Morgunblaðið - 17.08.1958, Page 9
Sunnudagur 17. áeúst 1958
m o n tt y n r * fí i ð
9
Fimleikaflokkur Ármanns hlaut
afbragsgóða dóma í Noregi
NÝLEGA er kominn úr sýningar-
íör til Noregs kvenflokkur úr
glímufélaginu Ármanni er sótti
fimieikamót í Þrándheimi dag-
ana 5.—10. júlí síðastliðinn unáir
stjórn frú Guðrúnar Nielsen. Flog
ið var héðan 3. júlí beint til
Þrándheims. Mótið var hátíðlega
sett sunnudaginn 6. júlí. Þátttak-
endur rúmlega 400 talsins bæði
karlar og konur klædd íþrótta-
búningum, gengu fylktu Jiði
neðan frá borginni og upp á
íþróttasvæðið í Lerkendal, þar
sem allar sýningar fóru fram. Var
það bæði tilkomumikil og fögur
sjón. Fremst fór lúðrasveit og
mikil fánaborg þá komu hinir
erlendu gestir frá Danmörku,
Svíþjóð, Finnlandi og íslandi er
gengu hlið við hlið undir þjóðar-
fánum sínum, þar á eftir komu
flokkar frá hinum ýmsu fimleika
félögum í Noregi. Grasvöllurinn
á Lerkendal var brátt þéttskip-
aður íþróttafólkinu er fylkti sér
í skipulagðar raðir
Formaður fimleikafélags Þránd
heims Arne Wold bauð alla vel-
komna á þetta 16. landsfimleika-
mót Noregs, en þau eru haldin
4. hvert ár. Verður mótið næst í
Eergen. Kveðja var flutt frá
íþróttasambandi Noregs bæði til
gesta og fimleikafélags Þránd-
heims er átti 100 ára afmadi,
gerði það Nils Arvidsen. Lesin
var bæn. Forseti mótsins Bryn-
julf Gard las kveðju sem borizt
hafði frá Ólafi konungi 5. og
setti hann þar með mótið. Síðan
voru fánar Norðurlandanna 5 há-
tíðlega dregnir að hun og þjóð-
söngvar landanna leiknir og tóku
allir viðstaddir undir.
íslenzki flokkurinn sýndi þenn
an fyrsta dag mótsins við mikla
hrifningu eins og kemur fram í
blaðaummælum hér á eftir, en
var síðar beðinn um að sýna aft-
ur og fór sú sýning fram síðasta
daginn.
Sýningar stóðu fjóra daga og
voru bæði fjölbreyttar og
skemmtilegar. Það sem einkum
vakti athygli íslendinganna voru
hinir fjölmennu hópar karla og
kvenna bæði húsmæður og öld-
ungar og gamlir liðsmenn sem
Norðmenn í.alla „veteranir“. Er
þar enginn undir 40 ára aldri.
Var unun að sjá konurnar er
auðsjáanlega nutu þess að fá að
hreyfa sig eftir hljómfaliinu og
tóku þær undir og sungu fullum
háisi. Og karlarnir, sá elzti um 70
ára, léku listir sínar áhorfendum
til mikillar ánægju.
Fyrirkomulag og stjórn þessa
mikla móts var til mikillar fyrir-
myndar. Allur aðbúnaður cg við
urværi eins og bezt verður á kos-
ið, gestrisni og viðmótið eins og
búast mátti við af frændum okk-
ar Norðmönnum. Ollum hinum
erlendu gestum bauð bæjarstjórn
Þrándheims til mannfagnaðar og
veizlu uppi í skíðahótel að mót-
inu loknu. í sambandi við mót
þetta var haldin lnn árlega meist
aramótskeppni Norðmanna í fim-
leikum, var hún bæði lærdóms-
rík og skemmtileg fyrir íslenzku
þátttakendurna. Að fimleikamót-
inu loknu í Þrándheinu, sóttu
flestir íslenzku þátttakendurnir
fimleikanámskeið í Horten við
Oslofjörð, sem stóð yfir dagana
12,—20. júlí. Var það haldið af
fimleikasambandi Norðurlanda.
