Helgarpósturinn - 14.04.1988, Page 31
margir þeirra inni 4 mánuði í einu,
og síðan lausir næstu 4 mánuði, inni
næstu 4 mánuði með jöfnu áfram-
haldi. Úr fangelsum er þeim sleppt
jafnan á skilyrðum með óafplánað-
ar eftirstöðvar fangelsisdóma.
íslenzka kerfið með vanaafbrota-
mennina er að því leyti í algerri and-
stöðu við refsikerfi margra annarra
landa, sérstaklega hið ameríska, að
hér á landi komast vanaafbrota-
menn upp á refsiafslátt í þeim eina
tilgangi, að séð verður, að halda uppi
fjölmennri rannsóknarlögreglu,
með ómælda yfirvinnu. Hér er ekki
ríkjandi hið ameríska margföldun-
arrefsikerfi við síafbrotum.
Sé afbrot kært til RLR, sem ætla
má framið af vanaafbrotamanni,
eru sendir út af örkinni einhverjir
rannsóknarlögreglumenn til leitar.
Oft eru þá handteknir saklausir
vanaafbrotamenn, í því kæruefni,
og lausir ganga á skilyrðum. Fyrir
handtökum þeirra er þá ekki upp-
kveðinn dómsúrskurður. Aður en
dagvinnutíma RLR-manna lýkur
hefir oftast sannazt sakleysi hins
handtekna og lið RLR-manna látið á
aukavakt til að leita og hafa upp á
hinum raunverulega seka. Fyrir
kemur að handteknir eru vanaaf-
brotamenn, sem fest hafa ráð sitt og
komnir eru í fasta vinnu, fullir af
vilja til betra lífernis og þjóðholl-
ustu. Handtaka þeirra að óþörfu,
þótt stutt reynist, sviptir þá trausti á
réttarkerfinu og von um að geta
bætt sig. Eftir óréttlætanlega hand-
töku kunna oft að endurvakna
kynni við fyrri afbrotafélaga, sem
þeir hafa sagt skilið við, og við losun
fyllast þeir þjóðfélagshatri, gefa frat
í heiðarlega vinnu og byrja aftur
nýjan afbrotaferil, jafnvel verri en
áður. A þennan hátt eru vanaaf-
brotamenn gerðir að tekjumiklum
„bústofni“ RLR-manna. Hin hall-
andi varða í þessum málum er því í
reynd sú, að 'A vanaafbrotamanna
situr inni, 'h er undir eins konar eft-
irliti eða rannsókn og síðasti þriðj-
ungurinn á fullu i afbrotum. Hið
eina jákvæða, sem út úr þessu kerfi
kemur, sem segja má að Hallvarður
hafi komið á, er að RLR-menn hafa
góðar tekjur, stöðug og næg verk-
efni, (sic.!). Af þessum sökum var
Hallvarður mjög dáður og vinsæll
hjá RLR-mönnum, sem m.a.s. gættu
einkalífs hans kauplaust. Á rann-
sóknarlögreglustjóraferli Hallvarðs
ber hæst mistök RLR í „Geirfinns-
málinu", „Náttfaramálinu" og síö-
ast, en ekki sízt, „Hafskipsmálinu".
Rannsókn þess síðasta tei ég algert
hneyksli og ýmislegt gruggugt eigi
þar eftir að koma í Ijós við rannsókn
refsiréttarprófessorsins Jónatans
Þórmundssonar, hins valinkunna
fræði- og heiðursmanns.
Eftirfarandi skoðun mína á mis-
tökum rannsóknar Hafskipsmálsins
er Hallvarði vel kunnugt um, enda
hef ég ekki leynt henni. Á þeim tíma
hafði Hallvarður stofnað nýtt heim-
ili og komizt við það í nokkur fjár-
hagsvandræði, sem leyst voru með
því, að þáverandi fjármálaráðherra,
Albert Guðmundsson, braut starfs-
reglur fjármálaráðuneytisins, sem
gilt höfðu frá fyrstu ráðherraárum
Eysteins Jónssonar. Úr sérstökum
sjóði fjármálaráðuneytisins veitti
Álbert Hallvarði tvö lífeyrissjódslán,
þótt adeins eitt vœri réttlœtanlegt.
