Morgunblaðið - 17.08.1958, Page 10
10
MORGUlVfíLAÐIÐ
Sunnudagur 17. ágúst 1958
Otg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastióri: Sigíus Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Óla, simi 33045
Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson.
Rítstjórn: Aðalstrætj 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480
AsKriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 2.00 eintakið.
HIN MIKLA ORKULIND I SOGINU
r
IGÆR var lagður horn-
steinn að rafstöðvarhúsi
hins nýja orkuvers við Efra
Sog. Er þar um að ræða merki-
legan atburð, sem gefur glæsi-
legt fyrirheit.
Orka virkjunarinnar við Efra-
Sog mun verða um 39 þús. hest-
öfl. Er gert ráð fyrir að hún
geti tekið til starfa síðari hluta
næsta árs.
Orka Sogsvirkjananna er í dag
65 þús. hestöfl. Þegar virkjun-
inni við Efra-Sog er lokið verður
hún komin upp í 104 þús. hest-
öfl. Ennfremur hafa 4500 hest-
öfl verið virkjuð í Elliðaám.
Orka vatnsaflsstöðva Reykjavík-
ur nemur því þá 108,500 hest-
öflum. Þar við bætist enn orka
hitaaflsstöðvarinnar við Elliða-
ár, sem er 10,500 hestöfl. Heild-
arorkan í raforkuverum Reykja-
víkur, sem mikill hluti Suðvest-
urlands fær nú einnig orku frá,
mun þvi verða 119 þús. hestöfl
haustið 1959.
Sogið fullvirkjað
Þegar Efra-Sogsvirkjuninni er
lokið verður Sogið talið fullvirkj-
að að öðru leyti en því að hægt
verður að bæta við einni véla-
samstæðu við Ljósafossstöðina og
annarri í írafossstöðina. Þær tvær
vélasamstæður myndu framleiða
33 þús. hestöfl og væri þá virkj-
að afl í Sogi orðið um 137 þús.
hestöfl. Heildarorka raforkuvera
Reykjávíkur væri þá orðin 152
þús. hestöfl.
Það sem fyrst og fremst hefur
einkennt virkjunarframkvæmd-
irnar við Sog er festa, fyrir-
hyggju og einkar vandaður und-
irbúningur þeirra. Þannig hefur
t. d. verið unnið að undirbúningi
virkjunarinnar við Efra-Sog allt
frá árinu 1945 eða í 12 ár, áður
en sjálfar framkvæmdirnar byrj-
uðu.
Heildarkostnaður við þessa
virkjun var um s. 1. áramót áætl-
aður um 170 millj. kr. Hefur ver-
ið tryggt lán eða loforð fengizt
um lán að mestu fyrir þeim
kostnaði.
Gert er ráð fyrir að allt Suð-
urland, allt austur til Mýrdals-
sands og Vestmannaeyja fái raf-
örku frá orkuverunum við Sog.
Virkjun Efra-Sogs er einn
liðiur í framkvæmd rafvæð- '
ingaráætlunar þeirrar, sem
Sjálfstæðismenn beittu sér
fyrir er Ólafur Thors mynd-
aði ríkisstjórn sumarið 1953.
Forysta
Sj álf stæðismanna
Allar hafa þessar miklu virkj-
unarframkvæmdir við Sog ver-
ið unnar undir forystu Sjálf-
stæðismanna. Þeir hófu barátt-
una fyrir hagnýtingu vatnsafls-
ins í þágu atvinnulífs og lífs-
þæginda. Framsókn gamla sner-
ist hart gegn þeirri hugmynd og
tillögum Sjálfstæðismanna um
rafvæðingu sveita og sjávarsíðu. j
Tíminn kallaði hina fyrstu Sogs- *
virkjun „samsæri andstæðinga,
Framsóknarflokksins“!
En Sjálfstæðismenn á Alþingi
og í bæjarstórn Reykjavíkur
héldu baráttunni áfram og hver
Sogsvirkjunin reis af annarri. Uti
um allt land var einnig byrjað
að hagnýta vátnsaflið.
Þannig verkaði brautryðj-
andastarf Sjálfstæðismanna í
Reykjavík í raforkumálunum
til blessunar fyrir alla ísiend-
inga.
ÁBYRG OG HIKLAUS STEFNA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
HVAÐ vill Sjálfstæðisflokk-
urinn í landhelgismál-
inu?, þráspyrja málgögn
vinstri stjórnarinnar. En öll þjóð-
in veit hvað Sjálfstæðismenn
vilja- í þessu stóra máli. Hún
þekkir baráttu Sjálfstæðismanna
fyrir verndun íslenzkra fiski-
miða. Undir þeirra forystu voru
sett lögin um vísindalega vernd-
un landgrunnsins. Undir þeirra
forystu var fjörðum og flóum lok
að árið 1952 og fiskveiðitakmörk-
in sett 4 sjömílur frá grunnlínum.
