: hljómflutningstæki frá HLJÓMBÆ, PIONEER XZL, hvert að verðmæti kr. 50.000,- Heildarverðmæti vinninga í hverri viku er því 1.600.000 KRÓNIIR Spilaðar eru 2 umferðir í hverjum Bingóþætti: FYRRI UMFERÐ: Spiluð er ein lárétt lína um 10 aukavinninga SEINNI UMFERÐ: Spilaðar eru 3 láréttar línur (eitt spjald) um bílinn. Þú þarft ekki lykil að STÖÐ 2 því dagskráin er send út ótrufluð. Allt sem þú þarft er BINGÓSPJALD, og það færð þú keypt á aðeins 250 krónur í sölutumum víðsvegar um land. ALLTAF Á MÁNUDÖGUM Kl. 20.30 í ÓTRUFLAÐRI DAGSKRÁ ÁSTÖÐ2 UPPLAG BINGÓSPJALDA ER TAKMARKAÐ, AÐEINS 20.000 SPJÖLD VINNINGAR ERU SKATTFRJÁLSIR OG BER AÐ VITJA ÞEIRRA INNAN MÁNAÐAR 'JÓNVARPS UPPLÝSINGASlMAR ERU 673560 OG 673561 40 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.