Morgunblaðið - 17.08.1958, Page 6
fc
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 17. ágúst 1958
ISRAELSMENN BEIÐAST
TRYGGINGA
ALLT síöan Ísraelsríki var stofn-
að 1948 hefur þetta nýja þjóð-
land lifað í sífelldri angist við
utanaðk&mandi árásir og orðið
að heyja styrjaldir sér til varn-
ar. Israelsmenn hafa þar i bók-
staflegum skilningi barizt fyrir
lífi sínu. Arabaþjóðirnar vilja
landið feigt og telja að freklega
hafi verrð á sinn hlut gengið með
því að stofna þetta nýja ríki,
sem hafði það í för með sér að
mikill rjöldi þeirra íbúa, sem
áður höfðu verið á þessu land-
svæði urðu að hrekjast burt og
hafa síðan lifað heimilislausir og
dregið fram líf sitt að mestu
leyti á amerískum gjöfum.
Þjóðlíf ísraelsmanna ber mjög
sterkan svip af óttanum við að-
steðjandi hættur og vilja þjóð-
arinnar til að verjast þeim og
viðhalda lífi hins nýja ríkis.
Við þorpin og býlin nálægt landa-
mæruiium eru varðturnar, þar
sem skyggnzt er eftir því, hvort
Golda Meir og Couve de Murvillc
óvinir sitji ekki á fleti fyrir.
Það eru ekki eingöngu karlar,
sem ganga þar með byssu um öxl,
heldur taka konurnar einnig virk
an þátt í vörnum landsins og fá
uppfræðslu í því að fara með
alls konar vopn. Fjárhagur ríkis-
ins dregur líka mjög dám af
þessu ástandi, því útgjöldin til
hernaðarþarfa eru mjög mikil og
miklu meiri heldur en þetta litla
ríki raunverulega þolir. Hingað
til hafa ísraelsmenn líka í raun
og veru lifað á fjármagni, sem
fengið er utan að. Er þar fyrst
að telja þann mikla stuðning,
sem Gyðingar hvarvetna í ver-
öldinni hafa veitt hinu nýja rílci.
í öðru lagi má líka benda á þær
bætur, sem Vestur-Þjóðverjar
greiða Gyðingum vegna meðferð-
arinnar á þeim á Hitlers-tímabil-
inu en þessar fjárgreiðslur skipt-
ast á mörg ár og hafa orðið Israels
ríki til hins mesta siuðnings.
★
ísraelsmenn urðu þegar í önd-
verðu, eftir stofnun ríkisins, að
berjast fyrir sjálfstæði sínu gegn
Arabaþjóðunum og unnu þeir þá
styrjöld með miklum yfirburðum.
Kom það mönnum algerlega á
óvart, hve sterkir ísraelsmenn
voru og hversu léleg hermennska
Arabaþjóðanna var. Á svipuðum
tíma og Frakkar og Englending-
ar gerðu tilraun til að taka Suez,
svo sem frægt varð, lögðu
ísraelsmenn til árása á Egypta,
en þeir hafa staðið í fararbroddi
fyrir áróðrinum í Arabalöndum
gegn Gyðingum. Um öll Araba-
lönd er hrópað um það, að ekk-
ert minna dugi en „kasta ísraels-
mönnum í sjóinn" eins og það
er orðað í áróðrinum. Það er full
alvara mikils fjölda manna í
Arabalöndum, að ekkert annað en
dauði og tortíming geti beðið
ísraelsmanna og riki þeirra eigi
algerlega að afmá.
Þær vonir, sem fsraelsmenn
hafa gert sér um að losna úr
þessari úlfakreppu hafa einkum
verið tengdar við áhrif Vestur-
veldanna meðal Arabaþjóða og
Bagdad-bandalagið. Nú þegar
syrt hefur í álinn á þessu svæði
og þjóðernishreyfing Araba hef-
ur unnið nýjan sigur með bylt-
ingunni í írak, verða fsraels-
menn óttaslegnari en nokkru
sinni fyrr. Þeir telja sig nú raun-
verulega vera innikróaða af
fjandsamlegum þjóðum. Ef svo
færi, að Jórdaníuriki gengi þjóð-
ernishreyfingu Araba á hönd,
stæðu öll vopn á ísraelsmönnum.
