Morgunblaðið - 27.08.1959, Qupperneq 6
6
M OR'flTJ TS Jtl/ÁÐI Ð
Fimmfudagur 27. ágúst 1959
Nína Tryggvadóttir hélt þrjár
ningar erlendis á sl. ári
kirkju
listsýi
Vinnur nu
oð gluggum
Þýzkalandi
MNA TRYGGVADÓTTIR, list-
málari, er hér heima í þriggja
vikna sumarfríi, en hún hefur
verið búsett í London undanfarin
tvö og hálft ár, eins og kunnugt
er. Fréttamaður blaðsins hitti
hana að máli fyrir nokkrum dög-
um og spurði hana um sýningar
þær, sem hún hefur haldið síðan
hún var hér heima í fyrrasumar.
Það kom í Ijós að Nína hefur
haldið þrjár sjálfstæðar sýningar
í þremur stærstu löndum Evrópu,
Þýzkalandi, Frakklandi og Eng-
landi á sl. vetri.
Fyrsta sýningin var f haust í
Wuppertal í Rínardalnum og
voru þar til sýnis gluggar og mál-
verk eftir listakonuna. Þá var í
nóvember sýning á glergluggum í
Gallerie la Roue í París og loks
í vor sýning á glergluggum og
nýjum málverkum í Druan Gall-
ery í London.
Aðspurð kvaðst Nína hafa unn-
ið mikið í gler að imdanförnu.
Gluggana sjálfa hefur hún unnið
í gluggagerðarverkstæði Oitmans
í Linnich í Rínardalnum. — Það
er ekki hægt að eiga heima hjá
sér þvílíkar birgðir af margvís-
lega litum glerjum og öðru sem
með þarf, segir hún. Auk þess
þarf stundum að brenna glerið í
sérstökum ofnum.
Áður en Nína kom hingað, var
hún að gera uppdrætti að 10
gluggum 1 kirkju, sem verið er
að stækka og gera upp skammt
frá Linnich, og þangað ætlar hún
að skreppa eftir að hún kemur
út aftur, til að líta eftir verkinu,
en um þessar mundir er verið að
vinna gluggana á verkstæðinu.
Lofsamlegir dómar í erlendum
blöðum
í sambandi við sýningarnar
þrjár var mikið skrifað um Nínu
Tryggvadóttur í blöð í öllum
löndunum þremur, og fengum
við að líta í úrklippur með um-
sögnum um hana. Það er skemmst
frá að segja, að dómar gagnrýn-
enda eru allir mjög lofsamlegir.
Ekki er hér rúm til að birta nema
örfáar glefsur úr umsögnunum.
Um sýnunguna í London segir t.
d. í listatímaritinu Burlington
Magazine: Þar voru nokkrir af-
bragðs góðir abstrakt glerglugg-
ar, sem mundu prýða nútímabygg
ingar -hvar sem væri í heiminum.
Gagnrýnandi listatímaritsins
Apollo segir m.a., að loksins sé á
ferðinni kvenmálari með verk,
sem ekki séu of skrautleg eða
of fáguð. Málverk Nínu séu sterk,
litrík og langt frá því að vera
uppi í skýjunum. Hann getur þess
að um greinilega jafna og áfram-
haldandi þróun sé að ræða í verk-
um listakonunnar síðustu 10 árin.
I Art News and Review í Lond-
on segir J. P. Hodin, sem mánað-
arlega skrifar dálkinn „Portrait
of an artist“, í blað sitt: í uppi-
stöðunni í list Nínu Tryggvadótt-
ur vottar alltaf fyrir hinu ís-
lenzka landslagi með sínum
sterku andstæðum og dularfullu
fegurð, sem útilokar Rómantízku
stefnuna úr verkum hennar. Þetta
er íslenzka landslagið, sem Eddu
sögurnar eru upprunnar í, í senn
villt og fágað.
