Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1 l.MARZ 1986 91 31 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Hér sjást aðstæður á slysstaðnum i Skeijafirði. Flugvélin liggur þvert yfir Suðurgötu en endi flugbrautarinnar er þar sem olíubillinn er. Ovíst er hvað olli flugóhappinu í gærmorgun: Flugstj órinn heyrði hávaða ogákvað að hættavið flugtak Árfari rann samt brautina á enda, yfir 100 metra malarkafla, gegn- um flugvallargirðinguna og staðnæmdist loks út á miðri umferðargötu ÓLJÓST er hvað olli óhappinu í gærmorgun, þegar Fokker Friend- ship flugvél Flugleiða, Arfara TF FLO, hlekktist á í flugtaki á Reykjavíkurflugvelli. Flugslysanefnd og flugmálastjórn, sem vinna að rannsókn málsins, hafa ekki viljað staðfesta að bilun hafi orðið í öðrum hreyfli vélarinnar. Karl Eiríksson, formaður flugslysanefnd- ar, sagði að rannsókn væri enn of skammt á veg komin til að hægt væri að slá slíku fram. Það sem liggur fyrir er að skömmu eftir að flugtaksbrun hófst heyrði flugstjórinn hávaða sem olli því að hann taldi óvarlegt að halda flugtakinu áfram og hætti því við. Hins vegar liggur ekki ljóst fyrir hvers vegna ekki tókst að stöðva vélina áður en hún fór fram af brautinni. Flugstjóramir vörðust allra frétta þegar Morgunblaðið leitaði til þeirra í gær. Það var um klukkan 11.30 í gærmorgun að Árfari hóf brun vestur eftir braut 32, sem liggur í norðvestur. Ferðinni ver heitið til Patreksfjarðar og Þingeyrar. Lág- skýjað var og mikil rigning, en flugskilyrði þó vel fyrir ofan vallar- lágmark, samkvæmt upplýsingum flugmálastjómar. Sjónarvottur seg- ist hafa heyrt mikinn hvin þegar vélin var komin til móts við flug- stöðvarbygginguna, eða um þriðj- ung af flugbrautinni, og sýndist vélin hemla. Farþegar í vélinni sögðust hafa orðið varir við að flugvélin hemlaði með stuttu milli- bili, án þess þó að verulega drægi úr hraðanum, sem þó var ekki mikill, að sögn eins farþegans. Taldi hann að vélin hefði verið á 80-100 km hraða þegar hún hemlaði fyrst. Mikið vatn var á flugbrautinni og segja kunnugir að það gæti hafa dregið úr hemlunarhraðanum. Flugvélin rann brautina á enda, yfir um 100 metra langan malar- kafla við enda hennar, í gegnum girðinguna sem afmarkar flugvall- arsvæðið og út á Suðurgötuna, þar sem hún staðnæmdist að lokum. I vélinni var 41 farþegi og fjög- urra manna áhöfn. Enginn slasaðist og komust farþegamir fljótt og auðveldlega út úr vélinni. Farþegar sýndu mikla stillingu og yfirvegun, fóru skipulega að öllu og voru komnir út í þann mund er fyrstu vegfarendur bar að. Þeir voru allir komnir um í farþegaafgreiðslu Flugleiða fyrir hádegið. Flugvélin er hins vegar mjög mikið skemmmd. Vinstri vængurinn skekktist og brotnaði að hluta, hreyfillinn þeim megin losnaði frá vængnum og spaðamir bognuðu. Nefhjólið fór af og trjónan er stór- skemmd að neðan. Festingar aðal- hljóla skekktust. Að sögn Sæmund- ar Guðvinssonar blaðafulltrúa Flug- leiða er eins vist að ýmsar fleiri skemmdir eigi eftir að koma fram við skoðun. Vélin er tryggð í London og í dag koma þaðan menn til að skoða hana og meta skemmdir. Trygging- arverðmæti hennar er á bilinu 1,8- 