Með þessa hættu fyrir augum er
það, sem frú Golda Meir, utan-
ríkisráðherra Ísraelsríkis, hefur
farið þess á leit við Vesturveld-
in, að þau ábyrgist landamæri
ríkisins og sjálfstæði þess. ísraels
UNDANFARNA 3 mánuði hefur
danskur slátrunar- og kjötiðnað-
armeistari, Ewald Christensen að
nafni, dvalizt hér á landi. Hann
er jfirkennari við kjötiðnaðar-
skólann í Esbjerg, og hefur ver-
ið hér á vegum Sláturfélags
Suðurlands til að gefa starfs-
mönnum þess leiðbeiningar um
slátrun og kjötvinnslu.
Fréttamaður Mbl. hitti Christ-
ensen að máli fyrir nokkrum
dögum og ræddi við hann um
ýmislegt, sem sérgrein hans varð
ar.
fslenzka kjötið
Það tók mig talsverðan tíma
að gera mér grein fyrir eigin-
leikum íslenzka lamba- og kinda-
n----------------------n
Eftirtaldar unnar kjötvörur
eru framleiddar hjá Sláturfélagi
Suðurlands og oftast á boðstól-
um í verzlunum þess:
Reykt svínasíða
Kindaspægipylsa
Svínaspægipylsa
Salamipylsa
Gróf Hamborgarpylsa
Fín Hamborgarpylsa
Reykt medisterpylsa
Malakoffpylsa
Kjötpylsa
Cervelatpylsa
Vínarpylsa
Cocktailpylsa
Tepylsa
Feit lifrarpylsa
Kjötbúðingur
Dönsk lifrarkæfa
Lifrarkæfa
Hamborgarhryggur
Lamba-Hamborgarhryggur
Lamba-Hamborgarlæri
Kindarúllupylsa
Svínarúllupylsa
Soðið nautabrjóst
Soðið, saltað nautakjöt
Soðin skinka
Soðin bógskinka
Soðinn svínahnakki
*
Reykt svínafilet
Reykt nautafilet
Parísarfilet
Lambasteik
SS-steik
Hangilæri
Hangirúllur
Blóðmör
Lifrapylsa
Kæfa
Svínasteik
Svínasulta
Nautasulta
Sviðasulta
Nautatungur.
n----------------------□
menn eru nú orðnir þreyttir á
hinni miklu óvissu og óttinn við
nágrannana verður óbærilegur til
lengdar. Almenningur óskar þess
að fá að lifa í friði, stunda rækt-
un landsins og iðnað sinn og
þurfa ekki að ganga með byssu
um öxl til útiverka, eins og nú
er. Ungu stúlkurnar vilja, svo
sem eðlilegt er, fá að stunda
störf sín og nám ótruflaðar af
langri herþjónustu. Slíkt ástand,
eins og er að þessu leyti í ísrael,
er gersamlega óþekkt annars
staðar meðal frjálsra þjóða í
heiminum.
★
Þegar Golda Meir kemur til
Vesturveldanna og biður um
slíka ábyrgð á tilveru ísraels-
ríkis er Vesturveldunum nokkur
vandi á höndum. Allir viður-
kenna að það yrði óbætanlegur
álitshnekkir fyrir Vesturlönd, ef
svo færi að arabiskir þjóðernis-
sinnar fengju að ganga milli bols
og höfuðs ísraelsmönnum. Eng-
um dettur í hug að vestrænir
menn muni láta slíkt yfir sig
ganga. Hins vegar er nú afstað-
an til arabisku þjóðernishreyf-
ingarinnar orðin nokkur önnur
kjötsins, sagði Christensen, þeg-
ar talið barst að íslenzka kjöt-
inu. I Danmörku er ekki svo
mikið um sauðfé, að kjöt af því
sjáist að ráði á markaðnum.
Lambakjöt fæst á vorin ög er
talið lúxusvara. Lömbunum er
slátrað 4—6 vikna og gefa þau
þá oft ekki nema 7—8 kg fall-
þunga. En ég hef komizt að raun
um, að íslenzka lamba- og
kindakjötið er góð vara og úr
því má vinna ágæt matvæli. Við
höfum gert ýmsar tilraunir í
Sláturfélaginu að undanförnu og
náð góðum árangri að ég held.
Hefur ýmsum af uppskriftunum,
sem unnið er eftir, þegar verið
breytt í samræmi við niðurstöð-
ur þessara tilrauna.
