Morgunblaðið - 07.08.1959, Síða 2
2
MORCVNBLAÐ1Ð
Föstudagur 7. ágúst 1959
Búið ad endurbyggja Krossa-
nes verksmi bjuna
AKUREYRI, 6. ágúst. — SI. þriðjudag hélt stjórn Krossanesverk-
smiðjunnar fund með blaðamönnum og fleirum í tilefni af því
að búið er að endurbyggja Krossanesverksmiðjuna að miklu leyti.
Guðmundur Guðlaugsson, framkvæmdastjóri, gerði grein fyrir
þessum framkvæmdum og rakti sögu verksmiðjunnar frá því að
Akureyrarbær keypti hana
Það var árið 1946 að Akureyr-
arbær keypti síldarverksmiðjuna
í Krossanesi, er þá var gamal-
dags og vanbúin að vélum. Var
þá hafist handa um breytingar
Og endurbætur á verksmiðjunni
eftir kröfum þeirra tíma og fjár-
hagsgetu. Helztu breytingar voru
þær, að byggður var 2500 tonna
dieseltankur, byggt nýtt skil-
vinduhús og í það keyptar 10
nýjar skilvindur, og 4 hristisíur.
Ennfremur var sett upp löndunar
kerfi með tveim löndunarkrönum
og byggt framan við gömlu
bryggjuna undir þá. Þá var byggt
að nýju mestallt flutningakerfi
verksmiðjunnar, breytt frá kola-
kyndingu til olíukyndingar og
frá gufunotkun til rafmagnsnot-
kunar. Allt þetta jók stórumí af-
kastagetu og rekstraröryggi verk
smiðjunnar. Þrátt fyrir það að
ná lega öll ár síðan verksmiðjan
tók til starfa hafa verið síldar-
leysisár, hefur henni verið ha-d-
ið mjög vel við og unnið að frek-
ari endurbótum eftir beztu getu.
Þó er það svo að svona verk-
smiðja verður aldrei fullbyggð,
þar eð tæki og nýtingarhættir e>"u
alltaf að breytast. T. d. hefur á
síðari árum almennt verið byrj-
að að hagnýta soðvatnið, sem til
fellur í verksmiðjum og áður .Tar
látið renna í sjóinn. Sökum hrá-
efnaskorts gátu verksmiðjur fcér
norðanlands ekki notað sér þessa
nýjung fyrr en á sl. ári. Með til-
komu frystihúsútgerðar Akur-
eyringa hafa skapast möguleikar
til að fara inn á þessa auknu nýt-
ingaraðferð, enda rekstur orðinn
ógerlegur að öðrum kosti með
því hráefnaverði sem verksmiðj-
um er gert að greiða.
Stjórn Síldarverksmiðjunnai í
Krossnesi ákvað því, að freista
þess að fá lán til kaupa á vélum
til betri nýtingar á hráefninu.
Þetta hefur tekizt og er nú lokið
að mestu þeirri uppbyggingu,
sem nauðsynleg er talin í bili.
Standa nú vonir til að mjölfram-
leiðsla aukist verulega eða' ca
20% og geta allir séð hvað það
þýðir.
Allar breytingar á verksmiðj-
unni, þar með smíði þessara nýju
tækja, hafa verið framkvæmdar
af vélsmiðjunni Héðni í Reyk.ia-
vík. Verk hennar hafa verið vel
af hejndi leyst og öll samvinna
hin bezta. Færði formaður
verksmiðj ustj órnar Vélsmiðj anni
Héðni beztu þakkir fyrir það.
Einnig þakkaði formaður verk-
smiðjustjórnar Jóni M. Árnasyni
frábært starf við þessar frarn-
kvæmdir, svo og öllum starfs-
mönnum verksmiðjunnar, sem
unnið hafa að þessu verki.
Þess skal getið að hinn nýi
þurrkari sem byggður hefur ver-
ið fyrir ver^smiðjuna, er ef*ir
uppfinningu Gísla Halldórssonar,
verkfræðings í Reykjavík, og
mun vera sá fyrsti sem byggður
er hér á landi af þessari tegund.