2,0 milljónir dollara. Sæmundur Guðvinsson sagðist ekki eiga von á því að áætlanir í innanlandsflugi Flugleiða fæm úr skorðum þótt Árfari væri úr leik. „Hinir þrír Fokkerar flugfélagsins munu liklega anna þörfmni næstu daga, en auk þess hefur félagið gert ráðstafanir til að taka á leigu Twin-Otter vél hjá Flugfélagi Norð- urlands til að fljúga á styttri leið- um,“ sagði Sæmundur. Hann sagði ennfremur að þegar í dag myndi verða hafist handa við að leita eftir kaupum eða leigu á nýjum Fokker. Farþegar og sjónarvottur höfðu orð á því að slökkviliðið hefði komið seint á vettvang. Sögðu þeir að allir hefðu verið komnir út úr vélinni áður en sást til slökkviliðsins. Morgunblaðið bar þetta undir Guð- mund Guðmundsson slökkviliðs- stjóra, og sagði hann að það tæki að jafnaði rúma eina og hálfa mín- útu að komast brautina á enda. „Það er langur tími undir slíkum kringumstæðum, ogoft virkar hann lengri þegar um hættuástand er að ræða. Við fórum strax af stað og kallið barst og ég reikna ekki með að við höfum verið lengur á leiðinni en venjulega," sagði Guðmundur. Hann sagðist hafa athugað dagbók flugtumsins og þar væri skrifað að slökkviliðinu hefði samstundis verið gert viðvart. Mikil mildi var að engin umferð skyldi vera um Suðurgötuna þegar óhappið átti sér stað. Oskar Ólason, yflrlögregluþjónn umferðarlögregl- unnar, sagði í samtali við Morgun- blaðið að umræður um umferðarör- yggi við Reykjavíkurflugvöll hefðu staðið í mörg ár án þess að nokkuð hefði veri aðhafst. Sagðist hann vonast til að nú tækju menn sig til og gripu til aðgerða, því þetta óhapp sýndi að þama gæti hæglega átt sér stað stórslys. Starfsmenn Flugleiða, flugvallar- ins og slökkviliðsins hófu strax undirbúning að því að flytja vélina í skýli. Þeir nutu fljótlega aðstoðar meðlima björgunarsveitarinna^. Alberts á Seltjamarnesi. Krani lyfti ttjónu vélarinnar og var hún dregin þannig inn a'flugbrautina, þar sem hægt var að koma undir hana vagni að framan og draga hana í skýli. Var því lokið fyrir klukkan þrjú eftir hádegi. Getur ekki gengið svona öllu lengur - segir Óskar Ólason yfirlögregluþjónn um umfer ðar öryggi við Reykjavíkurflugvöll „ÉG VONA bara að þetta atvik verði til að gripið verði nú þegar til ráðstafana varðandi umferðar- öryggi við ReykjavikurflugvöU,“ sagði Óskar Ólason, yfirlögreglu- þjónn umferðardeildar lögregl- unnar, um óhappið á Reykjavíkur- flugvelli i gærmorgun. Óskar sagði að umræða varðandi um- ferðaröryggi við völlinn hefði staðið í mörg ár án þess að nokkuð hefði verið að gert. „Þetta verður vonandi til að vekja aftur upp þá umræðu, því þetta getur ekki gengið svona öllu lengur." Óskar sagði að litlu hefði munað að þama yrði stórslys. „Það fóm bílar þama fram hjá rétt áður en vélin fór út af brautinni og mesta mildi að ekki fór verr. Þama er til dæmis olíustöð rétt hjá og mikil umferð olíubíla og það þarf auðvitað ekki að spyija hvemig farið hefði ef olíubíll hefði orðið fyrir vélinni." Aðspurður sagði Óskar að sögusagn- ir um að olíubíll hefði farið þama um rétt áður væru óstaðfestar. „Það hafa ýmsar hugmyndir verið uppi um hvemig umferðaröryggi verður best tryggt