Undir þeirra forystu var þannig
sigrazt á hinni gömiu bábilju um
gildi 3 mílna landhelgi. Allt þetta
tókst að framkvæma án þess að
til teljandi erfiðleika drægi fyrir
íslenzku þjóðina þrátt fyrir and-
stöðu nágránnaþjóða okkar, og
þá fyrst og fremst Breta. For-
ystumönnum íslendinga tókst
með lagni og þrautseigju að skýra
svo lífshagsmuni þjóðar sinnar
fyrir nágrannaþjóðunum, að hin-
ar þýðingarmiklu friðunarfrarn-
kvæmdir hlutu að lokum skilning
og viðurkenningu allra.
En hvað vill Sjálfstæðis-
flokkui'inn nú ?
Hann heíur marglýst því yfir.
Hann vill 12 mílna fiskveiðitak-
mörk og réttingu grunnlína í
skjóli Genfarráðstefnunnar. En
hann vill, eins og áður, að for-
ystumenn íslendinga gæti sóma
þjóðarinnar, komi fram af hátt-
vísi og ábyrgðartilfinningu í
framkvæmd þessa lífshagsmuna-
máls landsmanna. Hann fordæm-
ir allan yfirborðshátt og pólitíska
glæframennsku í sambandí við
stærsta utanríkismál íslenzku
þjóðarinnar í dag. Fullkomin á-
byrgðartilfinning og háttvísj er
það eina sem sæmir hinum ís-
lenzka málstað, og jafnfrpmt eina
leiðin til þess að tryggja nauð-
synlega vernd fiskimiða okkar.
Það mun einnig sannast áður en
lýkur, að með skynsamlegum
aðferðum mun það takast.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst
hiklaust yfir afstöðu sinni í þessu
máli. Tíminn og fleiri stjórnar-
blöð hafa hins vegar verið með
dylgjur um að hann væri óheill
í málinu. En alþjóð veit að svo
er ekki. Hann vill einhug þjóðar-
innar um það.
En bæði Sjálfstæðismönnum og
mikium fjölda annarra íslend-
inga finnst hörmuiegt að horfa
upp á það, hvernig ábyrgðar-
laus og glæfraleg forysta komm-
únista og nánustu samstarfs-
manna þeirra hefur spiilt málstað
þjóðarinnar í landhelgismálinu.
smiður í frönskum listum, er
mikill samkvæmismaður, en
hann kvað hafa meiri ánægju af
því að tala sjálfur en hlusta á
aðra. Það vildi til fyrir nokkru í
samkvæmi, að annar reyndi að
skjóta inn orði, er Cocteau hafði
talað stanzlaust drykklanga
stund. En Cocteau sagði óþolin-
móður:
— Ef við tölum allir í einu,
þá getum við alveg eins hætt að
reyna að halda uppi samræðum!
Þó að Sophia Loren eigi yfir
höfði sér gagnrýni kaþólsku
kirkjunnar, er hún komin aftur
til Ítalíu til að leika í kvikmynd,
sem á að heita „Tvær konur“.
Eiginmaður Sophiu, kvikmynda-
frarnleiðandinn Carlo Ponti, læt
ur gera mynd þessa. Hefir Ponti
skýrt svo frá, að Anna Magnani
muni einnig leika í myndinni,
I di
nuum
sem verður tekin næsta vor I
grennd við Rémaborg. Kaþólska
kirkjan hefir aldrei viðurkennt
skilnað Pontis við fyrri konu
sína, og samkvæmt ítölskum lög-
um, er skilnaðurinn ekki lögmæt
ur. Kaþólsk blöð hafa því mjög
gagnrýnt skilnað Sophiu og Pont
is, og Vatíkanblaðið l’Osser-
vatore della domenica hefir kall-
að þau „opinbera syndara".
Danska fegurðardrottningi í ár,
Evy Nordlund, fór ekki til einsk-
is á Miss Universe-keppnina á
Langasandi í Kaliforníu, þó að
hún ekki yrði hún meðal þeirra
útvöldu í keppninni. Kvikmynda-
félagið Columbia bauð henni
samning til sjö ára. Hér sést Evy
undirrita samninginn. Fulltrúi
Columbia, Maxwell Arnow, er
með henni á myndinni.
Þetta er ekki fjölleikatjald, eins og ætla mætti við fyrstu sýn. í tjaldinu, sém stendur á landa-
mærum Noregs og Svíþjóðar við Svínasund, er vöruhús, og þar fást hvers konar vörur. Norðmenn
og Svíar haida því hiklaust fram, að þetta sé stærsta „tjaldvöruhús“ í Evrópu.