Morgunblaðið - 17.08.1958, Side 1
20 siður
Cœfa og girta fylgi þessu orkuveri
sagði forseti íslands, er hann /ogð/
hornstein stöðvarhússins v/ð Efra-Sog
SÍÐDEGIS í gær lagði forseti ís-
lands, herra Asgeir Asgeirsson,
hornsteín stöðvarnúss nyju raf-
virkjunarinnar við Eira-bog. Var
af því tilefni hátíðleg athoín á
staonum. Formaður stjórnar Sogs
virkjunarinnar, Gunnar Thorodd
sen borgarstjóri, setti samkom-
una og fiutti ávarp. Síðan múraði
forsetinn hcrnstein undir súlu i
anddyri stöðvarhússins og flutti
ávarpsorð. Loks talaði Hermanu
Jónasson forsætisráðherra, sem
fer með raforkumál í ríkisstjórn-
inni. Margt manna var við at-
höfnina, og var veður gott eystra.
— Athöfninn var ekki lokið, þeg
ar blaðið íor í prentun. Gert var
ráö fyrir, að viðstaddir myndu
skoða virkjunarsvæðið að athöfn
inni lokinni, en síðan ætlaði
stjórn Sogsvirkjunarinnar að
hafa boð inni í húsakynnuin
mötuneyusins við írafossvirkjun-
ina.
Forseti íslands mælti á þessa
leið, er hann hafði lagt hornstem
stöðvarhússins:
Góðir áheyrendur!
Fulltrúar rikis og Reykjavíkur
bæjar.
Ég hefi eftir beiðni stjórnar
Sogsvirkjunarinnar lagt horn-
stein orkuversins við Efra-Sog
með innsiglaðri skýrslu um sögu
málsins til þessa dags, svo sem
venja er til. Það má telja að lið-
inn sé aldarfjórðungur síðan
virkjun Sogsins hófst, og nú er
hálfnaður síðasti áfanginn og fyr-
irsjáanlegt, ef ekkert truflar, að
Sogið verður fullvirkjað að ári
liðnu. Það má með sanni segja,
að vatnið, bæði salt og ósalt, eigi
ríkan þátt í sögu og þróun höfuð-
borgarinnar. Fyrst hin auðugu
fiskimið á Fóanum og góð hafnar
skilyrði, þá hið tæra vatn Gvend
arbrunnanna til drykkjar og
þvotta, síðan hveravatnið til upp
hitunar, og nú frá stríðslokum
Framh. á bls. 2.
Við Efra-Sog. Á miðri myndinm
sést rafstöðvarhúsið í smíðum.
Þar verða tveir hverflar og rafall
með hvorum. Vatnið verður leitt
til hússins gegnum þrýstivatns-
æðar, sem liggja munu niður
brekkuna ofan þess. Kemur vatn
ið úr jöfnunarþró í hliðinni, og
sést í þróarstæðið yzt til hægri á
myndinni. Hái turninn á mynd-
inni var settur upp til að auð-
velda framkvæmdir. Til vinstri
sést stífla, sem gerð var, til að
ekki flæddi úr Illfljótsvatni í
grunn stöðvarhússins.
Ljósm.: P. Thomsen.
Norðmenn beita sér fyrir
mélamiðhm hjá S. Þ.
NEW YORK, 16. ágúst — Nú er |
unnið kappsamlega að því aö
tjaldabaki í A^. ...stöðvum S. Þ.
að semja málmioiunartillögu um
lausn vandamálanna við austan-
vert Miðjarðarhaf. Hefur norski
fulltrúinn einkum beitt sér fyrir
þessu. Sagt er, að í tillögunni sé
lagt til, að ábyrgzt verði fullveldi
og pólitískt sjálfstæði Líbanons
og Jórdaníu, og hersveitir Banda-
rikjamanna og Breta síðan flutt-
ar á brott.
Fulltrúi Norðmanna sat í gær
á fundi með Dulles utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Lloyd ut-
anrikisráðherra Bretlands og
Hammarskjöld framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna.
Fastafulltrúi segir af sér
Fyrrverandi fastammrut Jórd-
aniu hjá S. Þ. gerði í dag grein
fyrir, hvers vegna hann hefði
sagt af sér. Kvaðst hann vera ó-
sammála ríkisstjórn sinni, sem
hefði neitað að leyfa lögreglu-
liði S. Þ. að koma til Jórdaníu,
en vildi heldur hafa þar brezkan
her. Sagði fulltrúinn að nauðsyn
bæri tii að brezki herinn væri
fluttur á brott úr landinu þeg-
ar í stað
Af hverju þegir stjórnarliðið
um Moskvuferð Lúðvíks ?
Tíminn telur fréttnæmara, að enskur
drengur týndi bolta en að sjávarútvegs-
málaráðherra íslands heimsækir
Rússland.
ÞÓGN stjórnarblaðanna um
Moskvuferð Lúðviks Jósefssonar
verður furðulegri með hverjum
degi sem líður. Ef hér væri um
einnamál Lúðvíks Jósefssonar að
ræða, væri þögnin skiljanleg. En
Tass fréttastofan rússneska hefur
skýrt fi'á því, og aðrar fréttastofn
anir, blöð og útvarpsstóðvar víðs
vegar eftir henni, að Lúðvík Jós-
efsson væri kominn til Moskvu i
opinberum erindum.
Hvaða ástæða er til að þegja
um þetta ferðalag Lúðvíks og
erindi hans? Af hverju er hér
hafður annar háttur á, en t.d. um
för Gylfa Þ. Gíslasonar til Þyzka-
lands og ísraels fyrir nokkrum
vikum? Þá var Gylfi þó boðinn al
erlendum stjórnvöldum, en nú
segja fréttastofnanir, að Luðvik
Jóseísson hafi farið í erindum ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar til
Moskvu til að ræða þar um lán,
að því upp er gefið. Frá ferðalagi
Gylfa Þ. Gíslasonar var ýtariega
sagt í íslenzka ríkisútvarpinu, og
blöðum hér. Stjórnarblöðin og
ríkisútvarpið íslenzka þegja aft-
ur á móti vandlega um ferðalag
Lúðvíks Jósefssonar.
Ríkisútvarpinu þóttj t. d. meira
um það vert, að skýra frá komu
bandaríska söngvarans Poul
Robeson til Moskvu en dvöl ís-
lenzka sjávarútvegsmálaráð-
herrans austur þar. Með sama
Framh. á bls. 2
Flugslys enn
NEW YORK, 16. ágúst — í gær-
kvöldi fórst tveggja hreyfla
bandarísk farþegaflugvél, sem
var á leið frá New York til
Boston. 21 maður fórst, en 13
voru fluttir í sjúkrahús. Svarta-
þoka var, og hugðist flugmaður-
inn reyna blindflug og lenda á
Nantucket-flugvelli, sem er á
eyju undan Massachussetts-
strönd. Lendingin mistókst og
kom upp eldur í flugvéiinni.