Sóttu mót þetta mörg hundruð
fimleikamenn frá öllum Norður-
löndum og víðar að. Námskeið
þetta fór hið bezta fram og var
hið lærdómsríkasta.
Hér birtast nokkur blaðaummæli
um þátttöku Ármannsflokksíns
í mótinu
-Á Arbeider-Avisa, Þrándheimi,
7. júlí. Niðurlag frásagnar af
setningu fimleikamótsins á Lerk-
endal:
„Allt öðru máli gegndi um ís-
lenzka kvennaflokkinn, sem
stjórnað var í hátalara og stóð
fyrir yndislegri sýningu. Svo kalt
var í veðri, að hinar þekkilegu
stúlkur hefðu getað fengið bláan
lit búninganna á læri og fótleggi,
en á íslandi eru menn ýmsu
vanir. íslenzku skipunarorðin
hljómuðu einkennilega í eyrum
— sambland af hliðarbeygjum og
Snorra.
Það var orðið svo áliðið dags-
ins, að fólk var farið að tínast
heim til kjötpottanna. Þá hafði
það séð stórfenglega og litríka
sýningu, sem verðug var jafn-
miklu íþróttamóti og vandvirkn-'
islegri stjórn þess“.
Frásögninni fylgja tvær stór-
ar myndir og er önnur frá sýn-
ingu Ármannsstúlknanna. Undir
henni stendur: „Svipmynd frá
sýningu íslenzka kvennaflokks-
ins í Lerkendal. Það voru stúlk-
ur sem kunnu sitt fag“.
jc Arbeiderbladet, Osló, 7. júlí:
„Úrvalsflokkunum frá Dan-
mörku, Finnlandi, íslandi og
Svíþjóð var ef til vill bezt fagn-
að við gönguna inn á völlinn, en
annars var ágætt samband milli
þátttakenda og áhorfenda".
„Ellefu íslenzkar stúlkur gengu
síðan fylktu liði inn á sýningar-
svæðið. Mjög fríður hópur í stíl-
hreinum búningum og hafði á
efnisskránni alveg gullfallegar
Ieikfimi-æfingar, sem sýndu að
fimleikar standa á háu stigi á
Sögueyjunni".
ir Dagbladet, Osló, 7. júlí. Úr
lýsingu Odd Bye-Nielsen á setn-
ingu mótsins:
„Venju samkvæmt var flokki
frá íslandi boðið líka að þessu
sinni og hann er sá bezti, sem
vér höfum séð frá þeim slóðum.
Einkum voru akrobatísku æfing-
arnar glæsilegar og heildaráhrif
sýningarinnar á allan hátt af-
bragðs góð“.
/Jbróttakeppni á
iSAFIRÐI, 4. ágúst. — Hin ár-
íega Vestfirðingavaka var haldin
á ísafirði um verzlunarmanna-
helgina 2. og 3. ágúst.
Fyrirhuguð var fjölbreytt
íþróttakeppni í ýmsum gremum,
handknattleik kvenna, knatt-
spyrnu og sundi.
Vegna óhagstæðc veðurs var
þátttaka ekki eins almenn og bú-
izt var við, t.d. mættu íþrótta-
flokkar Patreksfirðinga ekki.
í hinum ýmsu greinum urðu úr
slit sem hér greinir:
Vestfjarðamót í sundi:
50 m. baksund karla
1. Magnús Þórðarson, Herði á
38.2 sek.
2. Kristmann Kristmannsson
sama félagi á 39,9 sek.
50 m. skriðsund karla
1. Frank Herlufsen, Vestra á 29,1
sek.
2. Björn Egilsson? Herði á 29,9
sek.
50 m. bringusund atúlkna
1. María Ragnarsdóttir, Vestra á
45.3 sek.
2. Gyða Sigurðardóttir, K.R.
(keppti sem gestur á mótinu),
á 46,7 sek.
Gyða er dóttir Sigurðar Jóns-
sonar, K.R.-ings, hins þekkta
sundkappa.