Á síðastliðnu ári tók verksmiðj-
an á móti 21.903 málum af síld,
668 af hafsíld og 9732 tonnum af
karfa og úrgangi frá Útgerðar-
félagi AkUreyringa. Fyrstu 6 mán
uðina 1959 er búið að framleiða
477 tonn af karfamjöli, 540 tonn
af fiskimjöli, 230 tonn af síldar-
mjöli og 225' tonn síldar og karfa-
lýsi.
Stjórn verksmiðjunnar skipa
Guðmundur Guðlaugsson fur-
maður og framkvæmdastjóri,
Guðmundur Jörundsson, Helgi
Pálsson, Magnús J. Guðjónsson,
og Björn Jónsson. — Mag.
EFTIR tveggja daga frátök varð loks flugfært til Vestmannaeyja í gær. Um morguninn var
ennþá dimmviðri í Eyjum en laust fyrir kl. tíu birti upp og hálftíma síðar lagði fyrsti Faxi
Flugfélags íslands af stað fullskipaður farþegum. Alls voru áætlaðar tólf ferðir til Vestmanna-
eyja í gærdag og í dag er gert ráð fyrir mörgum ferðum. — Myndin sýnir farþega ganga um
borð í fyrstu flugvélina í gærmorgun. — Ljósm.: Sv. Sæm.
Um 650 manns
til Eyja í gær
Þjóðhátiðin hefst bar i dag
t GÆR munu um 650 Reyk-
víkingar hafa haldið til Vest-
mannaeyja, til að vera á Þjóð-
hátíðinni í dag. Flugfélagið
fór 12 ferðir og Esja lagði af
Dagskrá Alb’mgis
BÁÐAR deildor Alþingis koma
saman til funda í dag kl. 13,30
og er dagskrá þeirra sem hér
segir
Efri deild:
Stjórnarskrárbreyting, frv. —
1. umræða.
Neðri deild:
Endurlán eftirstöðva af láni af
erlendu láni, frv. — 1. umræða.
stað þangað fullskipuð far-
þegum. Frá fréttaritara blaðs-
ins í Eyjum harst svohljóð-
andi skeyti í gærkvöldi:
•k Aldrei fleiri tjöld
Það lítur heldur vel út með
þj óðhátíðarveður. I morgun var
rigning og súld, en um hádegis-
bilið létti upp og seinni hluta
dagsins var komið yndislegt veð-
ur. Fékk fólkið bezta veður til
að koma sér fyrir í Herjólfsdal,
en tjöldun var leyfð þar kl. 4.
Líklega hafa aldrei verið fleiri
tjöld í Herjólfsdal en nú. Flug-
félagið byrjaði að fljúga 1 dag
um 11 leytið og gerði ráð fyrir að
geta farið 12 ferðir.
•k Fjölbreytt dagskrá
A morgun kl. 2 verður Þjóð-
hátíðin sett af Páli Scheving,
bæjarfulltrúa. Síðan verður
guðsþjónusta í dalnum, séra Hall
dór Kolbeins prédikar. Kl. 16
verður ræða, sem Baldur John-
sen héraðslæknir flytur. Að
ræðunni lokinni verða ýmsar
frjálsar íþróttir, m. a. sýnir fim-
leikaflokkur úr KR undir stjóm
Benedikts Jakobssonar. Kl. 18
verður svo bjargsig, Skúli Theo-
dórsson sígur. Að bjargsiginu
loknu verður handknattleikur
kvenna milli Þórs og Týs. —
Kl. 20 hefst kvölddagsskráin. —
Verður fyrst barnaskemmtun,
Viggó Sparr töframaður skemmt-
ir. Kl. 21 hefst kvöldvakan. Þá
leikur Lúðrasveit Vestmanna-
eyja, Ágúst Þorsteinsson og fé-
lagar skemmta, Helgi Þorsteins-
son les upp og að lokum verða
ýms skemmtiatriði, sem Unnur
Guðjónsdóttir leikkona og Ási í
Bæ og Co. sjá um. Kl. 22.30 hefst
dans á báðum pöllunum, nýju
og gömul dansarnir og kl. 24 nær
svo hátíðin hámarki með brennu
og flugeldasýningu.
