Helgarpósturinn - 14.04.1988, Side 5

Helgarpósturinn - 14.04.1988, Side 5
Skreiðarskýrslan sem ekki átti að birtast EFTIR PÁL HANNESSON MYND JIM SMART Fram hefur komið í skýrslu nefndar þeirrar sem forsætisráðherra skipaði til að kanna stöðu skreiðarvið- skipta við Nígeríu að útistandandi kröfur vegna þeirra viðskipta séu um 21,36 milljónir dollara og að líklega séu 11,35 milljónir doilara tapaðar eða um 442 milljónir króna. Einnig kemur fram í skýrslunni að ýmislegt bendi til að sú upphæð verði hærri. Hins vegar hefur enn ekki komið fram opinberlega nánari útlistun á hvaða viðskipti var hér um að ræða, né hvernig þau gengu fyrir sig. Hér verður farið ögn ofan í saumana á því, eins og sagan er rakin í þeim hluta skýrslunnar sem ekki hefur verið birt- ur opinberlega. Þar er greint frá mútum, fyrirtækjum sem gufa upp, pappírum sem týnast í pósti og ógrynnum af föllnum víxlum. I þessum skreiðarviðskiptum er um þrjá stóra útflutningsaðila að ræða, en skreiðarútflutningur hefur þó verið öllum frjáls. Þessir þrír stóru eru Samlag skreidarframleid- enda, Sameinaöir framleiöendur og Skreidardeild SÍS. Samkvæmt skýrslunni eiga þessir aðilar glat- aðar eða vafasamar kröfur vegna af- greiddrar skreiðar til Nígeríu, að upphæð rúmlega 21 milljón dollara eða um 830 milljónir króna. A móti þessu reiknar nefndin til eignar inn- stæður í nígerískum gjaldeyri, nair- um, í Nígeríu sem „hugsanlega" gætu numið um 8,6 milljónum doli- ara eða um 337 milljónum króna. Hins vegar er það mikilli óvissu háð hversu mikið af þessum nairu-inn- stæðum kann að skila sér hingað heim, ekki síst þar sem útlending- um er óheimilt að eiga bankareikn- inga með nairu-innstæðum í Níger- íu. Þó að samþykki íslenskra útflytj- enda þurfi til að taka út innstæðurn- ar þarf einnig samþykki innlendra reikningshafa til þess og telur nefndin að vegna þessa geti skapast ýmsir erfiðleikar við flutning þess- ara fjármuna frá Nígeríu. TAP HINNA ÞRIGGJA STÖRU Samlag skreiðarframleiðenda á útistandandi 11 kröfur frá árunum 1982 til 1986 að upphæð 7,6 milljón- ir dollara eða rétt tæpar 300 milljón- ir króna og á móti þessu hugsanleg- ar nairu-innstæður að upphæð rúm- ar 33 milljónir króna. Líklegt tap nemur því um 267 milljónum króna. Sameinaðir framleiðendur eiga kröfur að upphæð rúmlega 13 millj- ónir dollara eða um 512,4 milljónir króna. Alls eru þetta kröfur vegna 7 skipsfarma frá árunum 1983 til 1986 og er talið hugsanlegt að af þeim greiðist tæpar 30 milljónir króna og / p míx |yp' w/ríyMiV m&w'* Wf> / jmgMfjÍy rg» PIMMhBíEIIxÍ-' mm HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.