•k Aftenposten, Osló, 7. júlí. í
lýsingu Paal Clasen á setningu
fimleikamótsins er eftirfarandi
kafli með breyttu letri:
„Síðan komu inn á völlinn ell-
efu úrvals fimleikakonur frá Is-
landi undir stjórn Guðrúnar
Nielsen. Sýndu þær fyrst af-
bragðs góðar hringaæfingar, sem
unun var á að horfa. Það var
dans, ballett og leikfimi, fyrsta
flokks, Þær sýndu því næst leik-
fimiæfingar og pýramídastöður,
sem tókust vel, og luku sýning-
unni með fallegum æfingum á
slá. Þetta var góður flokkur sem
ánægjulegt var að kynnast".
ic Adresseavisen, Þrándheimi 7.
júlí:
„Ellefu yndislegar þokkagyðj-
ur frá íslandi dönsuðu sig bók-
staflega sagt inn í hjörtu Þránd-
heimsbúa á sýningunni í Lerken-
dal í gær. í hinum fallegu bláu
búningum og hvítu pilsum svifu
þær eftir grasflötinni og yfir æf-
ingum þeirra með hringum var
slíkur yndisþokki, að áhorfendur
klöppuðu óspart lof í lófa. Ef á
það er litið, að fimleikar eru
ekki svo skipulögð iþróttagrein
á íslandi sem hæfilegt má teljast,
getum við sagt að Guðrún Niel-
sen, sem stjórnaði hópnum, hafi
lyft nemendum sínum upp í eins
konar úrvalsflokk. Stjórnandi
danska kvennaflokltsins, sem
sýnir í kvöld, dvaldist á íslandi
fyrir nokkrum árum og hún lýsti
mikilli undrun sinni yfir framför
unum sem þar hefðu orðið að
undanförnu".
„Stúlkurnar höfðu hina mjóu
þverslá einnig ágætlega á valdi
sínu. Þær sýndu hreinar stöður
og yfir örygginu varð ekki kvart-
að. Þegar á allt er litið, voru þær
verðugir undanfarar finnska
karlaflokksins, sem seinna lét til
sín taka, og vér bjóðum íslenzku
konurnar hjartanlega velkomnar
hingað aftur“.
Fullyrða má að stúlkurnar í
Ármannsflokknum hafa orðið
sér, kennaranum, frú Guðrúnu
Nielsen, og íslenzku þjóðinni allri
til hins mesta sóma með þátttöku
sinni í þessu mikla fimleika-
móti.
V estfirðingavöku
50 m. baksund drengja
1. Oddur Gunnarsson, Vestra á
42.5 sek.
2. Páll Kristjánsson, Vestra á
42.6 sek.
100 m. bringusund drengja
1. Páll Krstjánsson, Vestra á
129,5.
2. Kristján Ó. Hjartarson, Gretti,
Flateyri á 132,5.
4x33H m. boðsund karla
1. Sveit Vestra á 1. mín. 18,8 sek.
2. Sveit Harðar á 1 mín 24,3 sek.
3. Sveit U.M.F.B. (Bolvíkinga) á
1. mín. 37,7 sek.
Þá var háð Vestfjarðamót í
handknattleik kvenna, en var
ekki lokið: Hörður vann Vestra
með 5:0. Súgfirðingar og Vestri
gerðu jafntefli 2:2. Keppni Súg-
firðinga við Hörð var frestað.
Þá fór fram drengjaboðhlaup
Í.B.Í. Var sveit Harðar fyrst og
sveit Vestra no. 2.
í knattspyrnu var keppt um
bikar, sem K.R. gaf. Knattspyrnu
félagið Vestri vann Hörð með 6
mörkum gegn 2.
í sambandi við Vestfirðinga-
vökuna voru svo dansleikir í
tveim samkomuhúsum bæjarins.
Svavar Markússon setti mjög glæsilegt Islandsmet í 1500 metra
hlaupi á móti í Svíþjóð núna nýlega. Hljóp hann vegalengdina
á 3.47,8 mín. og bætti metið um 3 sek. Þá hefur Svavar einnig
sett nýtt Islandsmet í 1000 m hlaupi. Hljóp hann á 2.23,6 min.