Um Hafskipsmálið má segja að það
sé nokkurs konar einkamál Alberts
Gudmundssonar alþingismanns,
sem telja má valdan að því, eða að
hafa komið því á þær brautir sem
raunin varð á, og valdandi stórum
hluta vanda fyrrverandi Útvegs-
banka. Þegar fjármálaóreiða Haf-
skips hófst með vafasömum lánveit-
ingum fyrrverandi Útvegsbanka var
Albert stjórnarformaður Hafskips
hf. og einnig bankaráðsmaður fyrr-
verandi Útvegsbanka. Albert er
kunnur að dugnaði og málafylgju
um áhugamál sín. Rannsókn Haf-
skipsmálsins var beint gegn banka-
stjórum Útvegsbankans, en lítt sem
ekkert að bankaráðsmönnum, sem
æðri eru bankastjórum. Leyfi ég
mér að fullyrða, að það hafi verið að
tilstuðlan Hallvarðs í þakkarskyni
fyrir áðurnefndar lánveitingar.
Þekktur fjármálamaður lét þau
fleygu orð falla, að öllum mætti
múta, en misjafnt væri hve stóra
skammta þeir þyldu í fyrstu.
Persónulega, og þad sem /ögmaður,
er ég ekki í nokkrum vafa um ad
lánveitingar Alberts, sem fjármála-
ráöherra, til Hallvards, sem RLR-
stjóra, hafa verid mútur og þaö
refsiveröar fyrir báöa og verði siðar
ákært sem afbrot eftir rannsókn
Jónatans Þórmundssonar refsirétt-
arprófessors, sem hefur skrifaö
lœröa grein um ,,mátur" og ég byggi
ályktanir mínar á.
Áður en rannsókn Hafskipsmáls-
ins var lokið sumarið 1986 lét Þórð-
ur Björnsson af starfi ríkissaksókn-
ara.
Um ríkissaksóknarastarfið sótti
Hallvarður Einvarðsson og fékk
það, þrátt fyrir aö um embœttiö
sœktu hœfari menn.
Skipun Hallvarðs í embættið sætir
furðu, þar sem hann þurfti þar að
fjalla um ýmis óafgreidd mál sjálfs
sín úr fyrra embætti. Ekki hefði
bandaríski lögfræðingurinn og
þingmaðurinn Gary Hart fengið
skipun í Bandaríkjunum fyrir slíku
embætti, enda ekki hlotið vernd
CIA fyrir Ijósmyndurum eða öðru í
einkalífinu.
Það er álit margra lögmanna að
RLR-stjóri sé ekki embættisgengur
sem ríkissaksóknari, fyrr en öll
RLR-mál, sem hann hefir fjallað um
áður, séu endanlega komin út úr
dómskerfinu.
Ásókn Hallvarös í ríkissaksókn-
araembœttiö fékk fljótt sínar skýr-
ingar, þegar hann ákœröi, í hinu
nýja embœtti, í Hafskipsmálinu, og
sleppti ákœrum á bankaráösmenn
fyrrverandi Útvegsbanka, þar á
meöal Albert, vin sinn.
í kæruúrskurði Hæstaréttar var
Hallvarður talinn vanhæfur rikis-
saksóknari í Hafskipsmálinu, aðeins
vegna þess að Jóhann bróðir hans
hafði átt setu í bankaráði Útvegs-
bankans, en ekki tekin afstaða að
sinni um lántökur Hallvarðs frá
Alberti Guðmundssyni. Þá var Jón-
atan Þórmundsson prófessor skip-
aður setudómari í málinu og bera
allir fullt traust til réttsýni hans og
afgreiðslu, svo vitað sé, nema Davíð
Oddsson borgarstjóri, alias „Bubbi
kóngur".
Sem fyrr segir hefi ég ekki farið
leynt með áður lýstar skoðanir mín-
ar á embættishæfni Hallvarðar Ein-
varðssonar og í símtali við hann,
fyrir skipun hans í ríkissaksóknara-
embættið, hvatti ég hann til að
draga umsókn sína til baka vegna
vanhæfni.
Allt þetta tel ég ástæðu fyrir fyrir-
skipun hans um tilefnislausa aðför
að mér 28.3. sl. I húsleitarúrskurð-
inn er ég ekki að vísa, þar sem ég
vænti, að Helgarpósturinn komi til
með að birta hann, eða ljósrit af
honum.
Þó ég telji frímúrara óembættis-
genga hefi ég ekki neitt persónu-
lega á móti þeim, en tel félagsskap
þeirra sérríki í ríkinu. Um leynifé-
lög, þar sem félagar sverjast
bræðraböndum, þurfi að setja lög-
gjöf, sem kveði svo á að félagar
þeirra skuli teljast að lögum brœöur,
og lagaleg réttarstaða þeirra miðist
við það.