— Bj. Guðm.
Slagari einn, sem vinsæll var fyrlr nokkrum árum, fjallaði um
hann „lánsama Jón“. — Sumir vilja nú segja, að þessi orð
hafi sannazt á Jóni Ólafssyni, Óðinsgötu 18 hér í bæ — af því
að hann á svo stálheppna dóttur. En Halla litla dóttir hans,
sem er aðeins 4 ára gömul, hlaut „stóra vinninginn“ við síð-
asta drátt í happdrætti DAS, þriggja herbergja íbúð að Há-
túni 4. — Myndin af hinni heppnu fjölskyldu er tekin í nýju
íbúðinni.
Neðrí deild louk oigreiðslu
kjördæmufrumvurpsins í gær
KJORDÆMAFRUMVARPIÐ var í gær endanlega af-
greitt frá neðri deild Alþingis, og verður það í dag tekið
til fyrstu umræðu í efri deild.
Á fundi neðri deildar síðdegis
í gær kvaddi enginn sér hljóðs
um málið og lauk þar með þriðju
og siðustu umræðu um það í deild
inni. Atkvæðagreiðsla fór þá
fram, og var nafnakall viðhaft.
Greiddu þingmenn allra flokka
nema Framsóknarflokksins at-
•kvæði með frumvarpinu, og var
það því samþykkt með 21 at-
kvæði gegn 13, en einn stuðnings-
maður þess var fjarverandi.
Kjördæmafrumvarpið var lagt
fram á fyrsta fundi Alþingis, hinn
22. júlí, og hófst 1. umræða um
það í neðri deild daginn eftir. í
gær voru því liðnir 14 dagar,
síðan afgreiðsla þess hófst á yf-
irstandandi þingi.
Norrœn bœndaráSsfefna
haldin í Reykjavík
í FRAMSÓKNARHÚSINU í Reykjavík er nú haldin ráðstefna
bændasamtaka á Norðurlöndum, eða „Nordisk bondeorganisation-
ers centralrád“, eins og samtökin nefnast, og sækja ráðstefnuna
um 60 erlendir fulltrúar og 30 frá íslenzkum bændasamtökum.
if Lokaðir fundir
Svéinn Tryggvason, fram-
kvæmdastj. Framleiðsluráðs land
búnaðarins, setti fund kl. tíu í
gærmorgun. Ráðstefnan stendur
aðeins tvo daga, lýkur í kvöld.
Þingfulltrúar munu síðan fara
stutta ferð um Suðurlandsundir-
lendið á morgun, en að því búnu
halda eriendu fulltrúarnir heim
um eða upp úr helginni.
Á ráðstefnunni eru til umræðu
ýmis sameiginleg hagsmunamál
bænda á Norðurlöndum, m. a.
Imarkaðsmál — og mun fríverzl-
unarmálið t. d. koma þar við
sögu. Annars liggja ekki fyrir
fréttir af umræðum, þar sem
fundir hafa verið lokaðir.
Stjórn norrænu bændasam-
takanna skipa þessir menn, sem
jafnframt eru forsetar þingsins:
— Hans Pinstrup, Danmörku,
Einar Winqvist, Finnlandi, Hall-
vard Eika, Noregi, Folke Ed-
blom, Svíþjóð og Sveinn
Tryggvason, sem jafnframt er
formaður samtakanna þetta ár.
Norrænu bændasamtökin eru
25 ára gömul, en 9 ár eru síðan
íslendingar gerðust aðilar að
þeim. Komið er saman árlega til
fundar, og hefir slíkur fundur
einu sinni áður verið haldinn hér
á landi, árið 1952.