Norðurlandsmóf í frjáls
íþróttum á Akureyri
NORÐURLANDSMÓT í frjáls-
íþróttum var haldið á Akureyri
9. og 10 ágúst. Veður var gott á
laugardag, en óhagstætt á sunnu-
dag. Mótið fór vel fram undir
stjórn Ingimars Jónssonar.
Sem gestur á mótinu keppti
Gunnar Huseby, KR. í kúluvarpi
varpaði hann 15.78 m. og kringl-
unni kastaði hann 46.52 m.
Keppnin var stigakeppni milli
félaga og sambanda. UMSE sigr
aði.
100 m hlaup
Björn Sveinsson, KA, 11,0 sek.
(AK-met). Þóroddur Jóhannsson,
UMSE, 11,2 sek. (Eyjafj.-met).
80 m hlaup kvenna
Helga Haraldsdóttir, KA, 11,7
sek. Emelía Friðriksdóttir, HSÞ,
11,8 sek
Kringlukast karla
Guðmundur Hallgrímsson, HSÞ,
37,99 m. Þóroddur Jóhannsson,
UMSE, 37,10 m.
1500 m hlaup
Jón Gíslason, UMSE, 4.19,5
mín. Guðm. Þorsteinsson, KA,
4.21,5 mín.
Þrístökk
Sigurður Sigurðsson, Fram,
13,84 m. (Húnv.-met). Helgi
Valdimarsson, UMSE, 13,70 m.
(Eyjafj.-met).
Hástökk karla
Helgi Valdimarsson, UMSE,
l, 70 m. Hörður Jóhannsson,
UMSE, 1,70 m.
Hástökk kvenna
Þórey Jónsdóttir, Þór, 1,30 m.
Guðrún Sigurðardóttir, HSÞ, 1,25
m. Emelia Friðriksdóttir, HSÞ,
1,25 m.
1000 m boðhlaup
A-sveit KA 2.09,9 min. A-sveit
UMSE 2.10,5 mín.
400 m hlaup
Jón Gíslason, UMSE, 54,4 sek.
Guðm. Þorsteinsson, KA, 54,5
sek.
Kúluvarp karla
Gunnar Huseby, KR, 15,78 m.
Úlfar Björnsson, Fram, 13,70 m.
Þóroddur Jóhannsson, UMSE,
12,83 m.
Langstökk karla
Helgi Valdimarsoon, UMSE,
6,59 m. Brynjar Halldórsson,
UNÞ, 6,40 m.
Stangarstökk
Bragi Hjartarson, Þór, 3,45 m.
Sigurður Friðriksson, HSÞ, 3,40
m. (Þing.-met).
110 m grindahlaup
Bragi Hjartarson, Þór, 17,0 sek.
Ingólfur Hermannsson, Þór, 17,1
sek.
Langstökk kvenna
Emelía Friðriksdóttir, HSÞ, 4,48
m. Oddrún Guðmundsd., UMSE,
4,22 m.
Kringlukast kvenna
Rósa Pálsdóttir, KA, 23,35 m.
Súsanna Möller, KA, 22,14 m.
Spjotkast
Ingimar Skjóldal, UMSE, 52,31
m. Páll Stefánsson, Þór, 42,85 m.
4x100 m boðhlaup karla
A-sveit KA 47,5 sek. A-sveit
HSÞ 48,1 sek.
4x100 m boðhlaup kvenna
A-sveit Þórs 62,1 sek. A-sveit
UMSE 62,8 sek.
3000 m hlaup
Jón Gíslason, ÚMSE, 9.56,1
mín. Tryggvi Steíánsson, HSÞ,
9.56,4 mín.
iUKAGREINAR
Kringlukast karla
Gunnar Huseby, KR, 46,52 m.
Þóroddur Jóhannsson, UMSE,
36,89 m.
Kúluvarp kvenna
Oddrún Guðmundsdottir, UMSE
9,95 m. Helga Haraldsdóttir, KA,
7,48 m.
ÖRN CLAUSEN
liekaóscJomslogmaður
Malf utinngsskritstofa.
Bankastræii 12 — Sim: lo499.