Helgarpósturinn - 14.04.1988, Side 4
GÆÐI OG GLÆSILEIKI
OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 10—16
BAUMLER
AUSTURSTRÆTI 14* S 12346
| fyrsta skipti í 10 ár verða kosn-
ingar til stjórnar Sambands ís-
lenskra námsmanna erlendis. í
stjórninni sitja námsmenn sem
komnir eru heim að námi loknu,
minnst 3 en mest 7. Vanalega hefur
gamla stjórnin fengið fólk til setu í
nýrri stjórn og það verið sjálfkjörið
vegna þess að færri gefa kost á sér
til þessarar stjórnarsetu en mest
mega sitja í stjórninni. Nú bregður
aftur á móti svo við að 11 manns
gefa kost á sér í stjórn SÍNE, 4 frv.
Evrópunemar og 1 frv. Argentínu-
nemi, sem menn úr gömlu stjórn-
inni hafa fengið í framboð, 5 frv.
Bandaríkjanemar, sem eru samstiga
um framboð, og 1 sem er sér á báti.
Milli þessara tveggja 5 manna hópa
mun vera um töluverða togstreitu
að ræða. Annars vegar telja nemar
frá Bandaríkjunum að þeirra hlutur
hafi verið fyrir borð borinn innan
SÍNE á undanförnum árum og
Evrópunemar hafi einokað félagið.
Á hinn bóginn er þessi ágreiningur
einnig stórpólitískur. Bandaríkja-
nemarnir myndu allir teljast „borg-
aralega" sinnaðir, sumir í nánum
tengslum við Samband ungra sjálf-
stæðismanna, en aftur á móti hefur
löngum þótt vinstri lykt af stjórn
SÍNE. . .
essi eldgamli ágreiningur
kom að hluta til upp á yfirborðið í
ágúst síðastliðnum á sumarráð-
stefnu SÍNE, en hún er fastur liður
í starfsemi félagsins. Þar „fjöl-
menntu" Bandaríkjanemar (fáir
sóttu ráðstefnuna) og héldu því fram
að nýkjörin stjórn (4 sjálfkjörnir)
væri ólögleg vegna þess að fram-
boðsfrestur var liðinn þegar fram-
boð bárust. Ákveðið var að leysa
málið með því að kjósa 3 menn til
viðbótar í stjórnina þannig að hún
yrði fullmönnuð. Síðar komst meiri-
hluti hinnar 4 manna stjórnar að
þeirri niðurstöðu að aukakosning-
arnar væru óþarfar og bar við að
þær væru kostnaðarsamar og tíma-
frekar. Olli þetta ólgu meðal Banda-
ríkjanema, sem brýst út núna. Nú-
verandi stjórn hefur ennfremur ver-
ið sökuð úm aðgerðaleysi og að hafa
haft lítið samband við trúnaðar-
menn. Heimildir HP herma einnig
að allt þetta starfsár hafi verið mikl-
ar væringar innan stjórnar SINE
milli Svanhildar Bogadóttur,
varaformanns og fyrrum Banda-
ríkjanema, og annarra stjórnarmeð-
lima, en þeir lærðu í Kaupmanna-
höfn...
— Örugg ferð — Ódýr ferð
f ♦ F 1 f i f VESTMANNAEYJUM
Cíl "FÍJí1 Li F SÍMI 98-1792 & 1433
fl'Vl '♦'♦(;♦ REYKJAVÍK SÍMI 91-686464
FERJA FYRIR ÞIG-
4 HELGARPÓSTURINN