íslenzka nautakjötið er tæp-
lega jafngott hinu danska, enda
er fóðrið hér á landi annað en
í Danmörku. Svínakjö'tið ís-
lenzka er hins vegar góð vara.
Hér skaut fréttamaðurinn því
inn í, að fyrir nokkrum árum
hefðu landar Christensens komið
hingað, haldið námskeið og at-
hugað íslenzkt kjöt. Hefðu þeir
þá sagt, að íslenzka svínakjötið
stæði dönsku mjög að baki.
Christensen kvaðst vita um
Hrút bjargað úr skorningi
VÆR konur komu að máli við
Velvakanda og sögðu honum
eftirfarandi sögu:
Á fimmtudaginn fóru þær í
berjamó upp í Lækjarbotna. Allt
í einu veittu þær því athygli, að
svartur hrútur hljóp jarmandi
fram og aftur skammt frá þeim.
Þær fóru nú að aðgæta hverju
þetta sætti. Sáu þær þá hvar
gríðarstór hvítur hrútur sat fast-
ur ofan í lækjarskorningi. Bakk-
arnir voru of háir til að hann
kæmist upp. Konurnar tóku því
að sér hlutverk miskunnsama
Samverjans og fóru að reyna að
tosa skepnunni upp. En þar sem
hún var stór og þung, gekk það
ekki sérlega vel. Loks tókst að
ná hrútnum upp úr skorningnum.
Hann virtist ekkert brotinn eða
meiddur, aðeins dasaður eftir
volkið. Og skildu konurnar því
við hrútinn liggjandi á grasbala.
Nú hafa þær hinar mestu á-
hyggjur af þessum vini sínum,
en vona að hann jafnf sig fljótt
eftir þetta ævintýri.
meðal stjórnmálamanna á Vest-
urlöndum en var fyrir fáum ár-
um. Menn þykjast nú hafa séð,
að ekki þýði að spyrna á móti
broddunum og ætla sér að kæfa
hreyfingu Arabanna niður. Vest-
rænir menn sjá ljóslega, að þeir
munu ekki öllu lengur geta
stuðzt við hina nýríku olíukónga,
á sama hátt og áður. Vestræmr
menn sjá einnig, að þau ríki,
sem stofnuð hafa verið á svæð-
inu fyrir botni Miðjarðarhafs
eiga sér sum hver naumlega til-
verurétt og geta ekki staðið á
eigin fótum, svo sem er um
Jórdaníuríki. Öll eru þessi mál
í deiglunni og segja má að stefna
Vesturlanda sé hvergi nærri
skýrt mörkuð enn, þó hún sé
nokkru skýrari en verið hefur
að undanförnu. Hefur mikið
brostið á að menn gætu raun-
verulega áttað sig á því, hvað
það væri, sem vestrænir menn
og þá ekki sízt Bandaríkjamenn
vildu, í sambandi við Arabalönd-
in. í baráttunni um sál Arabanna,
ef svo mætti orða það, er Israels-
ríki mikill og viðkvæmur þáttur
og þann vanda, sem þar er á
höndum verður að leysa.
þessa heimsókn þeirra Mikkel-
sens, ráðunautar frá Kaup-
mannahöfn, og Hansens, slátrun-
armeistara frá Esbjerg. Hins
vegar ítrekaði hann, að niður-
staða sín hafi orðið sú, að svína-
kjötið hér á landi væri góð vara.
Kvaðst hann hafa gert tilraunir
með framleiðslu spægipylsu, sem
sýndu, að hin fyrri skoðun hefði
ekki við rök að styðjast. Hitt
væri rétt, að íslenzka kjötið
væri ekki eins og hið danska,
enda aðstæður aðrar hér á landi.
Christensen minntist einnig á
hrossa- og hvalkjötið. Hann
kvað hrossakjöt fáanlegt í kjöt-
búðum í Danmörku, en það væri
hins vegar lítið sem ekkert not-
að þar til iðnaðar. Hvalkjöt
kvaðst hann hins vegar aldrei
hafa smakkað, fyrr en hann kom
hingað til lands.
Kjötiðnaðurinn
Blaðamaðurinn spurði, hvernig
gestinum litist á íslenzka kjöt-
iðnaðinn. Hann svaraði á þá leið,
að vélakostur væri hér góður.
