Helgarpósturinn - 14.04.1988, Qupperneq 28
maður man hann á skífum með
Charlie Parker og Kenny Dorham.
Hákan Levin blés margan góðan
altósóló og trompetblástur Bosse
Broberg sveik engan. Brent Rosen-
gren fór hægt af stað og þarna sem
hann sat með tenórinn minnti hann
ótrúlega á Gunnar Ormslev, útlitið
þó enn meir en blásturinn. Smám
saman fór að færast líf í kappann og
í Chattanooga Choo Choo var hann
farinn að sveifla saxófóninum yfir
höfði sér og dansa magadans. Það
var þó ekki fyrr en nokkru seinna
sem við fengum að heyra Brent
blása eins og þann sem valdið hefur:
og eftir nokkra kóra settist kappinn
og allir kiöppuðu — en hann var
LADA LUX
LADA SPORT 4x4
LADA SAFIR
LADA STATION
Veró frá 261.
LADA 1200
2800
Lada bílar
seldir ’87
Hugsaðu málið
Ef þú ert í bílahugleiöingum,ættir
þú að lesa þessa auglýsingu
tvisvar. Ræddu við sölumenn
okkar um kosti LADA bílanna og
vinsælu greiðslukjörin. Afgreiðslu-
tíminnn er 2-4 dagar. Við eigum
einnig úrval notaðra LADA bíla.
Beinir símar:
Nýir bílar sími: 31236
Notaðirbílarsími: 84060
Opið laugardaga frá 10-16
ÓBREYTT VERÐÁ MEÐ-
AN BIRGÐIR ENDAST
BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR *
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
i
bara að hvíla fæturna og blés áfram,
stóð skömmu síðar upp að nýju og
blés og blés og blés. Paul Gonsalves
hefði skilið Brent vel.
Guggi og bandið léku svo fyrir
dansi eftir rokksjó á Hótel ísiandi á
föstudagskvöld og var það forráða-
mönnum hótelsins til mikils sóma.
Þarna komst hið ótrúlegasta fólk í
kynni við sveiflumenninguna og þó
sumir kynnu ekki að meta hana
voru þeir fleiri sem eiga eftir að búa
að þessu langa ævi.
Stórsveit Ríkisútvarpsins lék nú-
tímalegri djass en Guggi og sveinar
hans og er hljómsveitin í stöðugri
framför. Því væri sorglegt, grátlegt
og hreint út sagt ómögulegt að láta
hana iognast út af vegna fjárskorts.
Hvað dvelur menntamálaráðherra?
Mikill hluti efnisskrárinnar var út-
settur af Niels Jörgen Steen, Stefáni
S. Stefánssyni og trompetleikaran-
um Jeff Davis, sem nú blæs með
sveitinni. Daninn Uffe Markussen
fór á kostum í útsetningum Steens á
Cry Me a River og Pink Tenor og
Þorleifur Gíslason átti góða spretti.
Sveitin á að sjálfsögðu langt í land til
að ná þeim „standard" sem tíðkast
hjá útvarpssveitum í nágrannalönd-
um okkar og slíkt gerist ekki af
sjálfu sér! Hingað til hafa íslenskar
stórsveitir verið áhugamannasveitir
og það væri sorglegt afturhvarf til
fortíðarinnar ef svo yrði að nýju.
Laugardaginn 23. mars leikur sveit-
in aftur á Hótel Borg og vonandi
verða þeir enn betri en á laugardag-
inn var. Sér í lagi vantar stórsveitar-
kýlinguna í rýþmann.
Þau sorgartíðindi bárust nýlega
að Dannie Richmond væri allur.
Fékk hann hjartaslag aðeins 52ja
ára gamall. Dannie er íslenskum
djassgeggjurum að góðu kunnur.
Hann lék meira og minna með
Charles Mingus frá 1956 og eftir
dauða Mingusar í Mingus Dynasty
og með George Adam/Don Pullen-
kvartettinum. Með þeim heimsótti
hann ísland tvisvar og fáir sem sáu
gleyma nokkurn tímann trommu-
sólónum hans í Double Arc Jake.
Þar fór djassleikarinn á kostum. Gil
Evans er einnig látinn, sjötíu og
fimm ára gamall. Hann er efalítið
einn merkasti útsetjari djassins að
þeim Duke Ellington og Billy Stray-
horn frátöldum. Evans mýkti hljóm
stórsveitarbrassins með valdhorn-
um og hann átti mestan þátt í mótun
þess stíls sem ríkjandi var á tírna-
mótaskífu Miies Davis: Birth of
Cool. Þeir Davis unnu mikið saman
og ódauðleg eru meistaraverk á
borð við Sketches of Spain og túlk-
un þeirra á Porgy and Bess. Hin síð-
ari ár urðu útsetningar hans frjáls-
ari að formi og rafhljóðfæri gegndu
mikilvægu hlutverki. Hann útsetti
eitt lag á skífu Miles Davis frá 1984:
Decoy. Nefnist það That’s Right.
Vonandi leynist sitthvað með Miles
og Gil óútgefið í hirslum CBS.
Evrópuferð stóð fyrir dyrum er Gil
lést og mun sonur hans, Miles
Evans, stjórna hljómsveit föður síns
í þeirri ferð.
Það var að koma út ný Miles
Davis-skífa: Siesta (CBS/Steinar) og
hefur hún að geyma tónlist Marc-
usar Miller úr samnefndri' kvik-
mynd. Er hún tileinkuð Gil Evans —
The Master — og ekki ófyrirsynju,
því spænsk áhrif einkenna tónlist-
ina. Marcus útsetur allt og leikur á
flest hljóðfæri eins og á Tutu, en yfir
öllu gnæfir snilli meistara Miles
Davis — hann fer á kostum og er
óþarfi að hafa fleiri orð um það. Trúi
ég að þeir sem varla hafa sett nýja
Miles-skífu á síðan Bitch's Brew kom
út geti notið þessarar vel. Að sjálf-
sögðu eru hljóðgervlar margvísleg-
ir með í spilinu, en aldrei yfirþyrm-
andi eða smekklausir. John Scofield
og Earl Klugh leika á gítar hvor í
sínu laginu og Omar Hakim tromm-
ar með Scofield og James Walker
blæs í flautu á þriðja ópusnum.
Tónlistin ber þess ótrúlega lítil
merki að vera úr kvikmynd og enn
einu sinni: Miles er engum líkur og
þegar hann blæs þema sitt tileinkað
Ágústín með dempara og þeim fasta
tón, sem heillaði alla djassunnendur
eftirstríðsáranna, opnast himins
hlið.
Vernharður Linnet
Barbour
Hjá okkur fœrðu hinn þœgilega og
smekklega Barbour fatnað sem er
eins ogsniðinn fyrir íslenska veðráttu.
Sendum ípóstkröfu.
Hafnarstræti 5, Reykjavík Símar 16760 og 14800
28 HELGARPÓSTURINN