þama við völl- inn,“ sagði Óskar. „Ein er sú að grafa veginn niður, undir brautina, og eins hefur verið rætt um að setja þama upp umferðarljós, sem stöðvar alla umferð á meðan vélar hefla sig á loft af þessari braut. En þessi ljós eru ekki í pöntun svo að ég viti ogc það tekur eflaust langan tíma að koma þessu í gegn, — nema að þetta atvik verði til þess að ýta við mönn- Aðdáunarvert hversu ró- legir allir farþegar voru - sagði Ólafur Ólafsson landlæknir, sem var meðal farþega „ÉG NEITA því ekki að það fór um mig þegar ég áttaði mig á hvað var að gerast, en í svona tiifellum er það oft frekar eftir á sem menn verða hræddir,“ sagði Ólafur Ólafsson landlæknir, sem var meðal farþega í Fokkervél Flugleiða þegar óhappið á Reykjavíkurflugvelli varð. Ólafur kvaðst fyrst hafa áttað sig á að ekki var allt með felldu þegar skyndilega var dregið niður í hreyflum vélarinnar er hún var komin á talsverða ferð eftir flugbrautinni. „Það er auðvitað ekkert gaman- íslendingum, þó maður reyni auðvit mál að lenda í svona löguðu. Þetta er undarleg upplifun og það hvarfl- aði svo sem að mér að þetta kynni að verða mitt síðasta," sagði Ólafur. „En einhvern veginn er það þannig, að maður lifír í voninni þegar svona stendur á og trúir því varla að illa fari. Forlagatrúin er sterk í okkur að í lengstu lög að hafa áhrif á örlögin. En við íslendingar gefum seint upp vonina enda lífseig þjóð. Þannig held ég að flestum í vélinni hafí verið innanbijósts." Ólafur sagði að það hefði verið aðdáunarvert hversu rólegir allir farþegarnir voru. „Það heyrðist hvorki hósti né stuna á meðan á þessu stóð og menn sýndu mikið æðruleysi á þessari hættustundu," sagði hann. „Hvað það er sem ræður slíku æðruleysi undir svona kring- umstæðum er ekki gott að segja, en líklega er það þessi trú manna í lengstu lög að ekkert alvarlegt komi fyrir. En hvað sem öðru líður er þetta sú stysta vísitasíuferð út á land sem ég hef farið.“ Landlæknir sagði, að svona eftir á kæmi margt upp í hugann, til dæmis varðandi öryggismál á Reykjavíkurflugvelli og hversu þröngt völlurinn væri staðsettur í Ólafur Ólafsson landlæknir höfuðborginni. Ljóst væri að grípa þyrfti til aukinna öryggisráðstafana, cinkum með tilliti til umferðar við völlinn. Frá f lugmála- stjórn og flug- slysanefnd MORGUNBLAÐINU barst svo- hljóðandi fréttatilkynning frá flugmálasljórn og flugslysa- nefnd síðdegis í gær: Laust fyrir kl. 11.30 í morgun ók< F-27 flugvél Flugleiða hf., FI-32, með áætlun á PatreksQörð, út og óskaði eftir braut 32 til flugtaks. Veður var lágskýjað og mikil rign- ing en flugskilyrði vel fyrir ofan vallarlágmark. Flugstjórinn hóf flugtaksbrun, heyrði þá hávaða sem olli því að hann taldi óvarlegt að halda áfram flugtakinu og hætti því við. Ástæðan fyrir því að ekki tókst að stöðva vélina áður en hún fór fram af brautinni liggur ekki enn ljós fyrir að svo komnu máli. Um borð í vélinni var 41 farþegi^ auk 4ra manna áhafnar og engan sakaði. Rannsókn heldur áfram. Tilkynningin er undirrituð af Karli Eiríkssyni formanni flugslysa- nefndar og Hauki Haukssyni vara- flugmálastjóra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.