Kvað hann framleiddar hér flest-
ar eða allar þær tegundir kjöt-
vöru, sem á boðstólum eru í
Danmörku. Til gamans fékk
fréttamaðurinn lista yfir það
sem selt er af unnum kjötvörum
Býflugnarækt og trjárækt
ISUMAR var hér á ferðinni
enskur rithöfundur, Herbert
Best, og var í Morgunblaðinu
viðtál við hann og konu hans,
sem er barnabókarhöfundur.
Best þessi hefur sýnilega virt
fyrir sér það sem hér bar fyrir
augu með glöggu auga gestsins
og haldið áfram að velta hlutun-
um fyrir sér eftir að heim kom.
Afleiðingin af þeim heilabrotum
eru tvær hugmyndir, sem hann
vill koma á framfæri á íslandi.
Önnur er sú, að við tökum upp
býflugnarækt, því býflugur segir
hann að flýti fyrir uppgræðslu
landsins, fyrir utan það að hun-
angið, sem þær gefa af sér, sé
bæði hollt og vel seljanlegt. Auk
þess fáist af býflugunum vax,
sem notað sé á marga vegu, m. a.
til að bóna með húsgögn.
Ekki telur hann að loftslagið
hamli því að við getum ræktað
hér býflugur. Hans eigin býflug-
ur þoli kuldana í New York, sem
eru enn meiri en hér. Auk þess
veit hann um konu, sem hefur
E. Christensen segir íslenzka
góða vöru.
hjá Sláturfélaginu, og er hann
birtur með greininni.
Hins vegar taldi Christensen
mjög nauðsynlegt, að sem beztri
fræðslu — ekki sízt bóklegri
fræðslu í ýmsum greinum —
væri haldið uppi fyrir þá, sem
ætla að gera sér kjötiðnað að
atvinnu — og fyrir þá, sem ann-
ast afgreiðslu í kjötverzlunum.
Á þessu sviði hafa orðið veru-
legar framfarir nýlega. Kjötiðn-
aður var löggiltur sem iðngrein
árið 1951, og á sl. vetri var í
fyrsta skipti tekin upp sérstök
kennsla í Iðnskólanum í Reykja-
vík fyrir kjötiðnaðarnema. Ann
aðist dr. Sigurður Pétursson,
gerlafræðingur, hana. í Dan-
mörku geta þeir, sem starfa
ætla á þessu sviði, valið sér
nokkru þrengra sérnám, í slátr-
un. kjötiðnaði eða kjötsölu.
Kennslan fer þar fram í iðnskól-
um, verzlunarskólum og í slát-
urhúsum, vinnsluhúsum og
verzlunum. Auk þess er sérstök
kennsla á þessu sviði í Teknisk
Institut í Kaupmannahöfn og i
sérstökum kjötiðnaskóla í Es-
bjerg. Við þann skóla starfar
Christensen.
Hér á landi hefur hann haldið
námskeið fyrir starfsfólk Slátur-
félagsins og kenndi hann þar
heilsufræði, gerlafræði, af-
greiðslustörf og kjötskurð. Var
hann kenndur bæði í venjulegri
skólastofu og við vinnuborð.
Islenzkur matur
Christensen drap á ýmis fleiri
atriði varðandi heimsóknina til
íslands. M. a. ræddi hann um
Frh. á bls. 18.
haft hér býflugur og gengíð vel.
Hin hugmynd mr. Bests er sú,
að við kennum okkar ágætu hund
um að gæta trjáplantnanna, þeg-
ar við erum að reyna að rækta
þær í reitum.
„Það vantar tré af því að það
vantar girðingar og girðingar af
því að tré vantar“, skrifar hann.
Síðan segir hann, sem satt ex%
að girðingar séu dýrar á íslandi,
og ekki sé að furða þó bændur
nenni ekki að vera að girða
í kringum litla trjálundi og halda
girðingum svo vel við, að fé kom.
ist eklci inn fyrir.
Og ráðið við þessu sé að venja
hundana á að gæta tráplantn-
anna. Fyrr á tímum hafi hundar
gætt akranna einir, og hann hef-
ur svo mikla trú á hundunum
okkar, að hann telur að það nægi
að bóndinn eða börn hans sýni
hundinum einu sinni eða tvisvar
hvernig þau reka kindurnar úr
trjálundinum.
Þetta eru hugmyndir hins er-
lenda gests. Hvernig lízt ykkur
á?
Kjötiðnaðarmennirnir þurfa
oð vera vel menntadir
segir E. Christensen ytirkennari trá Esbjerg
shrifar ur
daglega lifinu