Og Yvonne Hagen segir í París-
arútgáfu New York Herald Tri-
bune: Eg hefi alltaf dáðst að hinu
íhugula og skáldlega andrúms-
lofti, sem listakonunni hefur tek-
izt að ná með rólegum og einföld-
um samsetningum lita og forma.
Pictures on Exhibit segir sl.
vetur: Eg held að glerið sé henn-
ar bezta efni til tjáningar. Þar
nær hún að gefa rúminu sérstaka
eiginleika. Afstaða þessara verka
gagnvart nútímalist er sú sama
eins og miðaldaglerglugganna
gagnvart sinni samtímalist.
í franska blaðinu Cimaise seg-
ir, að áhorfandinn verði sér smám
saman meðvitandi um hina marg
breytilegu og eftirtektarverðu
þætti í verkum Nínu Tryggva-
dóttur, sem séu einfaldir, ná-
kvæmir og klassískir.
Og Aujourd ’hui, sem er eitt
mest lesna listablað Frakklands
segir m.a.: Hún hefur skapað nú-
tíma „gotik“ og hefur tekizt að
forðast alla smámunasemi, sem
svo oft er að finna í nútíma
abstrakt glermyndum. Hún hef-
ur alls ekki misst sjónar af nátt-
úrunni og ekki útilokað hana úr
verkum sínum, en frá henni hef-
ur hún einmitt þessa hlýju. Það
er eins og einhver ósýnileg hendi
hafi varpað handfylli af glóandi
steinum yfir skraufþurran eyði-
merkurflöt, hafi síðan raðað þeim
saman á ný, þangað til mynduð-
ust margvíslegar bylgjandi lita-
öldur og þá loks kælt þá í því
formi, svo að þeir megi eilif-
lega bera vitni um yfirvegaða
sköpun.
Þetta eru, eins og áður er sagt,
aðeins glefsur úr dómunum um
listsýningar Nínu Tryggvadóttur
á síðasta ári.
Hennar er getið sem alþjóðlegs
listamanns, sem upprunninn er á
Islandi í bókum um listamenn og
listaverk okkar tíma. T.d. er á
hana minnzt í grein um „Glerlist
á okkar öld“ í tímaritinu Das
Kunstverk og birt mynd eftir
hana minnzt í grein um „Glerlist
list á þessari öld. Einnig á húa
myndir á tveimur síðum í vönd-
uðu hefti af Quadrum, sem gefið
er út í Bruxelles af Palais de
Beaux Arts.
Frá sýningu Nínu Tryggvaoóttur
Ungmennafélagið Ólafur Pá
í Dalasýslu 50 ára
úr
skrifar
daglega lífinu
j
Reiðgötur vantar
F TM síðastliðna helgi fór stór
U hópur hestamanna og kvenna
í skemmtiferð upp að Kolviðar-
hóli, og dvaldist í tjöldum um
nóttina. Var mikil þátttaka í
ferðinni og gaman að sjá alla
>á fallegu hesta, sem nú eru í
eigu Reykvíkinga. Að vísu rigndi
svo mikið um nóttina, að sumir
munu hafa vaknað í pollum um
morguninn. En enginn er verri
þó hann vökni og ekki eyðilagði
það ánægjuna.
Áhugi Reykvíkinga fyrir þess-
ari ágætu og gömu íþrótt fer
greinilega vaxandi. En þegar
þeir eru orðnir svona margir, sem
um helgar bregða sér á bak góð-
um gæðingum, verður það enn
þá tilfinnanlegra að reiðvegi
vantar alveg meðfram bílveg-
unum. Þó bílstjórar vilji fúslega
fara varlega framhjá ríðandi
mönnum og draga úr ferð, er
ekki hægt að ætlast til slíks þeg-
ar um stóra og dreifða hópa ríð-
andi manna er að ræða. Ög þó
hestar reiðmannanna séu óhrædd
ir við bíla, þarf ekki mikið út
af bregða til að slys verði, þegar
umferðin er mest á þjóðvegunum
kringum bæinn, t. d. ef gott er
veður á sunnudögum og allir,
sem vettlingi geta valdið
streyma út úr bænum.