Þessi langa grein er tilkomin fyrir
embættisafglöp vegna deilna um
nýtingu forkaupsréttar og ekki er
vafi á, að deilurnar voru ástæða fyr-
ir aðförinni að mér 28.3. sl. Sem fyrr
segir hefir lögmaður minn, Hilmar
Ingimundarson hrl., sett fram
1.000.000 króna bótakröfu vegna
þessarar aðfarar. Dýrt getur verið
fyrir ríkið að hafa afglapa í þjónustu
sinni.
Þykist ég fullviss, að lögverndað-
an forkaupsrétt minn muni ég fá að
nýta, sérstaklega þar sem 30. nóv-
ember sl. reyndi á samhljóða for-
kaupsréttarákvæði að hluta 1. hæð-
ar, en þá reyndi Gylfi S. Guðmunds-
son að sölsa undir sig þá eign á sama
hátt og hann gerði með 4. hæðina
en tókst ekki, þar sem um söluna
fjölluðu h'éiðarlegir menn; Gunnar
Sæmundsson lögmaður og Lárus
Guðmundsson fasteignasali, svo og
að þar urðu engin mistök hjá fógeta-
embættinu, hvorki með útgáfu veð-
bókarvottorðs né skráningu í veð-
málabækur.
Ástæða þess, að ég hefi ekki höfð-
að riftunarmál vegna sölu 4. hæðar
Freyjugötu 27, er sú, að kaupsamn-
ings með söluverði í júní 1986 hefi
ég ekki getað aflað frá Fasteigna-
mati ríkisins, og hefur hvorki borg-
arfógetaembættið né RLR veitt mér
lögfulla heimild til skjalsins. Ein
embættisafglöpin til viðbótar (sic!).
í riftunarmálinu hefi ég rétt til að
ganga inn i kaupverð frá í júní 1986
að viðbættum samningsvöxtum af
greiðslum.
Frá miðju ári 1986 til þessa tíma
hefur fasteignaverð á Stór-Reykja-
víkursvæðinu hækkað yfir 50%. Sú
hækkun er mér í hag. Ekki skiptir
það mig máli hvort „kaupendur 4.
hæðar" eigi bótarétt gegn seljend-
um og/eða fasteignasala. Ekki full-
yrði ég, að „kaupendur" hafi ekki
getað verið grandlausir við gerð
„kaupsamnings" vegna vanrækslu
Friðriks Stefánssonar fasteignasala,
og kynnu að eiga bótakröfu gegn
honum. Hins vegar var „kaupend-
um“ fullkunnugt fljótlega eftir gerð
„kaupsamnings" um ótvíræðan for-
kaupsrétt minn og voru síöur en svo
grandlausir viö gerö afsals og þing-
lýsingar þess, sem beðið var með,
þar til fasteignasalinn gat með prett-
um við Kjartan Jónsson fulltrúa
komið þinglýsingu athugasemda-
laust í veðmálabækur.
Ef riftun verður ekki komið í gegn
eftir „hagsmunareglunni", sem
bæði Bogi Nilsson og Jón Skaftason
hafa ýjað að, neyöist ég til nýrra
einkamálaferla gegn ríkissjóöi
vegna afglapa ríkisstarfsmanna og
hásbóndaábyrgöar á þeim og
mundi sú fjárkrafa, miöuö viö
hækkun verös fasteigna og láns-
kjaravísitölu, veröa allt aö
3.000.000 króna auk kostnaöar við
aö þurfa aö skipta um atvinnuhús-
nœöi, þar sem óverandi er í húsi,
þar sem Gylfi S. Guömundsson,
kona hans og hundur búa.
Grein þessi og birting hennar fyrir al-
menningi er á mína ábyrgð, en ekki
Helgarpóstsins.
Þorvaldur Ari Arason
Helgarpósturinn hefur ekki aðstöðu til að kanna sannleiksgildi
þeirra alvarlegu ásakana, sem Þorvaldur Ari Arason hrl. setur fram í
þessari grein á hendur sumum æðstu mönnum réttarkerfisins. Þær
skoðanir, sem hér koma fram, eru því ekki skoðanir Helgarpóstsins,
en í nafni þess mál- og skoðanafrelsis, sem þegnunum er tryggt í
stjórnarskrá landsins, finnst HP þó sjálfsagt að heimila Þorvaldi Ara
að koma skoðunum sínum og málflutningi á framfæri við almenning.
svokallaða er fyrir margra hluta
getum ekki fullkomlega treyst rétt-
sýni þeirra. Ég bið um að þetta mál
gangi þá leið og ég skal taka við
mínum dómi ef það fellur á mig. Það
kostar auðvitað stöðuna mína, en
það skiptir engu máli. Það kemur
ekki til nokkurra mála. Ekki eitt ein-
asta andartak mundi ég sitja í þeim
stól eftir að dómstóll hefði fellt þann
úrskurð að ég hefði brotið lög á ein-
staklingi og beitt hann valdníðslu,
ekki eitt einasta andartak." í ljósi
ummæla fyrrum menntamálaráð-
herra og yfirlýsingar ríkislögmanns
hljóta menn að spyrja hvort orð
þessi standa, eða hvort mennta-
málaráðherra fyrrverandi hafi verið
með yfirlýsingu sinni í DV að fría
ríkislögmann við ábyrgð, en Sturla
hefur spurt þeirrar spurningar í ljósi
ummæla Sverris hver staða ríkislög-
manns verði eftir uppkveðinn
dóm. . .
