Morgunblaðið - 17.08.1958, Side 17
Sunnudagur 17. ágúst 1958
MORCUNBLAÐIÐ
17
Kvenfélag Neskirkju
Ákveðið er að fara hina árlegu sumarferð félagsins þriðju
daginn 19. ágúst. Farið verður til Þingvalla og nágrennis.
Lagt verður af stað kl. 10 árdegis frá Melaskólanum.
Nesti snætt undir berum himni. Berjatínsla ef tækifæri
býðst. Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag. Nánari uppl. í símum 10873 og 13275.
STJÓRNIN.
RAÐSKONU
vantar að Nesjabúinu við Þingvallavatn,. frá 1. október.
Létt vinna, rafmagn, sími, góð húsakynni, 2—3 karlmenn
í heimili. Kaup eftir samkomuiagi. Eldri eða yngri hjón
koma einnig til greina.
Aðalbúrekstur: sauðfjárbú og silungsveiði.
Jónas S. Jónasson c/o Raftækjaverzluninni Rafmagn h.f.,
Vesturgötu 10, Reykjavík. Símar: 14005 og 17255.
Tilkynning til gjnldenda j
skntts ó stóreignir.
Með skírskotum til laga um skatt á stóreignir nr. 44 frá
HVAÐ hefði rithöfundurinn
Victor Hugo sagt um tízkuna í
ár, ef hann hefði verið á lífi?
Um miðbik síðustu aldar, þegar
konurnar drógu síðu pilsin sín
eftir gangstéttunum, ásakaði
Frá Lundúnum
Útsö'*—
Beztu útsölurnar í London eru
um áramótin eða í byrjun janú-
ar, þegar búðirnar selja „upp“
fyrir árið. Seint í júní og byrjun
júlí hefst sumarútsalan, sem er
litlu síðri. Þar er sannarlega
hægt að komast að góðum kjör-
um, flest föt fara fyrir hálfvirði.
Modelkjólar, sem venjulega
kosta um 10—15 gns. fara niður
í 7 og 5 gns. Kápur frá £35 —
niðursett verð £17, og svona
mætti lengi telja. Ég hef meira
að segja séð góðar og smekkleg-
ar dragtir á £3—£4! Þess skal
þó getið að öll nýjasta tízka, svo
sem chemise line (pokakjóll)
trapeze line (víkkandi niður) og
Empire line (hátt mitti) er ekki
á niðursettu verði. Tízkan hefur
sannarlega rutt sér leið hér á
götunum í London, og ungu stúlk
urnar líta ekki síður vel út með
stóra slaufu aftan á, rétt fyrir
ofan hnéð !
Lérefts- og baðmullarkjólarnir
í fallegum litum gera flestar
stúlkur sumarlegar og aðlað-
andi. Karlmennirnir eiga í miklu
meiri vandræðum. Þeir hafa yf-
irleitt alltof þykk föt fyrir sum-
arið, svo að þegar þeim er of
heitt fara þeir úr jakkanum, (ef
þeir eru á meðal kunningjanna)
en eru samt heitir og sveittir af
sólinni. Ef þeir hefðu t.d. ein létt
sumarföt í fataskápnum sínum,
þá myndi þeim verða borgið, þótt
í þessu landi skiptist á skin og
skúrir. Þegar þetta er ritað er
aðra stundina sól og hiti, en fyrr
en varir lemur regnið rúðuna og
þrumur og eldingar heyrast úr
fjarska.
Svo maður súi sér aftur að út-
sölunum, þá erú þau mörg kær-
ustupörin, sem gifta sig um þann
tíma, svo að þau geti sett upp
Framh. á bls. 18.
skáldið unnustu sína fyrir að
hafa kippt upp pilsinu, til að
bjarga kjólfaidinum frá því að
óhreinkast. Þá skrifaði hann með
varkárum orðum til sinnar kæru
Adelu og benti henni á, að
blygðunarsemi væri miklu dýr-
mætari en óhreinn pilsfaldur.
Hann lýsti þeim þjáningum, sem
hann hefði mátt þola, þegar hann
hafði séð hana lyfta upp pilsinu
úti á götu, svo að hún fékk ó-
viðurkvæmlegar augnagotur frá
vegfarendum. Hann lét í ljós þá
ósk, að hún hirti framvegis
minna um það þó pilsfaldurinn
óhreinkaðist. Og að lokum bað
hann hana um að taka í þessu
efni fullt tillit til tilfinninga
sinna, því annars ætti hún það á
hættu að hann réðist umsvifa-
laust á þann fyrsta sem dirfðist
að snúa sér við þegar hún gengi
um götuna.
3. júní 1957, með breytingum 31. des. 1957 og 8. apríl
1958, og reglugerðar um skatt á stóreignir nr. 95. frá 28.
júní 1957, með breytingum 4. marz 1958, er kærufrestur
til Ríkisskattanefndar út af álagningu skatts á stóreignir
til og með 23. sept. n.k. í Reykjavík, en annars staðar
á landinu til og með 3. okt. n.k.
Reykjavík, 15. ág. 1958.
RlKISSKATTANEFNiDIN.
Umdeildasta bók ársins 1957 var bók
AGNARS MYKLE:
Söngurinn um loðnsteininn
enda þótt hún kæmi aldrei út á íslenzku vegna þess
að dómsvaldið í landinu stöðvaði útgáfu hennar með
hótun um málsókn.
Nú kemur í bókabúðir á morgun bók Agnars Mykle:
FRÚ LðNA í SNÖRUNNI
og ef að líkum lætur mun hún verða
Umdeildasta bók ársins 1958
Um þessa bók skrifaði danski gagnrýnandinn Gud-
mund Roger-Henrichsen í Politiken m.a.: „Fyrir kem-
ur að við rekumst á bók sem sker sig úr fjöldanum
og opnar okkur dyr að tilfinningum sem eru svo sterk-
ar, svo ofsafengnar, svo ákafar og undurfagrar að við
lútum heitu höfði, yfirbuguð. — Það kemur sjaldan
fyrir, já þá erum við ekki með sjálfum okkur í marga
daga á eftir, jafnframt því sem við gleðjumst yfir list-
inni sem tæki til að öðlast þekkingu á lífinu. Bókin
sem hér umræðir er „Frú Lúna í snörunni".
Þetta er bókin sem mest verður talað um og mest
verður lesin næstu vikur.
Bláfellsútgáfcm
BBSMlNERVAc/^v^^
STRAUNI NG
OÞÖRF