Meðfram vegunum í næsta ná-
grenni bæjarins þurfa að koma
reiðgötur, a. m. k. verður að gera
ráð fyrir þeim, þegar nágrenni
bæjarins er skipulagt. Alltaf
byggist meira og meira og
þrengra verður milli girðing-
anna og veganna. Ættu hesta-
mannafélögin að vinna af alefli
að þessum málum, áður en það
er orðið of seint og tryggja það,
að reiðgötur verði meðfram ve-
um í nágrenninu í framtíðinni.
Ríðandi menn víkja
til hægri
MÉR sýnist, að flestir hesta-
menn hafi áttað sig á því,
að samkvæmt nýju reglunum,
eiga þeir að víkja á hægri veg
arbrún, á móti umferðinni, þó
einstaka maður virði ekki þá
reglu.
En ég held; að bifreiðastjór-
arnir viti það ekki nærri allir,
að til þess er ætlazt að hestarnir
fari fram hjá þeim hægra megin.
Annars virðist mér að yfirgnæf-
andi méiri hluti bifreiðastjora
hafi fullaa skilning á því, að
Minntist afmælisins med veglegu
hófi sl. laugardag
SUNNUDAGUR 26. júlí sl. var haldið hátíðlegt 50 ára
afmæli Ólafs Pá í Laxárdal. Frú Kristjana Ágústsdóttir, formaður
félagsins, setti hátíðina og bauð gesti velkomna. Saman var kominn
mikill fjöldi eldri og yngri félaga. Friðjón Þórðarson, sýslumaður,
stjórnaði dagskránni. Undir borðum fluttu ræður og ávörp þessir
menn: Sigtryggur Jónsson, hreppstjóri, Hrappsstöðum, Jóhann
Bjarnason frá Búðardal, Ólafur Bjarnarson, bóndi, Brautarholti,
Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum, Páll Ólafsson frá Hjarðar-
holti, fyrrv. ræðismaður og Eggert Ólafsson, prófastur, Kvenna-
brekku. Einnig var sameiginlegur söngur undir stjórn Magnúsar
Jónssonar frá Kollafjarðarnesi.
Heiðursfélagar kjörnir.
Að loknu borðhaldi í veitinga
húsinu var haldið til samkomu-
húss félagsins að Sólvangi. Þar
söng Vorboðinn, söngfélag Lax-
dælinga, nokkur lög undir stjórn
Magnúsar Jónssonar. Því næst
rakti Sigtryggur Jónsson sögu
félagsins, Páll Ólafsson frá Hjarð
arholti flutti ávarp, en hann var
fyrsti formaður þess. Lýsti hann
því yfir, að hann og kona hans
frú Hildur, hefðu ákveðið að
færa félaginu nokkra fjárhæð að
gjöf, er verja skyldi til að efla
söngstarfsemi á vegum félagsins.
Að loknu ávarpi hans söng Vor-
boðinn frumsamið ljóð eftir hann,
er tileinkað var þessum afmælis-
degi. Nokkrir gamlÍF félagar
voru gerðir áð heiðursfélögum og
öðrum, er áður höfðu hlotið þá
viðurkenningu, voru ennfremur
afhent heiðursskjöl sín. Þessir
félagar voru heiðraðir:
1. Páll Qlafsson frá Hjarðar-
holti, nú til heimilis í Hafnar-
firði.
2. Ásta Ólafsdóttir frá Hjarðar
holti, húsfreyja að Brautarholti.
3. Kristín Ólafsdóttir frá Hjarð
arholti, nú læknir í Reykjavík.