E ms og menn eflaust rekur
sakir merkilegur, en merkilegust
eru þó viðbrögðin við honum. Nú
hafa til að mynda Sverrir Her-
mannsson alþingismaður og
Gunnlaugur Claessen ríkislög-
maður séð ástæðu til að taka sér-
staklega fram í yfirlýsingu í DV að
ríkislögmaður hafi ekki verið spurð-
ur um það hvort skilyrði væru fyrir
því að reka Sturlu úr embætti. í
þingræðu menntamálaráðherra,
þ.e. Sverris, 20. janúar kemur eftir-
farandi fram; „Allra lagaákvæða
var gætt í fyllsta samráði við ríkis-
lögmann um brottvikningu þessa."
Og eftir því sem leið á þessa miklu
ræðu Sverris gerðist hún skraut-
legri. „Ekki ætla ég að liggja undir
því að vera borinn þeim sökum að
hafa brotið lög á manni og á starfs-
manni ríkisins og beitt valdníðslu;
kemur ekki til nokkurra mála." í
Borgardómi var brottreksturinn
dæmdur ólögmætur. Tveimur dög-
um síðar héldu menn áfram að ræða
„Sturlumálið". Þá lét Sverrir þessi
orð falla; „Hin köldu lög tilkynntu
mér að hjá því yrði ekki komist að
nema nafn Sturlu af launaskrá þeg-
ar í stað og skýring ríkislögmanns
var sú að ella, ef ég héldi honum og
mælti með að halda honum á launa-
skrá, sem ég hélt nú að væri mann-
eskjulegt... Þetta er álit lögfræðing-
anna og rikislögmanns í þessu falli."
í umræðum um málið vændu þing-
menn Sverri Hermannsson um
valdníðslu og svaraði hann þeim
ásökunum. Síðar sama dag sagði
svo Sverrir: „Ég bið að lokum um
aðeins eitt, því engan hef ég heyrt
væna islenska dómstóla um sér-
drægni. Engan hef ég heyrt halda
því fram enn sem komið er að við
minni til í sambandi við „Sturlu-
málið" skipaði Sverrir Her-
mannsson, þáverandi mennta-
málaráðherra, tvo menn til að gera
nákvæma úttekt á öllum fræðslu-
umdæmum landsins. Þeir _ voru
Kristjón Kolbeins og Helgi Ólafs-
son. Samkvæmt heimildum HP skil-
uðu þeir skýrslu sinni sl. sumar og
mun fjármáladeild ráðuneytisins
hafa kosið að stinga niðurstöðunum
undir stól. Ekkert hefur heyrst af
skýrslunni. Það væri athugandi fyr-
ir þingmenn í Norðurlandskjör-
dæmi eystra að fara fram á það við
núverandi menntamálaráðherra,
Birgi Isleif Gunnarsson, að hann
legði ritverkið fram á Alþingi, því
þar munu koma fram athyglisverð-
ar upplýsingar um rekstur fræðslu-
skrifstofa víða um land. . .
l kjölfar skýrslu Boston Con-
sulting Group hefur komið í ljós að
Flugleiðir eru með iægstu meðal-
tekjur á farþegakílómetra af öllum
Evrópuflugfélögum á Norður-Atl-
antshafinu. Að meðaltali hafa flug-
félög á þessari flugleið 62,5%
hærri tekjur á hvern farþega en
Flugleiðir, sem þýðir að þau þurfa
aðeins 49% sætanýtingu til að ná
sömu meðaltekjum og Flugleiðir ná
með 80% sætanýtingu. Ráð BCG er
að fækka flugvélum, flugleiðum og
starfsfólki. Spurning er hvort há-
marksgróði náist ekki með því að
leggja Flugleiðir með stóru F-i alfar-
ið niður .. .
Berðu ekki við
tímaleysi eða streitu
í umferðinni.
Þaö ert þú sem situr undir stýri.
mffilSHúVzú
IUMFERÐAR
Prað
HELGARPÓSTURINN 31