4. Björn Sýrusson frá Hömr-
um, nú til heimilis í Reykjavík
5. Sigtryggur Jónsson frá
Hömrum, hreppstjóri, Hrapps-
stöðum.
6. Jóhann Bjarnason frá Leið-
ólfsstöðum, nú búsettur í Reykja
vík.
7. Jakob Benediktsson, bóndi
og vegaverkstjóri, Þorbergsstöð-
um.
gæta þarf fyllstu varúðar, þeg-
ar ekið er fram hjá ríðandi
mönnum.
Skrautgarðar alls ekki
ljótir í ár
MAÐUR nokkur hringdi til
Velvakanda. Kvaðst hann
vera óánægður með þá ákvörðun
Fegrunarfélagsins að veita ekki
verðlaun fyrir fallegustu garð-
ana í bænum í þetta sinni. Þó illa
hafi viðrað fyrri hluta sumars
og mikið skemmzt í görðum, þó
væru margir fallegir garðar í
bænum. T. d. virtist sér sumir
garðarnir, sem hlutu verðlaun í
fyrra og árinu áður, sízt ljót-
ari núna. Hann væri ekki frá
því, að þeir væru meira að segja
heldur ferskari en venjulega á
þessum tíma.
Aftur á móti sagðist hann hafa
orðið þess var, að fólk, sem gam-
an hefur af því að skoðd fallega
garða, færi ekki í gönguferðir
um bæinn í því augnamiði núna,
þar sem það tryði því, að ekkert
væri að sjá og skrautgarðarnir
ekki svipur hjá sjón.
Það væri sem sagt vitleysa, og
vill hann hvetja bæjarbúa til að
láta ákvörðun Fegrunarfélagsins
ekki verða til þess að þeir missi
af því að njóta þess að sjá garð-
ana i sínu fegursta skrúði.
8. Hallgrímur Jónsson frá Ljár
skógum, stöðvarstjóri, Búðardal.
Af hálfu Egils Benediktssonar,
veitingamanns í Reykjavík, var
því lýst yfir, að hann og nokkrir
aðrir fyrrverandi formenn umf.
Ól. Pá, hefðu ákveðið að færa
félaginu gjöf, er síðar yrði af-
hent.
Kvæðalestur.
Að lokum lásu Jóhann Bjama-
son og Ragnar Þorsteinsson upp
nokkur kvæði, er birzt höfðu 1
blaðinu „Vetrarbrautin", er eitt
sinn var gefið út á vegum félags
ins. Voru það frumsamin Ijóð
eftir Jón frá Ljárskógum, Jóhann
Bjarnason og Jóhannes úr Kötl-
um Hallgrímur Jónsson' frá Ljár
skógum las og upp frumsamið
kvæði, sem ekki hefur áður birzt.
Að síðustu sungu allir þjóðsöng-
inn.
Afmælishátíð þessi fór hið
bezta fram í alla staði. Veður var
ágætt. Ljóst er, að félag þetta
á langa og merka sögu að baki
og hefur átt marga og góða íé~
laga innan sinna vébanda, er all-
ir minnast félagsstarfsins með
gleði og þakklæti. Er það von
manna, að Jélagið megi áfram
lifa og starfa á sama grundvelli
og gert hefur verið.
Stjórn Umf. Ólafs Pá, skipa
nú: Kristjana Ágústsdóttir, Búð-
ardal, formaður, Benedikt Jó-
hannesson, Saurum, gjaldkeri, og
Jens Guðbrandsson, Höskulds-
stöðum, ritari. Meðstjórnendur:
Bjarni Finnbogason og Friðjón
Þórðarson, Búðardal.
Fréttaritari.
Klinikstúlka
Reglusöm og hreinleg stúlka
óskast til starfa 'á tannlækn-
ingastofu i Vogunum, frá 1.
okt. Skrifuð umsókn leggist
inn á tannlækningastofu mína.
GUNNAR SKAFTASON
Snekkjuvogi 17.